Fréttablaðið - 15.09.2005, Síða 68

Fréttablaðið - 15.09.2005, Síða 68
36 Koma Ghana-mannsins Michael Essien til Lundúna hefur breytt miklu fyrir stö›u okkar manns í li›i Eng- landsmeistara Chelsea og Ei›ur Smári Gu›johnsen hefur átt erfitt uppdráttar a› undanförnu. Eiður Smári fær fæst tækifæri FÓTBOLTI Það er hörð samkeppni um að komast í liðið hjá Englands- meisturum Chelsea og okkar mað- ur Eiður Smári Guðjohnsen hefur ekki farið varhluta af því síðan Ghana-maðurinn Michael Essien kom fyrir 24 milljónir punda frá franska liðinu Lyon 19. ágúst síð- astliðinn. Eiður Smári hefur þannig feng- ið fæst tækifæri af þeim tíu leik- mönnum sem spila á miðju eða í framlínu liðsins og Essien hefur sem dæmi aðeins misst úr eina mínútu síðan hann kom inn á fyrir Eið gegn Arsenal 21. ágúst síðast- liðinn. Crespo í vandræðum Næstur fyrir ofan Eið Smára í mínútufjölda af sóknar- og miðju- mönnum liðsins er Argentínumað- urinn Hernan Crespo sem hefur einnig orðið undir í samkeppni. Crespo hefur misst sæti sitt til Di- dier Drogba en Fílabeinsstrandar- maðurinn hefur þegar skorað fimm mörk á tímabilinu gegn að- eins einu frá Crespo. Á enn eftir að skora Eiður Smári á enn eftir að skora fyrir Chelsea á tímabiinu en hann hefur leikið alls níu leiki og í 443 mínútur í bæði undirbúningsleikj- um sem og leikjum á tímabilinu. Þessi tölfræði er ekki að hjálpa Eiði í að minna á sig þótt Jose Mourinho hafi fært hann aftar á völlinn og markaskorun er ekki al- veg eins stór þáttur í hans leik og hún var þegar hann lék eingöngu sem framherji. Önnur tölfræði sem er ekki að hjálpa okkar manni er sú að það hefur heldur ekki gengið nægilega vel hjá Chelsea þann tíma sem Eiður Smári hefur verið inn á. Chelsea-liðið á enn eftir að skora í úrvalsdeildinni í vetur með Eið Smára inn á en Eiður hefur leikið í alls 148 mínútur til þessa í deild- inni. Chelsea hefur síðan skorað 10 mörk á þeim 302 mínútum sem Eiður Smári hefur setið á bekkn- um eða upp í stúku. - óój Elísabet Gunnarsdóttir, þjálfari kvennaliðs Vals, um Evrópukeppnina: FÓTBOLTI Valsstúlkur spila sinn annan leik í 2. umferð Evrópu- keppninnar gegn serbneska lið- inu Nis í dag en leikurinn hefst klukkan 15.00 að íslenskum tíma. Valur tapaði fyrsta leiknum gegn sænska liðinu Djurgårde en Elísabet Gunnarsdóttir, þjálfari er ekkert búin að afskrifa það að komast áfram. „Eftir að hafa séð hin liðin spila þá er ljóst að við eigum möguleika á að komast áfram en við megum ekki við að missa fleiri leikmenn. Tækifærið er fyr- ir hendi en ég hef mestar áhyggj- ur af því að þreyta eftir tímabilið komi til að reynast okkar erfið- asti andstæðingur,“ sagði Elísa- bet en þriðji og síðasti leikurinn er á laugardaginn. Tvö efstu liðin komast áfram í 8 liða úrslit. -óój Eigum möguleika á a› komast áfram KÖRFUBOLTINN Á AUSTURLAND Austur- land á lið í efstu deild í fyrsta sinn. Úrvalsdeildarlið Hattar: Búnir a› rá›a n‡jan fljálfara KÖRFUBOLTI Hattarmenn hafa feng- ið nýjan bandarískan þjálfara til að stjórna liðinu í frumraun sinni í úrvalsdeild karla í körfubolta. Með honum kemur nýr leikmaður sem meðal annars reyndi fyrir sér í NBA-deildinni í sumar. Höttur vann sér þátttökurétt í úrvalsdeild karla í fyrsta sinn í sögu félagsins síðasta vor og það er hugur í mönnum á Austurlandi á að takast á við úrvalsdeildina í vetur. Eugene Christopher þjálfaði lið Hattar í 1. deildinni í fyrravetur en hann gekk undan því að þjálfa liðið í vetur en mun samt sem áður spila með liðinu. Í hans stað hafa Hattarmenn ráðið Kirk Baker 37 ára gamlan Bandaríkjamann til að þjálfa liðið. Auk þess hafa þeir fengið Kanadamanninn Kwbana Beckles til að spila með liðinu en hann er rúmlega tveggja metra maður sem hefur enskt ríkisfang og reyndi fyrir sér hjá NBA-liðinu Atlanta Hawks í sumar. Beckles var í Lee háskólanum síðasta vet- ur þar sem hann var með 11,2 stig og 5,8 fráköst að meðaltali á þeim 23,4 mínútum sem hann spilaði í leik. „Það var samkomulag gert við Eugene um að hann hætti að þjálfa liðið,“ sagði Hafsteinn Jónsson, formaður Hattar, en nýráðinn þjálfari mun ekki spila með liðinu þótt þar færi frambærilegur körfuboltamaður. „Við getum ekk- ert notað hann sem leikmann því það má ekki vera með meira en einn Kana. Hann er líka orðinn svo gamall og er því hættur að spila,“ sagði Hafsteinn en hann var að taka á móti nýju mönnunum í gær og þeir eru síðan á leið með liðið á Greifamótið á Akureyri um helg- ina þar sem þeir fá fyrstu reynsl- una á að takast á við bestu körfu- boltalið landsins. - óój 15. september 2005 FIMMTUDAGUR Frábær grín- og spennumynd Frumsýnd 16.09.05 Vinningar verða afhendir hjá BT Smáralind. Kópavogi. Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb. 149 kr/skeytið. One guy walks the walk Samuel L. Jacksson Eugene Levy The other talks and talks... BTC TMF POWERED BY Körfuboltaþjálfarar og aðrir körfuboltaáhugamenn komast í feitt um helgina: Háskólafljálfari Michaels Jordan heldur námskei› KÖRFUBOLTI Íslenskir körfubolta- þjálfarar sem og aðrir áhuga- menn fá frábært tækifæri til þess að skyggnast inn í þjálfaraaðferð- ir eins virtasta háskólaþjálfara í Bandaríkjunum, Bill Guthridge, sem mun halda körfuboltanám- skeið í hinum nýju og glæsilegu húsakynnum íþróttaakademíunn- ar í Reykjanesbæ. Guthridge er fyrrum aðal- og aðstoðarþjálfari University of North Carolina sem er án efa eitt frægasta háskólalið í Bandaríkjunum og hefur getið af sér ekki ómerkari menn en Mich- ael Jordan, James Worthy, Vince Carter, Rasheed Wallace, Antwan Jamison svo einhverjir séu nefnd- ir af þeim NBA-stórstjörnum sem hafa verið þjálfaðar af honum en hann vann mjög náið með Dean Smith þau 30 ár sem hann var að- stoðarþjálfari sigursælasta há- skólakörfuboltaþjálfara sögunn- ar. Þetta er kjörið tækifæri fyrir alla sem áhuga hafa á körfubolta hvort sem þeir eru þjálfarar eða áhugamenn um sportið að hlusta á þennan merka mann sem hefur frá ýmsu að segja og mun fara vítt og breitt um hina ýmsu þætti körfuboltans. Hann mun meðal annars stjórna æfingu sem verður í anda hefðbundinnar æfingar hjá Norður-Karólínu-háskólanum. Guthridge er frægur fyrir mikinn aga og sérstakan húmor sem hef- ur gert hann mjög vinsælan sem fyrirlesara úti um allan heim. Guthridge tók við af Dean Smith sem aðalþjálfari Norður- Karolínu-háskólans 1997 og setti met með því að vinna 58 af 72 leikjum á fyrstu tveimur tímabil- um sem aðalþjálfari en bæði árin var hann valinn þjálfari ársins. Guthridge hefur gríðarlega reynslu af háskólaboltanum á hæsta palli en hann hefur tekið þátt í 13 lokaúrslitum (Hin fjögur fræknu), einum sem leikmaður, 11 sem aðstoðarþjálfari Smith og einum sem aðalþjálfari. - ooj FÆR ÞJÁLFARI Það verður örugglega bæði fræðandi og skemmtilegt að hlusta á Bill Guth- ridge á körfuboltanámskeiði í Reykjanesbæ um næstu helgi. FRÉTTABLAÐIÐ/FRÉTTABLAÐIÐ/GETTYIMAGES SPENNANDI LEIKIR Elísabet Gunnarsdóttir, þjálfari kvennaliðs Vals, þurfti að horfa upp á svekkjandi tap í fyrsta leiknum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALGARÐUR ÖRLAGARÍK STUND Michael Essien kemur hér inn á fyrir Eið Smára Guðjohnsen í fyrsta leik Ghana-mannsins fyrir Chelsea. Síðan þá hefur Essien aðeins missst úr eina mínútu hjá Chelsea en Eiður Smári hefur aftur á móti fengið fá tækifæri. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTYIMAGES SPILATÍMI SÓKNAR- OG MIÐJUMANNA CHELSEA EFT- IR AÐ ESSIEN VAR KEYPTUR: 1. Frank Lampard 450 mínútur (10-0*) 2. Michael Essien 391 (10-0) 3. Claude Makelele 360 (8-0) 4. Damien Duff 312 (7-0) 5. Didier Drogba 309 (7-0) 6. Arjen Robben 237 (4-0) 7. Shaun Wright-Phillips 217 (6-0) 8. Joe Cole 178 (5-0) 9. Hernan Crespo 141 (3-0) 10. Eiður Smári Guðjohnsen 103 (0-0) * Hvernig þessar mínútur hafa farið í tölum. Reykjanesmót karla í körfu: Keflavík heim- sækir Njar›vík KÖRFUBOLTI Það verður stórleikur í Reykjanesmótinu í körfubolta í kvöld þegar Njarðvíkingar taka á móti nágrönnum sínum í Kefla- vík. Bæði lið vonast til að geta teflt fullskipuðum liðum í leikn- um en erlendu leikmenn liðanna eru mættir á Klakann og þá hafa landsliðsmenn snúið aftur úr verkefnum tengdum Evrópu- keppninni. Njarðvík vann með 28 stigum á sunnudag en þá vantaði mikið af mönnum.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.