Tíminn - 06.09.1975, Qupperneq 12
12
TÍMINN
Laugardagur 6. september 1975.
LÖGREGLUHA TARINN
eftir
10 Ed McBaÍn Þýðandi Haraldur Blöndal
sem hann var einkennisklæddur eða óeinkennisklæddur,
nákvæmar upplýsingar um tilhögun yfirheyrslu á mönn-
um, sem grunaðir voru um eitt eða annað. Flestir ein-
kennisklæddir lögregluþjónar umdæmisins gengu með
þennan miða i veski sínu til að geta flett upp sér til leið-
beiningar, ef á reyndi. Leynilögreglumennirnir yfir-
heyrðu þó oftast fleira fólk en hinir einkennisklæddu
starfsbræður þeirra. Þeir voru því búnir að læra þessar
reglur utan að. Þeir beittu þeim af lipurð, en litu þær þó
enn sem fyrr mjög óhýru auga.
— Samkvæmt hæstaréttarúrskurði Miranda gegn Ari-
zona, sagði Hal Willis, er okkur skylt að gera þér Ijósan
allan rétt þinn. Ég ætla nú að gera það. Þér er f rjálst að
segja ekki neitt, ef þú óskar þess. Skilur þú það?
— Já. Ég skil það.
— Er þér einnig Ijóst, að þú þarft alls ekki að svara
neinum spurningum lögreglunnar?
— Mér er það líka Ijóst.
— Er þér einnig Ijóst, að EF þú svarar spurningum,
getur svo f arið, að svörin verði notuð sem sönnunargögn
gegn þér.
— Já. Ég skil það.
— Mér er líka skylt að segja þér, að þú átt rétt á að
bera þig upp við lögfræðing, meðan á lögregluyfir-
heyrslu stendur, eða þá áður. Skilur þú það?
— Ég skil.
— Ef þú vilt lögf ræðilegan ráðunaut, en hef ur ekki efni
á því, þá áttu rétt á að fá lögmann þér að kostnaðar-
lausu. Þú mátt þá ræða við hann fyrir yfirheyrslu eða
meðan á henni stendur. Er þetta líka Ijóst?
— Já.
— Skilur þú þá öll þessi réttindi þín, eins og ég var að
skýra þau?
— Já.
— Viltu þá svara spurningum, án þess að hafa lög-
fræðing viðstaddan?
— Ja, ég veit svei mér ekki, sagði sá grunaði. Finnst
ykkur það?
Willis og Brown litu hvor á annan. Þeir höfðu enn sem
komið var fylgt Miranda Escobedo nákvæmlega. Þeir
höfðu varað vitnið við því að vitna gegn sjálfu sér, svo
sem réttur þess var að vita. Þeir höfðu einnig minnt
hann á rétt sinn til að hafa lögmann sér við hlið. Þeir
höfðu orðað þetta skýrt og tæpitungulaust, án þess að
vitna aðeins í fimmtu breytingu stjórnarskrárinnar.
Þeir höfðu einnig gengið úr skugga um, að vitnið skildi
þá, áður en þeir spurðu, hvort það óskaði að svara spurn-
ingum þeirra. Á græna flugumiðanum, sem Frisk yfir-
foringi dreifði var aðvörun, þar sem stóð, að ekki væri
nóg, að lögreglumaðurinn upplýsti grunaða um rétt sinn
og tæki svo til við yfirheyrsluna. Fanginn varð að
SEGJA, að hann skildi hver réttur hans var. Hann varð
einnig að SEGJA, að hann væri f ús til að svara spurning-
um, án þess að lögmaður væri viðstaddur. Þá fyrst
viðurkenndi stjórnarskráin, að maðurinn hefði afsalað
sér þessum rétti.
En flugumiðinn varaði einnig alla lögreglumenn við
þvf að beita tungutaki, sem einstakir lögfræðingar gætu
síðar heimfært sem ógnandi, blekkjandi eða tvíræðar að-
ferðir til að fá þann grunaða til að afsala sér rétti sín-
um. Lögreglumenn voru þó sérstaklega varaðir við því
að ráðleggja þeim grunaða að spara sér það ómak að
kalla til lögfræðing, hvað þá heldur að gefa í skyn að
grunaði væri betur kominn án lögmanns. Lögreglumann
inum var því uppálagt að tilkynna þeim grunaða rétt
sinn og vara hann við því að vitna gegn sjálf um sér. Enn-
fremur að kynna honum réttsinn til að kalla til lögmann.
Það var allt og sumt. Willis og Brown vissu báðir, að þeir
gátu ekki svarað spurningu þess grunaða. Ef annar hvor
þeirra hefði ráðlagt honum að svara spurningum án þess
að hafa viðstaddan lögmann, hefði sérhver játning, sem
fengizt hefði eftir það, verið óf rambærileg fyrir rétti. Ef
þeir ráðlegðu manninum hins vegar að svara EKKI
spurningum og teldu hann á að bera sig upp við lög-
fræðing, þá minnkuðu vonir þeirra og möguieikar á því
að fá játningu.
