Fréttablaðið - 15.09.2005, Síða 86
Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og
viðskiptaráðherra, er þessa dagana
stödd í Toronto í Kanada þar sem
stendur yfir árleg kvikmyndahátíð.
Valgerður er þar í borg á vegum
Iceland Naturally sem er verkefni
þar sem Ísland er kynnt í útlöndum.
Hún var á meðal þeirra sem fór á
frumsýningu á myndinni A Little
Trip to Heaven í leikstjórn
Baltasars Kormáks fyrr í vikunni
og hafði mjög gaman af. „Þetta er
stórvel gerð mynd. Það sem er sér-
stakt við þessa mynd er að hún ger-
ist í raun í Bandaríkjunum en er
tekin upp á Íslandi og er á ensku.
Þetta er gríðarlega vel gerð spennu-
saga,“ segir Valgerður.
Valgerður sá Bjólfskviðu í gær-
kvöldi og segir að mikil eftirvænt-
ing hafi verið eftir þeirri mynd.
„Hún byggir á sögu sem er þekkt.
Þarna voru allar útitökur teknar á
Íslandi og myndin byggir mikið á ís-
lenskri náttúru. Það var meðal ann-
ars tekið upp í Dyrhólaey sem er
glæsilegur staður.“
Valgerður fékk tækifæri til að
fylgjast með tökum á báðum mynd-
unum. Auk þess að vera viðstödd
tökur á Bjólfskviðu í Dyrhólaey
stóð hún á bak við tökuvélarnar
þegar atriði í A Little Trip to Hea-
ven var tekið upp í Þykkvabænum.
Hún segir það hafa verið gaman að
sjá það atriði á hvíta tjaldinu í
Toronto.
Aðspurð segist Valgerður hafa
hitt Forest Whittaker, annan af aðal-
leikurum myndar Baltasars, í
Toronto. „Hann leikur gríðarlega
vel í myndinni. Ég þakkaði honum
fyrir síðast og hann mundi eftir mér
úr bílskúrnum við tökur á mynd-
inni. Ég tengdist samt meira Bjólfs-
kviðu. Hún er þriggja þjóða mynd
og það þurfti að safna hlutafé á Ís-
landi til að það væri hægt að taka
hana upp,“ segir Valgerður, sem
segir afar bjart yfir íslenskri kvik-
myndagerð.
„Eins og þetta með Clint
Eastwood. Það að hann skuli vera
svona ánægður með dvöl sína hér er
mjög skemmtilegt. Það eru allir
sammála um það sem hafa verið við
tökur á Íslandi að þessi fjölhæfni Ís-
lendinga skipti svo miklu máli. Hér
sé vilji til að redda málunum og það
skiptir miklu að geta notað sama
manninn í svo margt. Þeir þekkja
það ekki í Bandaríkjunum.“
Valgerður varð þess heiðurs að-
njótandi að hitta Eastwood við tökur
á Flags of Our Fathers. „Ég spurði
hvernig gengi og hann var mjög
ánægður með allt og sagðist vera á
tímaáætlun. Hann er sjarmör eins
og maður vissi. Það er svolítið gam-
an að hitta svona menn augliti til
auglits.“ freyr@frettabladid.is
54
ALittle Trip to Heaven var frum-sýnd á Toronto-kvikmyndahá-
tíðinni í Kanada á mánudaginn. Að-
standendur myndarinnar bíða
spenntir eftir viðbrögðum gagn-
rýnenda enda geta þau skipt sköp-
um þegar kemur að því að selja
myndina. Í gær höfðu gagnrýnendur
þó ekkert látið í sér heyra sem vek-
ur dálitla furðu í ljósi þess í hvaða
flokki myndin er. Einn frumsýningar-
gesta reið þó á vaðið og birti dóm
sinn á heimasíðu sinni
www.kurtscomment.blogspot.com.
