Fréttablaðið - 15.09.2005, Side 70
38 15. janúar 2005 FIMMTUDAGUR
Alltaf sama sag-
an með mig. Ég
missi alltaf af
góðum partí-
um, og ég
komst að því í
gær að ég er
nýbúin að
missa af einu
hrikalega góðu.
Góðærispartíinu
er víst lokið og ég
missti alveg af því. Ég opnaði
blaðið í gær og þar blasti við
mér fyrirsögnin „Veislan er
búin“. Ég vildi ólm vita hvaða
veisla þetta væri. Kom í ljós að
hér hefur mikil peningaveisla
verið í gangi og nú þurfi allir að
hætta að sukka sem fyrst og
sýna aðhald í peningamálum. Og
það má alls alls alls ekki hækka
nein laun. Humm, áhugavert.
Einhverja hluta vegna má aldrei
hækka laun, því þá fer víst allt
til fjandans. Reyndar ætlaði ég
að eyða þessum örfáu línum í að
tala um laun leikskólakennara.
Ég á nefnilega börn á leikskóla
og í hvert sinn sem ég sit for-
eldrafund fæ ég stingandi sam-
viskubit. Starfsfólk leikskólans
sem allt er sprenglært kynnir
starfið og í ljós kemur að þetta
er ekkert lítið starf sem verið er
að vinna. Kennararnir hafa
meira að segja lagst í heilmikil
fræði varðandi kubbana sem
börnin nota. Samviskubitið
stafar af því, að ég geri þá kröfu
að starfsfólkið á leikskólanum
standi sig hrikalega vel, en á
sama tíma veit ég að þau eru að
fá lúsarlaun. Það liggur við að
ég láti söfnunarbauk ganga eftir
hvern fund svona til að friða
samviskuna. Mér finnst að leik-
skólakennarar ættu að fá launa-
hækkun og bara nokkuð hressi-
lega, og það sé kominn tími á
partí hjá leikskólakennurum.
Af hverju þarf annars allt að
vera bara partí hérna á Íslandi
og þegar veislan stendur sem
hæst koma jakkafatamennirnir
og boða þynnku? Af hverju er
ekki hægt að hafa hlutina í jafn-
vægi, og öðru hvoru hækka
launin án þess það boði
heimsenda? ■
STUÐ MILLI STRÍÐA
KRISTÍN EVA ÞÓRHALLSDÓTTIR VILL BÆTTAN HAG LEIKSKÓLAKENNARA
Þynnka yfirvofandi
M
YN
D
: H
EL
G
I S
IG
U
RÐ
SS
O
N
Reykjagarður hf
Álegg frá Holtakjúklingi
Fjórar tegundir áleggs frá Holtakjúklingi.
Fitulítið og bragðgott álegg sem hentar öllum.
Eftir Patrick McDonnell
■ PONDUS
■ GELGJAN
■ KJÖLTURAKKAR
■ BARNALÁN
■ PÚ OG PA Eftir SÖB
Eftir Kirkman/Scott
Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
Eftir Frode Överli
1 6 9 2
4 9 3 2 8 1
5 3 7
2 5 1
6 2 4 5
9 8 7
9 6 4
8 4 5 9 2 3
7 3 1 9
■ SUDOKU DAGSINS
Fylltu út í reitina þannig að hver lína, hver
dálkur og hver 3x3 kassi rúmi allar tölurnar á
bilinu 1 til 9. Sama talan má ekki koma fyrir
tvisvar sinnum í sömu línu, sama dálki eða
sama 3x3 kassa. Engin stærðfræðikunnátta er
nauðsynleg þó leikið sé með tölum. Þrautin
er leyst með rökhugsun og útsjónarsemi.
Lausnir, ráðleggingar og upplýsingar eru á
www.sudoku.com.
Lausn þrautarinnar birtist á sama stað í blað-
inu á morgun.
7 8 2 1 5 6 3 4 9
3 4 9 7 2 8 5 1 6
5 6 1 3 9 4 8 2 7
1 9 7 5 4 2 6 8 3
2 5 6 8 3 7 4 9 1
4 3 8 6 1 9 2 7 5
6 2 5 4 7 1 9 3 8
8 7 4 9 6 3 1 5 2
9 1 3 2 8 5 7 6 4
Lausn á gátu gærdagsins
Fimm brúsar
af sjampói?
Á tilboði!
Taktu þrjá,
borgaðu fyrir
tvo!
Ekki
segja
mér að...
Jú! Ég TÓK
þrjá og
BORGAÐI
fyrir tvo!
STALSTU
þremur brús-
um af
sjampói?
Nei, nei! Ég
FÉKK þá.....að
lokum. Reifst
bara í hálf-
tíma! Svo reif
hann plakatið.
Pondus! Get ég
einhvern tíma
farið í þessa
búð aftur?!
Og borið höf-
uðið hátt! Allir
þarna inni vita
að þú ert gift
snillingi!
DÝRABYRGIÐ: EINKAMÁLADÁLKUR
Lítill og brúneygður – Ég er níu ára gamall, smágerður,
geislandi en með fæturna á jörðinni og góður í að
„sækja“. Er að leita að langtímasambandi. Enga geð-
sjúklinga eða brjálæðinga.
Hringdu í 1234-233 Vertu vinur minn.
Ég held að við þurfum
nýjan sófa, pabbi.
Nú? Þessi er
enn þá svo
fínn.
Já en ég hef tekið eftir því að
þegar ég ligg í honum í meira
en fjóra eða fimm tíma, þá fæ
ég verk í bakið af sófanum.
Það kann enginn að meta mínar
vel ígrunduðu athugasemdir.
Viltu ekki vera í bleiku stutt-
buxunum í dag, Solla?
NEI! Ekki bleiku stuttbuxunum!
Ég HATA bleiku stuttbuxurnar!
Ég þarf alltaf að vera í því sem
ÞÚ vilt að ég sé í og ég fæ
aldrei að vera í því sem ÉG vil
vera í!!
Allt í lagi! Vertu
bara í því sem
þér sýnist!
Eins og hverju?
Ómetanlegar
upptökur Bjarkar
Lausar úr
bankahólfi
eftir 20 ár