Tíminn - 15.08.1975, Page 8

Tíminn - 15.08.1975, Page 8
8 TÍMINN Föstudagur 15. ágúst 1975 Violet Einarsson Sigurður Steinþórsson: HVERNIG?-OG- HVERS VEGNA? Þróun lifs i Surtsey Surtsey: Evolution of life on a voicanic island eftir Dr. Sturlu Friðriksson. Útgefandi: Buttcrworths & Co, London 198 bls, verð 5.30 pund. Surtseyjargosið 1963-66 var að mörgu leiti einstætt meðal is- lenzkra eldgosa: Það stóð óvenjulega lengi, þannig að fræðimönnum gafst tækifæri til að koma upp og framkvæma i tómi ýmsar tilraunir og mæl- ingar meðan á gosinu stóð, ferill þess, frá neðansjávareldvirkni til hraunmyndunar ofansjávar, jók mjög á skilning manna á slikum gosum, á eldfjallafræði isaldar, og á uppruna móbergs- myndunar yfirleitt, og loks örv- aði hin auða eyja úti i hafi mjög imyndunarafl lif- og vistfræð- inga: þar mátti fylgjast með landnámi lifsins. Surtseyjargosið er annað þeirra eldgosa á tslandi, sem bezt hafa verið rannsökuð. Hitt er Heklugosið 1947-48, en um það hefur Visindafélag tslend- inga gefið út mikla ritröö, sem raunar er ekki að fullu lokið ennþá. En niðurstöður rann- sókna i Surtsey hafa birzt i ár- legum skýrslum Surtseyjarfél- agsins, auk fjölmargra greina i ■ timaritum. Af skýrslum Surtseyjarfél- agsins sést gerla hversu hlutur liffræðirannsókna á eynni hefur vaxið með tímanum jafnframt þvi sem hlutur jarðfræðinnar minnkaði, enda lauk siöar- nefndu rannsóknunum að mestu með gosinu, þótt enn sé fylgzt með ýmsum þáttum i jarðfræði- legri þróun eyjarinnar. Land- nám lifsins i Surtsey hófst ekki að marki fyrr en að gosinu loknu, og með þvi hafa menn fylgzt með dæmalausri þolin- mæði i 10 ár. Nú hefur Dr. Sturla Friðriks- son gefið út bók á ensku, þar sem teknar eru saman niður- stöður þessara rannsókna. Er það vel, þvi hann hefur frá upp- hafi verið i hópi ötulustu og hug- myndarikustu rannsókna- manna i Surtsey. Bókin skiptist i 17 lesmálskafla auk inngangs. Hún er prýdd fjölda ljósmynda, svarthvitra og i lit, en kort, linu- rit og töflur skýra textann. Vönduð atriðisorðaskrá fylgir. í upphafi er gosinu sjálfu lýst og helztu jarðfræðiniðurstöðum (4 kaflar). Þá er vikið að vist- fræðilegum aðstæðum á eynni, lofts- og landslagi (2 kaflar), en 10 kaflar lýsa rannsóknum og rannsóknaniðurstöðum á upp- hafi og afdrifum lifvera á eynni. Loks eru helztu niðurstöður dregnar saman og ræddar i sið- asta kafla. Hverjum kafla fylgir heimildaskrá, en fjöldi manna af mörgum þjóðernum hefur staðið að þessum rannsóknum sem vænta mátti. Verður ekki annað sagt en aö bókin beri fag- urt vitni miklum árangri þessa starfs. Það sem mest kom undirrit- uðum á óvart við lestur bókar- innar, vafalaust vegna fákunn- áttu hans i liffræði, var hin vis- indalega aðferð sem einkenndi þessar rannsóknir. Rauði þráð- urinn er „hvernig?” og „hvers vegna?” i stað „hvað?”, eins og áður var. Eða svo dæmi sé nefnt: Liðin er sú tið þegar það taldist grasafræði að „vera góður við blómin”, tina þau og pressa, nefna þau upp á látinu (þótt það mál vanti raunar ekki i þessa bók) og lima á blað. Nú dugirekki að segja „Cardamin- opsis petrea” og láta við svo bú- ið standa. Það, að fræ af þessari plöntu fannst i Surtsey vekur þær spurningar hvaðan og hvernig fræið (ásamt öðrum fræjum) hafi borizt til eyjarinn- ar: Gróðurlif Vestmannaeyja og Suðurstrandarinnar var rannsakað, svo og hafstraumar og vindátt á timabilinu, og jafn- vel gengið svo langt að henda milljón plastkúlum i sjóinn við Heimaey og telja þær,sem rak á land i Surtsey. Þá var lifseigja fræjanna i sjóvatni könnuð með tilraunum, og fiður og maga- innihald fugla, sem á eyna komu, rannsakað. Þannig óx smám saman skilningur