Fréttablaðið - 09.10.2005, Side 11
SUNNUDAGUR 9. september 2005
© 2005 KPMG Endurskoðun hf., íslenski aðilinn að KPMG International, svissnesku samvinnufélagi. Allur réttur áskilinn.
Viðskiptavild
og aðrar
óefnislegar
eignir
Þriðjudaginn
11. október
Morgunverðarfundur
Gestur okkar er Dr. Jakob Schröder, sérfræðingur á sviði
fyrirtækjaráðgjafar hjá KPMG í Þýskalandi. Framsaga hans
sem flutt verður á ensku fjallar um eftirtalin atriði:
Sérsvið Dr. Schröder er sameiningar fyrirtækja og meðferð
viðskiptavildar og annarra óefnislegra eigna í samstæðu-
reikningum.
Fundurinn verður haldinn þriðjudaginn 11. október frá
kl. 8:30 til 10:00 í húsakynnum KPMG, Borgartúni 27.
Accounting for business
combinations.
Allocation of purchase
price to assets, liabilities
and goodwill.
Determination of fair value
of intangible assets.
Allocation of assets,
liabilities and goodwill to
cash-generating units.
Impairment test according
to IAS 36.
Determination of the
recoverable amount.
Fundurinn er öllum
opinn meðan húsrúm
leyfir en vinsamlegast
tilkynnið þátttöku
fyrir klukkan 16:00
n.k. mánudag í síma
545 6000 eða með
tölvupósti á netfangið
kpmg@kpmg.is
„Mér fannst mjög jákvætt hvað
nýjan sjávarútvegsráðherra varð-
ar að hann talar mjög opið og beint
til okkar. Mér fannst markverðast í
máli hans hvað gengismálin varðar
að hann talar mjög skýrt um það að
núverandi ástand gangi ekki upp.
Þarna talar maður með reynslu úr
sjávarútvegi og í mjög góðri snert-
ingu við sjávarútveginn í heild;
jafnt starfsfólk sem fyrirtæki.
Þannig að allar slíkar aðgerðir, sem
hann talar um að þurfi að koma til,
ég tel að þær séu af hinu góða því
við erum ekki að tala um koll-
steypu,“ segir Arnar Sigurmunds-
son, formaður Samtaka fisk-
vinnslustöðva.
Hann segir að ástandið sé erfitt
um þessar mundir fyrir sjávar-
útveginn og ástandið sé að mörgu
leyti svart ef ekkert verði að gert.
„Ég hygg að ástandið eins og
það er núna og hefur einna helst
birst í rækjuvinnslu og hjá
nokkrum meðalstórum fyrirtækj-
um, fyrirtækjum sem eru í nýsköp-
un og þeim sem hafa verið að
ganga í gegnum fjárhagslega
endurskipulagningu, þá muni það
gerast fyrir áramót að fyrirtæki
munu einfaldlega ekki fara af stað
í einhverjum tilfellum og sum
kunna að lenda í gjaldþroti og önn-
ur munu draga úr framleiðslunni.
Það verður samdráttur í vinnslu og
frekari stöðvanir í rekstri fyrir-
tækja og það getur auðvitað orðið
gjaldþrot,“ segir hann. Hann segir
ljóst að eins og ástandið sé, geti
fiskvinnslan ekki tekið á sig aukinn
launakostnað.
„Ef þessar aðstæður í þjóðfélag-
inu, þar sem þetta mikil verðbólga
er til staðar, verða til þess að
sprengja kjarasamninga og munu
þýða í framhaldinu enn frekari
kostnaðarauka fyrir atvinnulífið,
þá treystir fiskvinnslan sér ekki til
að taka þátt í því, það er alveg
ljóst,“ segir Arnar.
- hb
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
ARNAR SIGURMUNDSSON FORMAÐUR SAMTAKA FISKVINNSLUSTÖÐVA
Segir að fiskvinnslan geti ekki tekið á sig aukinn launakostnað.
Bi›jum ekki um kollsteypu