Tíminn - 02.10.1975, Qupperneq 2
1
TÍMINN
Fimmtudagur 2. október 1975
Átta
umsóknir
um fræðslu-
stjórastöður á
Norðurlandi
FRÆÐSLUSTJÓRASTÖÐUR i
Norðurlandsumdæmi eystra og
vestra voru auglýstar lausar til
umsóknar 5. september með um-
sóknarfresti til 1. október. Um-
sækjendur eru:
um fræðslustjórastöðu i Norö-
urlandsumdæmi vestra: dr.
Bragi Jósepsson, Skipasundi 72,
Reykjavík, Helga Kristin Möller,
kennari, Skipholti 43, Reykjavik,
Sveinn Kjartansson, skólastjóri,
Hafralækjarskóla, S.-Þing. Val-
garö Runólfsson, skólastjóri,
Reykjamörk 12, Hveragerði og
Þormóður Svavarsson, phil.
kand., Skarðshliö 31d, Akureyri.
um fræðslustjórastöðu I Norð-
urlandsumdæmi eystra: Nanna
Úlfsdóttir, B.A., Hraunbæ 90,
Reykjavlk, Valgarður Haralds-
son, námsstjóri, Hamarsstig 41,
Akureyri og Þormóður Svavars-
son, phil Kand., Skarðshlið 31d,
Akureyri.
Öll þjónusta, sem varðar
Spán, lögð niður í 2 daga
— í mótmælaskyni við hryðjuverk fasistastjórnarinnar
HHJ—Rvik — ASt og BSRB
hafa látiö frá sér fara áskorun
til allra félaga samtakanna um
að leggja niður alla þjónustu,
sem varði samskipti og sam-
göngur við Spán, þ.á.m. af-
greiðslu flugvéla og hvers konar
störf I þvl sambandi, svo og alla
póst- og slmaþjónustu.
Askorun þessi á að taka gildi á
hádegi i dag og gilda til mið-
nættis á föstudag.
t tilkynningu frá ASÍ og BSRB
segir, að þessar aðgerðir beri að
skoða sem mótmæli islenzku
launþegasamtakanna gegn
hryðjuverkum spænsku einræð-
isstjórnarinnar og morðum á
verkalýðssinnum og frelsisunn-
andi fólki á Spáni.
Þessar aðgerðir eru liður I
sams konar aðgerðum annarra
launþegasamtaka I Evrópu.
Samkvæmt upplýsingum,
sem Timinn aflaði sér frá ferða-
skrifstofunum I gær, eru engar
Spánarferðir áætlaðar þessa
daga.
Utanríkis-
róðherra
heimsækir
NATO-stöðvar
EINAR Ágústsson, utanrikisráð-
herra, hefur þegið boð yfirflota-
foringja Atlantshafsbandalags-
ins, Kidd aðmíráls, og yfirmanns
loftvarna á Norður-Atlantshafi,
James hershöfðingja, að heim-
sækja aðalstöðvar þeirra I Nor-
folk, Virginia, og Colorado
Springs, Colorado.
Ferð þessi er farin i framhaldi
af dvöl utanrikisráðherra i
Bandarikjunum vegna hins 30.
allsherjarþings Sameinuðu þjóð-
anna.
Ný endurskinsmerki:
„SLAPPAÐU AF
— hjartalöguð merki fyrir unglinga
rv
gébé Rvík— Umferðarráð er nú
að hefja árlega kynningu sina á
endurskinsmerkjum og gildi
þeirra fyrir umferðaröryggið
þegar skammdegistiminn fer i
hönd. Að þessu sinni beinist at-
hyglin sérstaklega að unglingum
og fullorðnu fólki, þvi að þrátt
fyrir mikilvægi endurskins fyrir
gangandi vegfarendur, hefur
reynzt örðugt að koma á almennri
notkun merkjanna. Það virðist
útbreiddur misskilningur, að
endurskinsmerki séu fyrst og
fremst fyrir börn, þvi að fullorðn-
ir og unglingar eru meira á ferð-
inni eftir að skyggja tekur og eru
þar af leiðandi oftar i hættu.
Til þess að hvetja unglinga til
að ganga með endurskinsmerki
hafa verið gerð hjartalaga merki
i fjórum litum, bláum, grænum,
gulum og rauðum, með áletrun-
inni: „Slappaðu af”. Annars kon-
ar merki, sem unnt er að fá i
mjólkurbúðum i Reykjavik og i
kaupfélögum um land allt, eru
hringlaga merki með myndum til
að sauma á flikur svo og glærar
endurskinsplötur, sem einkum
eru ætlaðar fullorðnu fólki.
