Tíminn - 06.09.1975, Page 13
Laugardagur 6. september 1975.
TÍMINN
13
lf jjfj .IhiiMIIí 'IHffl
il i
Athugasemdir við
skýrslu háskólamanna
um byggingariðnað.
Sturla Einarsson, húsgagna- og
byggingameistari, skrifar:
„Vegna blaðagreina um Urelt
meistarakerfi og tregðu fyrir
nýjungum, tel ég mér eða
kollegum mfnum skylt að leið-
rétta þann alvarlega misskiln-
ing sem gætir i umræddri grein,
sem skrifuö er upp Ur skýrslu
sérfræðinganefndar rannsókn-
arráðs ríkisins. Sannar greinin
enn einu sinni, hve breitt bil er
milli þeirra hugmynda sem há-
skólamenn hafa á byggingar-
iðnaði og þess sem raunveru-
lega gerist á vinnumarkaðnum.
Þaö fer ekki framhjá þeim
sem eitthvað þekkja til, að há-
skólamenn, en þar á ég við aðal-
lega verkfræðinga og arkitekta,
þyrstir i að komast i starf sem
þeir hafa bUið til og heitir bygg-
ingarstjóri, og ýta meö þvi til
hliðar þeim aöilum sem sam-
eiginlega gegna þvi starfi, en þó
einkum byggingameisturum.
Að mati þeirra manna er fara
með yfirstjórn byggingarmála
þýðir þetta nýja starf um 5-10%
hækkun byggingarkostnaöar,
þvi auðvitað þurfa þessir meijn
laun fyrir yfirstjórnina og þau
ekki svo lág, ef litið er til ann-
arra verka þessara aðila svo
sem teikninga arktitekta og
verkfræðinga, gerð Utboðslýs-
inga og fleira. Eftir að hafa unn-
iö sem byggingarmeistari i
nokkur ár verð ég að segja að
þessir aðilar ættu að vanda bet-
ur sina vinnu og sýna meiri á-
byrgð i störfum en hingað til
hefur viðgengist. A ég þar við
vanunnar og rangt unnar húsa-
teikningar, sem byggingar-
meistarinn og fagmenn hans
verða oftast að ráða bót á og
vanunnar burðarþolsteikning-
ar, sem orsaka sprungumyndun
IhUsum. Auðvitað eru til undan-
tekningar, þ.e. menn sem sóma-
samlega vinna sinar teikningar,
en þeir eru allt of fáir. Má þvi
segja um þessa menn, að þeir
ættu ekki að kasta grjóti sem i
glerhUsum búa.
Við byggingu hUss þarf fjóra
meistara, sem hvor um sig hef-
ur faglærða menn i sinni þjón-
ustu. Til þess að meistari geti
tekið að sér verkið, þarf hann að
hafa 7 ár að baki sem fagmaður
(4 ár sem nemi og 3 ár sem
sveinn). Auk þess þarf hann
prof frá Meistaraskólanum og
löggildingu byggingaryfirvalda.
Ætti þvi hver maður að sjá, aö
vonlitiö er fyrir einn aðila, þó
háskólagenginn sé aö leggja
faglegt mat á allar greinar
byggingarinnar og hafa enga
reynslu I starfi sem fagmaður,
nema um ofurmenni sé að ræða,
en enn sem komið er hef ég ekki
séð eða heyrt um slíkan mann.
Varðandi nýjungar i bygging-
ariðnaöi er það alrangt að
meistarar séu þar þröskuldur I
vegi. Má þar nefna margar nýj-
ungar sem rutt hafa sér til rUms
og ekki hvað sist hve vandaðar
hUsbyggingar á Islandi eru miö-
að við það sem gerist I ná-
grannalöndum okkar og með til-
liti til hinnar erfiðu veðráttu.
Má þár til nefna tilbUnar vegg-
einingar í fjöldaframleiöslu,
forspennta burðarbita i öll
stærri mannvirki, inni og Uti-
hurðir, sem eru með þvi albezta
sem þekkist meðal nágranna
okkar, eldhUs og skápasmiði,
sem uppfyllir ýtrustu kröfur um
Utlit og vandvirkni og svo má
lengi telja. Allt eru þetta hUs-
hlutar sem unnir eru i fjölda-
framleiðslu. Höfuðverkurinn er
hins vegar sá, hve hönnuðir
teikninga eru tregir að nota
staðlaðar teikningar og þó eink-
um hve hUsbyggjendur byggja
fyrir sérþarfir. Varðandi fjár-
mögnun hUsbygginga er það að
segja, að mikið vantar á að
lánastofnanir geti annað lán-
veitingum til byggingaraöila, en
I þeim efnum er lánasjóðum
nokkur vorkunn.
