Tíminn - 14.11.1975, Blaðsíða 17
Föstudagur 14. nóvember 1975
TÍMINN
17
Hansi og félagar
Seika hér aukaleik
— væntanlega gegn FH eða landsliðinu
HANSI SCHMIDT og félagar
hans I Gummersbach, mótherjar
Vikings i Evrópukeppni meist-
araliöa, leika hér einn aukaleik,
þegar þeir koma hingað til að
leika gegn Vikings-liðinu í Laug-
BJÖRGVIN BJÖRGVINS-
SON...má ekki leika meö Vik-
ingi i Evrópukeppninni.
ardalshöllinni 22. nóvember.
Hansi og félagar munu væntan-
lega leika gegn bikarmeisturum
FH eða landsliðinu — sunnudag-
inn 23. nóvember.
— Við teljum okkur mjög
heppna, að hafa náð samningi við
Gummersbach um aukaleik,
sagöi Rósmundur Jónsson, mark-
vörður Vikingsliðsins. —
Kostnaðurinn er mikill i sam-
bandi við þátttökuna i keppninni.
Aukaleikurinn mun hjálpa okkur
mikið fjárhagslega, sagði Rós-
mundur.
Vikingar leika siðari leikinn
gegn Gummersbach i V-Þýzka-
landi 7. desember. Björgvin
Björgvinsson átti upphaflega að
leika með Vikingsliðinu þar, en
nú hefur fengizt úr þvi skorið, að
hann er ekki löglegur með Vik-
ingsliðinu í Evrópukeppninni, þar
sem hann verður að hafa verið
löglegur með Vikingi i þrjá mán-
uði, til að fá að leika i keppninni.
Sömu sögu er að segja um Guö-
mund Sveinsson hjá FH-liðinu,
hann mun þvi ekki leika með FH
gegn Oppsal á sunnudaginn kem-
ur i Noregi — SOS
VALUR Á TOPPINN
— eftir að Valsmenn
höfðu leikið sér að
íslandsmeisturum Víkings,
eins og köttur að mús
JÓN KARLSSON.........Það var nóg að skjóta aö Vikingsmarkinu,
þá lá knötturinn inetinu,” sagöi Jón, sem skoraöi 8 mörk fyrir
Valsmenn.
Islandsmeistarar Vikings voru
auöveld bráð fyrir Valsmenn,
sem léku sér að þeim eins og kött-
ur að mús — og unnu stórsigur,
28:18. — Ég bjóst ekki við svona
auðveldum sigri. Vikingarnir
féllu i sömu gryfju og við gegn
FH-ingunum — það vantaði alla
baráttu í Vikingsliöiö og leikmenn
þess léku sömu leikaðferðina
allan ieikinn, aðferð sem við
þekkjum og erum búnir aö læra.
A sama tima og við komum i veg
fyrir að leikfléttur þeirra gengju
upp, heppnaðist allt hjá okkur,
sagði Hilmar Björnsson, þjálfari
Vals-liðsins, eftir leikinn. Viking-
ar léku langt undir getu — þeir
voru hvorki fugl né fiskur.
Það var aðeins rétt i byrjun, að
Vikingar ,,héldu höfði" og veittu
Valsmönnum keppni — þegar
staðan var 5:5, tóku Valsmenn
leikinn i sinar hendúr. Þeir voru
ákveðnir, og það heppnaðist allt
hjá þeim. Vikingar gerðu heiðar-
lega tilraun til að halda i við þá,
en alla baráttu vantaði i leik
íslandsmeistaranna — og sú til-
raun reyndist vonlaus, ekki sizt
vegna þess, að vörnin var léleg og
markvarzlan stóð á núlli. Vals-
menn þurftu aðeins að skjóta að
marki, þá lá knötturinn i neti Vik-
inganna. Þeir Rósmundur
Jónsson og Sigurgeir Sigurðsson
áttu afar slæman dag i markinu,
en það verður aftur á móti ekki
sagt um „kollega” þeirra i Vals-
markinu, ólaf Benediktsson, sem
varði eins og berserkur.