Arið 1973 seldi Umferðarráð 28
þúsund endurskinsmerki, en
hvorki meira né minna en
fimmtíu þúsund merki i fyrra. Er
það von ráðsins að á þessu ári
seljist ekki færri merki en á s.l.
ári. Fyrirtækjum, skólum, stofn-
unum og sveitarfélögum var
gefinn kostur á að fá merki með
nafni og/eða merki, og notfærðu
sér það margir, og verður sami
háttur hafður á áfram.
Allir ættu að nota endurskins-
merkin, — ungir sem aldnir.
Miklar framkvæmdir
hjá sláturhúsunum
í samræmi við áætlun um skipulagða
endurtryggingu sláturhúsakerfisins
EINS og kunnugt er hefur
undanfarin ár verið unnið að
skipulegri endurbyggingu
sláturhúsakerfisins i landinu i
samræmi við áætlun um það
efni, sem gerð var 1970.
Agnar Tryggvason sagði, i
viðtali við nýútkomnar Sam-
bandsfréttir að nú væri lokið við
að reisa ný færibandahús eða
endurbyggja önnur á sjö stöðum
á landinu, þ.e. i Borgarnesi,
Búðardal, Hólmavik, Blönduósi,
Sauðárkróki, Húsavik og á Sel-
fossi. 011 þessi hús eru i eigu
kaupfélaganna á viðkomandi
stöðum, nema húsið á Selfossi,
sem er i eigu Sláturfélags
Suðurlands, Teiknistofa Sam-
bandsins hefur séð um alla
framkvæmd þessarar endur-
byggingar, og hafa starfsmenn
hennar teiknað og hannað öll
ofangreind hús. I yfirstandandi
sláturtið er slátrað samtals i
þessum húsum um 15-16 þúsund
fjár á dag, eða alls 300-350 þús-
und f jár.
Þá sagði Agnar, að áfram-
haldandi yrði unnið eftir þessari
áætlun, og væru næstu verkefni
að reisa færibandahús á
Hvammstanga og á Egilsstöð-
um. Auk þess væri fyrirhugað
að búa þannig að sláturhúsinu á
Kópaskeri, að það yrði i fyrsta
flokki sem útflutningshús, þótt
ekki hefði enn verið ákveðið,
hvort það yrði byggt upp með
færibandakerfi.
Þar aðauki væri full nauðsyn
á að byggja upp færibandahús á
fleiri stöðum á landinu, þótt það
hefði enn ekki verið hægt vegna
skorts á fjármagni og vegna
þess að kaupfélögin á viðkom-
andi stöðum hefðu verið bundin
af öðrum verkefnum. t þessu
sambandi nefndi Agnar Vest-
firði sérstaklega, en þar hefði
verið ráðgert að reisa tvö hús,
sem sérstaklega sinntu innan-
landsmarkaðnum. Þvi miður
hefði ekki enn verið hægt að
hefja framkvæmdir við þau af
óviöráðanlegum ástæðum.
Agnar gat þess sérstaklega,
að þegar væri búið að gera
gifurlegt átak i málefnum
sláturhúsanna. Þar væri ekki
aðeins um að ræða þessar
endurbyggingar, heldur hefðu
verið haldin fjölmörg leiðbein-
ingarnámskeið til að þjálfa
starfsfólkið i húsunum og búa
það sem bezt undir störf sin. Nú
I ár væri fyrirsjáanleg aukin
þörf fyrir útflutning vegna
óvenjumikillar slátrunar, og
kæmi gagnsemi þessa starfs þá
hvað bezt i ljós. Kröfurnar er-
lendis væru ákaflega strangar,
og kæmi ekki til greina að flytja
út kjöt frá öðrum húsum en
þeim, sem hefðu fullkomnustu
aðstöðu að þvi er hreinlætis-
kröfur varðaði, en þar væru nýj-
ustu færibandahúsin efst á
blaði.
HLAUT TÆPA MILLJÓN
í STYRK
Viðbótarsala á prjóna-
vörum til Sovétríkjanna
— Jóhann Eyfells prófessor hefur fengið tæplega einnar milljón króna
styrk (6000 dollara) til að geta einbeitt sér að listsköpun i þrjá mánuði.
Jóhann er nú prófessor við listadeild Tækniháskólans i Florida, en ekki
þarf hann að sinna kennslustörfum þessa þrjá mánuði sem hann nýtur
styrksins.
