Fréttablaðið - 15.09.2005, Blaðsíða 64
„Ég hafði ekki reiknað með
því að fara varanlega á
þing en er tilbúin að
stökkva þegar kallað er,“
segir Ásta Möller, vara-
þingmaður Sjálfstæðis-
flokksins, sem fær fast
sæti á Alþingi á þessu kjör-
tímabili í stað Davíðs Odds-
sonar, sem hætti svo eftir-
minnilega á dögunum.
Brotthvarf Davíðs úr
stjórnmálum kom Ástu á
óvart og fór því framtíðar-
skipulagið nokkuð úr
skorðum.
„Ég var núna um miðjan
ágúst að taka við sem fram-
kvæmdastjóri hjá Liðsinni,
sem er einkafyrirtæki í
heilbrigðisþjónustu, og
gerði ráð fyrir því að gegna
því starfi í vetur jafnframt
því sem ég hafði áformað
að ljúka meistaraprófsrit-
gerðinni minni,“ segir Ásta
en hún er menntaður hjúkr-
unarfræðingur. „Fyrir utan
það var ég búin að taka að
mér að stjórna Landssam-
bandi sjálfstæðiskvenna,“
segir Ásta, sem gerir sér
grein fyrir að ekki verði
bæði sleppt og haldið í
þessum málum. „Það verð-
ur höfuðverkur september-
mánaðar að stokka spilin
þannig að þau komi rétt
út,“ segir Ásta hlæjandi.
Ásta stefnir á að halda
áfram í pólitík og stefnir á
þingsetu svo lengi sem hún
nýtur til þess stuðnings.
Hún hefur sérstaklega
beitt sér í heilbrigðismál-
um og ætlar að halda því
áfram. „Þeir eru ekki
margir sem hafa bakgrunn
og reynslu í þessum flókna
málaflokki á þingi nú,“ seg-
ir Ásta en hún hefur verið
talsmaður flokksins í þess-
um málum. Ásta hefur
einnig áhuga á fjölskyldu-
og jafnréttismálum og hef-
ur mikinn áhuga á að auka
möguleika kvenna á þátt-
töku í atvinnulífinu. Hún
vill auka samstarf ríkis og
einkaaðila á sviði mennta-
og heilbrigðismála en í
þeim málaflokki hafa kon-
ur menntað sig mest.
Sumrinu hefur Ásta
varið að stórum hluta vest-
ur í Borgarfirði þar sem
hún og maður hennar
leggja nú lokahönd á bygg-
ingu heilsárshúss. „Við
erum svolitlir sveitamenn
í okkur og keyptum okkur
hluta í jörð,“ segir Ásta
glaðlega en hún er hesta-
kona og hefur farið í
nokkrar hestaferðir í sum-
ar. Ástu er fjölskyldan
mjög mikilvæg en hún
gefur sér einnig tíma fyrir
önnur áhugamál eins og
bókalestur og útsaum auk
þess sem þau hjónin rífa
sig upp eldsnemma á
hverjum morgni og skella
sér í sund.
32 15. september 2005 FIMMTUDAGUR
ROBERT PENN WARREN (1905-1989)
lést þennan dag.
Stokkar spilin í september
ÁSTA MÖLLER VARAÞINGMAÐUR FÆR FAST SÆTI Á ALÞINGI:
„Hvað er ljóð annað en hættuleg tilraun til
skilnings á sjálfinu? Það er djúpstæðasti
hluti sjálfsævisögu.“
Robert Penn Warren var bandarískt skáld og rithöfundur. Hann
hlaut Pulitzer-verðlaunin þrisvar sinnum meðal annars fyrir bókina
Allir kóngsins menn, sem síðar var kvikmynduð.
timamot@frettabladid.is
ANDLÁT
Steingrímur Kristjónsson,
Laugavegi 143, Reykjavík, er lát-
inn.
Þorbjörn Ólafsson, Hringbraut
50, andaðist sunnudaginn 4.
september. Útför hefur farið
fram.
Sveinbjörg Georgsdóttir, Hæð-
argarði 35, Reykjavík, lést á
Landspítala Fossvogi fimmtudag-
inn 8. september.
Baldur Gunnarsson, Móabarði
10, Hafnarfirði, lést laugardaginn
10. september.
Hörður Ágústsson, listmálari,
lést á Landspítala við Hringbraut
laugardaginn 10. september.
