Tíminn - 20.08.1975, Side 13
Miövikudagur 20. ágúst 1975
TÍMINN
13
Hleðslutæki
6 og 12 volt
Ohm-mælar
Amper-tangir
Sýru-mælar
Bifreiða-mælar
MV-búðin
Suðurlandsbraut 12
Simi 85052
Auglýsid
íTímanum
Hvað verður bannað
næst?
Guðjón V. Guðmundsson
skrifar:
,,Sá fáheyrði atburður átti sér
nýlega stað að nokkrir Is-
lendingar skutu máli sinu til
mannréttindadómstólsins, já
hér uppi á íslandi árið 1975. t
landinu, sem mest gumar af
lýðræðisást og sjálfsögðum
mannréttindum, hefur það gerzt
að fámennur hópur manna, sem
vill eiga hunda, honum er
synjað um það. I öllum löndum
þykir það sjálfsagt, að fólk sem
vill fái að hafa hjá sér hundá,
nema á íslandi.
Nokkrir þéttbýliskjarnar hafa
með-semingi leyft hundahald og
þá gegn háu gjaldi, en þessir
sömu staðir eru þá nú þegar
farnir að draga i land i þessum
efnum, þannig að stefnt er að
þvi, að útrýma hundinum úr
þéttbýli.
Það er alveg stórfurðulegt
sem sést hefur á prenti eftir þá
menn sem andvigir eru hunda-
haldi. Þeir sjá glefsandi og gól-
andi varga og ekki má gleyma
skitnum i tonnatali og hinum
geigvænlegu sjúkdómum, er
dýr þessi eiga að bera með sér,
svo fari fólk stundum illa með
dýrin.
Þetta er aðeins smásýnishorn
af þessum gegndarlausu of-
stækisskrifum. Æsingurinn er
yfirleitt svo mikill, að þeir sem
heldur eru úti i storborgum
heimsins með hugann, oftast er
það New York, er þeir tala um.
Væri nú eitthvað hæft i
staðhæfingum þeirra um
ástandið þar i sambandi viö
hundahaldið, og allan þann
óþrifnað og alla þá sjúkdóma,
þá ættu að geisa i borginn alvar-
legar drepsóttir hvorkimeira né
minna! En sem betur fer er um
ekkert slikt að ræða og þvi
augljóst að þeir fara ekki með
rétt mál.
Okkur hundaeigendum á hinu
svoneinda Stór-Reykjavikur-
svæði er vel ljóst að viða er-
lendis er hundahald komið út i
öfgar. Þar eru alltof margir
sem hafa hunda, enda þótt þeir
hafi ekki nokkra aðstöðu til
þess. Þess vegna viljum við
strangt aðhald og eftirlit hér hjá
okkur, — takið eftir það erum
við sjálfir hundaeigendur, sem
förum fram á slikt. t fyrsta lagi,
að viðkomandi geti hugsað veí
um hundinn sinn, hafi sem sagt
góða aðstöðu til þess, þá ekki
siður dýralækniseftirlit með
heilbrigði dýranna, og siðast en
ekki sizt, að þau valdi ekkí
óviðkomandi fólki ónæði.
Svo segja andstæðingar okk-
ar, að við viljum bara njóta
þessa fyrir okkur að hafa þá
ánægju sem hægt er að hafa af
hundum, en hvort einhver annar
verður fyrir óþægindum eða
ónæði það skipti ekki máli. Þeir
sem ekki virtu i reynd þessar
reglur fengju sekt og viðvörun,
og við endurtekið brot yrðu þeir
sviptir leyfi til að mega hafa
hund. Þeir sem vilja hafa
hunda, gera það végna þess að
þeim þykir vænt um þessi dýr,
og þegar fólki þykir vænt um
eitthvað, þá er það gott við það.
Þess vegna hefur enginn hunda-
vinur hjá sér hund, sem geltir i
tima og ótima, slikum hundum
hefur ekki verið sinnt i uppvext-
inum, þess vegna er fráleitt að
við, sem teljum okkur hunda-
vini, höfum slika hunda hjá okk-
ur. Enginn sanur hundavinur
lokar heldur hundinn sinn
saman inni i kjallara, en um það
er okkur meðal all.s annars
brigzlað. Séu þeir til er þetta
gera — og annað i þessum dúr
— þá eru þetta ekki menn, sem
vænt þykir um dýrin og ill-
skiljanlegt hvers vegna þeir
hinir sömu eru með dýr nema ef
vera skyldu þá andstæðingar
hundahalds til þess eins að
reyna að sverta okkur hin. Ég
trúi að minnsta kosti flestu á
andstæðinga okkar i þessum
efnum eftir skrifum þeirra að
dæma.”
Sjötíu sinnum
iviku
Sjötíu sinnum í viku hefja þotur okkar sig til flugs í
áætlunarferö, samkvæmt sumaráætlun til 12 staða
í Evrópu og Bandaríkjunum.
Þessi mikli ferðafjöldi þýðir það, að þú getur ákveðið
ferð til útlanda og farið nær fyrirvaralaust.
En það þarf talsvert til að þetta sé mögulegt. Það
þarf traust starfsfólk og góöan flugvélakost.
Við höfum hvort tveggja. Við höfum 2 Boeing og
3 DC8 þotur, og 1600 starfsmenn, marga með
langa og gifturíka reynslu að baki, í þjónustu okkar,
Starfsfólk okkar hefur ekki aðeins aðsetur á Islandi.
500 þeirra starfa á flugstöðvum og skrifstofum
okkar í 30 stórborgum erlendis.
Hlutverk þess er að greiða götu þína erlendis.
Ætlir þú lengra en leiðanet okkar nær, þá er ekki
þar með sagt að við sleppum alveg af þér hendinni,
þá tekur ferðaþjónusta okkar við, og skipuleggur
framhaldið í samvinnu við flest flugfélög heims, sem
stunda reglubundið flug, og fjölda hótela.
Þegar þú flýgur með vélum okkar, þar sem reyndir
og þjálfaðir flugmenn halda um stjórnvölinn, og þér
finnst að þú sért að ferðast á áhyggjulausan, þægi-
legan og öruggan hátt, þá veistu að það er árangur
af samstarfi alls starfsfólks okkar, sem á einn eða
annan hátt hefur lagt hönd á plóginn til þess að svo
mætti verða.
flucfélag L0FTLEIBIR
ÍSLAJVDS
Stórt fyrirtæki i Reykjavik óskar að ráða
nú þegar
einkaritara
framkvæmdastjóra. Starfið krefst góðrar
menntunar- og tungumálakunnáttu,
ásamt starfsreynslu á þessu sviði.
Umsóknir með upplýsingum um fyrri
störf, sendist afgreiðslu blaðsins fyrir 25.
þ.m. merkt „september 1863.”
CRED A-ta uþurrkarinn
er nauðsynlegt hjálpartæki á nútimaheimili og
ódýrasti þurrkarinn i sinum gæðaflokki. Fjórar
gerðir fáanlegar. Ennfremur útblástursbarkar
f/Creda o.fl. þurrkara. Veggfestingar f/Creda
T.D. 275 þurrkara
SMYRILL Armúla 7. — Simi 84450.