Tíminn - 06.09.1975, Blaðsíða 6

Tíminn - 06.09.1975, Blaðsíða 6
6 TtMINN Laugardagur 6. september 1975. íslenzk iðnfyrirtæki á alþjóðlegu vörusýningunni í Laugardalshöll leiðir Sönnakrafgeyma í sam- vinnu við Sönnak verksmiðjumar i Osló og hefur gert það siðastliðin ellefu ár, en átta ár em siðan fyrirtækið hóf starfsemi á Hellu. Hér er hægt að fá svokallaða „sjónvarpsrafgeyma” með hand- fangi, og em þeir tilvaldir fyrir ferðasjónvarp, lýsingu i hjólhýs- um, tjöldum, sumarbústöðum og yfirleitt hvarvetna, þar sem ekki er kostur á rafmagni frá stórum rafveitum. Einnig sýnir Tækniver hér litið hleðslutæki til heimilis- notkunar, einfalt i notkun og bæði ætlað til þess að hlaða sjónvarps- rafgeyminn og rafgeymi bila, ef á þarf að halda. Blikksmiðjan Vogur i Kópa vogi, sem á aldarfjórðungslangan feril að baki, sýnir hér lofthit- unar- og loftræstikerfi af öllum stærðum og gerðum, allt frá upp hitun á ibúðarhúsum upp i lóft- ræstingu i stærstu húsum lands- ins. Hér gefur að lita útsogskerfi af ýmsum gerðum, sum ætluð fyrir eldhús, önnur fyrir tré- smiðavélar o.s.frv. Háfar em úi ryðfriu stáli. Þá má nefna þurrk klefa fyrir fisk, sælgætisiðnað og fleira, sem of langt yrði upp að telja. Vélaverkstæði Sigurðar Svein- björnssonar h.f. sýnir hér út- búnað, sem liklegt, er að sjómenn hafi sérstakan áhuga á. Þetta er öryggisbúnaður fyrir neta- og linuspil, sem gerir það að verk- um, að spilið stöðvast, ef maður- inn, sem við spilið stendur, festir hönd i netinu eða linunni. Strax er hann hefur fest höndina i netinu, hlýtur hann að reka sig i öryggis- rofa, sem stöðvar spilið á auga- bragði. Hiðnýja tæki ætti þannig að geta komið algerlega i veg fyrir slys við þessi störf. Á Alþjóðlegu vörusýningunni em enn fremur sýndir spennu- breytar frá Jóhannesi Brands- syni. Arið 1962 hóf hann fram- leiðslu á spennubreytum og hefur siðan veitt mikilsverða þjónustu á bessu sviði, en eins og kunnugt er, þá er framleiðsla á spennubreyt- um ærið fjölbreytt, allt frá spennubreytum fyrir rafeinda- búnað og upp I orkuspenna fyrir landtengingar I skuttogara. Rafeindaiðjan s.f. var stofnuð 1. ágúst 1973 af þeim Sæmundi Óskarssyni verkfræðingi og Viggó Benediktssyni simvirkja. Markmiðið með stofnun fyrir- tækisins var að skjóta frekari stoðum undir islenzkan raf- magnsiðnað með hönnun og framleiðslu rafeindatækja. Framleiðslan hófst á sjálfvirkum spennustillum fyrir rafala og er nú fjöldi þeirra i notkun, mest i skipum, en einnig við smærri og stærri rafstöðvar i landi. Sjálf- virk hleöslutæki fyrir rafgeyma em nú snar þáttur i fram- leiðslunni og vaxandi, þar sem framleiðslan nær nú til flestra gerða þessara tækja sem hér er þörf fyrir. svo sem fyrir raf- geymakerfi i skipum, frystihús- um, verksmiðjum, rafveitum, rafknúnum vörulyfturum og fl. Raflagnatækni s.f. hefur að meginverksviði sérhönnun og framleiðsluá sjálfvirkum búnaði og mælitækjum. Nefna má fin- gerða sjálfritandi hreiðurhita- mæla fyrir fuglafræðinga, t.d. við rannsóknir á rjúpnastofninum o.fl. Þá má og nefna, að eitt þeirra tækja, sem verið hafa I hönnun hjá Raflagnatækni er ein- faldur laxateljari fyrir opinn árfarveg. Slikir teljarar. hafa ómetanlega þýðingu fyrir laxa- rækt i ám, hvar sem er i