Tíminn - 06.09.1975, Side 1

Tíminn - 06.09.1975, Side 1
SLONGUR BARKAR TENGI ctiueiv TARPAULIN RISSKEMMUR Landvélarhf 202. tbl. — Laugardagur 6. september — 59. árgangur HF HÖRÐUR GUNNARSSON SKULATÚNI 6 - SÍMI (91)19460 I Getum við flutt vatn til húsa- hitunar sjóleiðis milli byggða? Byggingaiðnað- urinn úreltur? Gsal-Reykjavík — Eftir að greint var frá þvi i fréttum, að Sviar hygðust kaupa allt að sautján millj. tonn af heitu vatni frá ts- landi til húsahitunár i Sviþjóð virðast islenzkir ráðamenn hafa komið auga á þann möguleika, að flytja heitt vatn með skipum frá höfnum nærri jarðhitasvæðum til þéttbýlisstaða meðfram strönd- um landsins, sem eigi hafa að- gang að jarðvarma, svo vitað sé — enda iiggur nánast i augum uppi.að teiji Sviar það hagkvæmt að flytja heitt vatn héðan til Svi- þjóðar, hijóti hitavatnsflutningar milli landsfjórðunga hér heima að vera hagkvæm iausn á húshit- unarvanda ýmissa byggðarlaga. 1 fréttatilkynningu frá Iðnaðar- astur skortur á innlendum orku- gjöfum til húsahitunar er á Aust- fjörðum og Vestfjörðuni og þvi hafa erlendir orkugjafar einkum verið notaðir til húsahitunar. Notkun innlendrar raforku til húsahitunar hefur þó vaxið veru- lega á siöustu árum, en allar virkjunarframkvæmdir eru ærið kostnaðarsamar, — og þvi er það alláleitin spurning, hvort hita- vatnsflutningar geti orðið hag- kvæmari. t nefnd þeirri, sem á að fá úr þessu stforið, eru: Þóroddur Th. Sigurðsson, vélaverkfræðingur, sem er formaður, dr. Guðmundur Magnússon, prófessor og Pétur Stefánsson, byggingaverkfræð- ingur. Gsal-Reykjavik — Húsbygginga- iðnaðurinn er einskorðaður við gamlar venjur, sem mun valda þvi, að hér er bæði cfnisnotkun og þó sérstaklega vinnustundanotk- un mikiu mun meiri á byggingar- einingu, en hjá nágrannaþjóðum okkar. Af þessum sökum hriktir nú i meginstoðum byggingaiðn- aðarins og ekki er ljóst, hvort byggingaiðnaðurinn geti, við ó- breyttar aðstæður, gegnt því hlut- verki að framleiða ibúðir á þvi verði sem samræmist kaupgetu borgaranna, skrifar Haraldur Ás- geirsson, forstjóri Rannsókna- stofnunar byggingaiðnaðarins I fréttabréfi stofnunarinnar. — Já, hér munar mjög miklu, sagði Haraldur, er Timinn hafði tal af honum — enda gefur það auga leið að svo sé, þvi fyrst byggjum við timburhús, þ.e. mót- in, slðan steypum við 1 þau, rifum mótin þvi næst burtu, múrum að utan, einangrum að innan og byggjum svo innan á einangrun- Gunnar Thoroddsen, iðnaðarráð- herra, hafi 4. þessa mánaðar, skipað nefnd, i þvi skyni að at- huga hvort hitavatnsflutningar milli staða hérlendis þyki hag- kvæmir — og hvort slikir flutn- ingar geti leitt til lausnar á hús- hitunarvanda hinna ýmsu byggða. Geta skal þess, að tilfinnanleg- ■ » Wm* j i ; i K u ." v ' UMBÆTUR í SKIPASMÍÐA- wdljfc. IÐNAÐINUM O 8 Jpp* ina. Þetta er miklu margþættara en hjá nágrannaþjóðunum. Aðspurður um það, hvort is- lenzk hús væru þá kannski betri fyrir vikið, kvað hann svo ekki vera. — Það er að visu erfitt að bera það saman, en almennt séð, eru t.d. hús okkar ekkert ódýrari i rekstri og það er ekkert betra að búa I þeim, sagði hann. — Húsnæðiskostnað er hægt að lækka, en verðvitund i bygginga- iðnaði er sljó, eins og á öðrum sviðum þjóðfélagsins, segir i fréttabréfinu. — í sjálfum bygg- ingaiðnaðinum mega menn ekki vera aöþvf, að hugsa um nýjar og betri aðferðir, sagði Haraldur. — íverðbólguþjóðfélaginu, erum að gera að koma sér af stað og ljúka verkinu á sem styztum tima, sagði hann. 1 fréttabréfinu er greint frá þvi, að Rannsóknastofnun bygginga- iðnaðarins hafi hannað kostnað- arkerfi, sem muni -vera vel til þess fallið að greina á milli kostn- aðar við mismunandi þætti og að- ferðir i byggingaiðnaðinum, — en hins vegar vanti mannafla hjá rannsóknastofnuninni til að beita þessu kerfi. Haraldur sagði i við- talinu við Timann, að kerfi þetta hefði veriö i notkun i heilt ár, og viðtekið hjá Qestum þeim, sem byðu út stærri verk. ■ — Það vantar hins vegar mannafla á Rannsóknastofnunina