Fréttablaðið - 15.09.2005, Page 76

Fréttablaðið - 15.09.2005, Page 76
Það verður mikið um að vera í kvikmyndahúsum borgarinnar þessa helgina. Alls verða fjórar kvikmyndir frumsýndar á föstu- daginn. Barátta góðs og ills, ofur- hetjur og hryllingur eru meðal þess sem kemur við sögu í mynd- unum fjórum. Samuel L. Jackson og Eugene Levy sameina krafta sína í gam- an- og spennumyndinni The Man. Myndin segir frá því þegar öflug- um vopnum er stolið úr búri Al- ríkislögreglunnar og lögreglu- maður í dulargervi finnst látinn. Öll spjót beinast að samstarfs- manni hans, harðhausnum Derrick Vann. Hann er þekktur fyrir óvenjulegar aðferðir í starfi sínu og hefur yfirstjórnin haft horn í síðu hans lengi. Honum er því gefinn einn sólarhringur til að hreinsa nafn sitt. Hann fær óvæntan liðstyrk upp í hendurnar þegar sölumaðurinn Andy Fiddler er óvænt talinn vera vopnakaup- andi af þjófunum. Þótt ólíkir séu þurfa þessir menn að snúa bökum saman til að leysa málið. Neðanjarðarhryllingur og ofurhetjur Hryllingsmyndin The Cave segir frá hópi vísindamanna sem finnur rústir 13. aldar kapellu í rúmensk- um skógi. Við nánari eftirgrennsl- an kemur í ljós að kapellan er byggð yfir risastórt neðanjarðar- kerfi sem heimamenn halda fram að sé framandi vistkerfi. Vísinda- mennirnir fá til liðs við sig banda- ríska hellarannsóknarmenn sem uppgötva að ekki er allt sem sýn- ist undir yfirborði jarðar. Fjölskyldumyndin Sky High segir frá Will Stronghold sem á heldur óvenjulega foreldra. Hann er sonur The Commander og Jet- stream, sem bæði eru ofurhetjur og njóta gríðarlegra vinsælda í heimi ofurhetja. Syninum er snemma ætlað að feta í fótspor foreldra sinna og er því skráður í Sky High-skólann sem er ætlaður börnum með ofur- hæfileika. Það er aðeins einn galli á gjöf Njarðar og hann er sá að Will er ekki með neina ofurhæfi- leika. Hann er því fluttur niður í hóp þar sem hjálparhellur eru þjálfaðar. Þegar óvænt hætta steðjar að uppgötvar Will hins vegar nýja hæfileika sem hann verður að beita til að vernda for- eldra, vini og ekki síst Sky High- skólann. Rússneskur tryllir Nochnoi Dozor er heiti á rúss- neskri kvikmynd sem vakið hefur mikla athygli, ekki síst eftir að Quentin Tarantino hrósaði henni upp í hástert. Í myndinni er því haldið fram að heimurinn sé dag- lega á barmi eyðileggingar og að barátta ljóss og myrkurs sé eilíf. Meðal okkar hafi illir vættir geng- ið öldum saman og þrifist á því að drepa, myrða og eyða. Sérstök sveit ljóssins, undir nafninu Næturverðirnir, hefur verið skipuð til að halda þeim í skefjum. ■ Vi nn in ga r v er ða a fh en di r h já B T Sm ár al in d. K óp av og i. M eð þ ví a ð ta ka þ át t e rt u ko m in n í S M S kl úb b. 1 49 k r/ sk ey tið . SENDU SMS SKEYTIÐ BTC BGF Á NÚMERIÐ 1900 OG ÞÚ GÆTIR UNNIÐ. 9. HVER VINNUR! VINNINGAR ERU: BÍÓMIÐAR FYRIR TVO • DVD MYNDIR • COCA COLA “NIGHT WATCH IS F***ING COOL!”(Quentin Tarantino) 44 The Cave Internet Movie Database: 4,7 / 10 Rottentomatoes: 15% / Rotin Metacritic: 4,3 / 10 Sky High Internet Movie Database: 6,9 / 10 Rottentomatoes: 68% / Rotin Metacritic: 7,3 / 10 Nochnoy Dozor Internet Movie Database: 6,4 / 10 Rottentomatoes: 63% / Fersk The Man Internet Movie Database: 5,1 / 10 Rottentomatoes: Rotin Metacritic: 4,2 / 10 FRUMSÝNDAR UM HELGINA (DÓMAR Í ERLENDUM MIÐLUM) Bíómyndir úr ýmsum áttum JACKSON OG LEVY Þeir eru eins ólíkir og dagur og nótt þeir Jackson og Levy í myndinni The Man. Jackson er harðhaus úr Alríkislög- reglunni sem neyðist til að vinna með sölumanni sem Eugene Levy leikur. Zeus: You famous in L.A. or something? John McClane: Yeah, for about five minutes. Zeus: Don't tell me. Rodn- ey King, right? Bruce Willis í hlutverki John McClane og Samuel L. Jackson sem Zeus reyna að leysa þrautir glæpa- mannsins Simon á götum New York-borgar. Þrátt fyrir að