Tíminn - 20.08.1975, Qupperneq 12
12
TÍMINN
Miðvikudagur 20. ágúst 1975
Höfundur: David Morrell
Blóðugur
hildarleikur
98
uppljómuð af eldinum. Hann bjóst við mér úr bak-
garðinum — gegn um runnana og trjágróðurinn. Inn á
milli trjánna. Skilurðu þetta ekki, Trautman? Þessi skóli
þinn þjálfaði hann í skæruhernaði i fjalllendi. Þess
vegna sneri hann sér ósjálfráttaðtrjánum og runnunum
þarna í bakgarðinum. Og eftir að hafa lent í klónum á
honum uppi í hæðunum var ég búinn að bölva mér upp á
það, að berjast aldrei framar við hann með hans eigin
aðferðum. Aðeins með MÍNUAA aðferðum. Þessu lofaði
ég þér. Þetta er MINN bær. Ef það átti fyrir mér að
liggja, að bíða lægri hlut, þá vildi ég að það gerðist í
MINNI götu, hjá húsunum AAl'NUM og við brunabjarman
af skrifstofubyggingunni MINNI. Þetta hef ég staðið
við. Ég reiknaði hann út, Trautman. Ég hæfði hann í
brjóstið.
Enn sagði Trautman ekki orð. Hann starði lengi á
kviðarsár Teasles áður en hann benti á það.
— Þetta? Áttu við þetta, sem þú bendir á? Eins og ég
var að segja, Trautman — hann naut góðrar tilsagnar í
þessum skóla þínum. Herra minn trúr. Hvílík viðbröað.
Nú mátti heyra hvæsandi þyt svif blysanna, sem svifu
upp og lýstu þann hluta bæjarins, sem ekki var baðaður
logal jómum.
— Við vorum of f Ijótir að skjóta þeim upp, sagði einn
lögreglumannanna hneykslaður.
— Hvað áttu við?
Kern kom hlaupandi aftan frá húsinu og niður
brattann — i átt að gangstéttinni. — Hann er ekki þarna
fyrir aftan.
— Ég veit það. Ég var að reyna að seg ja ykkur það.
— Hann skaut einhvern af íbúunum í öxlina. Út af því
voru öll veinin í konuhnu. Liðsmenn mínir eru að leita að
slóð hans. Kern gjóaði augunum að uppljómuðum
himninum.
— Hvað er þetta? Hvaða sprenging var þetta, sagði
Teasie.
— Guð hjálpi okkur. Sennilega hafa þeir haft of
skamman tíma.
— Tíma til hvers?
— Hann er búinn að kveikja í tveimur bensínstöðvanna
Við fréttum gegnum talsstöðina að slökkviIiðið væri á
ieið þangað. Bensíndælurnar og aðalbyggingin eru ger-
samlega umvafðar logunum Þeim var gersamlega
ókleift að komast inn og skrúfa fyrir bensínstreymið
Þeir ætluðu þá að taka af rafmagnið af öllum bæjar-
hlutanum, en gerðu sér þá Ijóst, að ef þeir stöðvuðu
dælurnar myndi þrýstingurinn í slöngunum snúast við
og leiða eldinn ofan í aðaleldsneytisgeymana. Þá hefði
allt hverf ið sprungið i loft upp. Ég sendi eina sveit til að
hjálpa til við að rýma svæðið. Einn eldanna logaði í
ibúðahúsahverfi. Vonandi hafa þeir náð að flytja fólkið
á brott, áður en stöðin sprakk. Enn á ein stöð eftir að
springa til viðbótar. Hversu margir skyldu láta lífið,
áður en þessu lýkur?
Nú heyrðist hrópað f rá húshliðinni: — Hann fór þarna
yfir barnaleikvöllinn.
— Oskrið ekki svo hátt, að hann komist að því að við höf -
um fundið slóðina.
— Þið getið verið rólegir. Hann er ekki á leikvellinum,
sagði Teasle.
— Þú getur ekki verið viss um það. Þú ert búinn að liggja
hér nokkuð lengi. Hann getur verið farinn hvert á land
sem er.
—Nei. Þú verður að hugsa eins og hann—og setja þig í
spor hans. Hann skreið yfir leikvöllinn og skrönglaðist
yfir girðinguna. Nú er hann inni á milli brómberja-
runnanna. Ég slapp undan honum með því að skríða inn
á milli sams konar runna. Nú ætlar hann að reyna það
sama. En sár hans eru of mikil. Hann er með ógnar-
kvalir í brjóstinu. Hann stefnir i átt að litlu skýli, sem
börnin hafa reist sér.
