Tíminn - 05.11.1975, Blaðsíða 20

Tíminn - 05.11.1975, Blaðsíða 20
lYIiðvikudagur 5. nóvcmber 1975 SÍMI 12234 •HEílRA ARÐURINN A*DALSTRfETI 3 SIS-FODIJK SUNDAHÖFN 1 nr fyrir góðan mat ^ KJÖTIÐNAÐARSTÖÐ SAMBANDSINS Bangladesh: Deiluaðilar reyna að komast að samkomulagi — til þess að forðast blóðsúthellingar Reuter/Kalkútta, Indlandi. Sið- ustu fregnir frá Indlandi herma, að nú standi yfir samningavið- ræður milli herforingjanna sjö, sem stóðu fyrir byltingunni i Bangladesh i ágúst siðastliðnum og núverandi æðstu leiötoga i her landsins. Eðlilegt samband Kaikútta við Dacca, höfuðborg Bangladesh, hefur enn ekki komizt á eftir að herinn þar i landi tók æðstu stjórn landsins i sinar hendur án þess þó aö steypa Ahmed, forseta lands- ins af stóli. Ekkert hlé hefur verið gert á útsendingum rikisútvarps- ins i Bangladesh en þar hafa hins vegar ekki verið gefnar neinar upplýsingar úm ástand mála i landinu. Haft var eftir indverskum stjórnarerindrekum, að aðilar þeir,sem núdeili um æðstu stjórn landsins, sitji á samningaviðræð- um og reyni að komast að sam- komulagi um að valdaskipti geti farið fram án blóðsúthellinga. Hins vegar kváðust indversku stjórnarerindrekarnir ekki vissir um það, hverjir hefðu betur i samningaviðræðum þessum. Talið er, að herforingiarnir sem tóku Mujibur Rahman fursta og fyrrum forseta landsins af lifi, hafi verið handteknir ásamt fylgissveinum sinum. Munu þeir i haldi i forsetahöll- inni, þar sem samningavið- ræðurnar færu fram. Fyrstu fréttir, sem bárust um byltinguna i Bangladesh, hermdu að Ahmed forseti væri enn við völd, en hins vegar er talið, að sá maður, sem nú sé hvað áhrifa- mestur i stjórnmálum landsins, sé Khaldi Musharaf, hershöfð- ingi, en hann var áður lykilmaður i samningaviðræðum við her- foringjana. Hefur hann nú verið skipaður yfirmaöur herafla landsins. Herráð Bangladesh hefur stöð- ugt reynt með samningaviðræð- um við herforingjana sjö að styrkja stjórnmálaástandið i landinu eftir að Rahman, og fjöl- skylda hans, ásamt stuðnings- mönnum, var tekinn af lifi 15. ágúst. Indversku stjórnarerindrek- arnir telja, að báðir aðilar séu samdóma um það, að efna ekki til blóðsúthellinga og það sé skýring þess, af hverju rikisútvarpið i Bangladesh hafi engar skýringar gefiðá atburðum þeim, er nú hafa gerzt i landinu. Fimm létust í spreng- ingu í brezku iðjuveri Reuter:Scunthorpe, Englandi. Fimm verkamenn biðu bana i sprengingu, sem varð i stáliðju- veri i Scunthorpe er vatn lak vegna mistaka i vagn, sem hafði að geyma brætt járn. Fimm aðrir verkamenn særð- ust mjög alvarlega þvi að við sprenginguna þeyttist glóandi heitt járnið út um allt stáliðjuver- ið, braut gat i þakið en við það hrundi niður veggur. Sir Monty Finniston, stjórnar- formaður hinna rikisreknu stáliðjuvera i Bretlandi, gaf þá skýringu á atburði þessum, að vatn úr kælikerfi iðjuversins hefði lekið yfir glóandi járnið og orsak- að sprenginguna. F’jórir verkamenn biðu sam- stundis bana, en sá fimmti lézt stuttu seinna á sjúkrahúsi. Talsmaður stáliðjuversins sem er i Norður-Englandi, sagði i gær i samtali við fréttamenn, að slys sem þetta væri þvi sem næst einstakt. Tilkynnt var af hálfu brezku stjórnarinnar i gær, að rannsókn á orsökum slyssins yrði þegar hafin. Franco