heimin- um. Tækið er nú i einkaleyfis- rannsókn erlendis. Alternator h.f. i Keflavik hefur þann megintilgang að hanna og framleiða rafala og jafnstraums- mótora til notkunar i fiskibátum. Framleiddar eru þrjár gerðir A ALÞJÓÐLEGU vörusýning- unni i Laugardalshöll sýna mörg iðnfyrirtæki framleiðslu sina. Má þar til nefna Alternator h.f. i Keflavik, Raflagnatækni s.f. i Reykjavik'. Rafeindaiðjuna s.f. Reykjavlk, Spennubreyta, Garðahreppi, Vélaverkstæði Sig. Sveinbjörnssonar h.f. Garða- hreppi, Sverri Þóroddsson & co. Reykjavik, Thorex, Hveragerði, Tækniver h.f. Hellu, Rangár- vallasýslu og Blikksmiðjuna Vog i Kópavogi. Hér er margt girnilegra hluta, sem betra er með sér að hafa en án þeirra að vera. Nefna má vél- sleða, sem Sverrir Þóroddsson & Co. hafa framleitt. Undirbúning- ur að smiði hans hefur staðið I fimm ár, og hann hefur verið hannaðurmeðnotagildiihuga, en ekki til þess að hafa hann fyrir leikfang. Hann er sem sagt ætlaður til vinnu og ferðalaga, og frábrugöinn öðrum sleöum að þvi leyti að beltin eru breiðari en tið kazt hefur, eða tuttugu og fjórar tommur. Skrokkur sleðans er úr áli, en stálgrind er boltuð að aftan og framan. Fyrirtækið Thorex i Hveragerði framleiðir sorpilát með það fyrir augum að samræma útlit og nota- gildi, svo að ilátin geti staðið þar sem þeirra er þörf, án þess að þau séu til lýta, til dæmis við heimili, skóla, veitingastaði, mötuneyti o.s.frv. ílátin er hægt að fá á hjól- um, sömuleiðis eru til blómakass- ar i stfl við þau, og geta viðskipta- vinir keypt þá hvort sem þeir vilja sér eða sem heild, samstæða sorpitlátunum. Efnið i ilátunum eru viðurkenndar, vatnsheldar spónaplötur, enda geta ilátin staðið hvort heldur sem er úti eða inni. Tækniver h.f.- starfar bæði i Reykjavík og á Hellu i Rangár- vallasýslu. Þetta fyrirtæki fram- Lofthitunarkerfi, sem Blikksmiðjan Vogur framleiðir. Vélaverkstæöi Sigurðar Sveinbjörnssonar h.f. hefur framleitt öryggis- búnað á neta- og linuspil, sem stöðvar spilið á sekúndubroti, ef maður festir hönd i netinu eða llnunni, sem verið er að draga. Hér sést nokkurt brot af göldrum rafmagnsfræðinnar. Rafalar, spennustiliar og sjáifritandi hreiðurhitamælar eru Ieikmanni litið ann- aö en nöfnin tóm, —en sjón er sögu rfkari. þeirra, 7, 10 og 15 kilóvött, og i hönnun eru þrjár gerðir til viðbót- ar, 2,5, 3,5 og 4,5 kilóvött og munu þær gerðir koma á markað á þessu ári. Þá framleiðir fyrir- tækið spennubreyta sem breyta jafnspennu i riöspennu, og i hönn- un eru fjórar gerðir til viðbótar, sem koma munu á markað á þessu ári. Enn fremur má nefna gangsetn i ngsro f a jafn- straumsmótora. Fyrirtækið hyggst fullnægja islenzkum markaði, hvað þær vörur varðar, sem það hefur á boðstólum, og einnig hefja útflutning, eftir þvi sem ástæður leyfa. —VS Vélsleöinn, sem Sverrir Þóroddsson & Co. framleiðir. Það er Thorex I Hveragerði, sem framleiðir þessi smekklegu og vönd- uðu sorpllát. Tækniver h.f. framleiöir rafgeyma, sem hentugt er að hafa með sér f ferðalög, útilegur og hvar sem erannarsstaðar, þar sem ekki næst I raf- magn frá stórum orkuverum. Þeir eru með handfangi, og mætti gjarna kalla þá „sjónvarpsrafgeyma.” Textl: VS Myndir: Gunnar

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.