Fréttablaðið - 15.09.2005, Síða 72
Áhugafólk um skipulagsmál í
Reykjavíkurborg ætti að bregða
sér í göngutúr í kvöld um miðborg-
ina í fylgd með Ilmi Stefánsdóttur
myndlistarkonu. Hún ætlar að gera
sitt besta til þess að fólk sjái bæinn
í svolítið öðru ljósi en vant er.
„‘Ég ætla að nota hluti sem við
erum kannski ekki vön að nota til
þess að skoða borgina okkar,“ segir
hún, en vill ekkert láta uppi um það
hvers konar hlutir það eru, að öðru
leyti en að þetta séu mjög einfaldir
hlutir. Þar sé engin háþróuð tækni á
ferðinni.
Ýmsar tækninýjungar hafa ver-
ið notaðar á sýningunni í Hafnar-
leikhúsinu. Til að mynda gefst gest-
um sýningarinnar kostur á að
senda texta- eða myndskilaboð úr
borginni í frítt númer, sem er 1855,
og taka þannig þátt í sýningunni á
eigin forsendum.
Sjálf hefur hún haft óstjórnlega
mikinn áhuga á tækjum og hlutum
og gjarnan gert úr þeim vægast
sagt undarlega hluti, tæki og tól
sem hún hefur notað í myndlist
sinni og leikhúsverkum. Til að
mynda hefur hún búið til hljóðfæri
úr heimilistækjum og umbreytt
ólíklegasta tækjabúnaði í farar-
tæki, svo fátt eitt sé nefnt af uppá-
tækjum hennar.
Gönguferðinni í kvöld lýkur á
því að litið verður inn á sýninguna í
Hafnarhúsinu, en Ilmur tekur fram
að fólk þurfi að vera klætt eftir að-
stæðum, enda verður þetta um það
bil klukkutíma langur göngutúr
utan dyra hér á norðurhjara. ■
40 15. september 2005 FIMMTUDAGUR
> Ekki missa af ...
... opnu húsi í Þjóðleikhúsinu
annað kvöld og á laugardagskvöld
þar sem leikárið verður kynnt í tali
og tónum. Tinna Gunnlaugsdóttir
fer ofan í saumana á þeim leik-
verkum sem verða á fjölunum í
vetur og leikarar fara með atriði úr
sýningum. Kynnir er Jóhann
Sigurðarson.
... árlegum hausttónleikum
Harðar Torfasonar í Borgarleik-
húsinu annað kvöld.
... elektrótríóinu Donnu Mess,
sem ætlar að gera allt vitlaust á
Grandrokk í kvöld ásamt Mr. Sillu
og plötusnúðunum Gruesome
Twosome.
Á laugardaginn verður opnuð í Listasafni
Sigurjóns Ólafssonar sýning á Íslands-
myndum frá ár-
inu 1948 eftir
dönsku COBRA
málarana Carl-
Henning Peder-
sen og Else Alfelt
ásamt samtíma-
verkum eftir
Svavar Guðnason
og Sigurjón
Ólafsson á sýn-
ingu í Listasafni
Sigurjóns Ólafs-
sonar.
Hjónin Carl-
Henning Pedersen og Else Alfelt komu til
Íslands árið 1948 í boði vinar þeirra Svav-
ars Guðnasonar. Meðferðis höfðu þau
dönsku framúrstefnusýninguna
Høstudstillingen frá árinu áður og var hún
sett upp í Lista-
mannaskálanum
við Austurvöll í maí
og vakti mikla at-
hygli og átti eftir að
hafa þýðingu fyrir
íslenska myndlist-
armenn. Að sýn-
ingu lokinni ferð-
uðust þau hjónin
um landið og mál-
uðu myndir undir
áhrifum íslenskrar
náttúru.
Sýningin í Lista-
safni Sigurjóns Ólafssonar nefnist Hraun-
blóm eða Lavaens blå blomst og er
danska heitið sótt í eina af myndum Else.
20.30
Kvartett Sigurðar Flosasonar er á
tónleikaferð um landið og leikur í
kvöld í Laugarborg í Eyjafirði. Tón-
leikarnir eru síðbúnir útgáfutónleik-
ar vegna geisladisksins „Leiðin
heim“ sem hefur fengið afbragðsgóð-
ar viðtökur.
menning@frettabladid.is
Bláa blómi› í hrauninu
Rápað um borgina
!
