Fréttablaðið - 15.09.2005, Side 75
43FIMMTUDAGUR 15. september 2005
Kvennakór í örum vexti
Kvennakór Kópavogs er um þess-
ar mundir að hefja sitt fjórða
starfsár. Í kórnum eru nú 35 kon-
ur. Þær eru á öllum aldri, allt frá
átján ára til sjötugs, en nú er
stefnt að því að stækka kórinn.
„Það væri fínt að fá svona tíu
konur í viðbót,“ segir Elínborg
Pálsdóttir, ein kórfélaganna, en
hún tók þátt í að stofna kórinn fyr-
ir nærri fjórum árum.
„Við erum um það bil 25 sem
höfum verið með alveg frá byrjun
og myndum kjarnann í kórnum.“
Elínborg hafði lítið gert af því
að syngja opinberlega áður en hún
gekk til liðs við Kvennakór Kópa-
vogs.
„Þetta eru eiginlega fyrstu
sporin hjá mér í söngnum og þetta
hefur verið virkilega gefandi og
skemmtilegt,“ segir Elínborg.
Síðastliðið vor hélt kórinn í
söngferðalag til Færeyja og stefn-
ir nú á að fara til Búdapest árið
2007.
„Það var virkilega gaman að
koma til Færeyja, það var svo vel
tekið á móti okkur. Við komum til
Klakksvíkur sem er vinabær
Kópavogs og fengum fína umfjöll-
un í blöðunum þar,“ segir Elín-
borg.
Á næstunni verða ýmsir við-
burðir á vegum kórsins, meðal
annars jólatónleikar með Karla-
kór Kópavogs og fjáröflunarsam-
komur af ýmsu tagi.
Stjórnandi kórsins er hin kín-
verska Natalia Chow Hewlett,
sem jafnframt stofnaði Karlakór
Kópavogs. Hún stjórnar einnig
Englakórnum, sem er kór fyrir
börn allt niður í þriggja ára göm-
ul. Hún er þar að auki kirkju-
organisti í Ytri-Njarðvíkurkirkju,
en undirleikari er Julian Hewlett,
eiginmaður stjórnandans. ■
ÚR FÆREYJAFERÐ KVENNAKÓRS KÓPAVOGS Julian Hewlett undirleikari og Natalia
Chow stjórnandi ásamt þremur kórfélögum.
Þann 30. september fer sýningin
Elvis Presley Tribute 1935-2005 af
stað á Broadway. Sama sýning var
haldin þann 7. júlí á Ólafsfirði í
tilefni af blúshátíð þar í bæ og
gekk hún það vel að ákveðið var
að fara með hana á Broadway.
Elvis fæddist í Mississippi
þann 8. janúar 1935 og hefði því
orðið sjötugur í ár. Á sýningunni
verða flutt um þrjátíu Elvis-lög
sem allir ættu að þekkja, í flutn-
ingi fjölmargra valinkunnra tón-
listarmanna. Á meðal þeirra eru
Friðrik Ómar, Regína Ósk, Heiða
úr Idol, Kenya Emil, Jón Ólafsson,
Guðmundur Pétursson, Pétur Örn
Guðmundsson, Birgir Baldursson,
Jóhann Ásmundsson og Samúel J.
Samúelsson.
„Ég er búinn að vera að vinna
að þessu svolítið lengi,“ segir
Friðrik Ómar Hjörleifsson, sem
skipuleggur sýninguna í sam-
vinnu við Hljóðkerfa og ljósaleigu
Akureyrar ehf. „Mér hefur fund-
ist Elvis-lögin ekki hafa fengið að
njóta sín hérna því það er svo
mikið af eftirhermum út um allt.
Á þessari sýningu er enginn að
fara að klæðast eins og Elvis.
Þarna verður einvalalið tónlistar-
manna og munu þeir syngja lögin
eftir sínu höfði,“ segir hann. „Sýn-
ingin á Ólafsfirði tókst rosalega
vel. Þar var fólk á öllum aldri og
þá uppgötvaði ég hvað það þekkja
allir þessi lög og hversu gaman
það er að heyra þau í flutningi
stórra hljómsveita.“
Friðrik Ómar, sem sjálfur
syngur á sýningunni, hefur hlust-
að á Elvis síðan hann var 10 til 12
ára gamall. Til að hita upp fyrir
sýninguna ákvað hann að heim-
sækja Graceland, fæðingarstað
Elvis. „Það er algjört ævintýri að
koma þarna fyrir hvern sem er og
bara rosagaman, enda er þetta
mesta poppstjarna allra tíma,“
segir hann.
Forsala aðgöngumiða á Elvis
Presley Tribute er í síma 533-1100
og í Pennanum Eymundsson, Ak-
ureyri. Kynnir á sýningunni verð-
ur Dalvíkingurinn Júlíus Júlíus-
son og umsjón með dönsum verð-
ur í höndum Guðfinnu Björnsdótt-
ur og Birnu Björnsdóttur.
freyr@frettabladid.is
S‡ning til hei›urs Elvis Presley
ELVIS PRESLEY Söngvarinn Elvis Presley hefði orðið sjötugur á þessu ári hefði hann ekki
látist árið 1977.
Styttist í Kallakaffi
Sunnudagskvöldið 25. september
hefur Sjónvarpið sýningar á
Kallakaffi, nýrri íslenskri gaman-
þáttaröð. Þættirnir gerast í ís-
lenskum samtíma, nánar tiltekið í
Reykjavík. Þar segir frá þeim
Kalla og Margréti, „hjónum“ á
miðjum aldri sem eru í upphafi
fyrsta þáttar að ganga frá skilnaði
eftir að hafa verið í sambúð frá
því á menntaskólaárunum. Þrátt
fyrir skilnaðinn ákveða þau að
reka áfram sameiginlegt fyrir-
tæki sitt, Kallakaffi, lítinn mat-
sölu- og kaffistað sem þau hafa átt
í nokkur ár.
Margrét býr áfram í húsinu
sem þau áttu saman en Kalli er
fluttur upp á loft í Kallakaffi. En
þetta fyrirkomulag er ekki alveg
eins auðvelt og þau höfðu hugsað
sér, sérstaklega ekki af því að til-
finningar þeirra hvor til annars
eru ekki alveg kulnaðar.
Leikstjóri þáttanna er Hilmar
Oddsson og handritshöfundur er
Guðmundur Ólafsson. Með helstu
hlutverk fara Valdimar Örn
Flygenring, Rósa Guðný Þórsdótt-
ir, Laddi, Lovísa Ósk Gunnarsdótt-
ir, Davíð Guðbrandsson og Ívar
Örn Sverrisson. ■
KALLAKAFFI Sjónvarpsþáttaröðin íslenska hefst sunnudagskvöldið 25. september.