Tíminn - 10.01.1976, Síða 2
2
TÍMINN
Laugardagur 10. janúar 1976.
Góðar gjafir
til Listasafns
Islands
A ÁRINU 1975 fékk Listasafn Is-
lands ýmsar góðar gjafir. Fjór-
ar indverskar smámyndir frá
17. og 18. öld, frá dr. Allan
Etsler, en hann hefur áður fært
Listasafninu að gjöf fimm ind-
verskar og persneskar smá-
myndir.
1 ágúst barst safninu dánar-
gjöf Guðrúnar Stefánsdóttur og
Kirby Green, alls 24 verk eftir
islenzka listamenn, þará meðal
verk eftir Jóhannes Kjarval,
Gunnlaug Scheving og Finn
Jónsson.
Eva Sigrid Reckendorff gaf
safninu olíumálverk eftir Júli-
önu Sveinsdóttur.
Afkomendur Baldvins Björns-
sonar gáfu tvö oliumálverk eftir
hann.
Þá gáfu listamennirnir Þor-
valdur Skúlason og Karl Kvaran
sitt hvort stórt oliumálverkið
eftir sig.
íslenzki dans-
flokkurinn sýnir
þróun danslistar
A MORGUNN kl. 15.00 verður ís-
lenzki dansflokkurinn með stutta
ballettsýningu i Þjóðleikhúsinu.
Þar er leitazt við að sýna þróun
danslistarinnar á undanförnum
öldum og fram á okkar dag.
Dansararnir sýna dæmi um
ólikan dansstil. en Ingibjörg
Björnsdóttir tengir atriðin saman
með skýringum. Þau Ingibjörg og
Alexander Bennett. hinn nýi
ballettmeistari Þjóðleikhússins,
hafa undirbúið þessa dagskrá,
sem reyndar var sýnd tvivegis
fyrir áramót styrktarfélögum
dansflokksins og nemendum i
ballettskólum borgarinnar.
Sýningin á sunnudag er einkum
ætluð skólum, en miðar verða
einnig til sölu i miðasölu Þjóðleik-
hússins.
Flugráð verður virkara með
breyttum starfsreglum
— úttekt á ástandi og öryggismálum flugvalla
SJ-Reykjavik. — Flugráöi hafa
veriðsettarnýjarstarfsreglur, en
nýtt flugráð hefur verið skipað
frá og méð áramótum. Tilgang-
urinn með þessari breytingu er að
miöa að þvi aö skapa meiri festu
og sjálfstæði I störfum ráðsins, að
þvi er Halldór E. Sigurösson sam-
gönguráðherra sagði á fundi með
fréttamönnum i gær.
Flugráð er skipað fimm aðal-
mönnum og fimm varamönnum,
og er Agnar Kofoed-Hansen flug-
málastjóri formaður ráðsins. Al-
þingi skipar þrjá menn i ráðið og
ráðherra tvo, sem skulu vera sér-
fróöir um flugmál. Fulltrúar i
ráðinu eru skipaöir til fjögurra
ára, nema formaður og varafor-
maður, sem nú er Leifur Magnús-
son, til átta ára. Halldór E. Sig-
urðsson sagðist telja eðlilegt, að
þessu yrði breytt þannig að allir i
ráöinu yrðu skipaðir til fjögurra
ára. Ráðið sér um stjórn flug-
mála. Yfirstjórn flugmála er i
höndum ráðherra, en flugmála-
stjórn annast daglegan rekstur.
Aðalatriðið i breytingum á
starfsreglunum er að nú skulu
varamenn alltaf sitja fundi i fjar-
veru aðalmanna, en áður gerðu
þeir það aðeins, teldu aðalmenn
þess þörf. Þá skulu varamenn
alltaf sitja annan hvern fund i
ráðinu, þótt ekki séu þeir þar i
fjarveru annarra. Fulltrúar ráðu-
neytisins munu nú ekki sitja fundi
nema Flugráð æski þess.
Þá hefur verið ákveðið að skipa
fimm manna nefnd til að gera út-
tekt á flugvöllum, ástandi þeirra
og öryggismálum, og fagnaði
Flugráð þeirri ákvörðun. Sam-
gönguráðherra lét einnig i ljós á-
hyggjur af tfðum flugslysum hér
á landi og taldi brýnt að vinna að
öryggi smáflugvéla.
Ætlunin er að koma upp á þessu
ári nýju og stærra flugskýli á
Reykjavikurflugvelli i stað þess,
sem brann i hitteðfyrra, og
verður það á svipuðum stað.
Aætlað er að það kosti 100
milljónir króna. Tryggingaféð
vegna gamla skýlisins er fyrir
hendi til framkvæmda, en það er
um 70 milljónir.
Gert er ráð fyrir að með nýja
skýlinu verði hægt að færa skoð-
anirog viðhald flugvéla i auknum
mæli inn i landið, en til þess að
það verði gert að fullu og öllu,
þarf einnig góða aðstöðu á Kefla-
vikurflugvelli. Þetta er flugvirkj-
um áhugamál, en ýmsir islenzkir
flugvirkjar, sem starfa erlendis,
hafa áhuga á að fá vinnu hér
heima. Þetta verður hins vegar
ekki gert á einu ári.
Flugfélag íslands og Loftleiðir
munu nú greiða um 608 milljónir
á ári vegna viðhalds og skoðana
flugvéla erlendis. Og cin skoðun á
flugvélum Air Viking erlendis
mun kosta um 42 milljónir á
hvora vél.
Flugmenn hafa áhuga á að
nefnd lækna annist læknisskoðan-
ir I stað eins trúnaðarlæknis, eins
og verið hefur. Samgönguráð-
herra hefurþetta mál til athugun-
ar, og telur hann eins og flug-
mennirnir, að æskilegt sé að fleiri
en einn læknir séu til úrskurðar
um vafaatriði i sambandi við
heilsufar flugmanna, enda er um
starfsréttindi þeirra að tefla.
Fjárfesting rikisins i flugmál-
um hefur hækkað um 713% á ár-
unum 1971—1976, og er á þessu ári
252milljónir króna. Heildarfram-
lag rikisins til flugmála á þessu
ári verður 621,3 milljónir. Til
samanbúrðar má geta þess, að
fjárfesting í vega- og hafnamál-
um hefur aukizt minna á sama
tima, eða um tæp 580%. Heildar-
framlag til flugmála hefur hins
vegar aukizt minna en til vega-
og hafnamála.
Flugmálastjóri lét þess getið,
að tekjur islenzka rikisins af flug-
málum væru jafnmiklar og út-
gjöld þess i þeirra þágu, og væri
þá átt við beinar tekjur, óbeinar
tekjur af flugmálum væru hins
vegar mun hærri.
1 flugráði eru, auk þeirra, sem
þegar hafa verið nefndir:
Aðalmenn: Albert Guðmunds-
son alþingismaður, Garðar Sig-
urðsson alþingismaður, Skúli Br.
Steinþórsson flugmaður, Stein-
grimur Hermannsson alþingis-
maður.
Varamenn: Guðmundur Guð-
mundsson slökkviliðsstjóri, Páll
Bergþórsson veðurfræðingur,
Rikharður Jónatansson flugmað-
ur, Ragnar Karlsson flugvirki.
Að loknum fundi samgönguráðherra með nýju flugráði I gær voru nýjungar kynntar fréttamönnum. —
Timamynd: Gunnar.
Umfangs-
mesta
fíkniefna-
til þessa
— tugir manna
viðriðnir það
Gsal-Reykjavik — Stöðugt er
unnið að rannsókn fikniefna-
málsins i Keflavík, og hafa
tugir manna verið yfirheyrðir
vegna málsins. Að sögn
Kristjáns Péturssonar, deild-
arstjóra tollgæzlunnar á
Keflavikurflugvelli, sem m.a.
hefur rannsókn málsins með
höndum, þykir einsýnt að
þetta fikniefnamál sé það um-
fangsmesta, sem komið hefur
upp hérlendis til þessa.
Kristján kvaðst ekki geta
tilgreint fjölda þeirra manna
sem hlutdeild eiga I málinu,
enda rannsókninni hvergi
nærri lokið. Kristján sagði þó,
að ljóst væri, að fjöldi þeirra
skipti nokkrum tugum. Þá
kvaðst Kristján heldur ekki
geta nefnt neina ákveöna tölu
um það magn fikniefna, sem
um væri að ræða i málinu.
Að sögn Kristjáns hófst
Framhald á 5. siðu.
Stórtjón Strætisvagna Reykjavíkuf bætist við mikla fjárhagserfiðleika:
BORGIN GREIÐIR 16 MILLJÓNIR í
ÞUNGASKATT FYRIR STRÆTIS-
VAGNAFERÐIR UM EIGIN GÖTUR
SJ-Reykjavik. — Frá 20. desem-
ber til áramóta hafa Strætisvagn-
ar Reykjavikur orðið fyrir mill-
jóna tjóni, en á þeim tima
skemmdust sjö strætisvagnar illa
i umferðinni. Af þessum sökum
má búast við að fyrir geti komið,
að ekki verði hægt að hafa auka-
ferðirá öllum leiðum á morgnana
næstu viku eða svo. Einn nýr
strætisvagn hefur verið leystur úr
tolli og kemur i stað þeirra sjö,
sem eru úr leik. En fimm aðrir
vagnar standa ,,á hafnarbakkan-
um”, og er ekki til fé svo hægt sé
að greiða af þeim aðflutnings-
gjöld. „Við fáum ekki leyfi til að
hækka fargjöldin til að mæta
auknum gjöldum,” sagði Eiríkur
Asgeirsson, forstjóri Strætis-
vagna Reykjavikur, f viðtali viö
Timann, ,,og nú er svo komið að
Reykjavíkurborg greiðir niður
helming fargjalds farþega með
vögnunum.”
