Tíminn - 05.11.1975, Side 13
Miövikudagur 5. nóvember 1975
TÍMINN
13
Tökum á
Guöjón Bj. Guðlaugsson skrif-
ar:
„Nú er veturinn að ganga i
garð, timi félagsstarfa og
fundahalda. Ég vil sérstaklega
minna á, að nú eru góðtempl-
arastúkurnar sem óðast að
hefja vetrarstarfið, bæði undir-
stúkur og barnastúkur. Oft var
þörf, en nú er nauðsyn að vinna,
að bindindismálunum. Ég
vil þvi sérstaklega hvetja
alla, sem i bindindissam-
tökunum eru, til að vinna
vel á komandi vetri. Skora
ég á allt gott fólk, er sér þörf-
ina fyrir aukið bindindisstarf,
að ganga i bindindissamtökin,
— i Góðtemplarastúkuna, sem
öllum stendur opin, Islenzka
ungtemplara eða hin einstöku
bindindisfélög, svo sem öku-
manna, presta, kennara o.s.frv.
Hvar sem liðveizla er veitt i
bindindisbaráttunni, er það sig-
ur á versta óvini mannkynsins,
áfenginu. Ekkert getur fremur
unnið á áfengispúkanum en
fjöldinn. Þvi má enginn skerast
úr leik, sem vill hann feigan.
Daglega berast hörmulegar
fréttir af völdum áfengisins: Af
slysum á mönnum, tjóni á eign-
um, allskonar glæpum, vand-
ræðum á heimilum og vinnu-
stöðum og ótal hörmungum,
sem áfengisdrykkjan veldur.
Enginn einn hlutur veldur fleiri
slysum og meira tjóni i þjóðlif-
inu en áfengið og reykingarnar.
Það eru óhugnanlegar upplýs-
ingar frá opinberum aðilum,
að J>að skuli alltaf vera að fjölga
þeim unglingum og færast
neðar f aldursflokkana, sem
reykja og drekka, og að ungar
telpur skuli vera orðnar i meiri-
hluta i þeim hópi.
Foreldrar! Beinið þvi börnum
ykkar inn i barnastúkurnar og
styðjið þau i starfi. Umfram allt
gefið þeim gott fordæmi. Það er
sú bezta fjárfesting og llftrygg-
ing, sem hægt er að fá.
Barnastúkan Svava, sem
heldur fundi á sunnudögum i
Templarahöllinni við Eiriks-
götu, getur ennþá tekið við nýj-
um félögum, og stúkan Fram-
tiðin býður alla fjórtán ára og
eldri velkomna, sem vilja kynna
sér starfið eða gerast félagar.
Simar: 32930, 34240 og 14399.
Tökum öll höndum saman og
vinnum gott verk! Styðjum
hvert annaðog leiðum börn okk-
ar á gæfuveg. Metum heill
þeirra meir en hag áfengis- og
tóbakssalans.”
Auglýsicf i Timanum
Þriðju tónleikar Sinfóniu-
hljómsveitar Islands voru
haldnir fimmtudaginn 30. októ-
ber i Háskólabiói. Aðalstjórn-
andi hljómsveitarinnar.
Karsten Andersen, stýrði
hljómsprota i þetta sinn, en
Elisabet Söderström frá Stokk-
hólmi söng. Flutt voru verk eftir
Wagner, Jónas Tómasson,
Haydn, Malcolm Williamson og
Jóhannes Brahms.
Þetta mun vera þriðja árið,
sem Karsten Andersen stýrir
hljómsveitinni, og ferst honum
það vel úr hendi. Hann er hinn
reffilegasti maður, svo sem al-
gengt er um Norðmenn, enda
eru þeir sagðir vera allra
manna mestir útilifs- og fjall-
göngumenn. Stjórnpallshegðun
Andersens er hófsöm, hann leið-
ir hljómsveitina með festu og
talsverðum þokka, sem virðist
eiga vel við okkar fólk, ef marka
má árangurinn. Hins vegar mun
hljómsveitin vart hefja sig til
flugs undir hans stjórn.
Sinfóniuhljómsveit Islands
hefur reynt marga ágæta
stjórnendur um dagana: Róbert
Á. Ottósson var löngum
viðloðandi hana, og honum eru
tengdir ýmsir minnisstæðustu
hljómleikar hennar. Olav
Kielland var hins vegár fyrstur
hinna föstu stjórnenda hljóm-
sveitarinnar, og siðan hver af
öðrum Jindrich Rohan, Bodan
Wodiczko og Karsten Andersen.
Hafa leikar farið samkvæmt 2.
lögmáli Newtons, eins og vænta
mátti.
Fyrst flutti hljómsveitin for-
leikinn að Meis'tarasöngvurun-
um I Nurnberg eftir Richard
Wagner. Tókst það prýðilega
eftir föngum, þegar þess er
gætt, hve veikir strengirnir eru i
hljómsveit vorri, 10 spila fyrstu
fiölu og 8 aðra, 7 spila lágfiðlu,
7 knéfiðlu og 4 bassa. t fullri
Wagner-hljómsveit eiga hins
vegar að vera 16+ 16 fiðlur, 12
lágfiðlur, 12 knéfiðlur og 8 bass-
ar. Af þessum sökum er hljóm-
urinn ekki eins voldugur og bezt
gæti orðið, hins vegar kom hinn
fínni vefur verksins vel fram.
Næst var flutt verkið „1.41”
eftir landa vorn Jónas Tómas-
son, ungan mann frá Isafirði. 1
tónleikaskrána skrifar skáldið
smágestaþraut um túlkun
verksins. Tónlistargagnrýnandi
Timans telur skýringu (b) eiga
bezt við, en þar segir: „Verkiö
1.41 er stærðfræðilegs eölis. 1.41
má tengja formúlu, sem byggist
á mikróskomiskri konstrúksjón
verksins og einnig talnaröö,
sem makrókosmos verksins
byggist á.” Talan 1.41 er
kvaðrarótin af 2 með tveimur
aukastöfum,-sem lýsir vel dýpt
stærðfræöinnar i verkinu, en á
henni byggist bæði stórt og
smátt i þvi, eins og að ofan
greinir. — Hlutur hljómsveitar
og stjórnanda var vel af hendi
leystur, enda veröur þetta
tónverk (eða þessi tegund af
tónverki) þvi áheyrilegra sem
maður heyrir það oftar, hver
svo sem höfundurinn kann að
vera hverju sinni. Þess vegna
var 1.41 ennþá áheyrilegra i
endurflutningi útvarpsins
daginn eftir.
Annars er orðið löngu tima-
bærtað vekja Musica Nova upp
frá dauðum. Sá ágæti félags-
skapur lognaðist út af fyrir
nokkrum árum, eftir allblóm-
legt og áhugavert starf.
Kannski náði hann sér aldrei
fyllilega eftir bossa-nova
tónleikana frægu, þegar
”harlotte Moorman og Nam
June Paik voru rétt búin að
drepa 50 Reykvikinga úr
leiðindum uppi i Lindarbæ. Nú
er Paik orðinn mikill vestra og
Charlotte spámaður hans. Paik
hefur fundið upp nýja listgrein,
ósænskmenntuðum Islending-
um næsta fjarlæg og torskilin,
en þessi eljusami Svi fékkst við
það, ásamt með öðrum störfum,
að yrkja ljóð á ýmsum tungu-
málum, eins og Benedikt gamli
Gröndal. 1 tónleikaskrá segir,
að BBC hafi sl. ár falið
Astralanum Malcolm William-
son að semja tónverk um Dag
Hammarskjöld, og hafi hann
valið sér að viðfangsefni
nokkur kvæði hans. Verkið er i
formi kantötu fyrir sópranrödd
og hljómsveit, og söng Söder-
ström röddina. Áður en hún
söng hvert kvæði, fór hún með
það til skilningsauka fyrir
Eftir Williamsson komu
tilbrigði Brahms við stef eftir
Haydn, ^eins og himneskur
lúðrahljómur — „Guð það
hentast heimi fann, það hið
bliða blanda striðu...” Hinn
hreini tónn helgast m.a. af
notkun blásara i útsetningu
Brahms á þessu verki, en sá
hluti hljómsveitar vorrar er
skipaður einvalaliði, eins og
hver maður getur heyrt.
Tónlistargagnrýnandi The Star
i London (Bernard Shaw) hélt
þvi fram um aldamótin, að
Brahms væri ekki annað en
nautnaseggur með dásamlega
tónheyrn, en þessu er tónlistar-
tónlistar, rétt eins og Njála
stendur á sinum stað, þótt
hvorugt gæti af sér andlegt af-
kvæmi, svo vitað sé. Annars
hefur þróunarkenning Darwins
valdið þvi,að menn rugla saman
hugtökunum framþróun og
breytingu. Þess vegna telja
sumir, að ungu skáldin séu
framþróaðri en Bartók, sem sé
framþróaðri en Brahms, sem sé
framþróaðri en.Betthoven, sem
sé framþróaðri en Bach,
o.s.frv. En þetta er ekki
nauðsynlega rét. Maó segir:
„Vér getum lært það, sem vér
vissum ekki áður. Vér kunnum
AF ÞRIÐJU TONLEIKUAA
SINFÓNÍUHLJÓAASVEITARINNAR
nýsilist (video art), sem er i þvi
fólgin að búa til kvikmynda-
abstrakstjónir á myndsegul-
band,- sem siðan eru sýndar i
sjónvarpi. A tónleikum kné-
fiðlar Charlotte t.d. einleiks-
svitur Bachs allsnakin aö öðru
en brjóstahaldara, sem á eru
festir 2 smáskjáir sem birta
hugarburð Paik samtimis
hljómlistinni. En hvort sem
Paik og Charlotte standa eöa
falla,þarf að endurreisa Musica
Nova — þar er hinn rétti vett-
vangur fyrir áhugasama skap-
endur, flytjendur og hlustendur
nútima-tónverksins.
