Tíminn - 02.10.1975, Blaðsíða 2

Tíminn - 02.10.1975, Blaðsíða 2
1 TÍMINN Fimmtudagur 2. október 1975 Átta umsóknir um fræðslu- stjórastöður á Norðurlandi FRÆÐSLUSTJÓRASTÖÐUR i Norðurlandsumdæmi eystra og vestra voru auglýstar lausar til umsóknar 5. september með um- sóknarfresti til 1. október. Um- sækjendur eru: um fræðslustjórastöðu i Norö- urlandsumdæmi vestra: dr. Bragi Jósepsson, Skipasundi 72, Reykjavík, Helga Kristin Möller, kennari, Skipholti 43, Reykjavik, Sveinn Kjartansson, skólastjóri, Hafralækjarskóla, S.-Þing. Val- garö Runólfsson, skólastjóri, Reykjamörk 12, Hveragerði og Þormóður Svavarsson, phil. kand., Skarðshliö 31d, Akureyri. um fræðslustjórastöðu I Norð- urlandsumdæmi eystra: Nanna Úlfsdóttir, B.A., Hraunbæ 90, Reykjavlk, Valgarður Haralds- son, námsstjóri, Hamarsstig 41, Akureyri og Þormóður Svavars- son, phil Kand., Skarðshlið 31d, Akureyri. Öll þjónusta, sem varðar Spán, lögð niður í 2 daga — í mótmælaskyni við hryðjuverk fasistastjórnarinnar HHJ—Rvik — ASt og BSRB hafa látiö frá sér fara áskorun til allra félaga samtakanna um að leggja niður alla þjónustu, sem varði samskipti og sam- göngur við Spán, þ.á.m. af- greiðslu flugvéla og hvers konar störf I þvl sambandi, svo og alla póst- og slmaþjónustu. Askorun þessi á að taka gildi á hádegi i dag og gilda til mið- nættis á föstudag. t tilkynningu frá ASÍ og BSRB segir, að þessar aðgerðir beri að skoða sem mótmæli islenzku launþegasamtakanna gegn hryðjuverkum spænsku einræð- isstjórnarinnar og morðum á verkalýðssinnum og frelsisunn- andi fólki á Spáni. Þessar aðgerðir eru liður I sams konar aðgerðum annarra launþegasamtaka I Evrópu. Samkvæmt upplýsingum, sem Timinn aflaði sér frá ferða- skrifstofunum I gær, eru engar Spánarferðir áætlaðar þessa daga. Utanríkis- róðherra heimsækir NATO-stöðvar EINAR Ágústsson, utanrikisráð- herra, hefur þegið boð yfirflota- foringja Atlantshafsbandalags- ins, Kidd aðmíráls, og yfirmanns loftvarna á Norður-Atlantshafi, James hershöfðingja, að heim- sækja aðalstöðvar þeirra I Nor- folk, Virginia, og Colorado Springs, Colorado. Ferð þessi er farin i framhaldi af dvöl utanrikisráðherra i Bandarikjunum vegna hins 30. allsherjarþings Sameinuðu þjóð- anna. Ný endurskinsmerki: „SLAPPAÐU AF — hjartalöguð merki fyrir unglinga rv gébé Rvík— Umferðarráð er nú að hefja árlega kynningu sina á endurskinsmerkjum og gildi þeirra fyrir umferðaröryggið þegar skammdegistiminn fer i hönd. Að þessu sinni beinist at- hyglin sérstaklega að unglingum og fullorðnu fólki, þvi að þrátt fyrir mikilvægi endurskins fyrir gangandi vegfarendur, hefur reynzt örðugt að koma á almennri notkun merkjanna. Það virðist útbreiddur misskilningur, að endurskinsmerki séu fyrst og fremst fyrir börn, þvi að fullorðn- ir og unglingar eru meira á ferð- inni eftir að skyggja tekur og eru þar af leiðandi oftar i hættu. Til þess að hvetja unglinga til að ganga með endurskinsmerki hafa verið gerð hjartalaga merki i fjórum litum, bláum, grænum, gulum og rauðum, með áletrun- inni: „Slappaðu af”. Annars kon- ar merki, sem unnt er að fá i mjólkurbúðum i Reykjavik og i kaupfélögum um land allt, eru hringlaga merki með myndum til að sauma á flikur svo og glærar endurskinsplötur, sem einkum eru ætlaðar fullorðnu fólki. Arið 1973 seldi Umferðarráð 28 þúsund endurskinsmerki, en hvorki meira né minna en fimmtíu þúsund merki i fyrra. Er það von ráðsins að á þessu ári seljist ekki færri merki en á s.l. ári. Fyrirtækjum, skólum, stofn- unum og sveitarfélögum var gefinn kostur á að fá merki með nafni og/eða merki, og notfærðu sér það margir, og verður sami háttur hafður á áfram. Allir ættu að nota endurskins- merkin, — ungir sem aldnir. Miklar framkvæmdir hjá sláturhúsunum í samræmi við áætlun um skipulagða endurtryggingu sláturhúsakerfisins EINS og kunnugt er hefur undanfarin ár verið unnið að skipulegri endurbyggingu sláturhúsakerfisins i landinu i samræmi við áætlun um það efni, sem gerð var 1970. Agnar Tryggvason sagði, i viðtali við nýútkomnar Sam- bandsfréttir að nú væri lokið við að reisa ný færibandahús eða endurbyggja önnur á sjö stöðum á landinu, þ.e. i Borgarnesi, Búðardal, Hólmavik, Blönduósi, Sauðárkróki, Húsavik og á Sel- fossi. 011 þessi hús eru i eigu kaupfélaganna á viðkomandi stöðum, nema húsið á Selfossi, sem er i eigu Sláturfélags Suðurlands, Teiknistofa Sam- bandsins hefur séð um alla framkvæmd þessarar endur- byggingar, og hafa starfsmenn hennar teiknað og hannað öll ofangreind hús. I yfirstandandi sláturtið er slátrað samtals i þessum húsum um 15-16 þúsund fjár á dag, eða alls 300-350 þús- und f jár. Þá sagði Agnar, að áfram- haldandi yrði unnið eftir þessari áætlun, og væru næstu verkefni að reisa færibandahús á Hvammstanga og á Egilsstöð- um. Auk þess væri fyrirhugað að búa þannig að sláturhúsinu á Kópaskeri, að það yrði i fyrsta flokki sem útflutningshús, þótt ekki hefði enn verið ákveðið, hvort það yrði byggt upp með færibandakerfi. Þar aðauki væri full nauðsyn á að byggja upp færibandahús á fleiri stöðum á landinu, þótt það hefði enn ekki verið hægt vegna skorts á fjármagni og vegna þess að kaupfélögin á viðkom- andi stöðum hefðu verið bundin af öðrum verkefnum. t þessu sambandi nefndi Agnar Vest- firði sérstaklega, en þar hefði verið ráðgert að reisa tvö hús, sem sérstaklega sinntu innan- landsmarkaðnum. Þvi miður hefði ekki enn verið hægt að hefja framkvæmdir við þau af óviöráðanlegum ástæðum. Agnar gat þess sérstaklega, að þegar væri búið að gera gifurlegt átak i málefnum sláturhúsanna. Þar væri ekki aðeins um að ræða þessar endurbyggingar, heldur hefðu verið haldin fjölmörg leiðbein- ingarnámskeið til að þjálfa starfsfólkið i húsunum og búa það sem bezt undir störf sin. Nú I ár væri fyrirsjáanleg aukin þörf fyrir útflutning vegna óvenjumikillar slátrunar, og kæmi gagnsemi þessa starfs þá hvað bezt i ljós. Kröfurnar er- lendis væru ákaflega strangar, og kæmi ekki til greina að flytja út kjöt frá öðrum húsum en þeim, sem hefðu fullkomnustu aðstöðu að þvi er hreinlætis- kröfur varðaði, en þar væru nýj- ustu færibandahúsin efst á blaði. HLAUT TÆPA MILLJÓN í STYRK Viðbótarsala á prjóna- vörum til Sovétríkjanna — Jóhann Eyfells prófessor hefur fengið tæplega einnar milljón króna styrk (6000 dollara) til að geta einbeitt sér að listsköpun i þrjá mánuði. Jóhann er nú prófessor við listadeild Tækniháskólans i Florida, en ekki þarf hann að sinna kennslustörfum þessa þrjá mánuði sem hann nýtur styrksins. Jóhann Eyfells