Tíminn - 21.10.1975, Síða 14
14
TÍMINN
Þriðjudagur 21. október 1975
LÖGREGLUHA TARINN
45 Ed McBaÍn Þýðandi Haraldur Blöndal
^ •'.. — ' ' . j
Sá sem leiðát+i fram hjá bekknum var barnfóstra, sem
ýtti á undan sér kerruvagni. Hverjum skyldi koma til
hugar að senda barn út á svona degi? Konan gekk fram
hjá með kerruvagninn. Willis hélt áf ram að kyssa Eileen
Burke leynilögreglumann.
— Éb hem úse frn.
— Mmmm?
— Eileen losnaði frá kossinum og virtist laf móð: — Ég
sagðist halda að hún væri farin.
— Hvað er þetta, sagði Willis skyndilega.
— Vertu ekki hræddur, Ijúf ur. Þetta er aðeins byssan
min, sagði hún og hló.
— Nei, ekki byssan. Heyrir þú ekki fótatak á gang-
stígnum?
Þau lögðu við hlustir.
Á gagnstígnum var enn einhver á ferð og nálgaðist
þau.
xxx
Richard Genero sat á f jórða bekk frá innganginum í
garðinn. Hann var með svört sólgleraugu og klappaði á
koll þýzka f járhundsins, sem lá við fætur hans. Hann
kastaði brauðmolum að dúfunum. Hann sá greinilega
unga manninn, sem gekk hratt í átt að þriðja bekknum,
tók upp skrínuna, leit snögglega um öxl og gekk svo
EKKI ÚT ÚR GARÐINUM HELDUR LENGRA INN í
HANN.
( fyrstu vissi Genero tæpast hvað til bragðs skyldi
taka.
Hann hafði verið skyldaður til starfa þennan dag, þar
eð skortur var á mannaf la. Auk þess var honum komið
fyrir á stað, sem minnsta áhættu hafði í för með sér. Það
var gert ráð fyrir því, að sá sem sækti nestisskrínuna,
myndi samstundis snúa við og fara út úr garðinum inn á
Grover-götu. Þar áttu þeir kexsölumaðurinn Faulk og
Hawes, sem sat í bíl sínum, að blanda sér í málið og
handtaka hann. En þess í stað gekk maðurinn ekki út úr
garðinum heldur lengra inn í hann og stefndi í átt að
bekknum, sem Genero sat á. Genero var maður f riðsam-
ur að eðlisfari og litt gef inn fyrir of beldi. Hann sat sem
steinrunninn og óskaði þess heitt að hann væri heima hjá
sér uppi i rúmi, móðir hans sæti við rúmstokkinn og gæf i
honum heittsúkkulaði og syngi fyrir hann gamlar ítalsk-
ar aríur.
Hundurinn við fætur hans var þrautþjálfaður lög-
regluhundur. Genero hafði lært fáeinar skipanir og
hljóðmerki til að stjórna dýrinu, skömmu áður en hann
var sendur af stað að gegna skyldustörfum sínum sem
blindi maðurinn á fjórða bekknum. Verra var þó að
Genero var dauðhræddur við hunda. Einkum þó stóra
hunda. Hann var hræddur um að gefa dýrinu vitlausa
skipun og fylltist þvi ótta og tók að skjálfa og titra.
Kannski skipaði hann hundinum óvart að stökkva á
sjálfan sig en ekki þennan unga mann, sem nú var í um
þriggja metra fjarlægð og gekk hratt í átt frá honum.
öðru hverju leit hann um öxl sér. Hvað myndi gerast, ef
hundurinn rifi hann sjálfan í tætlur? Hvað myndi móðir
hans segja þá?
— Che bella cosa, og þú þurftir endilega að verða lög-
reglumaður?
Á meðan þessu fór fram, laumaði Willis vasasendi-
tækinu upp á lostafagran barm Eileen Burke og sendi
þessar upplýsingar til Hawes, sem sat i bíl sínum við
Grover-götu. Þar var gott að vera þessa stundina. Eink-
um með tilliti til þess, að sá grunaði stefndi í allt aðra
átt. Willis barðist þessa stundina við að opna svefnpok-
ann. En af einhverjum dularfullum orsökum sat renni-
lásinn fastur. Ekki þar fyrir, að Willis væri ekki sama
þátt hann væri f astur í svef npoka með kvenmanni á borð
við Eileen Burke, sem barðist um og spriklaði. Hún
reyndi hvað hún gat til að hjálpa honum við að opna pok-
ann. En skyndilega sá hann fyrir sér flokksstjórann,
sem úthúðaði honum og skammaði á svipaðan hátt og
Kling og Meyer höfðu mátt þola. Willis barðist því heið-
arlegri baráttu við rennilásinn. En með sjálfum sér
gældi hann við þá hugmynd, að ungfrú Burke félli vel
þetta ungæðingslega brölt á svo skemmtilegum vígvelli.
