Tíminn - 06.09.1975, Síða 2

Tíminn - 06.09.1975, Síða 2
2 TÍMINN Laugardagur 6. september 1975. SEPTEMBERSÝNING í NORRÆNA HÚSINU Ýfirnefnd Verðlagsráös sjávar- útvegsins ákvað á fundi i gær eft- irfarandi lágmarksverð á sild veiddri i reknet til söltunar frá byrjun reknetaveiða til 15. sept- ember 1975: A) Stór sild (34 cm og stærri) hvert kg B) Millistærö . kr. 40.50 i32 cm til 34 cm), hvert kg . kr. 30.50 C) Smá sild (undir 32 cm), hvert kg .kr. 14.00 Stærðarflokkun framkvæmist af Framleiöslueftirliti urða. sjávaraf- Verðið er miðað við sildina upp til hópa komna á flutningstæki við Kastaði séraf bíl áferðogslasaðist Gsal-Reykjavik — 1 fyrrakvöld slasaðist 8 ára drengur i umferð- arslysi i Reykjavik. Tildrög þessa atburðar voru þau, að drengurinn litli var við gagnfræðaskólann á Réttarholts- vegi er þangað ók að grænn Volkswagen. Litli drengurinn settist á stuðara bilsins — að öll- um likindum i leikaraskap — og þegar hann hafði setið þar um stund, fór billinn allt i einu af stað. Ók hann frá Réttarholts- skólanum suður Réttarholtsveg-' inn og með drenginn á stuðaran- um. A hæð einni þar skammt frá var litla drengnum nóg boðið, — og kastaði hann sér af. Lenti hann harkalega á götunni og slasaðist. Rannsóknarlögreglan beinir þeim tilmælum til ökumanns áðurnefndrar þifreiðar að gefa sig strax fram við rannsóknarlög- reglu. André Enard ér kvæntur islenzkri konu, Valgerði Hafstað. Þá má og geta þess, að hann vann með Gerði Helgadóttur að nokkrum stórum glermálverkum Gerðar. Timinn hitti listamennina að máli á fimmtudag, þar var glatt á hjalla og margt að sjá, og er óhætt að fullyrða, að hér er á ferðinni mjög góð og kröftug sýn- ing. Það, sem einkum vekur athygli er, að Kristján Daviðsson, Valtýr Pétursson og Karl Kvaran hafa breytzt mjög mikið frá siðustu sýningum. Hinir tveir fyrrnefndu mála nú i átt að hinu figúrativa og sama er að segja um Jóhannes Jóhannesson. Þá mun skúlptúr Sigurjóns ólafssonar án efa vekja athygli og stórt oliumálverk Þor- valdar Skúlasonar mótar nýja linu i listsköpun hans. Sýningin verður opin daglega frá kl. 14.00-22.00 og stendur eitt- hvað fram eftir mánuðinum. GEIR TIL NOREGS Svo sem kunnugt er bauð for- sætisráðherra Noregs, Trygve Bratteli, Geir Hallgrimssyni, for- sætisráðherra, og konu hans frú Ernu Finnsdóttur, að koma i opinbera heimsókn til Noregs i júni s.l. Framangreindri heimsókn var frestað vegna anna forsætisráð- herra íslands. Nú hefur boð þetta verið endur- nýjað og ákveðið að heimsóknin standi yfir dagana 17.-20. þ.m. Guðmunda Andreádóttir, Þorvaldur Skúlason, Vaitýr Pétursson, Jóhannes Jóhannesson, Kristján Daviðsson og Karl Kvaran. Hópurinn vann við upphengingu á verkunum. Höggmyndirnar eru eftir Sig- urjón Óiafsson, myndhöggvara. SÍLDARVERÐ ÁKVEÐIÐ hlið veiðiskips. 