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
12 13 14 15 16 17 18
Fimmtudagur
SEPTEMBER
STÓRA SVIÐ
KALLI Á ÞAKINU
e. Astrid Lindgren
Su 18/9 kl 14, Su 25/9 kl 14,
Lau 1/10 kl. 14, Su 2/10 kl. 14
HÖRÐUR TORFA HAUSTTÓNLEIKAR
Fös 16/9 kl. 19:30, Fös 16/9 kl 22:00
WOYZECK - 5 FORSÝNINGAR Í SEPT.
Frumsýnt í London 12. okt. og á Íslandi 28.
okt. Miðaverð á forsýningu aðeins kr. 2.000,-
Su 18/9 kl. 21, Fö 23/9 kl 20,
Fi 29/9 kl 20 UPPSELT, Fö 30/9 kl 20,
Lau 1/10 kl 20 (sýning á ensku)
HÍBÝLI VINDANNA
Örfáar aukasýningar í haust.
Lau 24/9 kl. 20, Su 25/9 kl. 20,
Su 2/10 kl. 20, Fö 7/10 kl. 20,
NÝJA SVIÐ/LITLA SVIÐ
MANNTAFL
Miðaverð á forsýningar kr. 1.000,-
Mið 14/9 kl. 20 Forsýning
Lau 17/9 kl. 14 Forsýning
Su 18/9 kl. 20 FRUMSÝNING UPPSELTL
Su 25/9 kl. 20, 2/10 kl. 20, Fö 7/10 kl. 20RILLJANT
ALVEG BRILLJANT SKILNAÐUR
Fi 15/9 kl. 20 UPPSELT Fö 16/9 kl 20 UPPSELT
Lau 17/9 kl 20 UPPSELT Fi 22/9 kl. 20 UPPSELT
Fö 23/9 kl. 20 UPPSELT Lau 24/9 kl. 20 UPPSELT
Fi 29/9 kl. 20 UPPSELT Fö 30/9 kl. 20 UPPSELT
Sími miðasölu 568 8000
midasala@borgarleikhus.is
Miðasala á netinu www.borgarleikhus.is
Miðasalan í Borgarleikhúsinu er opin:
10-18 mánudaga og þriðjudaga, 10-20
miðviku-, fimmtu- og föstudaga
12-20 laugardaga og sunnudag
Endurnýjun
áskriftarkorta stendur yfir
Ef þú gerist áskrifandi fyrir
20. september færðu að auki
gjafakort á leiksýningu að eigin vali
- Það borgar sig að vera áskrifandi -
15. sýn. sun. 18/9 kl. 14
16. sýn. fim. 29/9 kl. 19
■ ■ TÓNLEIKAR
20.30 Kvartett Sigurðar Flosason-
ar leikur í Laugarborg í Eyjafirði.
22.00 Elektrótríóið Donna Mess,
ofurkvendið Mr. Silla og plötusnúð-
arnir Gruesome Twosome spila á
Grand Rokk.
■ ■ FYRIRLESTRAR
12.15 Lára Marteinsdóttir kvik-
myndafræðingur fjallar um kvik-
myndir og kyngervi í stofu N132,
Öskju.
■ ■ FUNDIR
20.00 UNIFEM á Íslandi stendur
fyrir opnum félagsfundi í Miðstöð
Sameinuðu þjóðanna, Skaftahlíð 24.
Á fundinum verður dagskrá vetrarins
kynnt og fjallað stuttlega um áhersl-
ur í starfi þróunarsjóðsins og vöxt fé-
lagsins á síðustu misserum.
■ ■ SÝNINGAR
20.00 Rápað um borgina með Ilmi
Stefánsdóttur myndlistarkonu í
tengslum við sýninguna Hvernig
borg má bjóða þér? sem nú stend-
ur yfir í Hafnarhúsinu. Göngutúrnum
lýkur með því að skoða sýninguna.
Upplýsingar um viðburði og sýningar
sendist á hvar@frettabladid.is ekki
síðar en sólarhring fyrir birtingu.
ILMUR BÝR SIG UNDIR BORGARGÖNGU Ilmur Stefánsdóttir ætlar að bjóða fólki í göngutúr um miðbæinn í kvöld í tengslum við
sýninguna „Hvernig borg má bjóða þér?“.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA