Tíminn - 20.08.1975, Page 7
Miðvikudagur 20, ágúst 1975
TÍMINN
7
Útgefandi Framsóknarflokkurinn.
Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar:
Þórarinn Þórarinsson (ábm.) og Jón Helgason. Rit-
stjórnarfulltrúi: Freysteinn Jóhannsson. Fréttastjóri:
Helgi H. Jónsson. Auglýsingastjóri: Steingrimur Gisla-
son. Ritstjórnarskrifstofur i Edduhúsinu við Lindargöty,
simar 18300 — 18306. Skrifstofur I Aðalstræti 7, simi 26500-
— afgreiðslusimi 12323 — auglýsingasimi 19523. Verð I
lausasölu kr. 40.00. Askriftargjald kr. 700.00 á mánuði.
Blaðaprent b.f.
Viðræður við Breta
Samkvæmt ósk brezku stjórnarinnar hefur það
verið ákveðið, að viðræður hef jist bráðlega milli
hennar og islenzku rikisstjómarinnar i tilefni af
útfærslu fiskveiðilögsögu Islands i 200 milur.
Sennilega hefjast þessar viðræður snemma i
næsta mánuði.
Þvi var lýst yfir af hálfu rikisstjórnarinnar,
þegar reglugerðin um stækkun fiskveiðilög-
sögunnar var gefin út i siðasta mánuði, að hún
væri reiðubúin að ræða við þær þjóðir, sem hefðu
hagsmuna að gæta i sambandi við útfærsluna úr
50 i 200 milur. Af hálfu þingflokks Framsóknar-
flokksins hefur verið lýst yfir, að ekki sé óeðlilegt
að veita þessum þjóðum nokkrar undanþágur i
tiltekinn umþóttunartima á svæðinu, sem hin
nýja útfærsla nær til, þ.e. milli 50 og 200 milna.
Þetta er i samræmi við afstöðu vinstri stjórnar-
innar 1971, þegar hún hóf undirbúning útfærsl-
unnar úr 12 milum i 50 milur. Þá var það eitt
fyrsta verk hennar að bjóða viðræður um undan-
þágur i stuttan tima á þvi svæði, sem útfærslan
náði til. Þetta sama hafa aðrar þjóðir yfirleitt
gert undir svipuðum kringumstæðum.
Það liggur i augum uppi, að allt annað gildir
um svæðið innan 50 milnanna heldur en svæðið,
sem er milli 50 og 200 milnanna. Það er ekki hluti
hinnar nýju útfærslu, heldur er það búið að vera
hluti islenzku fiskveiðilögsögunnar i þrjú ár. Á
þvi svæði hafa þær þjóðir, sem þess hafa óskað og
hægt hefur verið að ná samningum við, haft
umþóttunartima i nær þrjú ár. í næsta mánuði
eru t.d. liðin þrjú ár siðan samið var við Belgiu-
stjórn. Bretar eru búnir að hafa þar umsaminn
umþóttunartima i tvö ár þann 13. nóvember næst
komandi, en áður höfðu þeir veitt ólöglega innan
markanna i eitt ár. Þvi má segja, að þeir séu i
reynd búnir að hafa þar þriggja ára umþóttunar-
tima.
Svæðið innan 50 milna markanna hefur svo al-
gjöra sérstöðu, vegna þess að þar hefur verið um
ótviræða ofveiði á þorskstofninum að ræða. I
samræmi við það hefur oft verið bent á það hér i
blaðinu að undanförnu, að þótt útfærslan i 200
milur sé stór áfangi i landhelgismálinu, sé það
stærsta skrefið, sem stiga þurfi i landhelgisbar-
áttunni á þessu ári, að draga úr veiðunum innan
50 milna markanna og tryggja Islendingum þar
forgangsrétt. Á þvi byggist það, að hægt verði að
koma á nauðsynlegri friðun, án þess að skerða
þurfi afkomu þjóðarinnar.
Af hálfu Breta verður þvi vafalaust haldið
fram, að þeir hafi takmörkuð not af veiðum við
ísland, fái þeir engar undanþágur innan 50 milna
markanna. Þetta er rétt að vissu marki. En Bret-
ar verða jafnframt að gera sér annað ljóst. Það
er ómótmælanlegt, að bæði þorskur og ýsa eru nú
ofveidd innan 50 milna markanna. Heildaraflinn
á þessum aðal fisktegundum þarf að minnka. Það
er jafnframt augljóst, að vegna efnahagslegra
ástæðna þarf afli íslendinga sjálfra fremur að
aukast en hið gagnstæða. Það er orðin viður-
kennd regla, hvað sem deilum um mörk fisk-
veiðilögsögunnar liður, að strandrikið eigi að
hafa algeran forgangsrétt, þegar draga þarf úr
veiðum af friðunarástæðum. Þá eru það út-
lendingarnir, sem verða að vikja. Sýni Bretar
skilning á þessu atriði, ætti samkomulag að geta
náðst, en annars ekki.