Þar kemur til aö byggingar á
Islandi eru mjög fburðarmiklar
og dýrar.hitt að varla eru menn
fyrr farnir að hugsa til kvenna,
en þeir fara að leggja drög að
eigin húsnæði. Leiðir þetta til
þess að fólk byggir oftast langt
um efni fram, en það kemur
mjög hart niður á þeim meistur-
um, er látaf té vinnu og efni. Al-
gengt er að hUsbyggjandi láti
framkvæma verk, án þess aö
eiga svo mikið sem grænan eyri
en hleypur svo til, þegar verkiö
hefur veriö unnið og reikningur-
inn tilbUinn, til að Utvega fé eöa
„redda” greiðslunni. Varðandi
það að byggingarstjóri leysi
hUsbyggjanda af hólmi með eft-
irlit með verkinu, er þaö algjör
misskilningur. HUsbyggjendum
er meira en svo annt um hUs sitt
að þeir fylgist ekki með þvi sem
þar er aö gerast, fyrir utan það
að hUsbyggjandi vinnur yfirleitt
svo og svo'mikið sjálfur við sitt
hUs og sparar sér þar oft stórfé,
og á það jafnt við um bygging-
arfélög einstaklinga. 1 um-
ræddri grein er réttilega bent á
þær miklu sveiflur sem tiðkast I
byggingariönaði og skaðsemi
þeirra og ætla ég ekki að fjöl-
yrða um það mál, svo augljóst
sem það er. Um ákvæðistaxta er
það aö segja að nærri stöðugt er
unnið að endurbótum og sam-
ræmingu vegna þróunar i bygg-
ingariðnaði og er næsta furðu-
legt að menn skuli undra þó að
vissir dugnaðarmenn og ham-
hleypur fagmanna skuli ná háu
timakaupi og þá venjulega á
kostnað heilsu sinnar og likam-
legrar endingar. Væri skatt-
greiðslum landsmanna vafa-
laust betur komið ef embættis-
menn ynnu eftir bónuskerfi þar
sem þvi verður viö komið, en
það er býsna viða. Bent er á I
skýrslunni að þörf sé á að flytja
allt nám iðnaðarmanna inn i
iðnskóla. Eg sem meistari
myndi nti ekki fela slikum iðn-
skólalærðum iðnsveini vanda-
samt verk að vinna, eða hvað
halda þessir menn að yrði upp á
teningnum ef fólk yrði sett inn á
skólabekk og þvi kennt þar að
aka bifreiö, taka þar próf og sið-
an sagt að nti megi það stiga upp
i einn bil og aka af stað, án þess
að hafa fengið nokkurn tima i
akstri á götum og vegum. Bezta
námiö sem iðnnemi getur fengið
er undir handleiðslu meistara
og sveina, með fjölhæfa og
langa starfsreynslu að baki.”
Kjörskrd
fyrir prestskosningu, sem fram á að fara I
Seltjarnarnessókn sunnudaginn 21. sept.
n.k. liggur frammi i gamla Mýrarhúsa-
skólanum, e£ri hæð, kl. 13.00-18.30 aila
virka daga nema laugardaga á timabilinu
8. sept. til og með 15. sept.
Kærufrestur er til kl. 24.00 16. sept. n.k.
Kærur skulu sendar formanni sóknar-
nefndar, Kristinu Friðbjarnardóttur,
Vallarbraut 18.
Kosningarétt viö prestkosningar þessar hafa þeir sem
búsettir eru á Seltjarnarnesi sem náð hafa 20 ára aldri á
kjördegi og voru i þjóökirkjunni 1. des. 1974 enda greiði
þeir sóknargjald til þjóökirkjunnar á árinu 1975.
Þeir, sem siöan 1. des. 1974 hafa fluttst til Seltjarnarness
en eru ekki á kjörskránni eins og hún er nú lögö fram,
þurfa þvi aö kæra sig inn á kjörskrána. Eyöubiöö undir
kærur fást á skrifstofu Seltjarnarnesbæjar, sem jafnframt
staöfestir meö áritun á kæruna aöflutningur lögheimilis á
Seltjarnarnes hafi veriö tilkynntur og þarf ekki sérstaka
greinargerö um málavexti til þess aö kæra veröi tekin til
greina af sóknarnefnd. Þeir sem flytja lögheimili sitt til
Seltjarnarness eftir aö kærufrestur rennur út, 16. sept.
n.k. veröa ekki teknir á kjörskrá aö þessu sinni.
Seltjarnarnesi 5. sept. 1975.
Sóknarnefnd Seltjarnarnessóknar.
y
Hl
Electrolux
Frystikista
310
Electrolux Frystikista TC114
310 lítra Frystigeta
21,5 kg á dag. Sjálfvirkur hita-
stillir (Termostat). Öryggisljós.
Ein karfa. Útbúnaður til að fjar-
lægja vatn úr frystihólfinu. Seg-
ullæsing. Fjöður, sem heldur
lokinu uppi.
1 i Vörumarkaðurinn hf. 1 AKMlllA IA, tilMI IHilli', H| VH.II) II, 1
\ r
Auglýsið í Tímanum
HAPPDRÆTTI D.A.S.
