Fréttablaðið - 15.09.2005, Síða 62
Umsjón: nánar á visir.is
Stærsta flugfélag í Evrópu
Fréttir af viðræðum FL Group við Fons eignarhalds-
félag um möguleg kaup á Sterling hleyptu lífi í
pælingar um framtíð FL Group. Ljóst er að Hannes
Smárason, stjórnarformaður FL Group, dreymir
stóra drauma fyrir hönd félagsins. FL Group á stór-
an hlut í easyJet og með Sterling í farteskinu gæti
verið komin upp áhugaverð staða þar sem mögu-
leiki væri á sameiningu Sterling og easyJet. Teng-
ing við Atlantshafsflug Flugleiða myndi við það
aukast verulega. Það þýddi aftur á móti að hefjast
þyrfti handa fljótlega við að stækka flug-
stöðina í Keflavík.
Almar Guðmundsson og Pálmi Haralds-
son hafa verið á fullu í tiltekt í Sterl-
ing og margir eru þeirra skoð-
unar að Pálmi hafi einmitt
séð fyrir sér að Sterling
yrði góð söluvara eft-
ir tiltekt. Pálmi er öfl-
ugur fjárfestir og
fljótur að koma auga á hagræðingarmöguleika.
Líklegt er að hann hafi meira gaman af því að taka
skjótan hagnað og snúa sér að næsta verkefni, en
að burðast með stóra fjárfestingu í mörg ár.
Veltubók FL Group
Ráðning Alberts Jónssonar til FL Group frá Lífeyr-
issjóði ríkisstarfsmanna þykir einnig benda í
ákveðnar áttir í sambandi við framtíð FL Group.
Albert var virkasti lífeyrissjóðafjárfestirinn á
markaðnum og tók herfræðilegar stöður sem
skiluðu góðum hagnaði hvað eftir annað. Flug-
leiðir hafa sterkt sjóðstreymi og Albert mun
stýra ávöxtun þeirra fjármuna sem renna í gegn-
um félagið. Flugfélög þurfa stundum að bregð-
ast hratt við og breyta eignum í lausafé. Mark-
viss stýring slíkrar veltu getur haft mikla þýðingu
fyrir félagið. Hvert prósent í betri ávöxtun sterkr-
ar lausafjárstöðu skilar sér í reksturinn. Það má
því búast við aukinni þátttöku FL Group á hluta-
bréfamarkaði bæði hér heima og erlendis.
MESTA HÆKKUN
ICEX-15 4.514 Fjöldi viðskipta: 1.189
Velta: 4.910 milljónir
-2,17%
MESTA LÆKKUN
MARKAÐSFRÉTTIR...
Roger Lakhani tók nýlega við stöðu
fjármálastjóra Atlantis Group. Roger,
sem er 38 ára, hefur MS-gráðu í loft-
ferða- og geimferðavísindum frá MIT og
doktorsgráðu frá Tokyo Institute of
Technology í geimvélaverkfræði, auk
MBA-gráðu frá Instituto de Empresa frá
Madrid.
Landsframleiðslan á árinu 2004 varð
885 milljarðar og óx að raungildi um 6,2
prósent frá fyrra ári. Þessi vöxtur kemur í
kjölfar 3,6 prósent vaxtar á árinu 2003.
Vegna nokkru lakari viðskiptakjara og
aukinna vaxta- og arðgreiðslna til útlanda
uxu þjóðartekjur nokkru minna, um 4,9
prósent.
Samband íslenskra sveitarfélaga
hefur tekið saman yfirlit um þróun launa-
greiðslna sveitarfélaga og segir þær hafa
hækkað um tíu prósent á fyrri helmingi
þessa árs miðað við sama tímabil í fyrra.
30
Peningaskápurinn…
Actavis 40,40 -0,50% ...
Bakkavör 41,50 -1,60% ... Burðarás 17,80 -3,30% ... FL Group
14,50 -2,70% ... Flaga 3,90 -2,50% ... HB Grandi 9,10 +0,00% ...
Íslandsbanki 14,55 -2,40% ... Jarðboranir 19,80 -1,50% ... KB
banki 583,00 -1,70% ... Kögun 54,00 -2,20% ... Landsbankinn
21,70 -4,00% ... Marel 61,00 -3,30% ... SÍF 4,67 -1,090% ...