Genero hafði auðvitað ekki hugmynd um, að búið var að
gera Hawes viðvart. Hann vissi aðeins að sá grunaði var
nú beint fyrir f raman hann og gekk f ram hjá bekknum.
Á örskammri stund var hann kominn í allnokkra f jar-
lægð. Genero stóð því upp. Fyrst tók hann ofan sólgler-
augun. Þá hneppti hann f rá sér f rakkanum, eins og hann
hafði séð leynilögreglumenn gera í sjónvarpsþáttunum.
Hann seildist inn undir f rakkann eftir byssunni, en ákaf-
inn og f umið urðu til þess, að hann hleypti óvart af skoti,
sem fór i fót hans.
Þau geta lyft En það er
okkur upp á takmarkað
klettana eldsneyti á þeim.
flliiWii
Þriðjudagur
21.október
7.00 Morgunútvarp. Veður-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og for-
ustugr. dagbl.), 9.00 og
10.00. Morgunbæn kl. 7.55.
Morgunstund barnanna kl.
8.45: Björg Arnadóttir les
söguna „Bessi” eftir
Dorothy Canfield i þýðingu
Silju Aðalsteinsdóttur (14).
Tilkynningar kl. 9.30. Þing-
fréttir kl. 9.45. Létt lög á
milli liða. Morgunpopp kl.
10.25. Hljómplötusafnið kl.
11.00: Endurtekinn þáttur
Gunnars Guðmundss.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar. Tónleikar.
13.30 t léttum dúr.
14.30 Miðdegissagan: „A fullri
ferö” eftir Oscar Clausen.
Þorsteinn Matthiasson les
(6).
15.00 Miðdegistónleikar: ts-
lenzk tónlist.a. „ömmusög-
ur”, hljómsveitarsvita eftir
Sigurð Þórðarson. Sinfóniu-
hljómsveit íslands leikur,
Páll P. Pálsson stjórnar. b.
Lög eftir Hallgrim Helga-
son. Guðrún Tómasdóttir
syngur. Elias Daviðsson
leikur á planó. c. Balletttón-
list eftir Arna Björnsson úr
„Nýársnóttinni”. Sinfóniu-
hljómsveit íslands leikur,
Páll P. Pálsson, stjórnar. d.
Lög eftir Björgvin Guð-
mundsson, Askel Snorra-
son, Stefán Agúst Kristjáns-
son og Jóhann Ó. Haralds-
son. Sigurveig Hjaltested
syngur, Ragnar Björnsson
leikur á pianó.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir). Tón-
leikar.
16.40 Litli barnatiminn.
17.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Þáttur dr sögu borgar-
skipulags.LIney Skúladóttir
arkitekt flytur siðara erindi
sitt.
20.00 Lög unga fólksins. Sverr-
ir Sverrisson kynnir.
21.00 Úr erlendum blöðum.
Ólafur Sigurðsson frétta-
maöur tekur saman þáttinn.
21.25 Sinfónla nr. 4 I G-dúr op.
88 eftir Dvorák. Columbla-
sinfónluhljómsveitin leikur,
Bruno Walter stjórnar.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Kvöldsag-
an: „Kjarval” eftir Thor
Vilhjálmsson. Höfundur les
(4).
22.35 Skákfréttir
22.40 Harmonikulög
23.00 A hljóðbergi. a. „The
Miller’s Tale eftir Geoffrey
Chaucer. Stanley Holloway
les. b. Ástarlóð eftir John
Donne. Richard Burton les.
Dagskrá þessi var flutt i
fyrsta þættinum A hljóð-
bergi I vetrarbyrjun 1965.
23.40 Fréttir I stuttu máli.
Dagskrárlok.
Þriðjudagur
21.öktóber
20.00 Fréttir og veöur
20.30 Dagskrá og auglýsingar
20.35 Lifandi myndir Þýskur
fræöslumyndaflokkur.
Þýðandi Auður Gestsdóttir.
Þulur Ólafur Guðmundsson.
20.50 ÞingmálÞáttur um störf
alþingis, sem fyrirhugað er
að birtist annan hvern
þriðjudag i vetur.
Umsjónarmenn eru hinir
sömu og Þingvikunnar I
fyrra: Björn Teitsson og
Björn Þorsteinsson.
21.30 Svona er ástin Bandarlsk
gamanmyndasyrpa.
Þýðandi Jón O. Edwald.
22.20 Utan úr heimiÞáttur um
erlend málefni ofarlega á
baugi. Umsjónarmaður
Sonja Diego.
23.00 Dagskrárlok.