er þekktur um allan heim fyrir listaverk sin, sem eru að rnestu unnin úr járni og steini. Verk hans hafa verið sýnd viða um heim og vakið mikla athygli. HINN 18. sept. var undirritaður samningur um viöbótarsölu til Sovétrikjanna á framleiðsluvör- um frá nokkrum prjónastofum, scm Sambandiö hefur selt fyrir undanfariö aö sögn Andrésar Þorvarðarsonar, viöskipta- fulltrúa Sambandsins fyrir verzl- un viö Austur-Evrópu. — Þessi samningur var undir- ritaður hér I Reykjavik á milli Sambandsins og sovézka sam- vinnusambandsins, og fjallar hann um sölu á viðbótarmagni við það, sem áður hafði verið samið um. Hér er um að ræða 30 þúsund barnajakka, að verðmæti rúmar 42milljónir króna, sem afgreiddir veröa núna fyrir jólin. Þessar vörur eru framleiddar i ýmsum prjónastofum sem starfa viðs vegar um landið. Nánar til- tekið eru þetta Samtök prjóna- og út beint frá JÓN Arnþórsson, sölustjóri út- flutnings hjá Iöanöardeild, flutt- ist fyrir skömmu til Akureyrar, þar sem hann hefur nú aösetur á aöalskrifstofu deildarinnar. Jafn- framt þessu var gerð sú fyrir- komulagsbreyting á starfsemi Iönaðardeildar, aö nú fer allur út- flutningur hennar og sala á er- lenda markaöi fram beint frá Akureyri, og m.a. er nú gcngið þar frá öllum tollskjölum. Þá hef- ur starfsemi Hugmyndabankans verið flutt norður, og veröur hann framvegis á aðalskrifstofunni á Akureyri. Eins og kunnugt er hefur Hjörtur Eiriksson frkvstj. deildarinnar aösetur á Akureyri, og er hann hinn eini af fram- d SÍS flytur Akureyri kvæmdastjórum Sambandsins, sem situr utan Reykjavikur. Að Ármúla 3 i Reykjavik verður hins vegar áfram skrifstofa fyrir deildina,sem sinna mun verkefn- um hennar á Reykjavíkursvæð- inu. Þar er nýkominn til starfa Hans Kristján Arnason aðstoðar- framkvæmdastjóri, sem mun fara með stjórn þeirra mála. Auk hans starfar þar áfram Arni Jónsson gjaldkeri deildarinnar, sem annast innheimtur og önnur fjármál hennar hér syðra. Þá hefur einnig aðsetur þar Andrés Þorvarðarson viðskiptafulltrúi Sambandsins fyrir verzlun við lönd Austur-Evrópu, saumastofa norðanlands, en innan þess eru sex stofur, sem vinna saman, og auk þess Dyngja á Egilsstöðum, Katla i Vik I Mýr- dal, Sunna á Hvolsvelli og Prjónastofa Borgarness. Að meðtöldum þessum nýja samningi munu þessar stofur prjóna á þessu ári fyrir rússneska mark- aöinn 150 þúsund barnajakka og 20 þúsund peysur. Allar þessar vörur eru unnar úr hráefnum frá Sambandsverksmiðjunum á Akureyri, og heildarverðmæti þ-jirra verður liklega um 190 milljónir króna. Það gefur auga leiö, að þessi viöskipti eru orðin hin mikilvægustu. þvi að það er ekki svo lítil atvinna, sem þau skapa á þessum stöðum úti á landi. — Það má taka fram, aö þessi viðskipti koma til viðbótar þeim sölum á ullarteppum, peysum og öðrum ullarvörum sem fram hafa farið um mörg ár til Sovétrikj- anna frá Sambandsverksmiðjun- um á Akureyri. Kaupandi þessar- ar framleiðslu sauma- og prjóna- stofanna er sovézka samvinnu- sambandið, og I samkomulagi þvi, sem undirritað var hér i Reykjavik fyrr I þessum mánuði milli sovézka samvinnusam- bandsins og þess islenzka er gert ráð fyrir, að þessi viðskipti hald- ist með svipuðum.hætti allt næsta ár.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.