Tíminn - 10.01.1976, Síða 12
12
TÍMINN
Laugardagur 10. janúar 1976.
Óvelkominn qestur
get ekki verið lengi burt f rá kærustunni, því hún þarf að
fara langa leið.
Hann lagði af stað við hlið Jane að bílnum og opnaði,
svo hún gæti sezt undir stýri. Hún greip jakkann sinn,
sem lá yfir sætisbakið og lagði hann yfir axlir sér. Það
var ekki bara kuldinn, sem olli henni skjálfta. Hún var
hræddari við það sem f ramundan var, en hún þorði sjálf
að viðurkenna. Dick lá í af tursætinu, en hann virtist ekki
hafa minnstu hugmynd um hvað var að gerast um-
hverfis hann.
Kúrekinn hafði setzt inn við hlið hennar og sá áhyggju-
svipinn, þegar hún leit á Dick. Hann brosti svolítið. —
Það hef ði verið verra, ef hann hef ði verið vakandi og æpt
og sparkað, sagði hann í huggunartón.
— Það getur verið, sagði Jane mæðulega og reyndi gír-
ana áður en hún ræsti bílinn. Sem betur fór hafði hún
nokkrum sinnum ekið bíl f rænku sinnar i Vancouver, síð-
an hún hafði komið til Kanada, svo hún var orðin vön því
að hafa stýrið vinstra megin.
— Jæja, jiá förum við, sagði hún og sneri lyklinum. Það
drundi I vélinni og við annað tækifæri hefði hún verið
himinlifandi yfir að finna öll þessi hestöfl, sem hún
hafði vald á, en tilhugsunin um langa leiðina heim, í
myrkri og eftir illfærum vegi, gerði hana næstum stífa
af hræðslu.
— Sjáið til ungfrú. Nú skuluð þér bara aka eftir þess-
um vegi, þar til þér komið að Bjarnargjánni. Hinum
megin við lækinn halda f jórir vegir áfram upp í f jöllin,
tveirtil vinstriog tveirtil hægri. Þúferð veginn lengsttil
vinstri, þegar þú kemur yfir lækinn, hann liggur beint
heim á Conway-búgarðinn.
— Kærar þakkir fyrir hjálpina...
— George McCarthy. Ég þekki Neil Conway vel, Þegar
farið verður að brennimerkja, kem ég yfir til að hjálpa
honum. Hann opnaði dyrnar, steig út og stóð kyrr á for-
ugum veginum. Vindhviða feykti regngusu inn í upplýst-
an bílinn og það fór hrollur um Jane.
— Sælar, þá! Takið það bara rólega. Þetta ætti að
ganga vel á þessum bíl. AAér þykir leitt að geta ekki kom-
ið með alla leið.
Hjarta hennar barðist ákaflega, en hún setti bílinn
þegar í gír og beygði hægt út á þann dimmasta veg, sem
hún hafði nokkurn tíma séð. Stór framljósin vörpuðu
löngum geislum f ram á við, svo hún sá tré og runna með-
fram veginum og það færði henni það mikinn kjark, að
hún fór að hamast í hinum hnöppunum í mælaborðinu og
fann loks auka Ijóskastara, em lýsti upp allan veginn
langt fram á við.
Þetta var ekki svo slæmt útlit, sagði hún huggandi við
sjálfa sig. Henni tækist þetta áreiðanlega. Af Imikill bíll-
inn fór léttilega upp brattar brekkurnar og var svo
stöðugur á veginum, að hún get tekið krappar beygjur,
án þess að hemla mikið. Rúðuþurrkurnar tifuðu reglu-
lega f ram og aftur og gerðu hana næstumsyf jaða og hún
gleymdi, hvað hún var hrædd.
Nú var farið að hellirigna og vegurinn versnaði
stöðugt. Nokkrum sinnum rann bíllinn til í forinni, þegar
hún beygði. Hún minnkaði hraðann, greipfast um stýrið
og steig ákveðin á bensíngjöfina aftur, þegar vegurinn
tók á ný að hallast upp á við.
Þegar hún loks kom að læknum, var hún orðin svo æst
á taugunum, að hún vissi, að ef hún næmi staðar til að
virða fyrir sér freyðandi vatnið, hefði hún ekki kjark til
að halda áfram. Hún dró djúpt andann, ók varlega út á
örmjóa brúna og vonaði að hún hefði metið f jarlægðirn-
ar rétt. Brúin var gömul og f úin sums staðar, en sem bet-
ur fór hafði hún enga hugmynd um að lækurinn hafði
vaxið svo í rigningunni, að minnstu munaði að hann
flæddi yfir brúna.
Hún ók greitt yf ir og minnkaði síðan hraðann, og henni
létti að vera komin yf ir heilu og höldnu. Henni hafði tek-
izt það! Nú hafði hún ekki svo miklar áhyggjur lengur!
