Fréttablaðið - 15.09.2005, Side 42

Fréttablaðið - 15.09.2005, Side 42
6 ■■■ { BÍLAR } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ Hitasveiflur og selta kalla á ryðvörn Hér á landi eru flestir nýir bílar ryðvarðir áður en þeir fara á göturnar og sumir reglu- lega eftir það. Baldur Jónsson rallkappi vinnur í Bílaryðvörn á Bíldshöfða. Hér sést undirvagn á þriggja ára bíl sem var ekki ryðvarinn áður en hann fór á götuna. Bílarnir fá gott steypibað eftir meðferðina í ryðvarnarskálanum. „Við ryðverjum hurðirnar, sílsana, brettakantana og botninn eins og hann leggur sig,“ segir Baldur og telur tvímælalaust þörf á þessari aðgerð hér á okkar norð- lægum slóðum. „Bílar eru með svokallaða verksmiðj- uryðvörn þegar þeir koma til landsins sem dugar kannski þar sem hitasveiflur eru litlar og seltan er ekki að hrella menn. En sú ryðvörn nægir ekki hér,“ segir hann og nefnir líka að notkun tjöruhreinsis geti valdið ryði sé vörn ekki fyrir hendi. „Ef maður er að tjöruþvo bíl og úðar mikið á opnanlegu rúðurnar getur tjaran lekið ofan í hurðirnar og étið upp vörnina,“ útskýrir hann. Baldur segir mikla þróun hafa orðið í efnunum sem notuð eru til ryðvarnar, enda séu hátæknifyrirtæki að framleiða þau. „Þetta er toppefni sem búið er að rann- saka fram og til baka og í því felst líka mikil hljóðein- angrun,“ segir hann og getur þess að efnafyrirtækið sem Bílaryðvörn skipti við hafi verið á lyfjamarkaði. Átta ára ábyrgð er á ryðvörninni hjá Bílaryðvörn og Baldur segir stóran hluta kaupenda viðhalda þeirri ábyrgð með því að koma með bílana á tveggja ára fresti. Hann nefnir dæmi um gildi þess. „Einn þeirra bíla sem kemur með réttu millibili er tuttugu ára gamall Bens sem er að jafnaði í seltunni úti í Vest- mannaeyjum. Hann er enn eins og nýr.“ Nauðsynlegt er að vandað sé til verka við ryðvörnina og lykilatriði að allir fletir séu hreinir og þurrir áður en kvoðunni sé sprautað á þá, að sögn Baldurs. „Við erum með 35 ára reynslu og það hefur bara sýnt sig að þeir bílar sem eru ryðvarðir vel endast,“ fullyrðir hann að lokum. „Þeir bílar sem eru ryðvarðir vel endast,“ segir Baldur Jónsson rallkappi sem hér er ásamt Jóni Aðalbjörnssyni verkstjóra sem hefur starf- að hjá fyrirtækinu í 28 ár. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA Stærri og úthugsaðri en áður Honda Civic vekur gríðarlega athygli fyrir flott útlit. Nýr Honda Civic hefur nú þegar vakið athygli fyrir flott útlit. Aðeins sex mánuðum eftir að hugmyndabíll Honda Civic var sýndur á bílasýning- unni í Genf er framleiðslubíllinn frumsýndur í Frankfurt. Það vekur eftirtekt að breytingin frá hug- myndabíl til framleiðslubíls hefur gengið eftir á stuttum tíma og lítið hefur verið um breytingar frá útliti hugmyndarinnar. Nýi Honda Civic bíllinn sameinar at- hyglisverðan stíl í flottri og snjallri útfærslu. Styrkt framfleygt (cab- forward) formið er aðalatriðið, en það kemur ekki niður á sveigjanleika og búnaði, þar sem ekkert hefur verið til sparað. Innanrými þessa nýja Civic er á pari við stærri bifreiðar í D-flokki. Aftursætunum er þannig hagað að með aðeins einu handtaki er hægt að fella sætin niður til að mynda flatt gólf. Undir gólfinu er einnig mikið geymslupláss með ýmsum hólfum. Honda hefur séð til þess að Honda Civic verði sá öruggasti í sínum flokki og reiknar með því að þessi Civic fái 5 stjörnu EURO NCAP viðurkenningu fyrir fram- og hliðar- árekstursöryggi, 3 stjörnur fyrir öryggi gangandi vegfarenda og 4 stjörnur fyrir öryggi barna í bílnum. HONDA CIVIC Vélar: 1,8 (B), 2,2 (D) og 1,4 (D) Skipting: bbs, ssk Dyrafj.: 3/5 Sæti: 5 Stöðugleikabúnaður: Já Umboð: Bernhard Verð frá: Auglýst síðar fyrsti bílinn } Skoða alltaf Skódaauglýsingar „Fyrsti bílinn minn var Skóda Oktavía og ‘63 árgerð. Handmálaður ljósbrúnn og mikið trylli- tæki,“ segir Árni og segir að bíllinn hafi verið mjög merkur gripur. Hann kostaði á þeim tíma 23.000 krónur og fóru allir sumarpeningar Árna í kaupin á þessu mikla tryllitæki. „Ég keypti hann í Reykjavík og ók um höfuð- borgina til að byrja með. Síðan tók ég hann með mér til Eyja í gosinu ‘73,“ segir hann en Skódinn sem fór með Herjólfi til björgunarstarfa reyndist mikið þarfa- þing í Vestmannaeyjum. Bíllinn þjónaði eiganda sínum í tvö heil ár áður en hann gaf upp öndina. „Ég varð að jarða hann þegar rúðuþurrkurnar fóru að virka sem startari. Það leiddi saman orðið rafkerfið og ég var aldrei viss hvort ég var að nota rúðuþurrkurnar eða starta bílnum.“ Árni hugsar með mikilli hlýju til þessa góða grips sem átti eftir að hafa áhrif á bílakaup hans í framtíðinni. „Þetta varð til þess að ég keypti fleiri Skódabíla til að byrja með, og skoða alltaf Skódaauglýsingarnar.“ ÁRNI SIGFÚSSON

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.