Hann fór fögrum orðum um mynd-
ina og sagði hana vera í hæsta
máta mjög óvenju-
lega. Hann sagði
jafnframt að
myndin færi
sínar eigin leiðir
og það væri vel.
Tónlist Mugi-
son fær einnig
góða dóma sem
og allur leikur.
Áwww.imdb.com, sem oft hefurverið nefnd Biblía kvikmynda-
áhugamanna, segir hins vegar annar
frumsýningargestur að A Little Trip
to Heaven líkist Fargo eftir Cohen-
bræður nema hana vanti allan
húmor. Í stjörnugjöf á síðunni fær
hún þó átta af tíu. Þá hafa fáir dóm-
ar enn birst um Strákana okkar en
myndin fékk góðar viðtökur áhorf-
enda þegar hún var frumsýnd.
Kanadískir gagnrýnendur hafa tekið
myndinni vel en
beðið er eftir
stóra dómi Vari-
ety. Þá var Bjólfs-
kviða eftir Sturla
Gunnarsson
frumsýnd í gær-
kvöldi með við-
höfn en myndar-
innar hefur verið
beðið með mikilli eftirvæntingu.
Miklar hrókeringar hafa verið í ís-lensku fjölmiðlaumhverfi und-
anfarin misseri. Lítið hefur þó verið
um að Morgunblaðið hafi misst
starfsfólk til annarra fjölmiðla en
breyting verður á því þann 1. októ-
ber þegar Skarphéðinn Guð-
mundsson, sem hefur unnið sem
yfirmaður dægurmáladeildar Mogg-
ans, tekur við starfi upplýsingafull-
trúa fjölmiðlarisans 365. Væntan-
lega verður Morg-
unblaðinu mikil
eftirsjá að Skarp-
héðni, enda skel-
eggur menning-
arrýnir þar á ferð.
LÁRÉTT: 2 bein 6 skammstöfun 8 skor-
dýr 9 gæfa 11 samanburðartenging 12 II
14 karlmannsnafn 16 málmur 17 fæða
18 rá 20 tveir eins 21 bannhelgi.
LÓÐRÉTT: 1 gá 3 vafi 4 einangrunar-
efni 5 gláp 7 fugl 10 andmæli 13 hreyfast
15 svall 16 kærleikur 19 í röð.
Lausn
Stór Humar
Medium Humar
Sigin grásleppa
Stór og jákvæð grein um söngkon-
una Emiliönu Torrini og nýjustu
plötu hennar Fisherman's Woman
birtist á dögunum í bandaríska
tímaritinu The New Yorker.
Þar er ferill Emilíönu rakinn
frá því hún vann í kavíarverk-
smiðju þegar hún var sextán ára
þar til hún fluttist til London 21
árs og gaf út plötuna Love in the
Time of Science. Greinarhöfund-
ur segir Emilíönu hafa ítrekað
verið líkt við Björk á þessum tíma
og platan hafi ekki verið nógu
heillandi. Eftir að kærasti Em-
ilíönu lést árið 2000 og hún var
rænd um hábjartan dag í London
hætti hún að semja tónlist í tvö ár
eða allt þar til Peter Jackson fékk
hana til að syngja Gollum's Song
fyrir myndina Lord of the Rings.
Eftir það samdi hún lagið Slow
fyrir Kylie Minogue og græddi
meiri peninga en hún hafði séð
alla sína ævi.
Í umsögninni um Fisherman's
Woman segir að platan sé bæði
minimalísk og falleg. „Platan er
álíka tilfinningarík og eftirminni-
leg og Slow, þó að hún hljómi
meira eins og morguninn eftir
dansinn þegar einhver segir þér
frá lífshlaupi sínu, rólega en
fljótt, alveg upp við eyrað á þér,“
segir m.a. í umsögninni.