til að vega og meta ýmsa þætti. Við lögðum nokkurt fé og fyrir- höfn i það fyrir nokkrum árum, að kanna byggingakostnað. Árangur varð ekki nægilega mik- ill, en ég tel, að nú höfum við tæki til,sem geta skilað betri árangri, — en við getum ekki beitt þeim sakir þess hve liðfáir við erum. 1 fréttabréfinu segir, að ástæða sé til að óttast, að þjóðin fari á mis við hagræna þróun i bygg- ingamálum vegna allt of þróttlit- illa byggingarannsókna, og að vandinn verði ekki leystur, nema með auknum framlögum til rann- sókna og breyttum möguleikum til mannaráðninga. Um þetta atriði sagði Haraldur, að enginn vandi væri að fylla Rannsóknastofnunina með starfs- liöi, sem ekki skilaði árangri. Vandinn væri að ná i það sér- menntaða fólk, sem gæti leyst vandamálin. Sagði Haraldur, að allt of fáir gæfu sig að rannsókn- um, og — launakjörin eru svo hræðilega úr takt við allt, sem eðlilegt getur talizt, sagði hann. • — Ég tel, að það myndi borga sig fyrir þjóðfélagið að tifalda framlagið til byggingarannsókna, sagði Haraldur, og i fréttabréfi er sagt frá þvi, að verkefni i bygg- ingarannsóknum séu nú vægast sagt hrikaleg miðað við afkasta- getu Rannsóknastofnunarinnar. Með betri einangrun húsa, betri nýtingu hita og bættum gluggabúnaði má spara 2-300 milljónir kr. ff Sjálfsagt að kanna málið til hlítar" ,,Niðurstöðurnar hljóta að móta viðhorfið gagnvart V-Þjóðverjum í fiskveiðideil* unni", segir forsætisráðherra um fréttirnar um að v.-þýzka stjórnin styrki landhelgisbrjóta SJ—Reykjavik — Mér hefur ekki verið kunnugt um þaö, sagði Geir Hallgrimsson forsætisráöherra i gærkvöldi er við spuröum hann á- lits á fréttum Þjóðviljans um að vestur-þýzka stjórnin styrkti landhelgisbrjóta hér við land og hvort islenzku rikisstjórninni væri kunnugt um aö þær væru réttar. — Mér finnst sjálfsagt að kanna þaö mál til hlitar og auðvitað hljóta niðurstöðurnar að móta viðhorfið gagnvart Vestur-Þjóö- verjum i fiskveiðideilu þeirri, sem yfir stendur, bætti forsætis- ráöherra viö. — Verður sett hafnbann á vesturþýzk gæzluskip? — Það hlýtur auðvitað að vera til athugunar. — tll viðbótar þeim 2-300 milljónum sem spara mó með réttri stillingu kynditækja Læknar vilja styttri vinnutíma HHJ-Rvik — Ég þykist þess viss, að með betri einangrun húsa, betri nýtingu hitans og bættum giuggabúnaði megi spara önnur tiu prösent i kyndingarkostnaði til viðbótar þeim tiu prósentum, sem spara má meö betri stillingu kynditækja, sagði Sigurður Hreinn Hilmarsson vélskólakenn- ari i viðtali við Tfmann I gær. Þarna væri þvi hægt að spara alls 400—500 milljónir króna árlega i oliukaupum. Sigúrður Hreinn hefur stjórnað þeim námskeiðum i stillingu oliu- kynditækja, sem viðskiptaráðu- neytið og Samband islenzkra sveitarfélaga beittu sér fyrir, eftir að vélskólanemar höfðu sýnt fram á að spara mætti mikið fé með bættri stillingu tækjanna. Þessum námskeiðum er nú lokið að sinni og var hinu siðasta slitið i gær. Alls sóttu námskeiðin 64 menn úr nær öllum byggðarlögum • landsins, að Dalasýslu, Austur- Barðastrandarsýslu og Vopna- firði undanskildum. Nú á þvi fólk um nær allt land þess kost að láta stilla kynditæki sin og spara sér þannig stórfé, en áætlað er, aö oliukyndingarkostnaður i 140 fer- metra einbýlishúsi sé nú 100—200 þús. kr. á ári. Þátttakendur á námskeiðunum hafa farið i hús i nágrenni Reykjavikur, þar sem i' eru oliu- kynditæki og skoðað kynditækin, og að sögn Sigurðar Hreins var stillingu viðast hvar ábótavant. SJ—Reykjavik— Meðal þess sem fjallaðhefur verið um á aðalfundi Læknafélags Islands að þessu sinni er þaö óhóflega vinnuálag, sem mikill hluti islenzku lækna- stéttarinnar býr við, og hlýtur að draga úr möguleikum til nauð- synlegrar endur- og viðhalds- menntunar og leiða með timanum til lakari læknisþjónustu, Var þeim tilmælum beint til samn- inga- og kjaranefnda læknasam- takanna, að i næstu kjarasamn- ingum verði áherzla lögð á stytt- ingu vinnutima.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.