alls ekki hugað líf segja læknar hans Reuter/Ntb./Madrid. Læknar i Madrid gáfu þá yfirlýsingu i gær, að heilsufar Francos, þjóðarleiö- toga Spánar, væri mjög alvarlegt eftir að hann var skorinn upp vegna magablæðinga seint á mánudagskvöld. t yfirlýsingu læknanna var svo komizt að orði, að hjartað starf- aði eðlilega, og að Franco væri ekki með sótthita, en heilsufar hans væri engu að siður mjög al- varlegt. Haft var eftir einum læknanna sem Franco stunda, að það sé einungis spurning um tima, hvenær þjóðarleiðtoginn gefi upp öndina. Þá sagði einn þeirra lækna, er uppskurðinn á Franco framkvæmdu, að möguleikar af, Francos á að lifa veikindin væru einn á móti hundrað. Spænskir sósial-dmeókratar áttu fund með öðrum stjórnarand- stæðingum á Spáni i gær, og var þar borin fram sú krafa, að komið verði á margra flokka kerfi i landinu. Þá segir ennfremur i yfir- lýsingum sósialdemokrata, að bráðabirgðastjórn Juan Carlosar, á málefnum Spánar sýni glöggt þær andstæður sem nú riki i stjórnkerfi landsins, og þess verði ekki lengi að biða, að stjórn- kerfi þetta leysist upp. Sösialdemókratar krefjast þess loks, að pólitiskir fangar verði látnir lausir, mannréttindi virt, aukin sjálfstjórn minnihlutahópa og afnám dauðarefsinga. Azevedo segist ekki hafa stjórn á landinu Reuter/Faro, Portúgal. Jose Pinheiro de Azevedo, forsætis- ráöherra Portúgals, viðurkcnndi i gær, að stjórn hans hefði ekki þau Forsetahöllin Dacca er enn um- kringd öflugum herverði, en að ööru leyti mun lif i borginni með eðlilegu móti, verzlanir eru opnar og fólk á ferli að degi. Ekkert flug hefur verið til Dacca siðan i fyrradag, og tals- maöur Indian Arilines sagði i gær, að óliklegt væri, að flug yrði hafið að nýju alveg strax. Indverska stjórnin hefur fylgzt mjög gjörla með framvindu mála i Bangladesh, en engar fréttir eru af óvenjulegum herflutningum tl landamæra Bangladesh og Ind- lands. frá hvorugu landinu. tök á stjórn landsins, sem nauð- synlegt væri, ef vel ætti að vera, vegna þess agaleysis, sem nú rik- ir innan hersins. Neyðist Peron til að segja af sér — fjármdlahneyksli í uppsiglingu Reuter/Buenos Aires. Einn af fyrrverandi ráðherrum i rikisstjórn Mariu Esteliu Peron, A r gentinuforseta, var handtekinn i gær, og er handtakan liður i umfangs- mikilli rannsókn, sem nú fer fram i landinu vcgna grun - semda um að mikil fjánnálaspilling hafi átt sér stað i stjórnkerfi landsins. Talið er, að handtaka mannsins kunni að hafa al- varlegar afleiðingar i för incð sér fyrir forsetann. Peron, sem nú er á sjúkra- húsi vegna veikinda i gall- blöðru, að þvi er sagt er, hefur fengið æ fleiri tilmæli um að draga sig i hlé. Ráð- herra sá, sem i gær var handtekinn, er Rodolfo Roballos, fyrrum velferðar- málaráðherra i rikisstjórn- inni en grunur leikur á að fé ráðuneytisins hafi verið mis- notað af ýmsum háttsettum aðilum. Sumir talsmenn stjórnar- andstöðunnar i Argenlinu eru þeirrar skoðunar, að fjármálahneyksli það, sem nú virðist vera i uppsiglingu i Argentinu, kunni að leiða til þess að forsetinn verði dreg- inn fyrir rétt, ákærð um landráð og embættisafglöp. írland: Fer umsdtrinu senn að Ijúka? Reuter/Ntb./Monastervin. í fréttum, sem bárust frá frétta- stofunni Ntb. i gær, segir, að sennilegt sé, að