Einnig er fjallað um tónleika
Emilíönu á Joe's Pub í New York í
júní þar sem hún sagðist hafa ver-
ið neydd af hljómplötufyrirtæki
sínu til að hafa lag eftir hina látnu
ensku þjóðlagasöngkonu Sandy
Denny á nýju plötunni. Segir
greinarhöfundur það lag vera
eina leiðinlega lagið á plötunni.
Eins og morguninn eftir dansinn
EMILÍANA TORRINI Söngkonan Emilí-
ana Torrini fær góða dóma í tímaritinu The
New Yorker.
[ VEISTU SVARIÐ ]
Svör við spurningum á bls. 8
1
3
2
Eimskip.
Start.
Rétt um fjórum.
VALGERÐUR SVERRISDÓTTIR Iðnaðar- og viðskiptaráðherra er stödd í Toronto um
þessar mundir á vegum Iceland Naturally.
CLINT EASTWOOD Spjallaði við Val-
gerði við tökur á kvikmyndinni Flags of
Our Fathers.
TÓNLISTIN Ég er búin að vera að
hlusta núna á Patti Smith þar
sem ég fór á tónleikana með
henni um daginn. Hún er
búin að vera mikið í tækinu
hjá mér undanfarið. Ann-
ars er tónlistarsvið mitt
mjög breitt, ég er algjör
alæta. Ég held mikið upp á
bandið Sundays og hef
hlustað á það í gegnum árin.
Það er band sem ég fæ
aldrei leið á.
BÍÓMYNDIN Mér finnst mjög
gaman að fara í bíó og geri
það oft. Ég er mest fyrir
raunsæjar myndir um lífið
og tilveruna eins og Lost In Translation,
American Beauty, Piano og fleiri. Ég
heillast alveg sérstaklega af myndum
með fallegri kvikmyndatónlist.
BORGIN New York. Þar bjó ég í þrjú ár.
Hún býður upp á allt á milli himins og
jarðar og iðar af lifi. Þar er mikið um
listir, skemmtileg leikhús, góðan mat og
margt fleira.
BÓKIN Ég fékk bókina Alkemistinn eftir
Paulo Coelho í afmælisgjöf og er ekki
enn byrjuð á henni vegna anna. Hlakka
þó mikið til að lesa hana. En annars les
ég frekar mikið. Gríp líka í jógabækur á
borð við Tree Of Yoga og Touching Pi-
ece þegar tækifæri gefst.
BÚÐIN Ég versla frekar lítið hérna
heima. En úti kaupi ég flest mín föt í búð
sem heitir Urban Outfitters. Sú búð finnst
mér mjög fín. Ég hef einnig gaman af því
að kaupa föt eftir unga hönnuði bæði
hér heima og erlendis. Svo klikkar ekki
H&M þegar maður er blankur.
VERKEFNIÐ Ég er að opna nýja jóga-
stöð á laugardaginn klukkan fimm á
Engjateigi 5 sem ber nafnið Yoga
Shala. Þar vil ég fá allskonar fólk til að
stunda hjá mér jóga og láta sér líða vel.
... fær Mike Pollock, ljóðskáld
með meiru, fyrir að slá upp
reglulegum ljóðakvöldum á Café
Rosenberg í vetur.
HRÓSIÐ
Jóga, New York, Sundays og Urban Outfitters
AÐ MÍNU SKAPI INGIBJÖRG STEFÁNSDÓTTIR, JÓGAKENNARI
15. september 2005 FIMMTUDAGUR
VALGERÐUR SVERRISDÓTTIR: SÁ TVÆR FRUMSÝNINGAR Í TORONTO
Hæstánægð með mynd
Baltasars Kormáks
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
LÁRÉTT: 2legg,6eh,8fló,9lán,11en,
12tveir, 14eiður, 16ál,17ala,18slá,
20ll,21tabú.
LÓÐRÉTT: 1gelt,3Ef, 4glerull,5gón,
7Hávella,10nei,13iða,15rall,16ást,
19áb.
FRÉTTIR AF FÓLKI