Fréttablaðið - 15.09.2005, Blaðsíða 80
48 15. september 2005 FIMMTUDAGUR
Viðskiptaskólinn ehf. Eyravegi 32 – 800 Selfoss S 482 4826
jonas@vidskiptaskolinn.is www.vidskiptaskolinn.is
Skóli sem kemur til þín
Fjarnámskeið:
NHH-Ritvinnsla (Word)
NHH-Töflureiknir (Excel)
NHH-Glærugerð (PowerPoint)
NHH-Verslunarreikningur
NHH-Örnámskeið
NHH-Örnámskeiðeru námskeið í
sérvöldum hlutum forrita. Sem dæmi
um NHH-Örnámskeið má nefna:
Myndrit í Excel
Gerð heimilsfangalista í Word (Mail merge)
Notkun innbyggðra falla í Excel
Unnið með stór skjöl í Word
Samvinna skjala milli forrita (Excel/Word)
Námskeið í vinnslu:
NHH-Bókhaldsnámskeið
NHH-Lestur ársreikninga
Tölvunámskeiðá netinu sem þú
getur stundað heimaí stofu.
Miðasala er í fullum gangi á tvær
sýningar gríndávaldsins Sailesh í
Háskólabíói. Sailesh er orðinn Ís-
lendingum að góðu kunnur og rétt
eins og þegar hann sótti landann
heim í vor ætlar hann að halda tvö
námskeið og fimm einkatíma þar
sem hann hjálpar fólki að sigrast
á hinum ýmsu kvillum. Miðar á
þessa viðburði eru seldir sam-
hliða miðum á sýningar dávaldins.
Báðar sýningar Sailesh verða
að þessu sinni haldnar laugardag-
inn 5. nóvember. Önnur þeirra
verður fjölskyldusýning með
Audda og Sveppa úr Strákunum
en á miðnætti verður óritskoðuð
sýning sem verður bönnuð innan
18 ára. Námskeiðin verða daginn
eftir á Park Inn hóteli. Fyrst
hjálpar Sailesh fólki að missa
aukakílóin og síðan mun hann
hjálpa því að hætta að reykja.
Einkatímarnir fara allir fram
mánudaginn 7. nóvember á Park
Inn hóteli.
Hægt er að skoða myndbrot frá
fyrri sýningum Sailesh hér á landi
á heimasíðunni event.is. Alls hafa
brotin verið skoðuð 111 þúsund
sinnum síðan í júlí. Þar er meðal
annars hægt að sjá atriðin „Full-
næging“ og „Stólasex“ sem eru
tvö af hans vinsælustu atriðum.
SAILESH Gríndávaldurinn Sailesh kemur aftur til Íslands í nóvember.
Sailesh heldur áfram a› selja
Samtökin Forma eru samtök
átröskunarsjúklinga á Íslandi.
Þau standa fyrir málþinginu
Ímynd 2005 sem haldið verður í
Loftkastalanum þann 17. septem-
ber. Það eru þær Alma Geirdal og
Edda Ýrr Einarsdóttir sem bera
hitann og þungann af starfsemi
Forma en samtökin voru stofnuð í
maí.
Á málþinginu, sem nú er haldið
í fyrsta skipti hér á landi, munu
koma fram fjölmargir fyrirlesar-
ar og tónlistarmenn. Karen Bro,
sem er danskur meðferðarsér-
fræðingur, mun meðal annarra
flytja erindi. Hún rekur meðferð-
arheimili fyrir átröskunarsjúk-
linga í Danmörku og hefur mikla
reynslu á þessu sviði.
Sigrún Daníelsdóttir sálfræð-
ingur mun einnig koma fram á
málþinginu, en hún mun fjalla um
áhrif samfélagsins á útlitsdýrkun.
Hún hefur sjálf átt við átröskun
að stríða í fjöldamörg ár og mun
því deila reynslu sinni og þekk-
ingu á þinginu. Ýmsir þekktir að-
ilar munu einnig koma fram og
lesa upp úr dagbókum átröskun-
arsjúklinga. Þar má nefna Dag B.
Eggertsson borgarfulltrúa, Hall-
dóru Geirharðsdóttur leikkonu,
Evu Maríu Jónsdóttur dagskrár-
gerðarmann og Jón Gnarr leikara.
