Fréttablaðið - 15.09.2005, Síða 66

Fréttablaðið - 15.09.2005, Síða 66
FÓTBOLTI Það leit út fyrir að heldur lítið yrði skorað í leikjum gær- kvöldsins í meistaradeild Evrópu en í hálfleik var einungis búið að skora tvö mörk í leikjunum átta. Það átti reyndar eftir að rætast úr því í síðari hálfleik og lauk einung- is einum leik með markalausu jafntefli. Það var leikur Manchester United og Villareal þar sem Diego Forlan tók á móti sínum gömlu fé- lögum á heimavelli Villareal á Spáni. Hann hefði þó sjálfsagt vilj- að skora í leiknum en varð ekki að ósk sinni frekar en öðrum leik- mönnum liðanna. Hápunktur leiks- ins var brottvísun Wayne Rooney en þessum vandræðagemlingi tókst að uppskera tvö gul spjöld með nokkurra sekúndna millibili. Hið fyrra var fyrir brot og það síð- ara fyrir að mótmæla fyrra spjald- inu. Það gerði hann á einkar ósmekklegan hátt, klappaði saman höndunum í andliti dómarans Kim Milton Nielsen sem er annars vel þekktur fyrir rauða spjaldið sem hann gaf David Beckham í leik Englands og Argentínu í HM í Frakklandi árið 1998. „Það getur verið að dómarinn hafi ekki átt að gefa Rooney gult fyrir þetta brot það var ekki spurn- ing um rauða spjaldið,“ sagði Alex Ferguson, knattspyrnustjóri United, eftir leikinn. „Við höfum áður lent í vandræðum með þenn- an dómara og verðum bara að taka á því.“ Varnarmaðurinn Gabriel Heinze fór meiddur af velli í gær og sagði Ferguson að batahorfur væru ekki góðar. „Það lítur út fyr- ir að hann verði frá í nokkrar vik- ur að minnsta kosti.“ Arsene Wenger, knattspyrnu- stjóri Arsenal, var vitaskuld ánægður með Dennis Bergkamp í gær en hann skoraði sigurmark Arsenal á lokamínútu leiksins eftir að hafa komið inn á sem varamað- ur. „Ákveðni Dennis var eitthvað sem yngri leikmenn liðsins geta lært af,“ sagði Wenger. „Við sýnd- um mikinn karakter með þessum sigri og hættum aldrei að spila okkar bolta. Sigurinn var mjög mikilvægur og þá sérstaklega í ljósi þess að við töpuðum um helg- ina og það hefði verið erfitt að taka því að ná ekki að sigra FC Thun á heimavelli.“ eirikurst@frettabladid.is > Við finnum til með ... ... knattspyrnuþjálfaranum Birni Kristni Björnssyni sem varð Íslands- og bikar- meistari með Breiðablik í sumar án þess að nokkur frétti af því. Það láðist nefnilega að tilkynna að hann væri þjálfari liðsins ásamt Úlfari Hinrikssyni. Hvorki Úlfar né meistaraflokksráð félagsins sáu ástæðu til þess að miðla upplýsingunum í allt sumar og það var fyrst í gær sem sannleikurinn kom í ljós. Heyrst hefur ... ... að Helena Ólafsdóttir knattspyrnuþjálfari ætli sér að þjálfa meistaraflokkslið á næstu leiktíð en hún stýrði KR undir lok þessarar leiktíðar. KR-ingar hafa áhuga á því að halda Helenu sem þjálfara og sú saga er einnig í loftinu að Breiðablik hafi áhuga á að ráða hana til sín. sport@frettabladid.is 34 > Við lýsum eftir ... .... hugrökkum einstaklingum sem eru tilbúnir að dæma handboltaleiki. Íslensk félög verða að gera átak í dómaramálunum hjá sér því ef þau gera það ekki verður fátt um mannskap til að flauta. Íslenskir hand- boltadómarar eru að verða útdauð tegund og við því verður að bregðast. Átta leikir fóru fram í meistaradeild