Fréttablaðið


Fréttablaðið - 15.09.2005, Qupperneq 67

Fréttablaðið - 15.09.2005, Qupperneq 67
35 Forma›ur dómaranefndar HSÍ segir a› ekkert megi út af breg›a í vetur. Dóm- ari fær 8.300 kr. fyrir hvern dæmdan leik. Alvarlegur dómaraskortur í íslenskum handbolta HANDBOLTI Það stefnir í alvarlegan dómaraskort í íslenskum hand- bolta á næstu misserum. Eitt reyndasta og besta dómarapar landsins, Guðjón L. Sigurðsson og Ólafur Haraldsson, hætti störfum í vor. Endurnýjun í dómarastétt- inni er frekar lítil en á móti kem- ur að leikjum fækkar umtalsvert þar sem úrslitakeppnin verður lögð niður. Að sögn Hákons B. Sigurjóns- sonar, formanns dómaranefndar HSÍ, verða líklega 13 dómarapör að störfum í efstu deildum karla og kvenna en voru 14 sl. vetur. Til þess að ráða bót á vandanum þarf að draga gamlar dómarakempur á flot. Ekkert má út af bregða „Það er ljóst að ekkert má út af bregða í vetur í dómaramálum. Kynslóðaskipti eru framundan, við eigum efnilega dómara en allt of fáir hafa skilað sér upp. Ábyrgðin hvílir fyrst og fremst hjá aðildarfélögunum. Þau eiga að sjá til þess að það verði endurnýj- un í stéttinni. Ég lagði áherslu á þetta á fundi með forráðamönnum félaganna. Það gengur ekki að taka einhverja af götunni og skella þeim í dómarabúning, dóm- arar þurfa að fá uppeldi innan fé- laganna,“ segir Hákon. Samkvæmt nýrri gjaldskrá HSÍ fær dómari 8.300 kr. fyrir hvern dæmdan leik í efstu deild karla og kvenna. Í úrslitakeppn- inni í fyrravetur hækkaði upp- hæðin í 14.200 kr. Þar sem úrslita- keppni handboltans heyrir sög- unni til má segja að dómarar verði fyrir verulegri kjararýrnun. Alltof neikvætt viðhorf Séu dómarar ekki fyrir hendi er óhætt að leggja niður handboltann á Íslandi. Hákon tekur undir það. „Því miður er alltof neikvætt við- horf til handboltadómara á Ís- landi. Það fælir kannski frá.“ Handboltadómarar fara í þrek- próf í dag en á morgun er haust- fundur dómara þar sem farið verður yfir breytingar á dómara- reglum vetrarins en þær eru all- flestar smávægilegar. thorsteinngunn@frettabladid.is ■ ■ LEIKIR  19.15 ÍR og Fjölnir mætast í Seljskóla í Reykjavíkumóti karla í körfubolta.  19.15 Njarðvík og Keflavík mætast í Njarðvík í Reykjanesmóti karla í körfubolta. ■ ■ SJÓNVARP  17.25 Gullleikur í Meistaradeild Evrópu á Sýn.  19.05 Meistaradeildin með Guðna Bergs á Sýn.  19.45 Bandaríska mótaröðin í golfi á Sýn.  20.10 Kraftasport á Sýn.  20.40 Hnefaleikar á Sýn. Bardaginn mikli milli Sugar Ray Robinson og Jake LaMotta.  22.00 Olíssport á Sýn.  22.30 Strandblak á Sýn.  23.25 Meistaradeildin með Guðna Bergs á Sýn. HVAÐ? HVENÆR? HVAR? 12 13 14 15 16 17 18 Fimmtudagur SEPTEMBER FIMMTUDAGUR 15. september 2005 AUGLÝSTU FASTEIGNINA ÞÍNA Á RÉTTUM STAÐ Lestur mánudaga* 45% 73% F í t o n / S Í A F I 0 1 3 9 6 1 Rúmlega 60% fleiri Íslendingar á aldrinum 25–54 ára lesa mánudagsblað Fréttablaðsins frekar en mánudagsblað Morgunblaðsins. Á mánudögum fylgja með Morgunblaðinu og Fréttablaðinu sérblöð sem fjalla um fasteignir. Nýttu þér gott tækifæri og auglýstu fasteignina þína í Fréttablaðinu. * 25–54 ára Íslendingar. Gallup júní 2005. © Krabbameinsvaldandi efni í gervigrasi? FÓTBOLTI Sænsk yfirvöld rannsaka hvort gúmmíspænir, sem er að finna í þriðju kynslóð gervigras- valla, innihaldi krabbameinsvaldi efni. Matthías Halldórsson aðstoð- arlandlæknir, segist vita til þess að í gúmmídekkjum sé að finna krabbameinsvaldandi efni en hef- ur ekki heyrt um slíkt í gúmmí sem er að finna á gervigrasvöllun- um og ekkert slíkt mál hefur kom- ið inn á borð embættisins. Knattspyrnuvöllum með gervi- grasi fjölgar um allt land en í mörgum þeirra er að finna gúmmí- spæni sem kemst í snertingu við sveitta knattspyrnuiðkendur og dæmi eru um að einhverjir hafi gleypt gúmmítætlur í hita leiksins enda um litlar agnir að ræða. Páll Halldórsson, sem hefur m.a. flutt inn gervigrasvelli Stjörnunnar í Garðabæ og nú síð- ast Hauka í Hafnarfirði, segist ekki hafa heyrt þessa umræðu fyrr. Í gervigrasvellina fer endur- unnið gúmmí úr hjólbörðum en þeir aðilar sem framleiða það þurfa að uppfylla staðla þar sem sýna þarf fram á ákveðinn hrein- leika. „Það eru til þrjár tegundir af gúmmíi sem notað er í gervigras- velli. Ég nota einungis svokallað Criogeniv-gúmmí sem talað er um að sé mun hreinna en hinar tvær tegundirnar og er laust við málma. Þá blöndum við sandi og gúmmíi saman á yfirborð vallarins,“ segir Páll. Efnafræðingurinn Christina Rudni Snöbohm hjá sænsku Efna- fræðistofnuninni segir í blaðinu Expressen að bæjarfélög í Svíþjóð sem byggja gervigrasvelli, hafi óskað eftir frekari rannsóknum á gúmmítætlunum því í dekkjum er að finna svokallaða PAH-olíu sem gerir gúmmíið mýkra en inniheld- ur jafnframt krabbameinsvald- andi efni. Snöbohm segir að Evr- ópusambandið hafi ákveðið að banna þetta efni í dekkjum frá og með 2010. - þg Endurunnið gúmmí úr hjólbörðum í notkun: GERVIGRASVÖLLUR Hér sést nýi gervigrasvöllur Stjörnunnar í Garðabæ sem er einn sá allra nýjasti hér á landi. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN ALÞJÓÐLEGIR DÓMRAR Hlynur Leifsson og Anton Pálsson eru ungir dómarar sem hafa farið hratt upp metorðastigann og eru orðnir alþjóðlegir dómarar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.