— Ég er búinn að útskýra lagalegan rétt þinn. Það er
ekki við hæf i, að ég ráðleggi þér eitt eða neitt. Þú verður
að gera þetta upp við þig, svaraði Willis að lokum.
— Ég veit það svei mér ekki, sagði maðurinn.
— Hugsaðu málið, sagði Willis.
Ungi maðurinn velti þessu fyrir sér um stund. Hvorki
Willis né Brown sögðu eitt aukatekið orð. Þeir vissu sem ,
var, að ef sá grunaði neitaði að svara spurningum
þeirra, náði það ekki lengra. Við svo búið hlaut yfir-
heyrslan að enda. Þeir vissu einnig, að ef maðurinn
byrjaði aðsvara spurningum og vildi svoskyndilega ekki
Af smá
'Afhverju heldur
þú| að Haddi sé
mest hrifinn?
kökum
mömmu
þinnar.
Ég hef augu
m.ömmu og
munn pabba.
WP
me
II-8
mmmh
Laugardagur
6. september
7.00 Morgunútvarp Veður-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Morgunbæn kl. 7.55. Fréttir
kl. 7.30, 8.15 (og forustugr.
dagbl.) 9.00 og 10.00. Morg-
unstund barnanna kl. 8.45:
Arnhildur Jónsdóttir les
söguna „Sveitin heillar”
eftir Enid Blyton (12). Til-
kynningar kl. 9.30. Létt lög
milli atriða Kl. 10.25: „Mig
hendir aldrei neitt”, um-
f e r ð a r þ. Kára Jónasson-
ar (endurtekinn). óskalög
sjúklinga kl. 10.30: Kristin
Sveinbjörnsdóttir kynnir.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar. Tónleikar.
14.00 Á þriöja timanum Páll
Heiðar Jónsson sér um þátt-
inn.
15.00 Miðdegistónleikar Leo
Litwin og Boston Pops-
hljómsveitin leika „Var-
sjárkonsertinn” eftir Ric-
hard Addinsell: Arthur
Fiedler stj. Earl Wild og
Boston Pops-hljómsveitin
leika „Phapsody in Blue”
eftir George Gershwin:
Arthur Fiedler stj.
Mormónakórinn i Utah
syngur lög eftir Stephen
Foster: Richard Condie stj.
15.45 í umferðinni Árni Þór
Eymundsson stjórnar þætt-
inum. (16.00 Fréttir 16.15
Veðurfregnir).
16.30 Hálf fimm Jökull
Jakobsson sér um þáttinn.
17.20 Popp á laugardegi Hulda
Jósefsdóttir kynnir.
18.10 Siðdegissöngvar. Til-
kynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Hálftfminn Ingólfur
Margeirsson og Lárus
Óskarsson sjá um þáttinn,
semfjallarum ungmenni og
vimugjafa.
20.10 Evrópukeppni landsliða i
knattspyrnu : Belgia—Is-
land Jón Ásgeirsson lýsir
frá Liege.
20.45 Hljómplöturabb Þor-
steinn Hannesson bregður
plötum á fóninn.
21.30 Hornsteinn heimilisins.
Fyrri þáttur Guðrúnar Guð-
laugsdóttur um húsmæðra-
stéttina.
22.00 Fréttir
22.15 Veðurfregnir Danslög
23.55 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
Laugardagur
6. september
18.00 tþróttir Umsjónarmaður
Ómar Ragnarsson.
HJé
20.00 Fréttir og veður
20.25 Dagskrá og auglýsingar
20.30 Læknir I vanda breskur
gamanmyndaflokkur.
Laumuspil Þýðandi Stefán
Jökulsson.
20.55 Spilverk þjóðanna
Félagarnúr Valgeir Guö-
jónsson, Egill Ólafsson og
Sigurður Bjóla fremja eigin
tónsmið með aðstoð ýmissa
vina og vandamanna. Tón-
list þessa kalla þeir há-
fjallatónlist. Stjórn upptöku
Egill Eðvarðsson.
21.15 Myrkrið á stigapallinum
(Dark at the Top of the
Stairs) Bandarisk biómynd
frá árinu 1960, byggð á leik-
riti eftir William Inge. Aðal-
hlutverk Robert Preston,
Dorothy McGuire og Eve
Arden. Þýðandi Heba
Júliusdóttir. Myndin lýsir
lifi bandariskrar fjölskyldu.
Húsbóndinn er sölumaður,
en hefur misst atvinnuna.
Þeim hjónum kemur mis-
jafnlega saman, og þegar
dóttir þeirra kemst i kynni
við pilt af gyðingaættum
verður það sist til að bæta
samkomulagið á heimilinu.
23.20 Dagskrárlok