Fréttablaðið - 15.09.2005, Blaðsíða 61
Lýðskrumara gengur vel
Það sem helst kemur á óvart í kosning-
unum í Noregi, og raunar vekur ugg, er
hvað lýðskrumaranum Carl I. Hagen hef-
ur tekist að blekkja kjósendur til fylg-
islags við sig. Framfaraflokkur Hagens
sver sig í ætt við aðra hægri öfgaflokka í
Evrópu. Svo sem flokk Glistrup í Dan-
mörku, Le Pen í Frakklandi og Jörg
Haider í Austurríki. Pólitík þessara flokka
er einföld, þeir eru á móti útlendingum
og kappkosta við að verja hefðbundin
fjölskyldugildi, þeir vilja allir lækka skatta
verulega en um leið stórbæta velferða-
kerfið, sérstaklega kjör eldri borgara.
Sem betur fer hefur slíkur vitleysinga-
flokkur ekki enn náð fótfestu á Íslandi en
stundum hefur manni virst sem að öfl í
Frjálslynda flokknum gætu hugsað sér
að fara í þá átt. Að líkindum er það Guð-
jón Arnar sem hefur staðið á bremsunni.
Líkurnar á að flokkurinn þróist í þá átt
hafa efalaust minnkað eftir að Gunnar
Örlygsson fór yfir til Sjálfstæðismanna.
Eiríkur Bergmann Einarsson á eirikur-
bergmann.is
Verðbólgan og kaupmátturinn
Í fjölmiðlum er nú fjallað um verðbólg-
una sem komin er framúr verðbólgu-
markmiðum Seðlabankans en þau lágu
til grundvallar kjarasamningum bæði á
almennum vinnumarkaði og hjá hinu
opinbera. Fulltrúar Samtaka atvinnurek-
enda segja að vel komi til greina af
þeirra hálfu að segja upp kjarasamning-
um og í Fréttablaðinu er flennistór fyrir-
sögn yfir viðtölum við fulltrúa þeirra og
fjármálasérfræðinga: Kaupmátturinn í
landinu er of hár. Það má til sanns vegar
færa að sé því haldið fram að ef krónan
sé of hátt skráð miðað við þarfir ís-
lenskra framleiðsluatvinnuvega þá sé
jafnframt verið að segja að kaupmáttur
þjóðarinnar sem heildar sé of mikill. Hér
þarf þó að gera tvo mjög mikilvæga fyr-
irvara. Í fyrsta lagi eru mikil áhöld um að
hátt gengi krónunnar hafi skilað sér í
vöruverði á innfluttum varningi og þar
með í auknum kaupmætti almennings.
... Í öðru lagi þarf að gera alvarlegan fyr-
irvara við þá alhæfingu að kaupmáttur
allra sé of mikill.
Ögmundur Jónasson á ögmundur.is
Endalaust kjaftæði um jafnréttismál
Ég er orðin afskaplega þreytt á enda-
lausu kjaftæði um jafnréttismál. Ég vil að
eitthvað gerist, eitthvað sem sýnir að
okkur er alvara. Þess vegna var gott að
Ingibjörg Sólrún varð formaður Samfylk-
ingarinnar; þá gerðist eitthvað. Líka ef
Þorgerður Katrín (sem ég bind alltaf von-
ir við að verði aðeins meðvitaðri) verður
varaformaður Sjálfstæðisflokksins. Og
það gladdi mig að heyra í Runólfi
Ágústsyni rektor á Bifröst í Kastljósi þar
sem fram kom að þau þar ætla að
styrkja konurnar í nemendahópnum
með því að kalla til konur sem standa
framarlega í atvinnulífinu til að miðla
þeim af reynslu sinni. Þetta eru góð við-
brögð við niðurstöðum könnunar sem
sýndi að konurnar standa sannanlega
höllum fæti þegar út í atvinnulífið kem-
ur.
Svanfríður Jónasdóttir á jafnadar-
menn.is/svanfridur
Sameining sveitarfélaga
Segjum nú svo að sú sameingarhug-
mynd sem nú er upp á borðum yrði ekki
að veruleika. Þá finnt mér að við ættum
í fullri alvöru að skoða möguleika á sam-
einingu Hveragerðis og Ölfuss.ÝHvera-
gerði er náttúrulegur hluti af Ölfusi – er
bara þéttbýli í Ölfusi eins og Þorláks-
höfn.Ý“Þorláksgerði“ yrði stórt og öflugt
sveitarfélag, landfræðilega eðlilegt.
Næði frá hafi til fjalls og á aðra höndina
hin volduga Ölfusá, fjallið á hina.ÝEftir
tíu til tuttugu ár nær samfelld byggð.ÝNú
þegar eru þéttbýliskjarnar að spretta upp
á öðrum hvorum bæ.ÝÞað yrði svo
seinni tíma pæling hvort að „Þorláks-
gerði“ og Árborg sem auðvitað innbyrðir
litlu hreppana fyrr eða síðar sameinuðu
krafta sína.