Straumur 13,50 -2,50% ... Össur 84,50 -2,30%
Ekkert félag hækkaði Icelandic Group -6,64%
Landsbankinn -3,98%
Marel -3,33%
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU:
Gærdagurinn var rauður í Kaup-
höllinni. Úrvalsvísitalan lækkaði
skarpt þriðja daginn í röð og hef-
ur þá fallið um fimm prósent frá
því á föstudaginn þegar hún náði
hæsta gildi frá upphafi, 4.748 stig-
um.
Dagurinn byrjaði með miklum
látum en vísitalan féll um þrjú
prósent á fyrsta hálftímanum. Öll
stóru fyrirtækin lækkuðu tals-
vert, að Actavis undanskildu, en
mest féllu bréf í Landsbankanum,
um 4,0 prósent. Bréf í KB banka
og Íslandsbanka lækkuðu um tvö
prósent en hlutabréf í fjórtán af
fimmtán félögum í Úrvalsvísitöl-
unni lækkuðu í verði.
Bjarki Logason, hjá greining-
ardeild Landsbankans, telur að
verðbólgutíðindin á mánudaginn
og neikvæð umræða um stöðu
efnahagsmála síðustu daga skýri
að miklu leyti þá lækkun sem orð-
ið hafi á hlutabréfum í vikunni,
ásamt því að eftir miklar hækkan-
ir undanfarnar vikur sé líklegt að
fjárfestar séu að innleysa hagnað.
Hann telur að um skammtíma-
lækkanir sé að ræða: „Það eru
engar slæmar fréttir að koma frá
fyrirtækjunum, sem flest hafa
verið að skila fínum uppgjörum
og standa í mikilli útrás. Þótt Úr-
valsvísitalan hafi fallið í vikunni
er hún í sama gildi og um miðjan
ágúst.“
Í Morgunkorni Íslandsbanka er
tekið í sama streng, að fjárfestar
séu að leysa út hagnað eftir mikl-
ar hækkanir undanfarið. „Ekki er
nema eðlilegt að markaðurinn
gangi að hluta til baka eftir þær
miklu hækkanir sem verið hafa
síðustu mánuði. Í því felast ein-
faldlega eðlileg skoðanaskipti
meðal fjárfesta á markaði,“ segir
í Morgunkorninu.
Bjarki segir að erfitt sé að spá
fyrir um framhaldið en ekki
kæmi á óvart þó markaðurinn
myndi lækka enn frekar, til dæm-
is geti neikvæð umræða í fjöl-
miðlum haft sitt að segja. „Við
höfum sagt það í nokkurn tíma að
markaðurinn sé frekar hátt verð-
lagður en ekki átt von á hruni
markaðarins. Það geta alltaf kom-
ið skammtímalækkanir eins og
við sáum á svipuðum tíma í fyrra.
Eðli hlutabréfamarkaða er að
sveiflast bæði upp og niður, þó
stefnan hafi að mestu verið upp á
við hérlendis síðustu ár, og því er
í raun ekkert óeðlilegt við þessar
lækkanir.“ eggert@frettabladid.is
Hlutabréf í Kauphöllinni
lækka þriðja daginn í röð
Öll Úrvalsvísitölufélögin nema eitt féllu í ver›i. Fjárfestar leysa út hagna› í
skugga slæmra ver›bólgufrétta.
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf ]
15. september 2005 FIMMTUDAGUR
N‡jar verslanir
í Kringluna
Fjórar alþjóðlegar tískuverslana-
keðjur bætast innan skamms við
verslunarflóru Kringlunnar. Þetta
eru kvenfataverslunin Whistles,
sem er í eigu Mosaic Fashions, All
Saints, sem opnar sína fyrstu
verslun utan Bretlandseyja,
Warehouse, sem er þekkt breskt
tískumerki, og Shoe Studio Group,
sem opnar aftur eftir endurbætur
en verslunin selur töskur og skó.
All Saints og Warehouse selja
tískufatnað og fylgihluti.
Verslanirnar verða þar sem
veitingastaðurinn Hard Rock
Café var áður til húsa.