Kristján S. Kristjánsson, fyrrver-
andi fjárhagsáætlunarfulltrúi,
Efstaleiti 10, Reykjavík, lést laug-
ardaginn 10. september.
Júlíus A. Fossdal, Brekkubyggð
5, Blönduósi, lést á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu á Akureyri sunnu-
daginn 11. september.
Óli Bergholt Lúthersson, hús-
vörður, Ásbraut 21, Kópavogi,
lést á Landspítala Hringbraut
mánudaginn 12. september.
ÁSTA MÖLLER ÞINGMAÐUR Ásta er hestakona með áhuga á skógrækt,
bókalestri og útsaum.
Á þessum degi fyrir 41 ári kom
breska dagblaðið The Sun út í
fyrsta sinn. Útgáfufyrirtækið Mirr-
or Group gaf The Sun út, en blað-
ið leysti The Daily Herald af
hólmi, en það hafði verið rekið
með halla um hríð.
Fyrsta tölublaðið kom út aðeins
mánuði fyrir þingkosningar, en
ritstjórnarstefnu blaðsins var lýst
sem „róttækri og óháðri“, og ekki
yrði gengið erinda sérstakra
stjórnmálaafla, ólíkt forveranum
sem hafði sterk tengsl við Verka-
mannaflokkinn. Fyrsti ritstjóri
blaðsins var Sidney Jacobsen.
Fimm árum eftir að fyrsta tölu-
blaðið kom út var The Sun boðið
til sölu, en ekki hafði tekist að
losna við skuldasúpuna sem
fylgdi taprekstri The Daily Herald.
Um það bil milljón manns lásu
blaðið að staðaldri. Fjölmiðla-
kóngurinn Rupert Murdoch festi
kaup á blaðinu en hann átti
News og the World fyrir. Murdoch
breytti ritstjórnarstefnunni og
gerði blaðið að götublaði og
þeirri stefnu hefur það fylgt allar
götur síðan. Árið 1978 fór The
Sun fram úr sínum helsta and-
stæðingi, The Mirror, hvað lestur
varðar.
Blaðið var að jafnaði hlutlaust í
kosningum fram til ársins 1997
þegar það lýsti yfir stuðningi við
Tony Blair. Í fyrra var upplag
blaðsins 3,4 milljón eintök.
RUPERT MURDOCH
ÞETTA GERÐIST > 15. SEPTEMBER 1964 MERKISATBURÐIR
1916 Skriðdrekar eru notaðir í
fyrsta sinn í styrjöld í átök-
um milli Breta og Þjóð-
verja.
1935 Nasistar byrja að nota
hakakrossinn sem tákn
fyrir Þriðja ríkið.
1940 Konunglegur flugher Breta
gersigrar þýska flugherinn
í bardaga við strendur
Bretlands. Þýsku flugvél-
arnar voru fjórum sinnum
fleiri en þær bresku.
1967 Útsendingar sjónarpsstöðv-
ar varnarliðsins eru tak-
markaðar við Keflavíkur-
flugvöll og næsta nágrenni
hans en stöðin fékk starfs-
leyfi í mars 1955.
1994 Helgi Áss Grétarsson verð-
ur heimsmeistari í skák í
flokki tuttugu ára og yngri.
Hann hlýtur jafnframt stór-
meistaratitil aðeins sautján
ára.
The Sun hefur útgáfu sína
Tilkynningar um merkisatbur›i, stórafmæli, andlát og jar›-
arfarir í smáletursdálkinn hér a› ofan má senda á netfangi›
timamot@frettabladid.is.
Augl‡singar á a› senda á auglysingar@frettabladid.is e›a
hringja í síma
550 5000.
Elskulegur sonur, bróðir og mágur,
Steingrímur Kristjónsson
Laugavegi 143, Reykjavík,
er látinn.
Guðbjörg Jóhannsdóttir
Guðrún Kristjónsdóttir Gylfi Knudsen
Laufey Kristjónsdóttir Sverrir Þórólfsson
Linda Rós Kristjónsdóttir Sigurður Gunnarsson
Jóhann Kristjónsson Kristín Egilsdóttir
Arnrún Kristinsdóttir Einar Þorvarðarson
Finnbogi E. Kristinsson Sólveig Birgisdóttir
Hjörtur Kristinsson Dagný Emma Magnúsdóttir
Anna Kristinsdóttir Gunnar Örn Harðarson
Árni Kristinsson Ingibjörg Jónsdóttir
og fjölskyldur.