Valsmenn höfðu yfir 13:7 i hálf-
leik, og fimm fyrstu mörkin i
siðari hálfleik var þeirra — stað-
an varð 18:7 og stuttu siðar voru
þeir komnir 12 mörkum yfir —
21:9. Þá tóku Vikingar dálitinn
fjörkipp og minnkuðu muninn i 7
mörk (21:14), en sigur Valsliðsins
var i öruggri höfn, og leiknum
lauk með sigri þeirra, 28:18.
Valsmenn sýndu ágæt tiiþrif i
leiknum, og þeir áttu frekar létt
með að opna lélega vörn Vikings-
liðsins. Jón Karlsson og Guðjón
Magnússon voru drýgstir við að
finna götin i Vikingsvörninni, sem
var oft á tiðum eins og gatasigti.
Jón skoraði flest mörk Vals-
manna, eða 8 (2 viti), Guðjón 6,
Jón Pétur 5, Stefán 4, Steindór 3
og Jóhannes 2. Vikingar áttu lé-
legan dag, það vantaði alla
baráttuna hjá þeim — og þá léku
þeir einhæfan sóknarleik, sem
Valsmenn áttu ekki i erfiðleikum
með að verjast. Páll Björgvins-
son var markhæstur hjá Vikingi
— með 8 (5 viti) mörk. Aðrir sem
skoruðu voru Viggó 4, Skarphéð-
inn, ólafur Jónsson og Stefán
Halldórsson 2 hver.
— SOS
„Viö verðum
í barétunni"
— sagði Viðar Símonarson, sem
skoraði 11 mörk gegn Þrótti
STAÐAN
T DEILD
VALSMENN hafa tekiö forystu I
1. deildar kcppninni I handknatt-
leik, en staðan er nú þessi I
keppninni:
Valur...........6 4 1 1 122:91 9
FH..............6 4 0 2 124:113 8
Haukar..........5 3 1 1 89:78 7
Víkingur........6 3 0 3 124:123 6
Fram............6 2 2 2 94:94 6
Grótta..........5 2 0 3 88:94 4
Armann........ 5 1 1 3 69:97 3
Þróttur........5 0 1 4 77:97 1
Markhæstu menn:
Páll Björgvinss. Vik......41(14)
Hörður Sigmarss. Iiaukum 34(11)
Pálmi Pálmason, Fram ...32( 4)
Viðar Simonarson, FH......29( 6)
Friðrik Friðrikss. Þrótt.... 27( 5)
Þórarinn Ragnarss. FH ... 27(13)
Jón Karlsson, Val.........26( 7)
Björn Péturss. Gróttu.....26( 12)
Geir Hallsteinss. FH......25( 4)
— VID verðum meö i baráttunni
um meistaratitilinn, eins og und-
anfarin ár, sagði Viöar Simonar-
son, sem var hetja FH-liðsins, er
það sigraði Þrótt (24:21) á góðum
endaspretti. Viðar sýndi alla sina
gömlu takta og var i miklum ham
— hann sendi knöttinn 11 sinnum i
netamöskva Þróttarmarksins, og
þar að auki átti hann heiöurinn af
mörgum öðrum mörkum.
Þróttarar komu á óvart, höfðu
yfir framan af, en undir lokin
varð reynsluleysið þeim að falli,
og FH-ingar, með Viðar Simonar-
sonfremstan I flokki, tryggðu sér
sigur með góðum spretti undir
lokin.
TÉKKAR, sem tryggðu sér jafn-
tefli (1:1) gegn Portúgölum i
Lissahon i Evrópukeppni lands-
liða, standa nú bezt að vigi i 1.
riðli keppninnar. Tékkar hafa
hlotiö 7 stig eins og Englendingar
— og eiga Tékkar eítir aö leika
með
Viðar átti stórleik — skoraði 11
mörk, þá átti Geir Hallsteinsson
góða spretti — 5 (1 viti) mörk,
Þórarinn 5 (2 viti), örn.Sæmund-
ur og Guðmundur Arni eitt mark
hver.
Friðrik Friðriksson átti góðan
leik með Þróttar-liðinu — skoraöi
8 (1 viti) mörk. Konráð 4, Halldór
3, Jóhann 3, Sveinlaugur 2 og
Trausti 1, skoruðu hin mörk
Þróttar.
gegn Kýpur-búum, en Engiend-
ingar gegn Portúgölum i Lissa-
bon. Englendingar þurfa að vinna
góðan sigur i Lissabon, til að eiga
möguieika á að komast i 8-liða úr-
slitin.
Jafntefli í Lissabon
Punktar
• BOWLES OG
BELL MEIDDIR
MANCHESTER. — Colin Bell,
hinn snjaili miðvallarspilari
Manchester City, mun ekki leika
með enska landsliðinu gegn
Portúgal i Lissabon i næstu viku.
Bell, sem hefur leikið 48 lands-
leiki, meiddist illa i leiknum gegn
Manchester United á Maine Road
— hann tognaði illa i vöðva á fæti
og verður sennilega frá keppni
um mánaðartima. Þess má geta,
að mörk City gegn United skor-
uðu Dennis Tueart(2), Asa Har-
ford og Joe Royle.
BELL BOVVLES
Miklar likur eru á, að Sten
Boxvlcs, Q.P.R., leiki ekki heldur
með enska landsliðinu i Lissabon.
Bowlesmeiddist i hné i leik gegn
Newcastle. — Það er vafasamt að
Bowles geti leikið með okkur
gegn Ipswich á laugardaginn, og
það er of snemmt að segja um,
hvort hann getur leikið með gegn
Portúgölum, sagöi Dave Sexton,
framkvæmdastjóri Q.P.R.
• JÓHANNES
Á SKOT
SKÓN
UM
GLASGOW. —
Jóhannes Eð-
valdsson var
hetja Celtic á
Somerset
Park, þegar
Celtic vann stórsigur i leik gegn
Ayr — 7:2. Jóhannes skoraði
„hat-trick” — þrjú mörk i leikn-
um. „Dixie” Deans skoraði 2
mörk, en þeir Kenny Dalglishog
Roddy McDoiuld, eitt hvor.
• BAYERN VILL
KAUPA
CRUYFF
MUNCHEN.
— Wilhelm
Neusecker,
formaður
Bayern Mun-
chen, vinnur
nú að þvi að fá hollenzka knatt-
spyrnusnillinginn Johan Cruyfftil
að leika með Bayern-liðinu, eftir
að samningur hans við Barcelona
rennur út i vor. Neudecker hefur
rætt við föður Cruyffs, sem er
umboðsmaður hans, og sagt er,
að Neudeckerhafi látið hann fá ó-
útfyllta ávisun, þar sem Cruyff
geti skrifað þá peningaupphæð,
sem honum sýnist, fyrir að leika
með Evrópumeisturunum.
• SAMNINGAR
TÓKUST EKKI
MÚNCTíEN,— Sænski landsliðs-
maðurinn Conny Thorstensson
mun sennilega leika sinn siðasta
leik með Bayern Munchen á laug-
ardaginn. Samningur Thorstens-
sonar.sem Bayern keypti frá At-
vidaberg FF fyrir teimur árum,
rennur út á laugardaginn. Það
hefur ekki náðst samkomulag
milli Svians og Bayern Múnchen
um nýjan samning — þar sem
Thorstenssonfer fram á upphæð,
sem Bayern vill ekki samþykkja.
— Ég hef ekki ákveðið, til hvaða
félags ég vil fara, en ég hef góí
sambönd i Sviss, sagði Conn;
Thorstensson, þegar hann vai
spurður um, hvert hann ætlaði at
fara.