Kern qlotti tortryggnislega í átt að Trautman og lög-
regluþjónunum tveimur. —Hvað kom eiginlega fyrir
hann á meðan ég skrapp f rá? Hvað hef ur gerzt?
Annar lögregluþjónninn hristi höfuðið, gersamlega
glórulaus: — Hann heldur að hann sé Rambo.
— Hvað þá?
— Hann er orðinn vitlaus, sagði hinn.
— Fylgizt með honum. Ég vil að þaggað sé niður í hon-
um, sagði Kern. Hann kraup við hlið Teasles. — Reyndu
að þrauka þar til læknirinn kemur. Hann kemur innan
skamms. Ég get lofað þér því.
— Það skiptir ekki máli.
— Reyndu að þrauka, í guðs bænum.
Tveir risastórir brunabílar renndu inn á torgið með
vælandi sírenur og klingjandi brunabjöllur. Þeir
staðnæmdust þunglamalega við hlið lögreglubílanna.
Slökkviliðsmenn stukku ' út. Þeir voru klæddir
gúmmígöllum og hlupu í átt að tækjum til að opna fyrir
vatnsrennsli brunaboðanna. Enn aðrir rúlluðu út
slökkvislöngunum.
Aftur heyrðist hrópað frá húsinu: — Hann fór beint
Miðvikudagur
20. ágúst
7.00 Morgunútvarn
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 Við vinnuna. Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan : „í
Rauðárdalnum” eftir Jó-
hann Magnús Bjarnason
Orn Eiðsson les (16).
15.00 Miödegistónleikar Ro-
bert Tear syngur lög eftir
Tsjaikovský. Philip Ledger
leikur á pianó. Wilhelm
Kempff leikur
„Humoreske” op. 20 eftir
Robert Schumann.
Melossstrengjakvartettinn
leikur Kvartett nr. 1 eftir
Franz Schubert.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.25 Popphorn
17.00 Lagið mitt Anne-Marie
Markan sér um óskalaga-
þátt fyrir börn yngri en 12
ára.
17.30 Smásaga: „Heiðarrós-
in” eftir Leif PanduroHall-
dór Stefánsson les þýðingu
sina.
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki.
Tilkynningar.
19.35 1 sjónmáli. Skafti
Harðarson og Steingrimur
Ari Arason sjá um þáttinn.
20.00 Frá tónlistarhátiðinni I
Bergen
21.30 Otvarpssagan: „Og
hann sagði ekki eitt einasta
orð” eftir Heinrich Böll
Böðvar Guðmundsson þýddi
og les ásamt Kristinu Ólafs-
dóttur (4).
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir Kvöld-
sagan: „Rúbrúk” eftir Poul
Vad Olfur Hjörvar les
þýðingu sina (4).
22.35 Djassþáttur Jón Múli
Arnason kynnir.
23.20 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
20. ágúst 1975
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Dagskrá og auglýsingar.
20.35 Gunnlaugs saga orms-
tungu. Framhaldsmynda-
saga. 3. þáttur. Teikningar
Haraldur Einarsson. Lesari
óskar Halldórsson.
20.45 Dæmdur til dauða vegna
eigin kæruleysis. Fræðslu-
mynd frá Brunamálastofn-
un Islands um brunavarnir
og eldsvoða, sem hlotist
geta af vangá og kæruleysi.
Þulur Magnús Bjarnfreðs-
son.
21.00 Saman við stöndum.
Bresk framhaldsmynd,
byggð á heimildum um rétt-
indabaráttu breskra kvenna
i byrjun 20. aldar. 2. þáttur.
Annie Kenney. Þýðandi
Dóra Hafsteinsdóttir. Efni
1. þáttar: Hr. Pankhurst
býður sig fram til þings fyr-
ir flokks verkamanna, en
lýtur i lægra haldi fyrir
frambjóðanda ihaldsflokks-
ins. Skömmu siðar fer kona
hans til Sviss með elstu
dóttur þeirra, Christabel,
sem leggur þar stund á
dansnám. Meðan þær eru
erlendis deyr Pankhurst,
og eftir það þrengist nokkuð
hagur þeirra mæðgna.
Verkamann^flokkurinn
býður þeim fjárhagsstuðn-
ing, en þær kjósa að standa
á eigin fótum. Christabel
kemst brátt i kynni við upp-
rennandi kvenréttindakon-
ur, og móður hennar hrifst
af hugmyndum þeirra og á-
kveður að stofna baráttu-
samtök, til að vinna að
auknum réttindum kvenna.
22.15 iþróttir. Myndir og
fréttir frá landskeppni Is-
lendinga og Skota i frjálsum
iþróttum. Umsjónarmaður
Ómar Ragnarsson.
23.15 Dagskrárlok.