manna á þeim þáttum, sem ráða land- námi lifsins: vindi, hafstraum- um, fuglum, loftslagi, fjarlægð frá landi, jarðvegi á eynni sjálfri, tegund og gerð fræsins, os..frv. 1 bók Sturlu koma, fyrir ótelj- andi plöntur, fuglar og pöddur, sem undirritaður kann engin deiliá. En þrátt fyrir þá fákunn- áttu var bókin hin léttasta lesn- ing, enda áherzlan fremur á „hina stóru hluti” nl. hvaðan og hvernig lifið berst til eyjarinn- ar, og ekki sizt hvað af þvi má læra um þá gömlu spurningu hvernig (og að hve miklu leyti) lifverur hafi borizt til Islands eftir isöldina. Þá er uppruna lifsins, hugsanlegri myndun lif- rænna sambanda i Surtsey, og tilraun þar að lútandi helgaður einn kafli, en þeir gerast nú fáir sem trúa bókstaflega sköpunar- fiögu Gamla testamentisins. í inngangi gerir Sturla nokkra grein fyrir hugmyndum norrænna manna um upphaf heimsins og lifsins, eins og þær koma fram i Völuspá og Snorra- Eddu. Siðan reynir hann að tvinna þessar hugmyndir sam- an við atburði i Surtsey með þvi að byrja flesta kaflana með e.k. „mottói” eða tilvitnun i Gylfa- ginningu. Tilvitnanirnar þykja mér oft missa marks, e.t.v. ei Fjallkona á íslend- ingadeginum 1975 Bæjarstjóri í Gimli sizt vegna þess hve máttlausar þær virðast i ensku þýðingunni. Þvi eins og Helgi Péturss á að hafa sagt, þá er ekki mergur i öðrum málum en islenzku og latinu. Við fljótan le,stur rakst ég á eina villu (bls. 49), þar sem steintegundarheitið „fluorite” er notað i stað frumefnisins „fluorine”. Það er full ástæða til að óska Sturlu Friðrikssyni til hamingju með þessa bók, enda er á þvi heimsborgara-yfirbragð að ganga þannig frá svo viðamikl- um og ágætum rannsóknum sem i Surtsey voru unnar, og lýst er i bókinni. í TILEFNI íslendingadagsins 1975 um fyrri helgi kom út hátiö- arblað af Lögberg-Heimskringla, 28 siðna litprentaö blað. A forsiðu blaðsins eru forseta- hjónin, dr. Kristján Eldjárn og frú Halldóra Eldjárn, boöin vel- komin til hátiðarhaldanna ,,á 100 ára afmæli varanlegs landnáms i Vesturheimi.” Fjallkonan á tslendingadegin- um var bæjarstjórinn i Gimli, Violet Einarsson. Eftirfarandi grein er tekin úr áðurnefndu há- tiðablaði Lögberg-Heimskringla: „Dætur Fjallkonunnar hafa frá öndverðu haft skapgerð og einurð til að beita áhrifum sinum eftir því, sem þjóðfélagsskipulagið framast leyfði. Það er þeim I blóð borið að fylgjast með opinberum málum, skapa sér sjálfstæðar skoðanir, að standa við eigin sannfæring á opinberum vett- vangi og hopa hvergi. Þær hafa verið forystumenn um margt, sem til þjóðþrifa horfði. Þvi varð engin betur valin til að bera merki Fjallkonunnar á ts- lendingadaginn þetta aldar- afmælisár islenzka landnámsins i Manitoba, og alheims kvennaár en Violet Einarsson, bæjarstjóri höfuðstaðar Nýja tslands. — Hún er fædd á Gimli, hefur alið þar Sigfúss og Guðrúnar Einarsson, sem fluttu frá Islandi ung hjón með eitt barn og bjuggu siðan að Ljósalandi við Hnausa, Man. Ein- ar er söngelskur maður, segir Violet. Hann keypti sér nýverið orgel úr dánarbúi Gunnars heit- ins Erlendssonar, gerði sér svo feröir til Winnipeg til að læra að leika á það, sjálfum sér og nánustu vinum til skemmtunar, en á unglingsárum sinum söng hann oft á mannamótum. Nú er Einar hættur að stunda fiskiveið- ar og fiskiflutninga, gefur sig al- gerlega að fyrirtækinu, Einars- son Realty, sem þau hjón reka sameiginlega á Gimli og Violet stofnaði árið 1950. Loks fæst Violet til að snúa sér að eigin starfsferli, eftir að henni hefur verið bent á rabb um einka- dötturina geti beðið betri tima I viðtalinu. Violet hlaut alla sina menntun i Manitoba, og á Gimli lærði hún að fella net, en við það vann hún