- eþa
Pálmi Haraldsson, annar eigandi
danska flugfélagsins Sterling
Airways, segir viðræður við FL
Group um kaup á félaginu á byrj-
unarreit. Engar tölur um hugsan-
legt kaupverð hafi flogið á milli
manna. Hann hafi ekki enn hitt
forsvarsmenn FL Group enda sé
málið á borði ráðgjafa hans. Ein-
ungis sé búið að komast að sam-
komulagi um að hefja þessar við-
ræður að frumkvæði FL Group og
fyrsti formlegi fundurinn hafi
verið í fyrradag. Engum sé hleypt
óhikað í upplýsingar úr rekstri
flugfélags og því þurfi að nást
samkomulag um hvaða gögn
væntanlegir kaupendur fái í hend-
ur til að byggja tilboð sitt á. Nokk-
uð langt sé í að niðurstaðan fáist í
málið, hver sem hún verði.
„Sterling í dag er allt annað en í
gær,“ sagði Pálmi, en formlega var
gengið frá sameiningu Sterling og
Mærsk-flugfélagsins í fyrradag. Í
gær var 230 starfsmönnum svo
sagt upp störfum, sem Pálmi sagði
jafnvel mikið á danskan mæli-
kvarða. „Við erum að sameina tvö
stór félög í eitt stórt flugfélag og
segjum upp tæplega 200 manns
bara á skrifstofum,“ sagði hann en
það hefði ekki áhrif á flugstarf-
semina. Málið væri mjög vel undir-
búið og rætt hefði verið við verka-
lýðshreyfinguna og farið að tilsett-
um reglum.
Aðspurður um framtíð
lággjaldaflugfélagsins Iceland
Express, sem einnig er í eigu
Pálma og Jóhannesar Kristinsson-
ar, sagðist Pálmi ekkert geta sagt.
Hann vissi ekki ennþá hver vilji
FL Group væri. – bg
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
Ö
.S
.
Ekkert tilbo› í Sterl-
ing liggur fyrir
230 manns sagt upp hjá Sterling Airways í gær.
FLUGVÉLAR STERLING Uppsagnir 230 starfsmanna munu ekki hafa áhrif á flugstarf-
semina, segir Pálmi Haraldsson.
TÍSKUSÝNING Fjórar alþjóðlegar tísku-
verslanir verða opnaðar í Kringlunni bráð-
lega.
VERÐBRÉFAMIÐLARAR AÐ STÖRFUM
Úrvalsvísitalan hefur lækkað skarpt þrjá
daga í röð en þetta er mesta lækkun
hennar frá því í lok október á síðasta ári.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
AL
LI
Baugur kaupir meira í
French Connection
Baugur hefur auki› hlut sinn í French Connection.
Baugur Group hefur eignast tíu
prósenta hlut í tískuverslunar-
keðjunni French Connection.
Verðmæti hlutarins er um þrír
milljarðar króna.
Breska félagið hefur átt undir
högg að sækja undanfarna mán-
uði vegna minnkandi sölu, eins og
margar smásölukeðjur, og dróst
hagnaður þess saman um 69
prósent á fyrri helmingi ársins
samanborið við árið áður. Hagnað-
ur fyrir skatta var rétt um sex
hundruð milljónir króna. Tekjur
félagsins drógust einnig saman
um átta af hundraði; voru um 13,3
milljarðar.
Bréf French Connection hækk-
uðu í kjölfar uppgjörsins, en
markaðurinn átti von á slöku upp-
gjöri auk þess sem kaup Baugs
hafa haft áhrif til hækkunar.
Óljóst er hvert stefnir með þessa
fjárfestingu Baugs en Stephen
Marks, stofnandi fyrirtækisins, á
ríflega fjörutíu prósent í félaginu.
Ljóst er að Baugur mun ekki taka
félagið yfir nema með hans sam-
þykki. Marks þykir hafa staðnað
og fyrirtækið lítið gert annað upp
á síðkastið en að lifa á fornri
frægð. Ýmis tækifæri eru talin
liggja í rekstrinum. Annað af
tvennu er talið líklegast. Annað
hvort kaupi Marks fyrirtækið
sjálfur af markaði á hærra verði
en nú eða að hann vilji selja sig út.
Ekki er talið líklegt að Baugur
muni kaupa fyrirtækið með hann
við stjórnvölinn. - hh
JÓN ÁSGEIR JÓHANNESSON Baugur á nú um tíu prósenta hlut í French Connection.
Talið er að annað hvort kaupi Baugur fyrirtækið eða að stofnandi þess kaupi sjálfur félag-
ið af markaði á hærra verði en nú er á félaginu.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
Ö
RÐ
U
R