Tíminn - 10.01.1976, Síða 1

Tíminn - 10.01.1976, Síða 1
Leiguf lug—Neyöarf lua HVERT SEAA ER HVENÆR SEAA ER FLUGSTÖÐIN HF Símar 27122-11422 iH 7. tbl. —Laugardagur 10. janúar 1976—60. árgangur ÆNGIRf Áætlunarstaðir: Blönduós — Sigluf jörður Búðardalur — Reykhólar Flateyri — Bíldudalur Gjögur — Hólmavík Hvammstanai — Stykkis- ihólmur —Rif Súgandafj. Sjúkra- og leiguflug um allt land Simar: 2-60-60 & 2-60-66 t2 Ásigling og nítján ásiglingartilraunir Guðný Bergsdóttir—um borð í Tý. Klukkan 14.21 á föstudag sigldi brezka herskipið Leander F-109 með stjórnborðsbóg aftan til að bakborðshlið varðskipsins Þórs, en þá voru skipin stödd á Vopna- fjarðargrunni, 32-36 milur austur af Langanesi. Þegar þetta gerð- ist, var herskipið búið að gera 13 grófar tilraunir til að sigla á varðskipið, sagði Helgi Hall- varðsson, skipherra á Þór. Eftir ásiglinguna reyndi herskipið aft- ur að sigla sex sinnum á Þór, en skipherranum tókst i öll þau skipti að forðast árekstur. — Þessi ásigling herskipsins, svo og allar tilraunir þess til ásiglinga, voru gerðar af sliku offorsi, að ekki var annað að sjá en skip- herra freigátunnar væri með sér- stakar fyrirskipanir þar að lút- andi, sagði Helgi. Þegar herskip- ið hóf ásiglingatilraunirnar, voru 7sjómilurínæsta togara, og þeg- ar ásiglingin varð, v?r brezki tog- arahópurinnvel á bakborða,auk þess sem enginn þeirra var að veiðum, sagði Helgi enn fremur. Skemmdir á Þór urðu ekki miklar, en þó kengbognaði burð- arbiti undir þyrluþilfari og dæld kom i lunningu þar við. Herskipið Leander dældaðist töluvert á stjórnborðsbóg, eða um 4 plötur, og kom þar einnig smágat. Eftir ásiglinguna hélt Þór inn til Seyðisfjarðar, en brezku fréttamennirnir um borð náðu góðum myndum af öllum átökun- um, og verða þær sendar til Eng- lands með fyrstu ferð. Ögrandi sigling Guðný Bergsdóttir—um borð i Tý. Á föstud. voru 42 bresk- ir togarar að veiðum á svæð- inu austur af Langanesi eða svæðinu austur af Kolbak. Varðskipið Týr sigldi i gær- morgun gegnum hópinn og tvlstraði honum. Kom þá bæði herskip og dráttarbátar á vettvang og veittu Tý eftir- för meirihluta dags. Það var herskipið Naid, sem fylgdi Tý eftir lengst af, en það var einmitt Naid, sem reyndi að sigla á Tý s.l. miðvikudag. Þegar skipin voru um 62 milur aust-suðaustur af Langanesi sigldi Naid mjög nálægt Tý þrisvar sinnum og var á að gizka 20-25 metra frá varðskipinu, þegar það var næst. Ekki vildi skip- herrann á Tý, Gunnar Ólafs- son, kalla þetta ásiglingatil- raunir, heldur mjög ögrandi siglingu. Brezkir sjónvarps- menn eru um borð i báðum skipunum, og áleit Gunnar, að þetta væri gert fyrir þá. Brezk Nimrod njósnaþota flaug nokkrum sinnum yfir Tý og hin varðskipin i gær- dag. Varðskipið Ægir átti einnig annrikt og gerði árangurs- lausar tilraunir til að klippa á togvira brezkra togara, sem hifðu vörpur sinar upp i skyndi, þegar varðskipið nálgaðist. ^> Þessi mynd er tekin i gær af atburðinum er brezka snekkjan Leander sigldi á varðskipið Þór. Myndin er tekin af Bjarna Ó. Helga- syni, skipherra, um borð i Landhelgisflugvélinni SÝR. Ákvörðun um stjórnmála- slit tekin eftir sjópróf Gsal-Reykjavik. — Svo virðist sem ákvörðun rikisstjórnar- innar verki þveröfugt á Bretana, sagði ólafur Jóhannesson dómsmála- ráðherra I samtaii við Timann i gær, eftir ásiglingu herskipsins Leander á varðskipið Þór, og átti þá Ólafur við þá ákvörðun rikisstjói narinnar, að fram- hald ásiglinga brezkra herskipa á islenzk varðskip leiði til stjórnmáiaslita, en þessi ákvörðun var tekin á fundi rikisstjórnarinnar á fimmtu- dagsinorgun. — Ákvörðun um slit á stjórn- málasambandi verður fyrst tekin eftir að sjópróf hafa farið fram og öll gögn liggja frammi, sagði Ólafur Jóhannesson. Geir Hallgrimsson, forsætis- ráðherra sendi frá sér svohljóðandi yfirlýsingu i gær eftir ásiglingu brezku frei- gátunnar Leander á varðskipið Þór: ,,Ég lit þá atburði sem gerzt hafa i dag mjög alvarlegum augum. Akvörðun um frekari aðgerðir verður tekin, þegar öll gögn málsins liggja ljós fyrir, og sjópróf hafa farið fram vegna ásiglingar freigátunnar Leander á varðskipið Þór.” ÆVINTYRALEGUR AFLI Á VESTFJARÐAMIÐUM Gsal-Reykjavik. — Togarar, scm nú stunda veiðar á V'estfjarða- miðum, svo og linubátar frá Vestfjörðum, hafa fengið ævintýralega mikinn afla siðustu sólarhringa. Timinn hafði I gær samband við Jóhann Simonarson, skipstjóra á skuttogaranum Bessa frá Súða- vik, og kvaðst Jóhann ekki muna eftir öðrum eins afla. Hann sagöi, að þcir heföu veitt rúmlega hundrað tonn af stórum og mjög góðum þorski á hálfuin öðrum sólarhring, og þess væru dæmi, aðskip hcfðu fengið 50—70 tonn á sólarhring. Þá hefur Timinn frétt, að línubátar hafi fengið allt að sautján tonn i róöri. — Þetta er mjög gott og hefur aldrci veriö betra, sagöi Jóhann. — Það koma oft miklar göngur þarna á þessum tlma, og ég hef cnga aðra skýringu handbæra á þcssum mikla afla, sagði Jón Jóns- son fiskifræðingur I samtali við Tlmann i gær. Jón kvaö þetta mjög ánægjulegt og sagði, að Hafrannsóknastofnunin myndi fvlgjast vel með þessari aflahrotu.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.