þangað til hún giftist. Hún er treg til að kannast við að hún hafi verið öllum öðrum fimari og handfljótari i þeirri iðn, en þó segja kunnugir að eng- inn karl né kona hafi haft við henni. Hún var fyrst kosin I bæjar- ráöið á Gimli 1958 til tveggja ára eða þangað til 1961. — Bæjar- stjóri var hún kjörin með miklum meirihluta 1962. Síðan var hún tvivegis endurkosin i embættið til tveggja ára, en áriö 1967 tapaði hún kosningum fyrir Danny Sig- mundson sem sat viö stjórn i fjögur ár. Hún keppti á ný árið 1971 og sigraði með miklum meirihluta. Þá komst á sú laga- breyting að embættistiminn var lengdur upp i þrjú til fjögur ár, og kom þvl ekki til kosninga aftur fyrr en 1974, en þá var Violet end- urkjörin bæjarstjóri og á ekki kosningar framundan fyrr en árið 1978. A þeim árum, sem hún hefur skipað æðstu stöðu I bæjarráðinu, hefur verið lokið við vatnsleiðslu og sorprennsli i bænum. Hver gata er nú steinsteypt og Gimli hreinn og snyrtilegur bær. Hún er i ráðuneyti Gimli Industrial Park, og var skipuð af Manitobastjórn i stjórnarnefnd „Rural Munici- palty and Town og Gimli De- velopment Corporation.” Þar skipar hún sæti með fulltrúum landsstjórnar og fylkisstjórnar, sem falið var að ákveða hvers- konar framkvæmdir kæmu þorp- inu og sveitaumhverfinu að mestum notum. — En þegar flug- herinn var fluttur frá Gimli veitti sambandsstjórnin fjárstyrk sem nam $ 1.4 milljón til að skapa bráðabirgða atvinnuvegi og vekja áhuga túrista á umhverfinu. Violet lætur sig fleira skipta en það eitt sem kemur bæjarráðinu við. Hún er i stjórnarnefnd Betel- stofnunar, er virkur félagi i Gimli Women’s Institute, og beitti sér fyrir stofnun stærsta héraðsbóks- safnsins sem til er i Manitoba. Það þjónar fimm sveitahéruðum (rural municipalities) og þar er komiö fyrir i sérstöku safni öllum Islenzku bókunum, sem áður tilheyrðu litla lestrarfélaginu á Second Avenue á Gimli. Aldarafmælisár Kanada, 1967, starfaði hún i nefnd, sem annaðist hátiðahöld. Móðir Violet, Guðrún Frið- rikka, fluttist frá Akureyri þriggja ára gömul árið 1876, með foreldrum sinum, Gottskálki Sig- fússyni og Hólmfriði Jónatans- dóttur, og tveim systkinum. Fjöl- skyldan settist fyrst að á Viðir- nesi við Winnipegvatn, I Indiána skýli byggðu úr bjálkum og þekjuðu með heyi. Þá um vetur- inn fæddi Hólmfriður fjórða barn þeirra hjóna, dreng sem lézt skömmu siðar úr bólupestinni illræmdu, sem geysaði um hið nýja landnám. Framhald á 19. siðu allan sinn aldur, og þótt hún eigi það sammerkt með mörgum öðrum Vestur-lslendingum að vera ensk i aðra ættina, er ræktin við Islenzk málefni ekki siðri fyrir það að góðar erfðir hefðu hún tekið i báðar ættir. Enda segir þessi hægláta, yfirlætislausa kona, með dálitlu stolti að faðir sinn, William Herbert Bristow, hafi verið fyrsti Englendingurinn sem stundaði fiskiveiðar á Winni- peg vatni og hafi móðurbróðir sinn, Páll Kristinn Olson, kennt honum sjómennskuna. William Bristow var fljótur að sameinast tslendingunum á Gimli, enda um- kringdur á allar hliðar, en aldrei talaði hann Islenzku. Of fast var vist gengið aðhonum, og það utan fjölskyldunnar, svo hann hafði ekki lund til aö láta undan siga, vildi ekki láta innbyröa sig eins og réttlaus væri, það ættu tslend- ingar að geta skilið öðrum betur. Atján ára gömul giftist Violet, Einari Einarssyni, en hann talar islenzku reiprenndi, les hana og skrifar. — Segir kona hans að hann hafi þjálfað sig i móðurmál- inu. „Einar var ákaflega dug- legur og veiðinn fiskimaður á meðan hann fékkst við það starf,” sagði Violet, og aftur brá fyrir stolti i svip hennar. Hann er sonur

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.