Þess á milli munu átröskunarsjúk-
lingar segja frá eigin reynslu og
fjölmargir tónlistarmenn munu
einnig koma fram. Þar á meðal
eru Davíð Smári, Hera, Gugga,
Blúsið og fleiri.
Samtökin Forma munu á mál-
þinginu opna opinberlega velferð-
arsjóð þar sem öllum gefst tæki-
færi til að styrkja átröskunar-
sjúklinga og aðstandendur þeirra.
Ímynd 2005 er því fyrir alla þá
sem vilja mæta og Alma Geirdal,
einn af talsmönnum Forma, segir
nauðsynlegt fyrir sem flesta að
koma og kynna sér það sem þarna
fer fram. „Núna þarf þjóðin að
taka sig á, því það er ekkert hægt
að gera fyrir átröskunarsjúklinga
hér á landi. Þetta er gríðarlega
stórt vandamál og til að mynda
hefur sjúkdómstilfellum fjölgað
um 50 prósent á ári frá 2002. Því
má reikna með því að um 10-
11.000 einstaklingar séu veikir og
þá erum við aðeins að tala um þá
sem hafa viðurkennt veikindi
sín.“
Ímynd 2005 hefst klukkan 14 í
Loftkastalanum á laugardaginn
og stendur til 18.
ALMA GEIRDAL OG EDDA ÝRR EINARSDÓTTIR Eru í fararbroddi samtakanna Forma sem berjast gegn átröskun. Þær blása til mál-
þings um sjúkdóminn á laugardaginn.
Útgáfutónleikar trúbadorsins
Helga Vals verða haldnir í kvöld í
kirkju Óháða safnaðarins, Há-
teigsvegi 56. Tónleikarnir hefjast
stundvíslega kl. 20.30.
Á tónleikunum koma fram auk
Helga Vals þau Jón Ólafsson,
sellóleikarinn Edda Björnsdóttir
og Hildur Vala, sem syngur í einu
lagi á plötu Helga, Demise of
Faith, sem hefur vakið töluverða
athygli.
Helgi Valur segist vera mjög
spenntur fyrir tónleikunum og
hefur undirbúið sig vel að undan-
förnu. Aðspurður hvers vegna
tónleikarnir verði haldnir í kirkju
Óháða safnaðarins segir Helgi að
hann hafi verið beðinn um að spila
þar í messu fyrir skömmu. Hljóm-
urinn hafi verið svo flottur að
hann langaði að halda útgáfutón-
leikana þar. „Ég vildi líka að tón-
leikarnir snerust bara um tónlist-
ina en ekki að reykja og drekka;
ekki að ég sé eitthvað á móti því,“
segir Helgi Valur. „Tónlistin er
aðalatriðið og fólk getur gert það
sem það vill á eftir.“
Markmið tónleikanna er að
uppræta efnishyggju í nútíma-
þjóðfélaginu og einnig að gera
tónlist að ráðandi fyrirmynd í
hugmyndaheimi okkar. Helgi seg-
ist yfirleitt vera á móti efnis-
hyggju og hann sé meira fyrir að
næra sálina. Lofar hann heimilis-
legri stemningu á tónleikunum.
Frítt er inn á tónleikana fyrir
vini, kunningja og ættingja Helga
Vals og fólk sem lifir í tónlist.
Annars er miðaverð 500 krónur.
Bankastræti 10 • Sími 562 23 62 • info@exit. is • www.exit. is
Færð þú MasterCard
Ferðaávísun?
Ef þú ert á aldrinum 18-30 ára er starfsþjálfun góð leið til þess að læra tungumál, kynnast
ólíkri menningu og öðlast starfsreynslu. Um er að ræða störf á hótelum, veitingahúsum,
hjúkrunarheimilum og hjá fyrirtækjum í öðrum greinum. Þeir sem sækja um starfsþjálfun í
Evrópu eiga kost á Leonardo da Vinci styrk til greiðslu á hluta kostnaðar. Stúdentaferðir
úthluta þessum styrkjum fyrir hönd Landsskrifstofu Leonardo á Íslandi.
HELGI VALUR Trúbadorinn Helgi Valur
heldur útgáfutónleika í kirkju Óháða safn-
aðarins í kvöld.
fijó›arátak gegn átröskun
Tónlistin er
a›alatri›i›