Akstursskilyrði strætisvagna,
sem annarra farartækja i borg-
inni, voru mjög góð i haust og
fram eftir vetri, en i desember
brá til hins verra. Það kom þrisv-
ar sinnum fyrir að tveir strætis-
vagnar rákust saman, og eru allir
sex mikið skemmdir. Verða þeir
allir óökuhæfir, a.m.k. fram i
miðjan mánuð. Sjöundi vagninn
lenti I árekstri við langferðabil,
og er hann stórskemmdur, ef ekki
ónýtur. Þetta var ekki nýr
strætisvagn, en þeir kosta nú
14—15 milljónir króna.
Siðustu vikurnar hafa verið ör-
fáir vinnudagar, og tefur það við-
gerðir á vögnunum. Engin slys
urðu á mönnum i sambandi við
þessa árekstra.
Þá hefur ófærðin I borginni að
undanförnu valdið seinkunum hjá
strætisvögnunum, eins og við er
að búast. Bilstjórunum hefur þó
gengið vel að koma þeim leiðar
sinnar, þótt i samráði við gatna-
málastjóra væri ákveðið að negla
ekki hjólbarða þeirra i vetur,
heldur strá salti á göturnar, sem
þeir fara um. A mánudagskvöld
sat þó Breiðholtsvagn fastur í tvo
klukkutima ásamtfjölda annarra
farartækja þar efra. í þessu til-
felli, eins og oftar, hamlar það
einkum akstri strætisvagnanna
að smábilar sitja fastir i ófærð-
inni og stööva umferð.
Eirikur Asgeirsson kvað það
ekki hafa komið að sök, að hjól-
barðar vagnanna voru ekki
negldir i haust, þvi að naglarnir
entust ekki nema I 15.000 km, og
hvort sem þeir hefðu verið settir
undir í byrjun október eða byrjun
nóvember, þá hefðu þeir verið
hættir að koma að gagni þegar ó-
færðin kom i desember. Keðjur
sagði hann að ekki væri hægt að
nota á vagnana, bæði vegna þess
að á þeim flestum væri ekki rúm
fyrir þær vegna þess hve útstigið
væri lágt, og auk þess skemmdist
loftfjaðrabúnaður þeirra, ef keðj-
ur væru notaðar.
Sem dæmi um fjárhagserfið-
leika strætisvagnanna má geta
þess, að einn strætisvagn hefur
beðið ,,á hafnarbakkanum” siðan
i febrúar i fyrra og fimm siðan i
nóvember í haust, en eins og áður
sagði hefur nú einn þessara
vagna verið leystur út.
Engar eftirgjafir eða gjald-
frestur fást á tollum af vögnun-
um. í þessu sambandi má geta
þess, að Strætisvagnar Reykja-
vikur greiða um 16 milijónir
króna á ári f þungaskatt fyrir að
aka á götum, sem Reykjavikur-
borg leggur. Engar niðurgreiðsl-
ur fást heldur hér á olium, svo
sem þekkist um almennings-
vagna i öðrum löndum.
Ljósir punktar eru þó i starf-
semi Strætisvagnanna um þessar
mundir. A fjárhagsáætlun borg-
arinnar er nú að setja fjarskipta-
búnað i vagnana, og verður hann
væntanlega kominn i alla aðal-
vagna fyrir næsta vetur. Verður
þá hægt að kalla til verkstæðisbil
hvarsem strætisvagner staddur i
borginni, ef honum hlekkist á.
Verið er að undirbúa útboð vegna
kaupa á fjarskiptabúnaðinum.
Rúmgott biðskýli var fyrir
nokkru tekið i notkun á Hlemm-
torgi, og kom það sér vel i illviðr-
unum að undanförnu. Verið er að
ljúka við snyrtiherbergi i biðskýl-
inu.
Að sögn Eiriks Asgeirssonar
hafa Strætisvagnar Reykjavikur
ekki orðið fyrir öðrum eins áföll-
um á jafnstuttum tima i 25 ár og
þeim, sem hér um ræðir.
Ungur söngvari
Ungur söngvari, Már Magnús-
son’, heldur tónleika i Félags-
stofnun Stúdenta við Hringbraut
laugardáginn 17. janúar kl. 17:00.
Már hefur undanfarin ár dval-
izt við söngnám i Vinarborg, en
þetta eru fyrstu sjálfstæðu tón-
leikar hans. Á efnisskránni eru
verk eftir Scarlatti, Gluck,
Giordani, Beethoven, Schubert,
Brahms, Verdi og islenzk tón-
skáld.
Aðgöngumiðar fást i bóka-
búðum Lárusar Blöndal við
Skólavörðustig og i Vesjurveri.