Evrópu í gærkvöld og fengu leikmenn flriggja li›a a› sjá rau›a spjaldi›, allir flekktir vandræ›amenn. Vandræðamenn sáu rauttKvennalið ÍBV í fótbolta: FÓTBOLTI Fréttablaðið hefur heim- ildir fyrir því að kvennalið ÍBV muni verða fyrir mikilli blóðtöku fyrir næstu leiktíð í Landsbanka- deild kvenna. Eyjapæjur urðu í þriðja sæti deildarinnar Þær Elín Anna Steinarsdóttir og Hólmfríð- ur Magnúsdóttir, tvær af þremur markahæstu leikmönnum liðsins frá því í sumar, hafa báðar verið sterklega orðaðar við önnur fé- lög. Þegar Fréttablaðið hafði sam- band við þær vild hvorug þeirra tjá sig um hvað tæki við á næsta tímabili. Samningur Elínar Önnu rennur út um áramótin en Hólm- fríður á eitt ár eftir af sínum samningi við félagið en getur þó nýtt sér uppsagnarákvæði sem er í honum. Páll Scheving, formaður meistaraflokksráðs ÍBV, sagðist eiga von á miklum breytingum hjá ÍBV fyrir næstu leiktíð. „Það eru ákvæði um að leikmenn geti fengið að ræða við önnur lið í einn mánuð. Við erum vön því hérna í Eyjum að miklar manna- breytingar verði á liðinu jafnt í karla og kvennaflokki. Hvað varðar einstaka leikmenn þá höf- um við ekkert rætt við þá því við vitum ekki hverjir eiga eftir að starfa fyrir deildina,“ sagði Páll Scheving. -hh Leikmenn a› fara frá Eyjum Miklar væringar eiga sér stað innan herbúða kvennaliðs Breiðabliks þessa dagana. Liðið vann tvöfalt á þessari leiktíð en þrátt fyrir það er ekki víst að Úlfar Hinriksson fái að þjálfa liðið áfram. Reyndar var Úlfar ekki eini aðalþjálfari liðsins í sumar því Björn Kristinn Björnsson var einnig ráðinn sem þjálfari liðsins. Fór það reynd- ar fram hjá flestum lands- mönnum enda var ekki til- kynnt um ráðninguna á heimasíðu fé- lagsins og svo lét Úlfar þess aldrei getið í viðtölum í sum- ar að hann bæri einn ábyrgð á árangri liðsins. Ástæða þess að Björn kom til skjalanna var sú, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins, að meistaraflokksráð félagsins var ekki ánægt með árangur liðsins á und- irbúningstímabilinu og treysti Úlf- ari ekki til þess að klára dæm- ið. Sömu heimildir herma að til tals hafi kom- ið að reka Úlfar úr starfi en lendingin í mál- inu var sú að ráða Björn með Úlfari þegar aðeins vika var í Íslandsmótið. Sú áætlun gekk fullkomlega upp en ekki er víst að bikararnir nægi þeim félögum til þess að halda starfinu. „Þeir félagar eru búnir að gera fína hluti. Við erum ekki búnir að ákveða framhaldið og allt tekur sinn tíma. Menn verða að bíða þolinmóðir eftir svörum,“ sagði Karl Brynjólfsson, for- maður meistaraflokksráðs Breiðabliks, en meistaraflokksráðið fundaði um þjálfaramálin í gær. Úlfar og Björn staðfestu báðir við Fréttablaðið í gær að þeir hefðu áhuga á því að halda áfram með liðið en stóra spurningin er hvort þeirra krafta sé ósk- að áfram. ÚLFAR HINRIKSSON KNATTSPYRNUÞJÁLFARI: EKKI VÍST AÐ HANN ÞJÁLFI BREIÐABLIK ÁFRAM Tvöfaldi meistarinn var næstum rekinn 15. september 2005 FIMMTUDAGUR                                              !   "   !    !   #  " $!  %   &$ '  &!!!    !    !  %                         () * ( !    + * )) '!"      )( * ), '!"      )- * () '!"     ( *  % !"