umsátrið um hús- ið, þar sem tveir liðhlaupar úr irska lýðveldishernum IRA, hafa haldið hollenzka iðjuhöldinum, dr. Herrema i 15 daga sé senn á enda. Segir i fréttunum, að ræningj- arnir hafi lýst sig reiðubúna til þess að láta dr. Herrema lausan gegn tryggingu fyrir þvi, að þeir fái að komast óhultir úr landi. Það var verkalýðsleiðtoginn Philip Flynn, sem tilkynnti þessa ákvörðun ræningjanna i gær, en Flynn hefur gegnt nokkurs konar sáttasemjarahlutverki i deilu ræningjanna við irsk yfirvöld. Af þessu virðist ljóst vera, að ræningjarnir hafa horfiö frá fyrstu kröfu sinni, en hún var sú, að látnir yrðu lausir úr frskum fangelsum þrir meðlimir i irska lýðveldishernum IRA. Irska stjórnin neitaði statt og stööugt að ganga að þessari kröfu ræningjanna, og skæruliðarnir þrir, sem láta átti lausa, sögðust Danir banna síldveiðar í Norðursjó Ntb./Kaupm.h. Dönsk fiskveiði- yfirvöld hafa ákveðið að banna frekari sildveiðar Dana i Norður- sjó vegna ástands sildarstofnsins þar og þeirrar staðreyndar, að Danir munu nú hafa veitt 3000 lestum meira af sild i Norðursjó heldur en þeim er heimilt. Dönsku sjómannasamtökin hafa harðlega mótmælt þessari ákvörðun dönsku fiskveiðiyfir- valdanna. ekki kæra sig um það, eins og málum væri háttað varöandi rán dr. Herrema. Þá hefur irska rikisstjórnin og lýst yfir þvi, að hún væri allsendis ófús til allra samningaviöræðna við ræningj- ana. Herrema var rænt i Limerick 3. október, en 21. október komst lög- reglan aö þvi, hvar ræningjarnir héldu honum föngnum I raðhúsi i Monastervin ekki langt frá Dublin. Ræningjarnir hafast við á ann- arri hæð hússins, en lögreglu- menn hafa komið sér fyrir á jarð- hæð þess. Lögreglan hefur lengi reynt að tala ræningjana á það að láta d r. Herrema lausan, en þeir hafa ekki orðið við þeirri beiðni. Astandið á hæðinni, þar sem dr. Herrema er haldið,er sagt heldur ömurlegt.Hitastig um nætur mun vera nálægt frostmarki, þef af úldnum matarleifum og óhrein- um fötum leggur um húsið. Lögreglan fylgist náið með framferði ræningjanna og dr. Herrema með ljósmyndavélum og segulbandstækjum. Þjóðhótíðar- myntin brædd Mó-Reykjavik.Öseldarbirgðir af þjóðhátiðarmyntinni úr silfri hafa veriðbræddar i Seðlabankanum i Reykjavík. Ekki fengust i gær upplýsingar um hve mikið magn var brætt, en einungis sagt, að um litilsháttar magn hefði verið að ræða. Sigurður örn Einarsson sagði i gær, að þegar þjóðhátiðar- myntin hefði verið sett i sölu þá hefði veriðtalað um að bræða það sem ekki seldist, enda væri al- gengt að fara þannig að með mynt, sem ekki seldist. Slegin voru 50 þúsund stykki af myntinni og var verðið komið upp i 4.000,00 kr., en i upphafi var ein- takið selt á 3.200,00 kr. Ekki fékkst i gær leyfi til að mynda silfurstönglana. íbúarnir eiga sjálfir að ráða segir Sovétstjórn Reuter/Alsir. Sovézki sendiherr- ann í Alsir, lýsti þvi yfir f gær, að stjórn Sovétrikjanna liti svo á, að ibúar spænsku Sahara ættu einir að ákveða hver yrði framtfð landsins, segir i fréttum hinnar opinberu fréttastofu APS i Alsir. Sendiherrann sagði, að framtið Sahara ættu ibúar landsins einir að ákveða i samræmi við yfir- lýsingar um sjálfsákvörðunarrétt þjóða um innanrikismál sin.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.