Fréttablaðið - 15.09.2005, Blaðsíða 38
2 ■■■ { BÍLAR } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
fyrsti bílinn }
Ný og öflugri vél
Subaru Forester er um þessar mundir að
koma með nýrri og enn öflugri vél. Vélin
fer úr 125 hestöflum í 158 hestöfl. Að
auki er bíllinn betur búinn og má þar
nefna 16“ álfelgur, meiri veghæð og fleira.
Heimamenn mæta sterkir til leiks
Í dag opnar fyrir almenningi 61. IAA bílasýning í Frankfurt í Þýskalandi. Sýningin er ein
af stærri bílasýningum í heiminum og að þessu sinni er ekkert lát á uppákomum.
SUBARU FORESTER:
Vélar: 2,0 158 hö
Skipting: bsk, ssk
Dyrafj.: 5
Sæti: 5
Stöðugleikabúnaður:
Sídrif, ABS með EBD
spólvörn
Umboð: Ingvar Helgason
Verð frá: 2.390.000
Sá eftir fyrsta bílnum
Fyrsti bíllinn minn var Suzuki Swift árgerð 1988. Ég eignaðist hann
eiginlega áður en ég var komin með bílpróf. Þetta var hvítur, lítill og
sætur bíll. Ég bjó í sveit fyrir norðan og fór í bæinn og fann bílinn.
Hann var einhvers staðar að austan en hafði aldrei
komið út á malarveg þrátt fyrir það og hafði verið
fluttur sjóleiðina suður. Þennan bíl átti ég í
fimm ár og notaði hann allan tímann sem ég
var í menntaskóla. Foreldrar mínir bjuggu þá
í Laxárvirkjun í Aðaldal en ég var í skóla á
Akureyri og þau voru bara fegin að ég væri
akandi frá og með afmælisdeginum mín-
um. Það þótti líka töluvert skref á
þeim tíma að fá bílpróf en mér finnst
eins og krakkar séu eitthvað rólegri
yfir þessu í núna. Ég var að verða 22
þegar ég seldi þennan bíl og ég sá
alveg hrikalega mikið eftir honum en
ég var ólétt að syni mínum og ákvað
að kaupa mér meiri fjölskyldubíl.
Þessi var bara tveggja dyra en ég
ákvað að kaupa mér fjögurra dyra
bíl. Þá keypti ég mér Peugeot og hef
átt Peugeot síðan. Mér þótti samt
mjög vænt um þennan bíl og hann
reyndist mér vel.
Þó að gestir og gangandi fái ekki að fara um svæðið á
bílasýningunni í Frankfurt fyrr en í dag hefur vikan
verið notuð í afhjúpanir og sölusýningar fyrir við-
skipta-, bílaiðnaðar- og fjölmiðlafólk. Sýningin hófst
því í raun á mánudag með trompi þegar dr. Wolfgang
Bernhard, maðurinn sem ber ábyrgð á Volkswagen-
merkinu, afhjúpaði nýjan harðblæjubíl frá þýska bíla-
framleiðandanum. Mikil leynd hefur ríkt yfir útliti Eos
og því var eftirvæntingin mikil. Fæstir urðu fyrir von-
brigðum þegar hulunni var svipt af og í ljós kom stíl-
hreinn og sportlegur bíll, þróaður frá Concept C bíln-
um sem Volkswagen kynnti fyrir ári.
Annar þýskur framleiðandi sem vakti óskipta athygli
var BMW. Bæði var það fyrir Mini hugmyndabíl, sem
var nefndur Frankfurt í tilefni afhjúpunarinnar og er
eins konar blanda af sportbíl og fjölnotabíl, og einnig
fyrir BMW Z4 hugmyndabílinn sem þykist ekki vera
neitt annað en hann er; hreinræktað tryllitæki.
Af öðrum þýskum bílum sem kynntir voru til leiks má
nefna Smart Crosstown frá DaimlerChrysler. Þó að
hann minni meira á golfbíl en fólksbíl stefnir hann
ótrauður á Ameríkumarkað. Meðal búnaðar má nefna
tengi fyrir USB og lófatölvur, blæju, niðurfellanlega
framrúðu og 16“ felgur sem koma frekar spánskt fyrir
sjónir á bíl sem er undir 170 cm á lengd.
Auk þessara bíla hefur XK, nýr lúxusbíll frá Jagúar,
vakið mikla athygli, sem og Audi Q7, nýr Honda Civic
og sérlega spræk útgáfa af Skoda Octavia. Um síðast-
nefndu þrjá bílana og marga fleiri er fjallað annars
staðar í blaðinu.
Á IAA bílasýningunni eru rúmlega 1.000 aðilar frá 44
löndum að sýna vörur sínar og framleiðslu, allt frá
verkfærasettum upp í flutningabíla. Sýningin stendur
til 25. september. Þangað til geta gestir skoðað, fræðst
og prufukeyrt framtíðina í bílaheiminum.
Mini Concept Frankfurt hugmyndabíll. Gefur forsmekkinn af
næstu kynslóð þessa nýupprisna bíls.
Smart Crosstown er ekki stór en stefnir þó á Ameríkumarkað og ætlar sér þangað á snjallri hönnun og frumlegum staðalbúnaði.
Harðblæjubíllinn Volkswagen Eos, nefndur eftir grískri gyðju dög-
unar. Og hvern langar ekki að keyra einn svona í morgunsárið?
BMW Z4 Coupé hugmyndabíll. Þegar breskur blaðamaður sá bíl-
inn á mánudag sagði hann: „Þessi verður að fara í framleiðslu.
Hann bara verður.“
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
.Ó
L.
SVANHILDUR HÓLM VALSDÓTTIR
Lancia Stratos fær nýtt líf
Á bílasýningunni í Frankfurt mun Fenomenon Holistics hönnunarteymið
kynna til sögunnar afsprengi sitt, Stratos Roadster.
Roadsterinn er þróaður út frá Lancia Stratos, vinsælum sportbíl frá áttunda
áratugnum. Sá sem leiðir Fenomenon Holistics er einmitt hinn 27 ára gamli
Christian Hrabalek sem á fleiri Stratosa en nokkur annar í heiminum og er
álitinn eins konar yfirvald þegar kemur að þessum sögufræga bíl. Markmið
hans var að gera nýja útgáfu af bílnum sem þó næði að fanga kjarna og and-
rúmsloft þessa gamla Lancia-bíls, sama hvað það kostaði. Það þykist hafa
tekist listavel og nú er bara að sjá hvort bíllinn fari í framleiðslu eða hvort
hann dúkki upp á safni Christians.
Fenomenon Stratos Roadster hugmyndabíllinn. Hvern gæti grunað að hann væri byggður
á þrjátíu ára gömlum bíl?
BÍLASÝNINGIN Í FRANKFURT