Vinningar í 5. flokki 1975 - 1976
íbúð eftir vali kr. 2.OOO.OOO.00.
27620
Bifreiö eftir vali kr. I.OOO.OOO.00
22676
Bifreiö eftir
Bifreið eftir
Bifreið eftir
Bifrcið eftir
Bifreið eftir
Bifreið eftir
Bifreið eftir
vali kr. 500
vali kr. 500
vali kr. 500
vali kr. 500
vali kr. 500
vali kr. 500
vali kr. 500
þús. 16035
þús. 22667
þús. 39956
þús. 41091
þús. 48604
þús. 60030
þús. 60915
Utanlandsferð kr. 250 þús.
18413
Utanlandsferð kr. 100 þús. Húsbúnaður eftir vali kr. 25 þús.
1044 3262 3936 5772 25376 1192s 12451 H379 47000 17165
80920 33194 39157 51739 61651 301.93 47570 50719 58748 80518
84362
Húsbúnaður eftir vali kr. lO þús.
337 7167 13083 23346 30044 36778 42418 52009 58117
756 7542 13092 23451 30118 37126 42542 52274 58316
789 7672 14248 23737 30239 37159 42581 52702 58407
1210 7894 14740 23851 30558 37202 42630 52703 58414
1430 8104 14761 23932 30671 37266 42699 52731 58579
1468 8152 15156 24326 31075 37356 43026 52823 58764
1513 8385 15777 24450 31446 37398 43287 52933 58909
1615 8417 15814 24512 31456 38312 43819 52954 59589
1811 8565 15822 24608 31564 38340 43880 53205 59615
1894 8599 16111 24853 31804 38346 44290 53251 59621
2085 8679 16136 24998 32208 38463 44348 53326 59852
2213 8683 16203 25659 32416 38490 44556 53391 59886
2248 8836 16407 25850 32499 38586 44901 53555 59971
2276 8924 16493 25866 32826 38642 45337 53605 60036
2327 9028 16607 26016 32835 38777 45646 53785 60307
2542 9224 16610 26018 32883 38882 45688 53854 60377
2619 9564 16795 26496 32899 38953 46328 53902 60755
2656 9908 17096 26678 32966 38993 46648 54084 60764
2844 10019 17700 27084 33165 39283 46828 54111 60959
3211 10020 17775 27094 33219 39391 47860 54181 61038
3231 10065 17803 27103 33269 39399 48114 54293 61588
3667 10277 17918 27248 33399 39416 48763 54563 61610
3866 10381 17944 27249 33618 39576 48889 54963 61753
4061 10534 18179 27253 33740 39634 48898 55108 61856
4202 10722 18180 27596 33760 39804 49260 55296 61971
4358 10795 18367 27718 33858 39836 49495 55414 62187
4462 10938 19151 27727 33896 40268 49C27 55634 62248
4699 11326 19201 27797 34651 40589 49807 56354 63160
4971 11518 19277 27945 34742 40646 49987 56384 63177
5271 11551 19810 28217 34774 40688 50322 56451 63449
5378 11669 19824 28347 35297 40706 50334 56486 63683
5474 11774 20173 28471 35402 41081 50395 56578 63714
5508 11904 20344 29052 35558 41212 50446 56682 63967
5787 11960 20437 29326 35831 41263 50564 56844 64158
5913 12361 20577 29364 36065 41264 50839 57045 64316
6355 12393 20950 29402 36188 41535 50870 57418 64531
6458 12541 22205 29512 36239 41892 51036 57477 64690
6700 12683 22351 29569 36456 42057 51408 57570 64749
6750 12887 22405 29731 36508 42233 51714 57984 64919
6801 13025 22551 29738 36694 42291 51717 58097 65000
6981 13055 22946 29811
Kvöldskólinn —
Nómsflokkar Reykja-
víkur
Innritun i gagnfræðadeildir, miðskóia-
deild (3. bekk) og aðfaranám (undir-
búning undir 3. bekk) fer fram
mánudaginn 8. september kl. 20 til 22 i
Laugalækjarskóla.
Kennslugjald greiðist við innritun.
Aætlað gjald til jóla: 13.000 kr. i gagnfr. og
miðskólad. en 6.500 krónur i aðfaranámi.
Ath. aðfaranám er aðeins ætlað þeim, sem
orðnir eru 15 ára og eldri.
Kennsluskrá námsflokka Reykjavlkur
kemur út um miðjan sept.
Fró Digranesskóla
Nemendur komi I skólann mánudaginn 8. september
sem hér segir:
Börn fædd 1963 og ’64 (11 og 12 ára) kl. 9
Börn fædd 1965 og '66 (9 og lOára) kl. 11.
Börnfædd 1967 og ’68 ( 7 og 8ára)kl. 13.
Skólastjóri.
Húsbúnaftur eftir vali kr. 50 þús.
1122 8071 24305 24347 43712