Fréttablaðið - 15.09.2005, Side 82
Leikstjórinn Tim Burton er með
frumlegri og skemmtilegri mönn-
um sem búa til bíómyndir í Banda-
ríkjunum þannig að það telst alltaf
til tíðinda þegar hann sendir frá sér
mynd. Nýjasta útspil hans klikkar
ekki frekar en fyrri daginn en þessi
aðlögun hans á ævintýri Roalds
Dahl um Kalla og súkkulaðiverk-
smiðjuna er mikið og skemmtilegt
sjónarspil.
Heiðurinn er þó ekki allur
Burtons þar sem snilldarleikarinn
Johnny Depp sýnir meistaratakta í
burðarhlutverki sælgætisframleið-
andans sérvitra, Willys Wonka.
Samstarf þeirra Depps og Burtons
hefur gefið af sér margan góðan
áxöxtinn en að Edward Scissor-
hands og Ed Wood ólöstuðum eru
Sleepy Hollow og nú Charlie and the
Chocolate Factory ótvíræðir há-
punktar.
Það verður uppi fótur og fit út
um allan heim þegar Willy Wonka,
frægasti nammiframleiðandi í
heimi, býður fimm heppnum krökk-
um að heimsækja sig í súkkulaði-
verksmiðjuna sem er sannkallað
ævintýraland. Wonka hafði áður
dregið sig úr skarkala nammibrans-
ans þannig að heimboðið telst til
stórviðburða.
Börnin fimm eru ansi misjafn-
lega innréttuð og draga flest fram
slæmar hliðar nammikallsins klikk-
aða ef frá er talinn hinn hjartahreini
Kalli sem snertir strengi innra með
Wonka. Hinn ungi Freddie Hig-
hmore leikur Kalla með glæsibrag
en hann var einmitt einnig ógleym-
anlegur á móti Depp í Finding
Neverland.
Það er ekki síst samspil þessara
leikara sem gefur myndinni aukna
vigt en allt sprellið í Willy og
Úmpalumpunum hans tryggir svo
að áhorfendum leiðist aldrei. Leik-
arinn Deep Roy sýnir snilldar-
gríntakta í hlutverkum allra
Úmpalumpanna og gamla hryllings-
brýnið Christopher Lee setur sinn
svip á myndina í hlutverki föður
Wonka.
Tæknibrellurnar eru glæsilegar
en svo hófstilltar að þær ræna sög-
una engum töfrum þannig að
Burton vinnur enn einn stórsigur-
inn með einni ánægjulegustu mynd
ársins.
Þórarinn Þórarinsson
Ógleymanleg fer› um súkkula›iheim
CHARLIE AND THE CHOCOLATE
FACTORY
LEIKSTJÓRI: TIM BURTON
AÐALHLUTVERK: JOHNNY DEPP, FREDDIE
HIGHMORE, DAVID KELLY, HELENA BON-
HAM CARTER
[ TÓNLIST ]
UMFJÖLLUN
Sýnd kl. 5,30, 8 og 10.30
★★★1/2
-KVIKMYNDIR.is
Sýnd kl. 8 og 10.20
“Hann var kvennabósi mikill...
en nú kemur fortíðin í bakið á
honum.”
Fékk Grand Prix
verðlaunin í Cannes.
Hefur fengið einróma lof
gagnrýnenda um heim allan.
Sýnd kl. 4 og 6 í þrívíddSýnd kl. 5.45, 8 og 10.20 B.i. 10 ára
★★★
-HJ. MBL
SÍMI 564 0000HUGSAÐU STÓRT
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10 B.i. 14 ára
Sýnd í Lúxus kl. 4, 6, 8 og 10
Sýnd kl. 4 ÍSLENSKT TAL
★★★★
-HJ. MBL
★★★★
-ÓÖH. DV
★★★★
KVIKMYNDIR.COM
Ozzy Osbourne segir að fullkom-lega hamingjusöm hjónabönd
séu ekki til. Hann segir það koma fyrir
að hann nánast þoli ekki konu sína
Sharon. Hann segist samt ætla sér að
láta hjónaband sitt endast því honum
hafi tekist að klúðra einu. „Stundum
tölum við ekki saman. Stundum erum
við eins og tveir litlir krakkar. Stund-
um erum við
ekki einu
sinni á sömu
plánetu. En
maður heldur
samt áfram.
Mér tókst á auðveldan hátt að eyði-
leggja mitt fyrsta hjónaband með
dópi og drykkju og með því að halda
að ég væri konungur alheimsins,“
segir rokkarinn Ozzy.
FRÉTTIR AF FÓLKI
Angelina Jolie vill sjá Afríku blómstra
Angelina Jolie talaði opinskátt um
börnin sín tvö í viðtali á dögunum.
„Þau veita mér svo mikla gleði og
ég vil búa þeim betri heim,“ sagði
leikkonan.
Jolie á fjögurra ára gamlan son,
Maddox sem hún ættleiddi frá
Kambódíu, og Zahöru, dóttur sem
hún ættleiddi í sumar frá Eþíópíu.
Zahara var sex mánaða þegar Jolie
kom með hana til Bandaríkjanna.
„Hún var sex mánaða og aðeins
fimm kíló,“ segir Jolie. „Ef maður
kreisti húð hennar, þá festist hún
saman. Það var hræðilegt. Að sjá
hvað matur og smá umhyggja getur
gert. Nú er hún búin að þyngjast um
þrjú kíló og við köllum hana bollu.
Hún er allt annað barn.“
Jolie segir að Maddox elski það
að vera stóri bróðir. „Hann kom
með mér á munaðarleysingjahælið.
Hann sá hvar hún bjó og að hún
þurfti á umhyggju að halda. Börn
skilja sorg, fátækt og hungur.“
Brad Pitt var í för með Jolie þeg-
ar hún fór til Eþíópíu í júlí til að
sækja Zahöru. Sögusagnir um að
þau væru saman höfðu löngu áður
látið á sér kræla.
Jolie kom fram í morgunþætti
sjónvarpsstöðvarinnar ABC daginn
áður en að þáttaröð um ferðalag
hennar til Kenía ásamt Jeffrey
Sachs hóf göngu sína. „Afríka er fal-
leg, stórkostleg, hefur að geyma vel
gefið fólk og sterkbyggð lönd. Afr-
íka getur orðið svo mikilfengleg,“
sagði Jolie. „Ég myndi vilja sjá Afr-
íku blómstra, hún er mögnuð og hef-
ur að geyma svo mikla von og
marga möguleika.“ ■
ANGELINA JOLIE Vill búa börnunum sín-
um betri heim.
400 kr. í bíó! Gildir á allar sýningar merktar með rauðu
SÍMI 551 9000
Sýnd kl. 8 og 10.20 B.i. 10 ára
★★★
-HJ. MBL
Sýnd kl. 6 ÍSLENSKT TAL
Deuce Bigalow b.i. 14 ára
Ævintýraferðin
Land of the Dead
Red Eye (FORSÝNING)
kl. 6, 8 og 10
kl. 6
kl. 10
kl. 8
Sýnd kl. 10 B.i. 16 ára
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.20
“Hann var kvennabósi mikill...
en nú kemur fortíðin í bakið á
honum.”
Fékk Grand Prix
verðlaunin í Cannes.
Hefur fengið einróma lof
gagnrýnenda um heim allan.
★★★★
-HJ. MBL
★★★★
-ÓÖH. DV
Sýnd kl. 6, 8.30 og 10.30 B.i. 14 ára
Síðusta sýning!
★★★★
KVIKMYNDIR.COM