Fréttablaðið - 12.10.2005, Síða 34
MIÐVIKUDAGUR 12. OKTÓBER 2005 MARKAÐURINN10
F R É T T A S K Ý R I N G
Greiningardeildir viðskiptabankanna gera
allar ráð fyrir stórauknum hagnaði á þriðja
ársfjórðungi samanborið við sama tímabil í
fyrra og er spáð áframhaldandi góðæri á
hlutabréfamarkaði á næsta ári. Í lok næstu
viku hefst uppgjörstímabil í Kauphöllinni
þegar Nýherji ríður á vaðið.
Alls nemur heildarhagnaður fyrirtækja í
Kauphöll Íslands um 33 milljörðum króna að
meðaltali, sem er helmingi hærri upphæð en
á þriðja ársfjórðungi í fyrra, og sem fyrr eru
það fjármálafyrirtækin sem mynda stærstan
hluta þess hagnaðar sem fellur fyrirtækjun-
um í skaut.
BANKAR Í FLUGGÍR
KB banki mun hagnast mest, um 9,2 milljarða
króna, og verður þá hagnaður bankans á
fyrstu níu mánuðunum kominn í 34 milljarða
króna, sem er mesti hagnaður sem sést hefur
hérlendis. Bankinn skilaði einnig bestri af-
komu á fyrsta ársfjórðungi. Gert er ráð fyrir
að innkoma Singer & Friedlander komi að
fullu inn í uppgjörið og skili miklum vexti í
þóknunartekjum. Íslandsbanki reiknar með
að arðsemi eigin fjár verði um 25 prósent á
árinu, sem er vel umfram markmið KB
banka.
Því er spáð að afkoma Íslandsbanka og
Straums-Burðaráss Fjárfestingarbanka verði
um 4,3 milljarðar fyrir hvort félag fyrir sig.
Hagnaður Íslandsbanka vex samkvæmt með-
altalsspánni um tæp þrjátíu prósent á milli
ára en um nærri fjörutíu prósent í tilviki fjár-
festingarbankans. Landsbankinn reiknar með
að gengishagnaður Straums-Burðaráss verði
um 5,6 milljarðar á tímabilinu.
Landsbankinn mun hagnast um 3,7 millj-
arða gangi spáin eftir. Það er nokkru minni
hagnaður en á sama tíma í fyrra. Bankinn
hagnaðist um ellefu milljarða á fyrri ársins
þannig að hagnaður hans nálgast fimmtán
milljarða fyrir árið í heild.
Hagnaður Tryggingamiðstöðvarinnar
hækkar hlutfallslega mest; fer úr 127 milljón-
um króna í 2,6 milljarða á milli ára. Aukning-
in skýrist af miklum hagnaði af fjármálastarf-
semi en til dæmis er áætlað að gengishagnað-
ur TM af eignarhlut í Landsbankanum slagi
hátt í tvo milljarða þar sem bankinn hækkaði
um þrjátíu prósent á þriðja fjórðungi.
FL GROUP Í SÉRFLOKKI
Það kemur eflaust á óvart að það skuli vera
FL Group sem er spáð næstmestum hagnaði
allra félaga á fjórðungnum þegar haft er í
huga að fjármálafyrirtæki hafa skipað efstu
sæti hagnaðarlistans undanfarin misseri.
Rekstur FL Group líkist þó æ meira rekstri
fjármálafyrirtækis vegna mikillar áherslu á
fjárfestingarstarfsemi. Félaginu er spáð
miklum hagnaði af gengishagnaði af hluta-
bréfaeign í fjármálafyrirtækjum innanlands
og hækkunum á hlutabréfum í easyJet.
Actavis eykur hagnað sinn verulega á milli
ára. Félaginu er spáð tveimur milljörðum í
hagnað, sem er um 67 prósenta aukning frá
fyrra ári. Verður fróðlegt að sjá hvort fyrir-
tækið standi undir væntingum en uppgjör
þess síðustu misserin hafa ekki verið í takt
við vonir markaðarins. Bandaríska samheita-
fyrirtækið Amide, sem Actavis festi kaup á á
öðrum ársfjórðungi, skilar samstæðunni
miklum tekjuauka og hærri framlegð.
Bakkavör Group tvöfaldar nærri hagnað
sinn á milli ára og mun hann nema um átta
hundruð milljónum króna. Kemur Geest að
fullu inn í rekstur Bakkavarar á fjórðungn-
um. Önnur framleiðslufyrirtæki skila minni
hagnaði og lítur út fyrir að afkoma bæði Mar-
els og Össurar lækki á milli ára.
HB Grandi hagnast um 580 milljónir króna
en ætla má að gengishagnaður af erlendum
lánum vegna styrkingar krónunnar leiki þar
stórt hlutverk.
SÍF er eina félagið sem skilar tapi vegna
erfiðleika í laxi en því er spáð að tap þess
nemi rúmum þrjú hundruð milljónum króna.