1 yfirnefndinni áttu sæti: Ólafur Daviðsson, sem var oddamaður nefndarinnar, Guðmundur Jör- undsson og Ingólfur Ingólfsson af, hálfu seljenda og Dagbjartur Einarsson og Margeir Jónsson af hálfu kaupenda. Framangreind stærðarflokkun var samþykkt með fjórum at- kvæðum gegn atkvæði Margeirs Jónssonar, en verðið var ákveðið með atkvæðum oddamanns og fulltrúa seljenda gegn atkvæðum fulltrúa kaupenda. JG RVK. í dag verður opn- uð SEPTEMBER-sýning í Norræna húsinu. Er hér um samsýningu að ræða undir þessu kunna heitz sem dregur nafn sitt frá umdeildri sýningu, þar sem abstraktlistin var kynnt. September-sýning- ar hóf ust árið 1947, og tóku þátt í þeim margir af þekktustu listamönnum þjóðarinnar. Að þessu sinni taka þátt i September-sýningunni þeir Þor- valdur Skúlason, Valtýr Péturs- son, Kristján Daviðsson, Karl Kvaran, Jóhannes Jóhannesson og Guðmunda Andrésdóttir, en þau sýna málverk. Sigurjón Ólafsson sýnir höggmyndir, en gestur sýningarinnar er franskur listmálari, André Enard, sem er mörgum tslendingum að góðu kunnur, en hann er tæplega fimmtugur að aldri og hefur verið i vinfengi við islenzka listamenn, sem stunduðu nám i Paris á árun- um eftir fyrri heimsstyrjöldina. L if tÍIi m mu t BLESSAÐRI bliðunni, sem hellist yfir okkur þessa dagana, skulum við sleppa veiðiskapn- um um stund, og segja nokkrar veiðisögur. Sannleikurinn er nefnilega sá, að þeim blátt áfram rignir yfir Veiðihornið, eiginlega úr öllum áttum. Svo vilja allir leiðrétta sög- una, sem við birtum i gær, og fyrir bragðið erum við búnir að fá tvær stórgóðar til • viðbótar, fyrir utan söguna, sem okkur er sagt að Hjalti Þórarinsson hafi skráð i Veiðimanninum, en hana höfum við þvi miður ekki lesið. Við skulum byrja á einni i svipuðum dúr og sagan i gær. Hún heitir Sagan af laxveiði- manninum, sem veiddi á þurru landi Nánari staðhættir og kring- umstæður skipta i rauninni af- skaplega litlu máli, en sögu- hetja vor hafði skilið stöng sina, sem var forláta gripur, eftir i grasinu á árbakkanum og gekk öma sinna, en hefur auga á stönginni. Sér hann þá, að stöngin liggur ekki kyrr, en rykkist til á bakk- anum, og er athæfi hennar hið . kynlegasta. Herðir hann sig hvað hann má, lýkur erindinu og hleypur að stönginni, en hún tekur þá rykk upp i loftið. Verður söguhetja vor ókvæða við, en kennir ekkium göldrum og gjörningum, og þrifur störig sina. Sér hann þá, að linan liggur úti, og má ljóst vera, hvað hér er á seyði. Þegar söguhetja vor lagði stöngina frá sér i grasið lá öng- ullinn beittur maðki i grasinu spölkorn frá stönginni. Griöungur á beit þarna skammt frá hafði ekki kunnað að vara sig á maðkinum en gleypt hann og öngulinn og sat nú fastur á færinu. Ekki vildi graddi samt horfast i augu við vandræðaástandið og skila önglinum — maðkinn mátti hann svosem eiga — heldur tók á rás um leið og hann gerði sér ljóst, að hann var fanginn. Sperrti hann sig nú hvað mest hann mátti yfir móa, mela, þúfur og börð, — og söguhetja vor á eftir honum, með stöngina i höndunum, þvi að af slikum stólpagrip mátti ekki missa með neinu móti. Gekk svo um hrið, að ekki losnaði graddi, og gerðist nú trylltur. Hugkvæmdist sögu- hetju vorri um siðir að gripa til hnifs sins og skéra á linuna, og varhann þá aðniðurlotum kom- inn af mæði, en leikurinn hafði borizt langan veg. Graddanum varð að lóga, þvi að ekki fékkst hann til að skila önglinum með eðlilegum hætti. Næsta saga gæti heitið Laxinn, sem heilsaði upp á veiðimanninn. Þessi saga er að norðan, en þar geta allir mögulegir hlutir gerzt, eins og allir vita. Þannig var, að bóndi nokkur var i bát sinum úti i á og var að veiða. Hann var vanur veiði- maður og einn i bátnum. Ekki vitum við, hversu lengi hann hafði fengizt við veiðiskapinn, þegar allt i einu tekur á hjá