þeim kæmi ekkert sérstaklega vel saman í byrjun féll allt í ljúfa löð að lokum. bio@frettabladid.is Á tíunda áratug síðustu aldar virtist Samuel L. Jackson vera á góðri leið með að tryggja sér sess meðal fremstu leikara Hollywood. Á undanförnum árum hefur Jackson hins vegar horfið aft- ur til síns gamla vana, að leika í b-mynd- um. Þegar Samuel L. Jackson fékk ekki Óskarinn fyrir leik sinn í Pulp Fiction leyndi hann ekki vonbrigðum sínum. Jackson, sem tapaði fyrir Martin Landau, blótaði í beinni útsendingu en slíkt er vanalega ekki gert á Óskarshá- tíðinni. Það verður heldur ekki af Jackson tekið að hann var stórkostlegur sem Jules Winnfield í Pulp Fiction. Leikarinn fór ekki varhluta af þeirri vel- gengni sem hann naut í kjölfar vinsælda Pulp Fiction. Hann hafði aðallega fengist við leik í b-myndum á borð við Loaded Weapon 1 og Amos og Andrew. Hann gat núna valið úr hlutverkum og varð á örskömmum tíma einn vinsælasti þeldökki leikarinn í Hollywood og sló sjálfum Denzel Washington við. Hann lék eitt aðalhlutverkanna í þriðju Die Hard myndinni auk þess að leika á móti Matthew McConaughey (sem þá var heitasta nafnið í Hollywood) í A Time to Kill. Eftir það tímabil var Hollywood annað- hvort komið með nóg af Jackson eða þá að leikarinn sjálfur gerði sig sekan um rangar ákvarðanir. Ef hann hefði ekki fengið hlutverk í seinni þríleik George Lucas um Stjörnustríðið væri hann sennilega kominn út af sakramenntinu. Árið 2000 brá Jackson sér í hlutverk sem sýndi nýja hlið á honum. Þar lék hann hinn veikbyggða myndasögusafnara Eli- jah Prince í Unbreakable. Sú mynd vakti von innra með aðdáendum hans um að leikarinn myndi loks snúa við blaðinu og ná sér upp úr meðalmennsk- unni. Þeir draumar hafa enn ekki ræst og ljóst að þess verður langt að bíða að hann sjáist í jafn bitastæðu hlutverki og Jules Winnfield. > Ekki missa af ... ... Hotel Rwanda sem er núkomin út á myndbandi og DVD. Leikar- inn Don Cheadle fer á kostum í hlutverki manns sem notar hótel í Rúanda til þess að skjóta skjóls- húsi yfir flótta- fólk úr röðum Tútsa sem bíður bráður bani þeg- ar borgarastyrj- öld brýst út og saklausum borg- urum er slátrað í miskunnarlaus- um þjóðernis- h r e i n s u n u m . Hotel Rwanda sló í gegn á IIFF 2005 kvikmyndahátíðinni og læt- ur engan ósnortinn þannig að þeir sem misstu af henni í bíó hafa ekki eftir neinu að bíða. Hva› er a› gerast hjá Jackson? 15. september 2005 FIMMTUDAGUR Lær›i a› syngja og spila Leikarinn Joaquin Phoenix þurfti að læra að spila á gítar og syngja eins og Johnny Cash fyrir kvik- myndina Walk the Line sem var frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Toronto fyrir skömmu. Myndin fjallar um ævi Cash og skartar Phoenix í aðalhlutverk- inu. Reese Witherspoon fer með hlutverk June Carter, eiginkonu Cash. Áður en Phoenix tók að sér hlutverkið var hann ekki þekktur fyrir tónlistarhæfileika og kunni ekki á gítar. Ráðlagði leikstjórinn, James Mangold, Phoenix að kaupa sér gítar hið snarasta og byrja að læra. Gekk það ágætlega þótt hann hafi átt nokkuð erfitt með að læra að slá á strengina eins og Cash var frægur fyrir að gera. Phoenix hitti Cash einu sinni í matarboði, tveimur árum áður en hann lést. Eftir matinn tók hann gítarinn sinn í hönd og fór að spila „Hann var mjög skjálfhentur,“ sagði Phoenix. „Við hugsuðum: „Ætlar hann að spila fyrir okkur af illri nauðsyn?“ Síðan tók hann gítarinn upp og líkami hans gjör- breyttist og virtist algjörlega vera eðlilegur. Það var eins og hann væri kominn með nýjan lík- ama. Ég hef aldrei séð annað eins.“ PHOENIX Í TORONTO Leikarinn þurfti að læra að syngja og spila á gítar fyrir myndina Walk the Line. THE CAVE Það leynast óvæntar hættur í hinum dularfulla helli sem finnst undir 13. aldar kapellu í Rúmeníu.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.