METGRÓÐI Á ÖLLUM STÖÐUM
KB banki reiknar með að hagnaður þeirra
sautján félaga sem hann spáir fyrir um verði
25 milljarðar króna á árshlutanum og hækki
um helming á milli ára. Þetta er nokkuð lægri
upphæð en hjá hinum bönkunum, sem skýrist
að mestu leyti af því að bankinn spáir ekki
fyrir um eigin rekstur. FL Group mun skila
mestum hagnaði eða 5,4 milljörðum en þar á
eftir koma Íslandsbanki og Straumur-Burðar-
ás Fjárfestingarbanki með um 4,4 milljarða.
Landsbankinn gerir ráð fyrir að hagnaður
á þriðja ársfjórðungi þessa árs verði 65 pró-
sentum hærri en á sama tímabili í fyrra. Alls
gerir bankinn ráð fyrir að heildarhagnaður
þeirra sextán félaga sem hann spáir fyrir um
verði um 29 milljarðar króna á tímabilinu.
Sem fyrr eru það fjármálafyrirtæki sem
draga vagninn. Mesta hagnaðaraukingin í
krónum talið verður hjá KB banka, sem mun
hagnast um rétt tæpa 9,5 milljarða króna. Það
er 2,9 milljörðum meira en á sama tíma í
fyrra.
Greining Íslandsbanka gerir ráð fyrir að
fimmtán félög skili 29 milljarða hagnaði, þar
af skili KB banki níu milljörðum. Nokkrir
þættir munu hafa áhrif á hvernig þróun
hlutabréfaverðs verði á næstunni og nægir
þar að nefna framboð á nýju hlutafé,
rekstrarárangur í útrásarverkefnum, hækk-
andi skammtímavexti og sterka krónu.
ÓSAMMÁLA UM ÞRJÚ FÉLÖG
Afkomuspám greiningardeildanna þriggja ber
í flestum tilvikum vel saman en þegar rýnt er
nánar í þær skera þrjú félög sig úr; FL Group,
HB Grandi og Össur. KB banki spáir því að FL
Group hagnist um 5,4 milljarða, sem er langt
yfir spám Íslandsbanka og Landsbankans sem
spá 4,3-4,5 milljörðum. Greiningardeild KB
banka er einnig á öndverðum meiði þegar
kemur að afkomu HB Granda. Íslandsbanki og
Landsbankinn spá um 730 milljóna króna
hagnaði en KB banki um 280 milljónum.
Hagnaður Össurar
verður að mati Íslands-
banka um 180 prósentum
meiri en Landsbankinn
áætlar. Meðaltalshagnaður
Össurar verður 83 milljón-
ir en Íslandsbanki spáir að
hagnaður hans verði 127
milljónir en Landsbankinn
45 milljónir.
Aðeins KB banki spáir
fyrir um afkomu Jarðbor-
ana, sem eru í Úrvalsvísi-
tölunni. Markaðsvirði
Jarðborana er um níu
milljarðar króna, sem er
litlu minna en verðmæti
Kögunar, sem er undir
smásjánni hjá öllum aðil-
um. Finna má þess dæmi
að félög sem eru minni að
markaðsvirði en Jarðbor-
anir fái meiri athygli frá
greiningardeildum. Engin
greiningardeild spáir
fyrir um afkomu Flögu
Group.
Væri það til hagsbóta fyrir fjárfesta ef
greiningardeildir gæfu út mat sitt á afkomu
allra félaga sem mynda Úrvalsvísitöluna,
vegna mikilvægis þeirra á hlutabréfamark-
aði.
Fyrirtækjum spáð 33 milljarða hagnaði
Heildarhagnaður eykst um helming á milli ára. Sex félög hagnast yfir tvo milljarða og sem fyrr
græða fjármálafyrirtæki á tá og fingri en ekkert eins mikið og KB banki. Eggert Þór Aðalsteinsson
skoðaði afkomuspár greiningardeilda viðskiptabankanna.
ÁFRAMHALDANDI VÖXTUR KB banka er
spáð mestum hagnaði á þriðja ársfjórðungi.
Því er spáð að hagnaður helstu Kauphallar-
félaga nemi um 33 milljörðum króna og
vaxi um fimmtíu prósent á milli ára.
Félag Hagnaðarspá Hagnaður Aukning
3. ársfj. 2005 3. ársfj.2004
Actavis 2.051 1.228 67%
Bakkavör 810 434 87%
FL Group 4.738 2.670 77%
HB Grandi 580 78 640%
Icelandic 119 241 -50%
Íslandsbanki 4.228 3.308 28%
KB banki 9.231 6.577 40%
Kögun 84 53 8%
Landsbanki 3.738 5.660 -34%
Marel 124 154 -20%
Mosaic Fashions 700 - -
Og fjarskipti 279 122 129%
SÍF -316 -1.737 -
Straumur 4.351 3.141 39%
Tryggingamiðstöðin 2.631 127 1972%
Össur 83 338 -76%
Samtals: 33.430 22.394 49%
* Meðaltalshagnaður
A F K O M U S P Á R B A N K A N N A F Y R I R
Þ R I Ð J A F J Ó R Ð U N G – Í M I L L J Ó N U M K R Ó N A
KB banki mun
hagnast mest,
um 9,2 milljarða
króna, og verður
þá hagnaður
bankans á fyrstu
níu mánuðunum
kominn í 34
milljarða króna,
sem er mesti
hagnaður sem
sést hefur hér-
lendis.