Jóhann Eyfells er þekktur um allan heim fyrir listaverk sin, sem eru
að rnestu unnin úr járni og steini. Verk hans hafa verið sýnd viða um
heim og vakið mikla athygli.
HINN 18. sept. var undirritaður
samningur um viöbótarsölu til
Sovétrikjanna á framleiðsluvör-
um frá nokkrum prjónastofum,
scm Sambandiö hefur selt fyrir
undanfariö aö sögn Andrésar
Þorvarðarsonar, viöskipta-
fulltrúa Sambandsins fyrir verzl-
un viö Austur-Evrópu.
— Þessi samningur var undir-
ritaður hér I Reykjavik á milli
Sambandsins og sovézka sam-
vinnusambandsins, og fjallar
hann um sölu á viðbótarmagni við
það, sem áður hafði verið samið
um. Hér er um að ræða 30 þúsund
barnajakka, að verðmæti rúmar
42milljónir króna, sem afgreiddir
veröa núna fyrir jólin.
Þessar vörur eru framleiddar i
ýmsum prjónastofum sem starfa
viðs vegar um landið. Nánar til-
tekið eru þetta Samtök prjóna- og
út beint frá
JÓN Arnþórsson, sölustjóri út-
flutnings hjá Iöanöardeild, flutt-
ist fyrir skömmu til Akureyrar,
þar sem hann hefur nú aösetur á
aöalskrifstofu deildarinnar. Jafn-
framt þessu var gerð sú fyrir-
komulagsbreyting á starfsemi
Iönaðardeildar, aö nú fer allur út-
flutningur hennar og sala á er-
lenda markaöi fram beint frá
Akureyri, og m.a. er nú gcngið
þar frá öllum tollskjölum. Þá hef-
ur starfsemi Hugmyndabankans
verið flutt norður, og veröur hann
framvegis á aðalskrifstofunni á
Akureyri. Eins og kunnugt er
hefur Hjörtur Eiriksson frkvstj.
deildarinnar aösetur á Akureyri,
og er hann hinn eini af fram-
d SÍS flytur
Akureyri
kvæmdastjórum Sambandsins,
sem situr utan Reykjavikur.
Að Ármúla 3 i Reykjavik verður
hins vegar áfram skrifstofa fyrir
deildina,sem sinna mun verkefn-
um hennar á Reykjavíkursvæð-
inu. Þar er nýkominn til starfa
Hans Kristján Arnason aðstoðar-
framkvæmdastjóri, sem mun
fara með stjórn þeirra mála. Auk
hans starfar þar áfram Arni
Jónsson gjaldkeri deildarinnar,
sem annast innheimtur og önnur
fjármál hennar hér syðra. Þá
hefur einnig aðsetur þar Andrés
Þorvarðarson viðskiptafulltrúi
Sambandsins fyrir verzlun við
lönd Austur-Evrópu,
saumastofa norðanlands, en
innan þess eru sex stofur, sem
vinna saman, og auk þess Dyngja
á Egilsstöðum, Katla i Vik I Mýr-
dal, Sunna á Hvolsvelli og
Prjónastofa Borgarness.
Að meðtöldum þessum
nýja samningi munu
þessar stofur prjóna á
þessu ári fyrir rússneska mark-
aöinn 150 þúsund barnajakka og
20 þúsund peysur. Allar þessar
vörur eru unnar úr hráefnum frá
Sambandsverksmiðjunum á
Akureyri, og heildarverðmæti
þ-jirra verður liklega um 190
milljónir króna. Það gefur auga
leiö, að þessi viöskipti eru orðin
hin mikilvægustu. þvi að það er
ekki svo lítil atvinna, sem þau
skapa á þessum stöðum úti á
landi.
— Það má taka fram, aö þessi
viðskipti koma til viðbótar þeim
sölum á ullarteppum, peysum og
öðrum ullarvörum sem fram hafa
farið um mörg ár til Sovétrikj-
anna frá Sambandsverksmiðjun-
um á Akureyri. Kaupandi þessar-
ar framleiðslu sauma- og prjóna-
stofanna er sovézka samvinnu-
sambandið, og I samkomulagi
þvi, sem undirritað var hér i
Reykjavik fyrr I þessum mánuði
milli sovézka samvinnusam-
bandsins og þess islenzka er gert
ráð fyrir, að þessi viðskipti hald-
ist með svipuðum.hætti allt næsta
ár.