Hún beygði inn á veginn, sem lá heim að búgarðinum,
upp brekku, sem var ekkert nema djúp forarvilpa. Ef
hún hefði gefið í eftir brúna, hefði henni kannski tekizt
að komast þetta, en því miður hafði hún verið svo glöð að
komast yf ir, að hún hafði minnkað hraðann. Hjólin náðu
ekki gripi í leðjunni og hvernig sem hún þvingaði vélina,
spólaði bíllinn bara og hreyfðist ekki úr stað.
Þegar Jane loks skildist, að þetta var vonlaust, stöðv-
sði hún vélina og sat og hlustaði á rúðuþurrkurnar, sem
tifuðu taktfast aftur og fram. Háar hrotur heyrðust úr
aftursætinu, þar sem Dick lá og svaf úr sér erf iði kvölds-
ins, og allt í einu gerði Jane sér grein fyrir, að hann var
þarna. Hún sneri sér við og leit á hann. Ég hlýt að hafa
verið galin að halda, að ég væri ástfangin af honum,
hugsaði hún mædd. Hann er bara viljalaus unglingur,
HVELL
G
E
I
R
I
Eftir nauölendingu á plánetunni
Mongi, vingast Geiri, Dalla og
Zarkov viö fálkamennina.
Nú
,—-— ----------- Vulcan,
Ætiaröu að ganga ]vonum
1 gildru Mines? !
hafa menn einvaldsins
Ming hertekið geimskip
þeirra!
- e' ."J-’Xi’sjía
i uiiii jfflmii
i
Laugardagur
10. janúar
7.00 Morgunútvarp. Veður-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Morgunleikfimi kl. 7.15 og
9.05. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og
forustugreinar dagbl.), 9.00
og 10.00. Morgunbæn kl.
7.55. Morgunstund barn-
annakl. 8.45: Kristfn Svein-
björnsdóttir les „Lisu og
Lottu” eftir Erich Kastner i
þýðingu Freysteins Gunn-
arssonar (4). Tilkynningar
kl. 9.30. Létt lög milli atriða.
Óskalög sjúklinga kl. 10.25:
Kristin Sveinbjörnsdóttir
kynnir.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.26 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar. Tónleikar.
13.30 tþróttir. Umsjón: Jón
Ásgeirsson.
14.00 Tónskáldakynning Atla
Heimis Sveinssonar.
15.00 Vikan framundan. Björn
Baldursson kynnir dagskrá
Utvarps og sjónvarps.
16.00 Fréttir.
16.15 Veðurfregnir. tslenzkt
mál.Gunnlaugur Ingólfsson
cand. mag. flytur þáttinn.
16.40 Popp á laugardegi.
17.30 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Jóga handa nútimanum.
Sigvaldi Hjálríiarsson flytur
erindi.
20.00 Hijómplöturabb Þor-
steins Hannessonar.
20.45 Háiftimi meö Halla A.
Pétur Pétursson ræðir við
Harald A. Sigurðsson.
21.15 Kvöldtónieikar Wilhelm
Kempff, Christoph Eschen-
bach, Margit Weber o.fl.
flytja þætti Ur sigildum tón-
verkum.
22.00 Fréttir
22.15 Veðurfregnir. Danslög.
23.55 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
LAUGARDAGUR
10. janúar 1976
17.00 íþróttir. Umsjónarmað-
ur Bjarni Felixson.
18.30 Dóminik. Breskur
myndaflokkur fyrir börn og
unglinga. 9. þáttur Klerkur-
inn. Þýðandi Ellert Sigur-
björnsson.
19.00 Enska knattspyrnan.
Hlé.
20.00 J’réttir og veður.
20.25 Dagskrá og auglýsingar.
20.30 Læknir i vanda. Breskur
gamanmyndaflokkur. Bak-
tjaldamakk.Þýðandi Stefán
Jökulsson.
20.55 Saga hermannsins.
Breskir og bandariskir
listamenn flytja sögu her-
manns, sem mætir djöflin-
um á förnum vegi. Tónlistin
er^éftir Igor Stravinsky, en
sagan eftir C.F. Ramuz.
Dansana samdi William
Louther, sem dansar aðal-
hlutverkið. Þýðing Dóra
Hafsteinsdóttir.
21.55 Eitt rif úr mannsins
siðu. (It Started with Eve).
Bandarisk gamanmynd frá
árinu 1941. Aðalhlutverk
Deanna Durbin, Charles
Laughton og Bob Cumm-
ings. Sonur auökýfingsins
Reynolds kemur að dánar-
beði föður sins og kynnir
honum unnustu sina. Þýð-
andi Jón Thor Haraldsson.
23.25 Dagskrárlok.
Auglýsið í
Tímanum