Tíminn - 15.08.1975, Side 13
Föstudagur 15. ágúst 1975
TÍMINN
13
LANDVERND
aðild að Bréfaskólanum
GEFJUN
AUSTURSTRÆTI
Sex félagasamtök eiga nú
A landsþingi Kvenfélagasam-
bands íslands fyrir skömmu var
einróma samþykkt aðild sam-
bandsins að Bréfaskólanum. Þar
með var formlega gengið að fullu
frá eignaraðild þeirra sex félaga-
samtaka, sem nú standa að
skólanum. 011 þessi samtök hafa
nú tilnefnt fulltrúa i skólastjórn,
en hana skipa eftirtaldir menn.
Frá Sambandinu: Axel Gislason,
Gunnlaugur P. Kristinsson og
Ólafur Sverrisson. Frá ASÍ: Bolli
Thoroddsen, Stefán ögmundsson
og Þórunn Valdimarsdóttir. Frá
BSRB: Birna Bjarnadóttir. Frá
Farmanna- og fiskimannasam-
bandi tslands: Daniel Guðmund-
son. Frá Kvenfélagasambandi Is-
lands: Sigriður Thorlacius. Frá
Stéttarsambandi bænda: Arni
Jónasson. Skólastjóri Bre'fa-
skólans er Sigurður A. Magnús-
son.
Samkvæmt reglugerð skólans
skal einnig starfa við hann sér-
stakt 30 manna fulltrúaráð,
skipað stjórn hans og 20 öðrum
fulltrúum aðildarsamtakanna.
Þrenn samtökin hafa nú tilnefnt
menn i fulltrúaráð. Þeir eru
Ingólfur Sig. Ingólfsson og
Guðlaugur Gislason frá Far-
manna- og fiskimannasambandi
íslands, Margrét S. Einarsdottir
og Sigurveig Sigurðardóttir frá
Kvenfélagasambandi Islands, og
Gunnar Guðbjartsson og
Guðmundur Ingi Kristjánsson frá
Stéttarsambandi bænda.
Skólastjórnin hefur þegar
haldið tvo fundi, og ma. hefur hún
beint þeim tilmælum til aðildar-
samtakanna, að þau leggi fram
tillögur um nýtt eða endurbætt
námsefni, og þá einkanlega
námsefni, sem varðar starfssvið
einstakra samtaka og áhugasviö
félagsmanna þeirra. Auk þess er
óskað eftir, að slikum tillögum
fylgi ábendingar um höfunda
bréfanámskeiða eða leiðbeininga
bæklinga, eða hugsanlega
ráðgjafa um slík efni.
Nokkuð af nýju námsefni hefur
komið á markaðinn hjá Bréfa-
skólanum undanfarið og annað er
væntanlegt með haustinu. Þannig
er nýlega komið út námefni um
Námstækni eftir Hrafn Magnús-
son, Bókfærslu eftir Þorstein
Magnússon, verzlunarstörf (Við
bætum þjónustuna) eftir Sigurð
Jónsson og tslenzka málfræði
eftir Eystein Sigurðsson.
Leiðrétting
Þau mistök urðu i þeirri frétt
blaðsins á fimmtudaginn, þar
sem sagt var frá ályktun NCF um
stuðning við okkur i landhelgis-
málinu, að einn þeirra fulltrúa
SUF, sem sóttu aðalfund samtak-
anna, var sagður heita Þorbjörg
Höskuldsdóttir. Rétta nafnið er
Dagbjört Höskuldsdóttir. Leið-
réttist þetta hér með.
Með haustinu koma væntanlegá
út fjögur ný tungumálanámskeið:
Enska án erfiðis, Þýzka án
erfiðis, Spænska án erfiðis og
Sænska handa ykkur. Þessi nám-
skeið samanstanda af erlendum
kennslubókum, islenzkum
kennsluleiðbeiningum og fram-
burðaræfingum á snældum
(„kassettum”) Af öðrum náms-
greinum, sem nýtt efni er
væntanlegt i, er að nefna
bókmenntir (tslandsklukkan,
Gisla saga Súrssonar),
mannfræði, vistfræði, stærðfræði,
endurskoðun, mótorfræði, hjálp i
viðlögum, siglingafræði og
auglýsingateiknun.
Ntt HAFA bilabryggjur Akraborgarinnar verið teknar i notkun, þannig
aö nú er hægt aö aka beint um borð og frá sporði eins og til er ætlazt.
Fyrsta daginn flutti skipið 120-130 bila á milli Akraness og Reykjavikur
og var sá stærsti 27 tonna vöruflutningabill. Þessa Timamynd tók
Róbert, þegar bilum var ekið um borð i Akraborgina i Reykjavikur-
höfn.
manns, en þar sem starfsmenn
eru rúmlega 200, matast þeir i
tveim flokkum. Mjög fullkomin
tæki eru i eldhúsi mötuneytisins,
enda tekur þaö tvær stúlkur ekki
nema 10 minútur að afgreiða 80-90
manns. Eldunartækin eru sænsk
að gerð og kostuðu um 5 milljónir
króna, en samtals mun heildar-
kostnaður við mötuneytið vera 9-
10 milljónir króna. Ráðskona
mötuneytisins er Sigurborg
Helgadóttir.