Sænska sópransöngkonan
Elisabet Söderström flutti tvö
næstu verk, ariu úr óperunni
Antigónu eftir Jósef Haydn og
lög við 5 ljóð Dags Hammar -
skjöids eftir Malcolm William-
son. Ef marka má tónleika-
skrána, er Elisabet Söderström
heimsfræg, eins og allt
tónlistarfólk, sem til vor kemur,
og ekki að ástæðulausu, þvi að
hún syngur forkunnarvel. Auk
þess er hún glæsikvendi mikið.
A tónleikunum var hún klædd
koparbrúnum kyrtli, sem að
dómi kunnáttumanna var i forn-
griskum stil. 1 Antigónu naut hið
griðarlega raddsvið söng-
konunnar sin vel — hún
spannaði hálfa þriðju áttund,
frá G upp á háa C, og slikur er
raddstyrkur hennar á efri tón-
unum, að hinir fingerðari menn
á fremstu bekkjum nötruðu sem
strá i vindi. Ef eitthvað má að
finna, er það helzt hið áberandi
„vibrató” söngkonunnar, sem
stundum gerir tón og laglínu
óákveðna, t.d. i kadensunni i
Haydn.
Goðsögnin um Dag
Hammarskjöld hefur verið
áheyrendur, með þeim árangri
að þetta verk tók um 40
minútur i flutningi. Olli þessi
ægilega lengd þvi, að „sú ætlun
tónskáldsins að sýna Dag
Hammarskjöld frá nokkrum
hliðum” fórút um þúfur, og að-
eins langa og leiðinlega hliðin
kom fram. Annars viröast þessi
kvæði Hammarskjölds mjög
frambærileg (sjá sýnishorn) og
söngkonan i bezta lagi, svo ekki
sé talað um hljómsveitina. Þess
vegna er skaði, að ekki skyldi
betur fara, og er þar við and-
fætling vorn Williamson að sak-
ast. 1 tónlist Williamsons
segjast sumir greina laun-
wagneriskar hneigðir — hann
iangi til að yrkja eins og
Richard Strauss en þori það
ekki, .og komi það vel fram i 3.
kvæðinu, The Path of Unself,
sem einkennist af flóknu
samspili knéfiðla og lágfiðla:
I became also á reproach unto
them:
They that looked upon me
shaked
their heads
Help me, O Lord my God:
O save me according to
thy mercy.
En fyrsti söngurinn, Prayer
of Acceptance, minnir ögn á
serenöðu Benjamins Brittens
fyrir horn og tenór, enda ekki
óliklegt, þar sem Williamson er
sjálfur hornisti. Sama keim má
heyra i siðasta söngnum,
Apóthesis. Kvæðið er svona:
Vágen, du skall följa den.
Lyckan, du skall glömma den.
Kalken, du skall tömma den.
Smárten, du skall dölja den.
Svaret, du skall lára det.
Slutet, du skall bá'ra det.
gagnrýnandi Timans algerlega
ósammála. Þá, eins og nú, var
um það deilt, hvað væri aftur
ábak og áfram i tónlistar-
þróuninni, Brahms eða Wagner.
Sé áfram skilgreint með þvi
sem getur af sér afkvæmi, var
Wagner eflaust vaxtarsprotinn,
en Aldous Huxley telur hark-
söng og frygðarmúsik nútimans
skilgetin afkvæmi Beethovens
og Wagners. En Brahms stend-
ur sem hápunktur rómantiskrar
eigi aðeins að brjóta niður hinn
gamla heim, vér getum einnig
reist hinn nýja af grunni.” En
þvi aðeins er um framför að
ræða, að eftirkomendur kunni
jafnvel eða betur til verka en
fyrirrennarar, og fái jafngóðar
gamaldags eða betri hug-
myndir.
Sigurður Steinþórsson.
Þjóræknisfélag íslendinga
HATÍÐASAMKOMA
i tilefni 100 ára landnáms islendinga i
\'v ja-islandi,
verður haldin i Þjóðleikhúsinu laugardag-
inn 8. nóvember kl. 14.
Þættir úr hátiðadagskrám — fluttum vest-
an hafs s.l. sumar:
Leiksýning — Leikarar og kór Þjóðleikhússins.
Danssýning — Þjóðdansafélag Reykjavikur.
Glimusýning — Glimusamband islands.
Kvikmyud— Krá byggðum islendinga i Manitoba.
Avörp — Vilhjálmur Hjálmarsson, menntamálaráðherra
íslands, Stefán J. Stefánsson forseti Þjóðræknisfélagsins i
Vestu ilieimi.
Kórsöngur — Karlakór Reykjavikur.
Sala aðgöngumiða hefst i Þjóðleikhúsinu
miðvikudaginn 5. nóvember á venjulegum
tima.