Tíminn - 10.01.1976, Side 11

Tíminn - 10.01.1976, Side 11
Laugardagur 10. janúar 1976. TÍMINN Leikurinn sem LAUGAHDALSVÖLLURINN 5. júni 1975. — Hinn glæsilegi dagur I sögu knattspyrnunnar —sigur yfir A-Þjóðverjum. Stóra myndin sýnir áhorfendur flykkjast inn á völlinn og um- kringja landsiiðsmenn okkar, sem eru að „tollera” landsliðsþjálfarann Tony Knapp. A litlu myndinni efst t.h. sést hin eftirminnilega markataia — 2:1. Jóhannes Eðvaldsson — Iþróttamaður ársins 1975 —sést hér fyrir ofan t.v„ þar sem hann á I höggi við ieikmenn A- Þjóðverja — ólafur Júliusson i baksyn. Þá má einnig sjá hér fyrir ofan hina glæsilegu verðiaunastyttu, sem Jóhannesi verður afhent siðar. — Timamyndir Róbert. Fyrirliði landsliðsins — Jóhannes Eðvaldsson — íþróttamaSur ársins ÚRSLIT ÞEIR iþróttamenn, sem skipuðu 10 efstu sætin á lista tþrótta- manns ársins 1975, voru: 1. Jóhannes Eðvaldss. knattsp........................63 2. Hreinn Halldórss., frjálsar iþr............................60 3. Stefán Hallgr.ss., frjálsar íþr............................47 4. Skúli Óskarss., lyftingar ...44 5. Asgeir Sigurv.ss., knattsp. .37 ólafurH. Jónss., handknattl. .26 7. Viðar Guðjohnsen, júdó .... 22 8. Arni Stefánss., knattsp....30 9. Lilja Guðm.d., frjálsar Iþr.. 18 10. Jón Alfreðss., knattsp....14 Þeir, sem fengu færri atkvæði voru: Marteinn Geirsson, knatt- spyrna, Þórunn Alfreðsdóttir, sund, Kristinn Jörundsss. körfu- knattleikur, Björgvin Björgvins- son, handknattleikur, Páli Björg- vinssson, handknattieikur, Hörö- ur Sigmarsson, handknattieikur, Erlendur Valdimarsson, kringlu- kast. Matthias Ilallgrimsson, knattspyrna, Haraldur Kornilius- son, badminton, Gústaf Agnars- son, lyftingar, ólafur Benedikts- son, handknattleikur. Jórunn Viggósdóttir, sklði, Sigurður Jónsson, glima, Gisli Þorsteins- son, júdó, Ragnar ólafsson, golf, og Pétur Yngvason, glima. Alls hlutu 26 iþróttamenn atkvæði að þessu sinni. — Ég túlka þetta sem viðurkenn- ingu til knattspyrnunnar, og sér i lagi frábærs árangurs landsiiðs- ins, sagði Ellert B. Schram, for- maður K.S.Í., þegar Jóhannes Eðvaldsson, fyririiði landsliðsins, var i gær kjörinn íþróttamaður ársins 1975 af samtökum Iþrótta- fréttamanna. — Sigurinn (2:1) gegn A-Þjóðverjum á Laugar- dalsvellinum var stór stund f sögu knattspyrnunnar, og það er ekki að efa, að Iþróttafréttamenn höfðu hann efst I huga, þegar þeir kusu Jóhannes íþróttamann árs- ins. Jóhannes er vel að þessu sæmdarheiti kominn — ég óska honum til hamingju, sagði Ellert. Það er óþarfi að kynna Jóhannes — þessi snjalii knattspyrnumaður hefur verið fyrirliði landsliðsins undanfarin tvö ár, en þau hafa verið ævintýri likust hjá lands- liðinu. Ja,hverjir muna ekki eftir hin- um frækilega sigri íslenzku landsliðsmannanna gegn A-Þjóðverjum 5. júni sl. sumar — þegar mestu fagnaðarlæti, sem heyrzt og sézt hafa á íslandi fyrr og siðar brutust út í Laugardaln- um — fagnaðarbylgja, sem stóð yfir i margar minútur. Timinn sagði m.a. þetta um leikinn: „Piltarnir börðust eins og ljón gegn HM-liði A-Þjóðverja — þeir gáfu því aldrei frið og komu A-Þjóðverjum i opna skjöldu með skyndisóknum, sem buldu nær stöðugt á marki þeirra. Og árangurinn lét ekki á sér standa. — tvö stórglæsileg mörk, sem munað verður eftir.” Um mörkin má lesa þetta i Timanum: „íslendingar hófu leikinn af miklum krafti, og sókn- arlotur þeirra buldu á marki A-Þjóðverjanna. Það var greini- legt, að hinn ógurlegi kraftur hjá Islendingunum kom A-Þjóðverj- um, sem voru oft á tiðum eins og satistar, í opna skjöldu — þeir rönkuðu fyrst úr rotinu, þegar knötturinn hafnaði i netinu hjá þeim.og hvilikt mark! — Guðgeir Leifsson tók þá eitt af sinum löngu innköstum og varpaði knettinum inn i markteig A-Þjóð- verja, þar sem „drekinn” Mar- teinn Geirsson var rétt staðsettur og skallaði knöttinn skemmtilega út I vitateig. Ólafur Júliusson var þar á réttum stað, og hann vissi svo sannarlega hvað hann átti að gera við knöttinn. — Ólafur „nikkaði” honum inn i markteig, til Jóhannesar Eðvaldssonar, sem stökk upp og tók á móti knettinum með „hjólhesta- spyrnu” — knötturinn söng i þak- neti a-þýzka marksins. Geysileg fagnaðarlæti brutust út á meðal hinna 10 þús, áhorfenda, sem voru á Laugardalsvellinum, og stemmningin var mikil hjá þeim.” Um siðari markið segir Timinn þetta: „Sigurður Dagsson mark- Framhald á 5. siðu. „Ég verð að telja það miður... — að atvinnumaður skuli hljóta útnefninguna," sagði Gísli Halldórsson, forseti Í.S.Í. — ÉG SEM forseti íþrótta- sambands íslands hlýt að telja það miður, að nú öðru sinni skuli atvinnumaður hijóta út- nefningu sem íþróttamaður ársins. Það mun ýta undir að fleiri islenzkir iþróttamenn fari þann veg, sem við teljum ekki þann rétta, sagði Gisli Halldórsson, formaður ÍSÍ, eftir að Jóhannes Eðvaldsson hafði verið útnefndur Iþrótta- maður ársins 1975. — Ég vil eindregið beina þeim tilmælum til iþrótta- fréttamanna, að þeir endur- skoðuðu reglur þær, sem farið er eftir, þegar kosinn er íþróttamaður ársins. Þannig að þeir iþróttamenn, sem væru farnir frá Íslandi til að gerast atvinnumenn i iþrótt sinni erlendis, væru ekki hlut- gengir i kosninguna um þenn- an eftirsótta titil, sagði Gisli. Þá sagði Gisli, að það væri erfitt fyrir áhugasamt iþrótta- fólk hér heima, sem væri á- hugafólk i iþrótt sinni og vildu gera garðinn frægan, að keppa við atvinnumenn. Að lokum óskaði Gisli Jóhannesi til hamingju með nafnbótina — sem fyrirliða islenzka lands- liðsins, sem unnið hefur mörg frækileg afrek undanfarin ár. —SOS

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.