Að sögn Ingólfs Sverrissonar,
starfsmannastjóra Slippstöðvar-
innar, fór fram könnun sl. vor
meðal starfsmanna . á áhuga
manna á mötuneyti, og kom þá i
ljós, að 85% starfsmanna voru
fylgjandi hugmyndinni, enda er
verð hverrar máltiðar aðeins 200
krónur, og er þá reiknað með, að
sú upphæð nægi til að greiða hrá-
efnisverð.
Aðspurður um frekari nýtingu
mötuneytisins, sagði Ingólfur, að
hugmyndin væri að koma upp
setustofu inn af matsalnum, auk
þess sem ætlunin væri að starfs-
mannafélagið fengi aðstöðu i
salnum fyrir hvers konar starf-
semi sem fer fram innan félags-
ins.
I
Séð yfir matsal hins nýja mötu-
neytis Slippstöðvarinnar á Akur-
eyri.
Timamynd: ASK.
Slippstöðin á Akureyri
opnar nýtt mötuneyti
ASK-Akureyri,— Nýtt mötuneyti
var tekið i notkun hjá Slippstöð-
inni á Akureyri ekki alls' fyrir
löngu. Með tilkomu þess var
vinnutilhögun breytt þannig, að
nú hætta starfsmenn stöðvarinn-
ar vinnu kl. 17.10 i stað 18.30 áður.
Astæðan til þessara miklu stytt-
ingar vinnutimans er sú, að
hádegisverðartiminn er færður úr
60 minútum' i 30, auk þess sem
tveir kaffitimar hafa verið felldir
niður.
Hið nýja mötuneyti Slipp-
stöðvarinnar rúmar um 1100
Endurræktun túnanna
Landfara hefur borizt bréf frá
Helga Gislasyni, Hrapps-
stöðum, hann skrifar:
„Kæri Landfari, það var i
„bændaspjalli” i útvarpinu fyrr
i sumar, að Agnar Guðnason
ráðunautur komst að orði eitt-
hvað á þá leið, að það væri ekki
lokkandi fyrir bændur, að bera
þennan dýra áburð á skemmd
tún, vaxin varpagrasi, alls
óhæfu til að spretta nokkuð eða
skilja eftirtekju af áburðinum.
Ég vil taka undir þetta með
Agnari, og undirstrika það að
áburðargjöf á skemmd tún er
hreint neyðarúrræði. Viða er
meðaltals eftirtekja af hey
komin niður i algjört lágmark,
og niður fyrir það, sem sæmi-
legt getur talizt, eða nægjanlegt
er handa þeim bústofni, sem
hafa þarf til að tryggja bærilega
afkomu búanna.
Það var talið, aö tún hefðu
yfirleitt náð sér eftir kalið og
kuldaskeiðið á siðasta áratug.
Það er þó ekki nema hálfur
sannleikur, þvi að upp úr kal-
skellunum greri yfirleitt sá
gróður, sem ekki telst til nytja-
gróðurs, eins og áður er nefnt,
varpagras, fiflar, sóleyjar og
blöðkur, sem teljast til illgresis I
túnum, og verða ekki að neinu i
uppskerunni. Af þessu er ljóst,
að endurræktun túnanna er
mjög aðkallandi, ef ekki á viða
að verða heyskortur, einkum ef
misæri gerir. En það er sannast
að segja, að endurræktun allra
skemmdra túna er risavaxið
átak fyrir bændur eins og hag
þeirra margra er nú komið. Það
verður þó ekki undan þessu
vikizt, þar sem heyfengurinn er
undirstaða búskaparins.
1 þessu sama „bændaspjalli”
var ráðunauturinn að mæla með
vissri gerð jarðtætara til endur-
vinnslu túnanna. Ég tel heppi-
legra að plægja túnin, og nota
þá tækifærið og koma niður i
túnin öllum þeim húsdýra-
áburði, sem tiltækur er. Herfa
svo túnin með léttum herfum,
svo að minnst af þessum gamla
og óæskilega gróðri komi aftur
upp á yfirborðið. Jarðtætarar
geta aftur átt við til fullvinnslu
á nýbrotnu landi.
Það er hætt við þvi að á næsta
kuldaskeiði geti kal og
túnskemmdir endurtekið sig.
Þaö er þvi brýnt nú að
rannsakað verði, hvort takast
mætti að rækta upp Islenzkan
grasstofn, sem betur stæði af
sér áföll i veðurfari hér á þess-
um norðlægu slóðum, jafnframt
þvi að aukinn væri notkipi lif-
rænna efna til áburöar.”
Hreint
tí^land
fagurt
land
R5
c
Móttaka á
lopapeysum
hefst í dag — föstudag — eftir hádegi og
verður framvegis á þriðjudögum og
föstudögum eftir hádegi
NÝTT VERÐ á fallegum og vel prjónuðum
peysum