hon- um. Hann finnur fljótlega, að þetta er fjörugur lax, sem ekki ætlár að láta ná sér fyrirhafnarlaust. Bóndi treystir sér ekki til að eiga við laxinn og stjórna bátn- um um leið, svo að hann skorðar stöngina á milli fóta sér og tek- ur að róa í land. Hann er ekki kominn langt, þegar allt. i einu slaknar á fær- inu,og veit hann ekki fyrri til en laxinn stekkur upp i miðjan bát- inn til hans! Bóndi mænir stundarkorn furðu lostinn á fyrirbrigðið, en áttar sig vonum bráðar og rotar laxinn snarlega. Laxinn reynd- ist vera fjórtán pund. Sá, sem sagöi okkur þessa sögu, kvaðst aldrei myndu hafa trúað þessu, ef hann, ásamt öðrum manni, hefði ekki horft á þetta sjálfur. Þetta gerðist I Laxá i Aðaldal, og áhorfandinn var enginn annar en veiðivörð- urinn, hann Þórður Pétursson. Að lokum kemur svo sagan um manninn, sem beitti einni frum- stæðustu veiðiaðferðinni. HUn gæti heitið Veiðiaðferðin dular- fulla Þetta er bara litil veiðisaga, og þar sem veiðiaðferðin er ekki lögleg, spörum við að geta þess, hvar þetta gerðist, eða hver var að verki. Það var einn góðviðrisdaginn, að maður nokkur brá sér út i sveit til að njóta bliðunnar. Hon- um datt I hug að verið gæti, að hann sæi gæs eða svartbak, tóíu eða mink, svo að byssan fékk að fljóta með: En konan hans varð ekki litið hissa, þegar hann kom heim um kvöldið og snaraði upp i eldhús- vaskinn myndarlegum laxi með skotgati á hausnum! Fræðslustjórar skipaðir fyrir sunnan, austan og á Vesturlandi Stöður fræðslustjóra I Austur- lands-, Suðurlands- og Vestur- landsumdæmum samkvæmt grunnskólalögum voru fyrir nokkru auglýstar lausar til um- sóknar. Að fengnum tillögum þeirra fræðsluráða, sem hlut eiga að máli hefur menntamálaráðu- neytið sett I stöðurnar sem hér segir: 1) Jón R. Hjálmarsson, skóla- stjóri Héraðsskólans að Skógum undir Eyjafjöllum, hefur verið settur fræðslustjóri i Suðurlands- umdæmi, en það umdæmi nær yfir Vestur-Skaftafellssýslu, Vestmannaeyjar, Rangárvalla- sýslu og Árnessýslu. 2) Kristján Ingólfsson, náms- stjóri, hefur verið settur fræöslu- stjóri i Austurlandsumdæmi, en það nær yfir Norður-Múlasýslu, Seyðisfjarðarkaupstaö, Suö- ur-Múlasýslu, Neskaupstað, Eskifjarðarkaupstað og Aust- ur-Skaftafellssýlu. 3) Snorri Þorsteinsson, kennari, hefur verið settur fræðslustjóri i Vesturlandsumdæmi, en það nær yfir Borgarfjarðarsýslu, Akra- neskaupstað, Mýrasýslu, Snæ- fellsnes- og Hnappadalssýslu og Dalasýslu. Fræðslustjórarnir eru settir i stöðurnar um eins árs skeið frá 1. þ.m. að telja. Fræðslustjórarnir munu hafa aðsetur á Selfossi, Reyðarfirði og I Borgarnesi. Samkvæmt grunnskólalögum er fræðslustjóri fulltrúi mennta- málaráöuneytisins og sveitar- félaga, sem hlut eiga að máli um fræðslumál i umdæminu og fram- kvæmdastióri fræðsluráðs. „Listiðia í dagsins M f r r onn i Færeyjum NORRÆNA farandsýningin „Listiðja f dagsins önn”, sem komið var á fót I tilefni kvenna- árs, hefur farið víða um land, verið mjög vel sótt og vakið mikla athygli. Sýningin var sett upp I Reykjavik, Neskaupstað, Akur- eyri, tsafirði og Patreksfiröi. t lok júlimánaðar fór sýningin til Grænlands og var hún þar sett upp i Godtháb og Julianeháb. Nú er búið að senda hana til Færeyja og verið er að undirbúa opnun

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.