#! $  - * )) %       %&#  ' ENGAR EFTIR Sögusagnir eru á kreiki um að kvennalið ÍBV verði fyrir mikilli blóð- töku fyrir næsta leiktímabil. Landsliðsmaðurinn Logi Gunnarsson flytur sig um set í þýska körfuboltanum: KÖRFUBOLTI Logi Gunnarsson, landsliðsmaður Íslands í körfuknattleik, hefur undanfarna daga verið til reynslu hjá þýska 1.deildar liðinu Bayreuth og von- ast hann til þess að ganga frá samningum við liðið á næstu dög- um. „Mér líst vel á alla aðstöðu hjá félaginu. Að auki er það ein- lægur vilji allra sem starfa hjá félaginu að komast upp um deild. Ég verð til reynslu hér fram yfir helgi og ef ég spila þokkalega þá fæ ég örugglega samning.“ Bayreuth er 90 þúsund manna bær í grennd við borgina Nurn- berg og er mikill körfuboltaáhugi á þessum slóðum í Þýskalandi. Lið Bayreuth var þýskur meist- ari árið 1989 en hefur undanfarin ár verið í 1.deildinni, sem er næstefsta deild. „Þetta er gamalt stórveldi í þýskum körfubolta en félagið hefur verið í töluverðri lægð á undanförnum árum. En nú er ætlunin að koma félaginu í fremstu röð á nýjan leik og það væri sérstaklega gaman fyrir mig að taka þátt í þeirri uppbygg- ingu.“ Nokkur lið hafa spurst fyrir um Loga en nú virðist sem hann sé búinn að ákveða að vera í Þýskalandi. „Ég hefði getað farið til Ungverjalands en ég treysti liðunum þar ekki almennilega. Þau hafa ekkert sérstaklega gott orð á sér þegar kemur að launa- greiðslum og öðru þess háttar. En ég veit að það er hægt að treysta öllum mönnunum hjá Bayreuth og þess vegna reikna ég með því að ganga frá samningum við félagið á næstunni.“ -mh Er á lei›inni til Bayreuth í B-deildinni LOGI GUNNARSSON Logi vonast til þess að fá að spila meira hjá Bayreuth en hann fékk hjá þýska úrvalsdeildarliðinu Giessen á síðustu leiktíð. FRÉTTABLAÐÐ/VILHELM LEIKIR GÆRDAGSINS Meistaradeild Evrópu: A-riðill: CLUB BRUGGE–JUVENTUS 1–2 Matondo (85.) – Nedved (66.), Trezeguet (75.). Vieira rautt á 89. mínútu. RAPID VÍN–BAYERN MÜNCHEN 0–1 Guerrero (60.). B-riðill SPARTA PRAG–AJAX 1–1 Matucovic (66.) – Sneijder (90.). ARSENAL–THUN 2–1 Gilberto Silva (51.), Bergkamp (90.) – Ferreira (53.). Van Persie fékk rautt á 45. mínútu. C-riðill: UDINESE–PANATHINAIKOS 3–0 Iaquianta 3 (28., 73., 76.). WERDER BREMEN–BARCELONA 0–2 Deco (13.), Ronaldinho, víti (76.). D-riðill: BENFICA–LILLE 1–0 Miccoli (90.). VILLARREAL–MAN. UTD 0–0 Wayne Rooney fékk rautt á 65. mínútu. Enska 1. deildin í fótbolta: DERBY–COVENTRY 1–1 Reykjavíkurmót í körfu: Karlar VALUR–ÍS 95–68 (44-29) Ragnar Steinsson 27, Richmond Pittman 19, Guðjón Hauksson 13, Magnús Gunnarsson 11, Kolbeinn Soffíuson 9, Gylfi Geirsson 8, Atli Antonsson 5 – Jóhannes Árnason 11, Guðmundur Ásgeirsson 10, Einar Hugi Bjarnason 10, Sverrir Gunnarsson 8, Halldór H. Sigurðsson 7, Leifur Steinn Árnason 6. Konur KR–FJÖLNIR 70–45 (46-14) Hrefna Dögg Gunnarsdóttir 13, Georgia Kirstiansen 11 – Brynja Óladóttir 11. REKINN Í STURTU Hollendingurinn Roben van Persie fékk að líta rauða spjaldið á lokamínútu fyrri hálfleiks Arsenal og Thun á Highbury í gær. Þrátt fyrir það tókst Arsenal að knýja fram sigur, þótt það hefði vart mátt tæpara standa. FRÉTTABLAÐIÐ/NORDIC PHOTOS/GETTY
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.