-Þ.Þ.
ERLENT YFIRLIT
Efast um langlífi
stjórnar Ahmeds
Hún getur samt breytt valdahlutföllum í Asíu
ENN hefur ekki fengizt
greinileg mynd af þvi, hvernig
stjórnarbyltinguna i Bangla-
desh barað höndum. Ýmislegt
gæti bent til þess, að það hafi
verið nánustu samstarfsmenn
Mujibur Rahmans, sem stóðu
að henni. Þannig hefur einn
nánasti samherji hans frá
upphafi, Khondakar Mushta-
que Ahmed, tekið við embætti
forsetans, og flestir ráðherrar
úr stjórn Mujibur halda störf-
um sinum áfram. Annað gæti
hins vegar bent til þess, að
herinn hafi átt aðalfrumkvæði
að byltingunni, en telji hyggi-
legt að láta samstarfsmenn
Rahmans fara með völd um
sinn.
Reynslan sker úr þvi, hvor
þessara skýringa sé réttari.
Hitt eru flestir hins vegar
sammála um, að það hafi
orðið Mujibur að falli, að hann
reyndist álika illa fallinn til að
fara með landstjórn og hann
var vel fallinn til að vera
leiðtogi i sjálfstæðisbaráttu.
Hann var tvimælalaust i hópi
snjöllustu áróðursmanna á
sinum tima, enda eins konar
þjóðardýrlingur um skeið.
Hins vegar gekk honum flest
illa, þegar hann átti að fara að
stjórna landinu. Að dómi
kunnugra náði hann aldrei
neinum tökum á stjórninni, en
var þó svo ráðrikur, að enga
ákvörðun mátti helzt taka án
samþykkis hans. Jafnframt
gerði hann sig sekan um að
halda fram vinum sinum og
ættingjum, en þeir notuðu þá
aðstöðu til að skara eld að
sinni köku, og Mujibur lét það
ekki aðeins kyrrt liggja,
heldur hélt verndarhendi yfir
þeim. 1 Dacca hefur eftirfar-
andi saga verið um nokkurt
skeið á allra vörum, sem
dæmi um stjórnarfarið: Lög-
regluþjónn tók fasta tvo
unglinga, sem urðu uppvisir
að þjófnaði. Lögregluþjónninn
spurði yfirmann sinn, hvað
hann ætti að gera við þá. Sá
spurði sinn yfirmann, og
þannig gekk þetta koll af kolli,
unz náðist i Mujibur sjálfan.
Mujibur kallaði þá i konu sina
og spurði: Eru Kamal og
Jamal (svo heita synir þeirra)
heima? Hún svaraði þvi ját-
andi. Þá fyrst svaraði Muji-
bur: Látið piltana I fangelsi.
MUJIBUR hafði það sér til
nokkurrar afsökunar, að
sennilega er það óvinnandi
verk að stjórna Bangladesh.
Bangladesh er ekki mikið
stærra en Island, en ibúar eru
75-80 milljónir og fólksfjölgun
óviða meiri. Landbúnaðar-
skilyrði eru að visu góð, en
flóð, sem verða i miklum fljót-
um, sem falla um landið,
valda oft gifurlegu tjóni. 1
siðusta stórflóðinu, sem varð i
nóvember 1970, er talið að um
300 þús. manns hafi farizt.
Með áveitum og varnar-
skurðum yrði vafalaust hægt
að nýta landið miklu betur,
en slikar framkvæmdir kosta
meira en landsmenn hafa efni
á. Iðnaður má heita enginn i
landinu. Almenn fátækt er '
sennilega hvergi meiri en i
Bangladesh, og algengt er, að
fjöldi manns látist árlega
vegna hungurs. Við þetta
bættist, að styrjöld hafði
geisað i landinu um nokkurt
skeið, þegar Mujibur tók við
völdum i árslok 1971. Efna-
hagurinn var því enn verri en
ella. Stjórnarkerfið var auk
þess að miklu leyti úr sögunni,
þvi að það hafði að mestu leyti
Mushtaque Ahmed
verið i höndum Vestur-
Pakistana, sem voru nú reknir
úr landi. Mujibur þurfti þvi að
byggja það upp að nýju. Hann
treysti þar mjög á kunningja
og vini, eins og áður segir, en
þeir misnotuðu aðstöðu sina. A
siðastliðnu ári upplýstist, að
um 15% af hrisgrjónafram-
leiðslunni var smyglað til Ind-
lands, þótt hungursneyð væri i
landinu. Þetta leiddi til þess,
að rétt fyrir siðustu áramót
lýsti Mujibur hernaðarástandi
i landinu, tók sér einræðis-
vald, bannaði alla flokka,
nema sinn eigin flokk og öll
dagblöð, nema fjögur, sem
töluðu máli stjórnarinnar og
flokksins. Hins vegar fylgdu
litlar aðrar breytingar i kjöl-
farið og Mujibur sniðgekk her-
inn meira og meira, þvi að
hann vantreysti honum, en fól
sérstakri öryggislögreglu,
sem hann hafði stofnað sem
mótvægi við herinn, þvi meiri
völd. Þannig safnaði Mujibur
glóðum að höfði sér á margan
hátt, enda voru erlendir
fréttamenn i Bangladesh farn-
ir að spá þvi, að bylting gæti
orðið þar þá og þegar.