Baldur Kristjánsson á baldur.is
29
Bændabragur á fréttaflutningi
Við Íslendingar teljum okkur vera mikla
heimsborgara í flestu sem við tökum
okkur fyrir hendur en eitt kom mér
mikið á óvart þegar ég flutti heim eftir
nokkurra ára búsetu erlendis, þ.e. ís-
lenskur fréttaflutningur. Í öllum þeim
hræðilegu hamförum sem hafa riðið
yfir heiminn á síðasta ári varð ég mjög
vonsvikin með fréttaflutninginn hér á
landi. Tökum sem dæmi fellibylinn
Katrinu sem lagði líf mörg hundruð
þúsund manna í rúst, ef ekki milljóna.
Eðli málsins samkvæmt var mikil
áhersla lögð á fréttir af hamfarasvæð-
unum og fréttaflutningur um málið tók
hluta fréttatímans. Þá var bæði frétta-
stofa Sjónvarpsins og Stöðvar 2 með
nokkurra mínútna pistla um allan þann
hrylling sem fylgdi í kjölfar fellibylsins.
Þar var jú fjallað um eyðileggingu húsa
og að margra þúsunda væri saknað og
að 60 þúsund manns sætu föst inni í
hinu svo kallaða Super Dome þar sem
það þyrfti að þola miklar hörmunar.
Síðan kom næsta frétt, sem var jafn-
löng og sú fyrsta og fjallaði um að ís-
lenskrar konu væri saknað í Mississippi
eftir fellibylinn. Með fullri virðingu fyrir
fjölskyldu þessarar konu og angist
þeirra fannst mér gert fullmikið úr því
máli. Sömu sögu var að segja með dag-
blöðin. Ein forsíðan var með fyrirsögn-
inni stórum stöfum: Íslenskrar konu
saknað í Mississippi og löng grein um
það henni meðfylgjandi. Annars staðar
var mynd af svartri konu með nakið
barn sitt í fanginu á flótta undan
glæpamönnum fyrir utan Super Dome
með texta undir myndinni og ekki
meira fjallað um það á þessari forsíðu.
Með þessu finnst mér verið að mis-
muna og sýna fórnarlömbum Katrínar
vanvirðingu. Mörg hundruð þúsund
manns eru heimilislausir, nokkur hund-
ruð látnir og tugir þúsunda lifðu við
ólýsanlegar aðstæður þar sem mann-
djöflar drápu, nauðguðu og rændu
slasaða, konur og börn. Að einn Íslend-
ingur sé týndur í öllum þessum hörm-
ungum fái jafn mikið vægi hjá íslensk-
um fréttastofum finnst mér ekki við
hæfi.
Þorgerður Pálsdóttir á tikin.is
Við sama heygarðshornið
Afstaða vinstri manna til menntamála
er lýsandi fyrir afstöðu þeirra til mála
almennt. Það hefur engu breytt þótt
vinstri menn kalli sig nú gjarnan „nú-
tímalega jafnaðarmenn“, „félags-
hyggjumenn“ eða „óháða“, þeir eru við
sama heygarðshornið og áður. Telji þeir
sig einhvers staðar sjá að gera megi
betur líta þeir jafnan til ríkiskassans og
vilja draga meira fé úr honum. Útgjöld-
in eru aldrei næg að þeirra mati og
þrátt fyrir að Ísland slái heimsmet í rík-
isútgjöldum vilja þeir að lengra sé
gengið.Á sama tíma gera þeir allt sem
þeir geta til að koma í veg fyrir að pen-
ingarnir verði nýttir skynsamlega.
Þannig hafa vinstri sinnuð borgaryfir-
völdin ítrekað brugðið fæti fyrir einka-
rekstur í skólakerfinu og vinstri menn
tala jafnan gegn slíkum rekstri. Þeir
mega ekki til þess hugsa að aðrir en
ríkisstarfsmenn kenni börnunum að
lesa eða unglingunum að reikna. Um
leið kvarta vinstri menn svo jafnvel
stundum yfir því að aðhaldið í ríkisfjár-
málum sé of lítið. Hver skyldi lausnin á
því svo vera? Jú, hún er að ríkið lækki
ekki skatta.
Vefþjóðviljinn á andriki.is
FIMMTUDAGUR 15. september 2005
AF NETINU
AF NETINU
Fjármögnun í takt við þínar þarfir
H
in
ri
k
P
é
tu
rs
s
o
n
l
w
w
w
.m
m
e
d
ia
.i
s
/h
ip
Suðurlandsbraut 22
108 Reykjavík
Sími 540 1500 Fax 540 1505
www.lysing.is
. . . er að læra að
lækka í græjunum
fiú velur hvort flú leigir bílinn me›
einkale igu e›a eignast hann me›
bílasamningi e›a bílaláni. Veldu bíl sem
hentar flínum flörfum og ræddu svo vi›
rá›gjafa L‡s ingar e›a sö lumenn
bílaumbo›anna sem a›sto›a flig vi› a›
útbúa umsókn og ganga frá fjármögnun.
Bílaumbo›in eru beintengd L‡singu í
gegnum Neti› flannig a› svar vi› umsókn
kemur á augabrag›i. fiú getur svo fundi›
fla› út í rólegheitum hvernig eigi a› lækka
í græjunum.
Nota›u reiknivélina á www.lysing.is og
sko›a›u hvernig flitt dæmi kemur út.
Bílasamningur Bílalán Rekstrarleiga Einkaleiga
Það eina sem er erfitt við
að kaupa nýjan bíl . . .