Fréttablaðið - 15.09.2005, Síða 50

Fréttablaðið - 15.09.2005, Síða 50
14 ■■■ { BÍLAR } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ Nýr og breyttur Toyota RAV4 var frumsýndur á bílasýningunni í Frankfurt nú á dögunum. Miklar breytingar hafa verið gerðar frá fyrri árgerð þar sem mikil áhersla hefur verið lögð á aukið farþegarými og enn betri aksturseiginleika. Enn meiri áhersla hefur verið lögð á öryggi í nýjum RAV4, sem verður fá- anlegur með sjö loftpúðum og er eini smájeppinn sem hefur hnéloft- púða til varnar hnjám ökumanns. Undirvagn bílsins sérstaklega styrkt- ur og hannaður með þeim hætti að hann dregur í sig högg. Nýr RAV4 er 145 mm lengri en fyrri árgerðir og haf á milli hjóla hefur verið lengt um 70 mm. Bíllinn er út- búinn með Toyota EasyFlat búnaði á aftursætum sem gera það kleift að fella niður sætin með einu handtaki og þegar þau hafa verið lögð niður er gólfið alveg flatt. Nýr Toyota RAV4 verður fáanlegur hér á landi í byrjun næsta árs. Þriðja kynslóð frumsýnd Nýr og breyttur Lexus IS kemur á markað seint á þessu ári en bíllinn hefur tekið stakkaskiptum frá fyrri árgerð bæði í útliti og allri innri gerð. Lexus IS verður fáanlegur í þremur grunnútfærslum og verður ríku- lega búinn staðalbúnaði. Meðal staðalbúnaðar í Lexus IS verður af- ísingarbúnaður í framrúðu, lykla- laust aðgengi, 13 hátalarar, sex diska geislaspilari og 17 tommu álfelgur, hliðarloftpúðar, loftpúðar í mælaborði, loftpúðagardínur og hnjáloftpúðar fyrir ökumann og farþega. Lexus IS er fyrsti bíllinn sem hefur loftpúða í mælaborði sem eru í tveimur hlutum og laga sig að líkama farþegans við árekst- ur og eykur þar með öryggi til muna. Farþegarými hefur verið endurbætt og glæsilegar innréttingar í Lexus IS auka mikið á þægindi farþega og bílstjóra. Lexus IS verður fáan- legur hér á landi í lok árs 2005. Þægindi og öryggi í fyrirrúmi Meðal staðalbúnaðar í Lexus IS eru 13 há- talarar, fjöldi loftpúða og afísingarbúnaður á framrúðu. RAV4 Vélar: 2,0 (B) og 2,2 136 hö (D) Skipting: ssk, bsk Dyrafj.: 5 Sæti: 5 Stöðugleikabúnaður: HAC, DAC, VDIM stöðugleikastýring Umboð: P. Samúelsson Verð frá: Auglýst síðar Öruggari, stærri og betri aksturseiginleikar. Nýr RAV4 verður fáanlegur í byrjun næsta árs. Skiptanlegir toppar eru málið Skoda hefur verið þó nokkurn tíma að þróa og betrumbæta Yeti hug- myndabílinn sem kynntur var til leiks í Frankfurt nú í vikunni. Hugmyndin að baki bílnum er sú að einn bíll geti þjónað mörgum hlut- verkum. Þess vegna er hægt að skipta toppnum á honum út og hafa hann allt frá tusku og yfir í harðan topp sem leggst saman í hólf aftur í bílnum. Þá er einfalt að færa hátalarana við hljómflutningstækin út úr bílnum svo hægt sé að hlusta á tónlist fyrir utan hann. Þó að bíllinn sé ekki stór getur hann nýst sem pallbíll beri það við. Það er þó hæpið að íslenskir bændur eða sjómenn sjái sér hag í að kaupa bílinn enda er hann aðallega hugsaður fyrir borgarakstur og sportnotkun. Skoda Yeti er hannaður sem margnotabíll með endalausa möguleika. BÍLASÝNINGIN Í FRANKFURT Á bílasýningu þessa árs í Frankfurt (IAA) frumsýnir Skoda Auto nýjar og sportlegar útgáfur af Skoda Octavia RS. Um er að ræða tvær gerðir, skut- bíl með afturhlera og hefðbundinn skutbíll. Octavia RS fylgir í fótspor hins vinsæla fyrirrennara síns með heillandi og framsækinni hönnun og öflugri 2.0 TFSI bensínvél með for- þjöppu og beinni innspýtingu sem skilar 200 hestöflum. Skoda heldur áfram að tryggja sér sess sem framleiðandi vandaðra og góðra bíla með nýjum RS útgáfum af Skoda Octavia. BÍLASÝNINGIN Í FRANKFURT Nýr Octavia RS Öruggasti smábíllinn Peugeot 1007 er fyrsti smábíllinn sem skorar fullt hús stiga í EuroNCAP árekstrarprófinu. Meðal bíla sem Frakkar sýna í Frankfurt í ár er Peugeot 1007. Smábíll sem vakið hefur athygli fyrir mikinn öryggisbúnað og raf- stýrðar rennihurðar sem henta einkar vel. Peugeot 1007 sló í gegn í EuroNCAP árekstrarprófinu og fékk bestu mögulegu einkunn eða 5 stjörnur í framan- og hliðarárekstarprófi og er þar með fyrsti smábíllinn sem nær hámarkseinkunn upp á 36 punkta. Útkoman úr prófinu sýnir á áhrifa- mikinn hátt að þessi nútímalegi bíll býður upp á mikið öryggi. Meðal staðalbúnaðar í bílnum eru 7 loft- púðar, tvær þriggjapunkta-isofix- festingar fyrir barnastóla aftur í. Í Peugeot 1007 eru jafnframt skynjar- ar í öllum sætum sem gefa frá sér viðvörunarhljóð ef farþegar gleyma að spenna sætisbeltin eða ef ein- hver losar beltið þegar bíllinn er á ferð. Lögun bílsins er einnig talin lágmarka slys á fólki ef til óhapps kemur. Peugeot 1007 setur einnig línurnar í virku öryggi í sínum flokki þar sem ABS hemlalæsivörn, ESP stöðu- leikakerfi, EPD átaksdreifing á hemlum, rafræn bremsukraftsdreif- ing og neyðarhemlunaraðstoð er staðalbúnaður í 1007 línunni. Peugeot 1007 er einstakleg aðgengi- legur þökk sé rafstýrðum renni- hurðunum og háum sætum. Innan- rýmið í þessum smábíl er líka sér- staklega mikið. PEUGEOT 1007 Vélar: 1,4 (B), 1,6 (B) og 1,4 (D) Skipting: bsk, ssk Dyrafj.: 2 Sæti: 4 Stöðugleikabúnaður: Já Umboð: Bernhard Verð frá: 1.599.000 kr. fyrsti bílinn } Gerði sjálf við bensíngjöfina Fyrsti bíllinn minn var gamall Skódi og auðvitað var hann stund- um kallaður Skódi ljóti enda var hann svolítið ljótur. Ég var samt voða ánægð með hann og hann reyndist mér vel. Hann rauk alltaf í gang og gerði það sem til var ætlast af honum hverju sinni þannig að hann var mér á allan hátt þægur. Þó fór bensín- gjöfin einu sinni í honum en þar sem þetta var fremur einföld bifreið gat ég gert við bensíngjöfina sjálf og var ansi stolt af. Ég var orðin 24 eða 25 ára þegar ég keypti Skódann. Var búin að vera með prófið í nokkur ár og keyra heilmikið því ég var satt að segja með dálitla bíladellu. En Skódinn var fyrsta farartækið í minni eigu og var notaður alveg óspart. Mér var alltaf fremur hlýtt til hans. Svo held ég að ég hafi selt hann fyrir slikk þegar ég fór utan í nám. Ég á reyndar Skóda núna líka en það er allt ann- ar bíll og mun fallegri enda er hann aldrei kallaður Skódi ljóti. VALGERÐUR JÓHANNSDÓTTIR FRÉTTAMAÐUR FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA LEXUS IS 250 Lexus IS 250 Vélar:2,5 204 hö (B) Skipting: 6 g/bsk, 6 g/ssk Dyrafj.: 4 Sæti: 5 Stöðugleikabúnaður: ABS, EBD og BA hemlunarkerfi, VSC skriðvörn og PCS árekstravörn. Umboð: P. Samúelsson Verð: Auglýst síðar
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.