AF SVIPUÐUM ástæðum
virðast umræddir aðilar
vantrúaðir á, að hinum nýja
forseta muni takast nokkuð
betur. Hann og flestir sam-
starfsmenn hans eru svo ná-
tengdir fyrrverandi stjórn, að
menn eru fyrirfram
vantrúaðir á, að honum
farnist nokkuð betur en
Mujibur. Þó má vera, að hann
eigi eftir að sýna stjórnanda-
hæfileika, sem enn hafa ekki
komið i ljós, vegna þess að
hann hefur staðið i skugga
Mujiburs sem var miklu lit-
rikari persónuleiki.
Hinn nýi forseti, Khondakar
Mushtaque Ahmed, fæddist i
Bangladesh 1918. Hann hefur
lögfræðipröf frá háskólanum i
Dacca. Arið 1942 gekk hann i
flokk Gandhis, sem barðist
fyrir sjálfstæði Indlands, og
hafði sig svo mikið i frammi
að Bretar settu hann i fangelsi
1946. Arið 1949 var hann einn
af fjórum stofnendum Awami-
flokksins, sem nú er eini
flokkurinn i Bangladesh.
Fimm árum seinna náði hann
kosningu til þingsins i
Pakistan. Þar hélt hann fram
rétti Austur-Pakistana, sem
hann sagði að væru
hlunnfarnir af Vestur—
Pakistönum, þótt þeir væru
fámennari. Þetta bar litinn
árangur, og 1964 sneru þeir
Rahman og Ahmed sér að þvi
að endurreisa Awamiflokkinn
og settu honum einkum það
markmið að koma á heima-
stjórn i Austur-Pakistan. Af
þessum ástæðum voru þeir
settir i fangelsi 1966, og var
haldið i sama klefa næstu tvö
árin. A meðan óx flokkur
þeirra jafnt og þétt og i þing-
kosningunum 1970 fékk hann
hreinan meirihluta á þingi
Pakistans. Stjórnin i Pakistan
svaraði með þvi að kalla
þingið ekki saman. Jafnframt
lét hún fangelsa Mujibur og
flytja hann til Vestur—
Pakistans. Áður tókst honum
þó að lýsa Austur-Pakistan
sjálfstætt riki, og gaf þvi
nafnið Bangladesh. Jafnframt
myndaði hann bráðabirgða-
stjórn, og var Ahmed utan-
rikisráðherra hennar. Ahmed
komst til Indlands og stjórnaði
sjálfstæðisbráttunni þaðan.
Stjórnin i Pakistan hóf mikla
herferð gegn fylgismönnum
Awamiflokksins og leiddi það
til þess, að Indland.. skarst i
leikinn og gersigraði
Pakistanherinn i Bangladesh.
I árslok 1971 var Mujibur
leystur úr haldi og hélt
heimleiðis, og var honum
fagnað sem þjóðhetju. Af
óþekktum ástæðum lét hann
Ahmed hætta störfum utan-
rikisráðherra og skipaði hann
vatnamálaráðherra, en undir
það embætti heyrði umsjón
með öllum áveitum og varnar-
görðum i landinu. Siðar varð
Ahmed viðskiptaráðherra, og
féll öll utanrikisverzlun undir
ráðuneyti hans. Hann hefur
jafnframt verið varafor-
maður Awamiflokksins.
ÞAÐ HEFUR lengi verið
opinbert leyndarmál, að
Mujibur og Ahmed voru
ósammála um utanrikis-
stefnuna. Mujibur var
fylgjandi nánu samstarfi við
Indverja og Rússa. Ahmed
hefur hins vegar lagt áherzlu á
nána samvinnu við Araba-
löndin og Bandarikin og jafn-
vel Kina, en kalt hefur verið
milli Banglaiesh og Kina.
M.a. beittu Kinverjar
neitunarvaldi i öryggisráði
Sameinuðu þjóðanna til að
hindra inngöngu Bangladesh i
S.Þ., þangað til á siðastliðnu
ári. Það hefur vakið athygli,
að Pakistan varð fyrsta rikið
til að viðurkenna nýju
stjórnina i Bangladesh. Hins
vegar hefur indverska
stjórnin litið látið uppi um af-
stöðu sina og bannað blöðum
að ræða um hana að sirini. Það
getur haft veruleg áhrif á
valdahlutföllin i Asiu, ef
Bangladesh veikir tengslin við
Indland og Sovétrikin og leitar
aukins samstarfs við Pakist-
an, Bandarikin og Kina.
-Þ.Þ.