Elskuleg eiginkona mín, dóttir mín, móðir
okkar, tengdamóðir og amma,
Laufey Alda Guðbrandsdóttir
Sleitustöðum, Skagafirði,
verður jarðsungin frá Hóladómkirkju laugardaginn
17. september klukkan 14.00.
Jón Sigurðsson
Hulda Regína Jónsdóttir
Reynir Þór Jónsson Ingibjörg Jónsdóttir
Íris Hulda Jónsdóttir Björn Gunnar Karlsson
Gísli Rúnar Jónsson
Lilja Magnea Jónsdóttir Skúli Hermann Bragason
og ömmubörn.
Elskuleg móðir okkar, systir, amma og
langamma,
Sigurlaug Barðadóttir
Vogatungu 55, Kópavogi,
andaðist á líknardeild Landakotsspítala þriðjudaginn 13.
september síðastliðinn. Útför verður auglýst síðar.
Helga Valdimarsdóttir
Björg Valdimarsdóttir
Barði Valdimarsson
Guðrún Margrét Valdimarsdóttir
Ingibjörg Barðadóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Baldur Gunnarsson
Móabarði 10, Hafnarfirði,
lést laugardaginn 10. september.
Jarðarförin fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði
mánudaginn 19. september kl. 15.00.
Alda Traustadóttir
Kristín Marja Baldursdóttir Björgvin Björgvinsson
Dagbjörg Baldursdóttir Tómas Frosti Sæmundsson
Trausti Baldursson Gunnhildur Pálsdóttir
Gunnur Baldursdóttir Svavar Ellertsson
Alda Baldursdóttir Þorsteinn Jónsson
Þórdís Kristjánsdóttir Magnús Jónsson
barnabörn og barnabarnabörn
www.steinsmidjan.is
JAR‹ARFARIR
13.00 Daði Þór Guðlaugsson,
Mávahlíð 6, Reykjavík,
verður jarðsunginn frá
Fossvogskirkju.
AFMÆLI
Ásgeir Jakobsson bifreiðarstjóri,
dvalarheimilinu Skjóli, áður til
heimilis á Langholtsvegi 17, er
100 ára.
Rannveig Guð-
mundsdóttir alþing-
ismaður er 65 ára.
Páll Gunnar Páls-
son, forstjóri FME, er
38 ára.
Ragnar Bragason
kvikmyndagerðar-
maður er 34 ára.
Eiður Smári
Guðjohnsen knatt-
spyrnumaður er 27
ára.
FÆDDUST fiENNAN DAG
1789 James Feni-
more Cooper rithöf-
undur.
1879 William
Howard Taft, fyrrver-
andi forseti Banda-
ríkjanna.
1890 Agatha
Christie rithöfundur.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og
amma,
Matthildur Sigurðardóttir
frá Hrauni í Grindavík,
sem lést á hjúkrunarheimilinu Víðihlíð í Grindavík laugar-
daginn 10. september, verður jarðsungin 17. september kl.
13.00 frá Grindarvíkurkirkju. Þeim sem vildu minnast hennar
er bent á hjúkrunarheimilið Víðihlíð.
Bjarni Ágústsson Karen Pétursdóttir
Ólafur Ágústsson
Sigrún Ágústsdóttir Guðlaugur Óskarsson
Hallbera Ágústsdóttir Guðmundur Finnsson
Bára Ágústsdóttir Jens Óskarsson
Alda Ágústsdóttir Kári Hartmannsson
Ása Ágústsdóttir Guðmundur Lárusson
Þórdís Ágústsdóttir Marteinn Karlsson
Sigríður Ágústsdóttir Sigurjón Jónsson
Sigurður Ágústsson Albína Unndórsdóttir
Hrönn Ágústsdóttir Þorsteinn Óskarsson
Bylgja Ágústsdóttir Walter Borgar
Sv. Ægir Ágústsson Sólveig Sveinsdóttir
Sjöfn Ágústsdóttir Finnbogi Þorsteinsson
og aðrir aðstandendur.
Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
Þegar andlát ber að
Síðastliðin 15 ár höfum við feðgar
aðstoðað við undirbúning útfara.
Alhliða útfararþjónusta
Símar: 567 9110,
893 8638 og 897 3020
Rúnar
Geirmundsson
Sigurður
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson