Tíminn - 06.09.1975, Blaðsíða 11

Tíminn - 06.09.1975, Blaðsíða 11
Laugardagur 6. september 1975. ItMINN n þór Ifáir veðja á davíð í UDD IVIÐUREIGNINNI VIÐGOLÍAT I — en strákarnir ákveðnir í að standa sig vel, þótt að við ofurefli sé að etja í Liege — eftir yfirburðasigur (4:0) yfir KA í úrslitaleik 3. deildar ÞÓRSARAR unnu sigur yfir erki- fjendunum tir KA, þegar þeir mættust I úrslitaleik 3. deildar- keppninnar á grasvellinum á Akureyri. Þórsarar tryggöu sér þar meö rétt til aö leika I 2. deild- arkeppninni næsta keppnistima- bil, en þeir sendu knöttinn fjórum sinnum I netiö hjá KA-liöinu. Fyrst Óskar Gunnarsson, en siöan bætti fyrirliöinn Aöalsteinn Sigurgeirsson, ööru marki viö fyrir hálfleik, þegar hann skoraði úr vitaspyrnu. Þórsarar tóku leikinn i slnar hendur i siöari hálfleik og bættu tveimur mörkum við — Gunnar Jónasson skoraði þriðja mark þeirra með þrumuskoti af löngu færi og siðan innsiglaði Jón Lárusson sigur (4:0) Þórs — eftir að sóknarmenn Þórs höfðu leikið varnarmenn KA sundur og sam- an. Eyja- menn voru sterk- ari síðast — en hvað gera Þróttarar í dag ó Melavellinum í aukaleiknum um 1. deildarsætið VESTMANNAEYINGAR, sem hafa ieikiö i 1. deildarkeppninni allt frá 1968 — þegar þeir tryggöu sér sæti i deildinni i fyrsta skipti (1967), berjast fyrir áframhald- andi þátttöku sinni i dcildinni, þegar þeir mæta Þrótturum i aukaleik um 1. deiidarsæti á Melavellinum i dag. Nú eru liðin átta ár siöan þessi liö mættust á leikvelli i þýöingarmiklum leik, en þaö var 1967, að Vestmannaey- ingar og Þróttarar böröust um 1. deildarsæti — þá á Laugardals- vellinum i úrslitaleik i 2. deild- inni. Eyjamenn unnu þá viöur- eign 3:0 og tryggöu sér 1. deildar- sæti i fyrsta skipti i sögu knatt- spyrnunnar. Nú.átta árum siöar, leika að- eins tveir leikmenn með Eyjalið- inu, sem léku hinn þýðingarmikla leik gegn Þrótti 1967 — það eru þeir Friöfinnur Finnbogason og Ilaraldur Júliusson, og Gisli Magnússon,þjálfari Eyjamanna, lék einnig með. Aftur á móti leikur enginn leikmaður með Þróttar-liðinu, sem lék 1967, enda er liðið nú nær eingöngu skipað ungum og efnilegum leikmönn- um. Það má búast við skemmtileg- um og tvisýnum leik á Melavell- inum i dag, þegar Eyjamenn og Þróttararleiða saman hesta sina. Eyjamenn eru sigurstranglegri, þar sem þeir hafa geysilega keppnisreynslu bak við sig. Þrótt- arar eru með ungt lið, sem getur veitt Eyjamönnum harða keppni og ef heppnin er með þeim, jafn- vel sigrað. Leikurinn hefst kl. 2 á Melavellinum i dag. Frá Alfreð Þorsteins- syni i Liege i Belgiu. Belgiumenn, sem sendu „njósnara” til Nantes til aö fyigj- ast meö landsleik tslendinga gegn Frökkum, eru mjög bjartsýnir á landsleikinn gegn tslendingum, sem fer fram á veili Standard Liege hér i dag. Mikið hefur veriö skrifað um leikinn i belgiskum blöðum, og mátti sjá þar viötöl við „Belgisku-tslendingana” Ás- geir Sigurvinsson og Guögeir Leifsson, sem leika hér á heima- velli — eins og belgisku blööin segja. Fáir veðja á Davið i viðureign- inniviðGoliat—enda ekki við þvi að búast, að islenzka liðið gæti staðið Belgiumönnum á sporði en þeir eru sigurstranglegastir i Evrópuriðlinum. En Belgiumenn eru með eitt sterkasta landslið Evrópu i dag. Það er búizt við, að um 20 þús. áhorfendur komi til að sjá leikinn, sem er fyrsti lands- leikur Belgiumanna á keppnis- timabilinu. Landsliðseinvaldur Belgiu, sagði i blaðaviðtali, að leikurinn við íslendinga sé ákaflega þýð- ingarmikill fyrir Belgiumenn, ef þeir ætluðu sér að sigra i riðlin- um. Það fer ekki á milli mála, að knattspyrna er eitt aðalumræðu- efni manna hér i Liege. Jafntefli SOVÉTMENN, sem tslendingar mæta 10. september i Moskvu, léku vináttulandsleik gegn A- Þjóöverjum nú i vikunni. Leikn- um lauk meö jafntefli, ekkert mark var skoraö. GUÐGEIRLEIFSSON... veröur I sviösljósinu I Liege. Hér á myndinni sést hann i baráttu um knöttinn I landsleik gegn Belgiumönnum á Laugardalsvellinum. tslenzka liðið undirbýr sig nú á fullu fyrir leikinn og að öllum lik- indum verður aðaláherzlan lögð á vamarleikinn, eins og i undan- fömum landsleikjum. Jóhannes Eövaldsson mun ekki leika með liðinu, þar sem hann er farinn til Skotlands, og óvist, er, að Gisli Torfasonleiki með, þar sem hann meiddist á hné i landsleiknum i Nantes.Strákarnireru staðráðnir I að standa sig vel i leiknum i Liege, þótt við ofurefli sé að etja. Það má að lokum geta, að það eru þrjú ár siðan íslendingar léku landsleik gegn Belgiumönnum hér i Liege — honum lauk með sigri Belgiumanna 4:0. AFREKSKEPPNI FÍ — í golfi hefst á Nesvellinum \ dag HIN árlega afrekskeppni Flugfélags islands i golfi, fer fram um helg- ina á Nesvellinum á Seltjarnarnesi. Rétt til þátttöku I afrekskeppninni eiga sex kylfingar, þ.e.a.s. þeir sem boriö hafa sigur úr býtum I nokkr- um af stærstu golfkeppnum iandsins. Eftirtaldir kylfingar taka þátt i keppninni að þessu sinni — Björgvin Þorsteinsson, tslandsmeistari, Július R. Júliusson, sigurvegari i Coca-Cola keppninni I Reykjavík, Haraldur Júliusson, sigurvegari I Coca-Cola keppninni I Vestmannaeyjum, Arni Jónsson, sigurvegari i meistarakeppni Akureyrar, Hannes Þorsteinsson, sigurvegari i meistarakeppni Golfklúbbs Ness og Þórhallur Hólmgeirsson, sigur- vegari I meistarakeppni Golfklúbbs Suðurnesja. Keppnin hefst kl. 2 i dag á Nesvellinum. „EKKI MÁ DRAGAST AÐ ENDUR- BÆTUR Á LAUGARDALSVELLINUM HEFJIST STRAX í HAUST" — segir Kristján Benediktsson, borgarráðsmaður Framsóknarflokksins BORGARRAÐ Reykjavikur hefur nú ákveöiö aö endur- skoöa tillögur um endurbætur á Laugardalsvellinum, en svo getur fariö aö fresta þurfi framkvæmdum viö völlinn. Eins og komiö hefur fram hér á síöunni, þá var ákveöiö aö hefjast handa viö endurbætur á vellinum, strax aö loknum Evrópuleik Akurnesinga þar. Upphaflega var ráögert aö upphæðin til endurbyggingar á vellinum yröi 4-6 milljónir króna, og 10 sm lag efst á vell- inuin yrði tekiö upp og endur- bætt. Fram hefur komið, að mold- arlagið á Laugardalsvellinum er 40-50 cm þykkt. Fari svo, að það verði ekki allt tekið upp og aðeins þunnt ^moldarlag og þökur settar "á völlinn, — verður það að teljast kák. Nauðsyn ber til að ganga þannig frá undirlagi vallarins, að settar verði lagnir til að KRISTJAN BENEDIKTSSON. taka við rigningarvatni, áður en nýtt moldarlag verður sett á völlinn. Það er nauðsynlegt að hefja endurbætur við völl- inn strax i haust, en eins og stendur er þaö ekki hægt, þar eð engin fjárveiting er fyrir hendi — en áætlað er, að það myndi kosta 11,6 millj. kr. að skipta um jarðveg niður á 40- 50 cm. Borgarráð hefur frestað að taka ákvörðun um fram- kvæmdir á Laugardalsvelli, þar til á þriöjudag, en þá heldur borgarráð aftur fund um málið. — Ég er eindregið þeirrar skoðunar, þrátt fyrir kostnað- inn að ekki megi dragast, að endurbætur á Laugardalsvelli hefjist strax i haust, sagði Kristján Benediktsson, borg- arráðsmaður Framsóknar- flokksins, þegar iþróttasiðan bað hann að segja sitt álit á framkvæmdum við Laugar- dalsvöllinn. — Það er nauðsynlegt að iiefja strax framkvæmdir við völlinn, sem er heimavöllur Reykjavikur- liðanna i 1. deildarkeppninni i knattspyrnu og þar að auki fara allir landsleikir og Evrópuleikir fram á vellinum. íslendingar eiga á hættu, að þeir fái ekki aö taka þátt i alþjóðlegum keppnum næst'a sumar, ef endurbótum á vell- inum lýkur ekki fyrir þann tima, sagði Kristján. — Það er ekki eingöngu hagur Reykvikinga einna, heldur þjóðarinnar i heild, að völlurinn sé tilbúinn til kapp- leikjahalds næsta sumar, það vita hinir fjölmörgu áhuga- menn um knattspyrnu og frjálsar iþróttir — en Laugar- dalsvöllurinn þjónar öllu land inu, sem eini löglegi leikvöll- urinn á Islandi, hvað alþjóð- lega keppni snertir. Ég trúi ekki öðru, en reynt verði að öllum krafti að finna leið til úrbóta i þessu sambandi, þar sem um lif eða dauða er að tefla hjá knattspyrnunni okk- ar. sagði Kristján að lokum.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.