Tíminn - 30.01.1976, Blaðsíða 7
TÍMINN______________________ 7
IBBll
Óratorían Elía
í Hdteigskirkju
Föstudagskvöldið 30. janúar
verður sá viðburður i tónlistar-
lifi Reykvikinga að kór Söng-
skólans i Reykjavik, hljómsveit
og einsöngvarar flytja óratori-
una Elia eftir Mendelssohn.
Tónleikarnir verða i Háteigs-
kirkju og hefjast kl. 8. Stjórn-
andi er Garðar Cortes, en ein-
söngvarar Ólöf K. Harðardóttir,
Sigriður E. Magnúsdóttir, Rut
L. Magnússon, Unnur Jensdótt-
ir, Guðmundur Jónsson, Halldór
Vilhelmsson, Kristinn Hallsson
og Magnús Jónsson.
óratórian Elia (op. 70) er
næstsiðasta verk Mendelssohns
(1809-1847). Skáldið lauk samn-
ingu verksins 11. ágúst 1846, en
það var frumflutt tveimur vik-
um siðar á tdnlistarhátið i
Birmingham. Svo mikla hrifn-
ingu vakti óratórian, að ekki
færri en fjórar ariur og fjórir
kórar (af 42 alls) voru klappaðir
upp á tónleikunum. En
Mendelssohn sjálfur var svo
hrifinn af söngnum, einkum sið-
ustu tenórariunni, að hann
mátti hafa sig allan við að missa
ekki tök á stjórnuninni. Fór hon-
um þar likt og Benedikt gamla
Gröndal, sem gat varla lesið
Heljarslóðarorustu yfir Islend-
ingum i Kaupmannahöfn fyrir
hlátri (að eigin fyndni). En óra-
tória þessi er frábærlega fallegt ■
verk og hver kór og aria annarri
betri.
Einsöngvararnir, aðrir en þau
Unnur og Halldór, sem eru
nemendur i Söngskólanum, eru
úr kennaraliði hans. Söngskól-
inn er nú á þriðja starfsári sinu.
Hann var stofnaður með sam-
tökum söngkennara, en Garðar
Cortes er skólastjóri.
Kór Söngskólans er mikilvæg-
ur þáttur i starfsemi hans, en i
kórnum eru nemendur skólans
auk annarra. Elía er annað
verkið sem kórinn flytur opin-
berlega, en i fyrra flutti hann
Haydn-messu ásamt félögum úr
Sinfóniuhljómsveit Islands.
Sinfóniuhljómsveitin i
Reykjavik er áhugamanna-
hljómsveit, sem stofnuð var i
haust á vegum Garðars Cortes
og Söngskólans. 1 henni eru um
50 hljóðfæraleikarar, ungir og
aldnir. Hún hefur á að skipa
fullum hljóðfærakosti. þótt enn
sé pláss fyrir fáeina strengleik-
ara, einkum fiðiara og knéfiðl-
ara. Ættu þeir lesendur Timans,
sem yfir slikri kunnáttu búa, að
gefa sig fram hið fyrsta. Til-
gangur hljóm'sveitarinnar er
fyrst og fremst sá, að aðstoða
við flutning kórverka, enda var
löngu orðin þörf fyrir aðra
sinfóniuhljómsveit hér, svo
mikil umsvif sem orðin eru i
hljómlistarlifi bæjarins, en
hljóðfæraleikarar Sinfóniu-
hljómsveitar tslands mega vart
um frjálst höfuð strjúka sökum
anna.
Frumraun sina á opinberum
vettvangi þreytti hin nýja
hljómsveit á þrettándanum
austur á Selfossi. Þar flutti
kirkjukór Selfoss, ásamt hljóm-
sveitinni, kantötu eftir Buxte-
hude og Bach, og ariur úr
Messiasi Hándels. Stjórnandi
var Glúmur Gylfason, söng-
stjóri þar eystra, en ein-
söngvarar Sigriður E. Magnús-
dóttir, Garðar Cortes og Halldór
Vilhe'.msson. Tónleikar þessir
voru svo endurteknir i kirkju
Filadelfiu i Reykjavik hinn 11.
janúar. Þóttu þefr takast vel og
íofa góðu um framhaldið.
óratórian Elia hefur ekki ver-
ið flutt hér áður.
Sigurður Steinþórsson
„SJÓMENN HAFA
VERIÐ BLEKKTIR"
Auglýsið í Tímanum
— segir sam
starfsnefndin
BH—Reykjavik. — Samstarfs-
nefnd sjómanna kom saman á
fund núna um helgina, og þar
kom m.a. þetta fram:
„Samstarfsnefnd sjómanna
vekur athygli á þvi, að tilkynning
um fiskverð frá verðlagsráði
sjávarútvegsins fyrir janúar-
mánuð var ekki gerð opinber fyrr
en 24. jan. sl. Þar kemur fram að
verð á stórum ufsa i öðrum og
þriðja gæðaflokki hefur lækkað
um 33-34%. t frétt frá verðlags-
ráði um áramót er hvergi getið
um lækkun á fiski, heldur er sagt,
að verðbreytingar séu fólgnar I
breytingum á stærðarmörkum,
og verð á gæðaflokkum sé aö öðru
leyti óbreytt.
1 einu dagblaðanna er það haft
eftir fulltrúa sjómanna I yfir-
nefnd verðlagsráðs, að verð-
breytingar séu ekki aðrar en
breytingar á stæðarmörkum, er
feli i sér um 1% fiskverðshækkun.
Þannig hafa sjómenn og útgerð-
armenn verið blekktir á svivirði-
legan hátt til þess að hefja róðra,
þvi að i trausti þess, að verðlags-
ráð fari með sannleikann i sinum
tilkynningum hefur fjöldi báta á
svæðinu frá Hornafirði vestur um
að Snæfellsnesi hafið róðra með
ufsanetum, og nú þegar verð-
timabilið er senn útrunnið, er
fiskverðið loks birt. Þar kemur i
ljós stórlækkun á þeim fiski, sem
nær eingöngu veiðist i janúar við
Suður- og Suðvesturland.
Má ætla, að meðalverð á ufsa,
veiddum i net og metinn i gæða-
flokka, sé nú 12-14 kr. pr. kg., en
var i haust 18-20 kr.
Samstarfsnefndin krefst þess
fyrir hönd állra sjómanna, að
formaður Verðlagsráðs sjávar-
útvegsins svari opinberlega hvers
vegna þessari verðlækkun 'hafi
verið haldið leyndri þar til verð-
lagstimabilið er nær á enda.”
Grímu-
búningar
á börn og fullorðna
til leigu.
Grimubúningaleig-
an. Simi 7-26-06.
SMIÐJUVEGUR6
íFossvog
BLESUGRÓF
Kópavog
ELLIÐÁAR
í Efra Breiðholt
NEÐRÁ BREIDHOLT
Þú getur hagnast
á að rata á Smiðjuveginn
því nú bjóðum við
20% afslátt
af öllum framleiðsluvörum
fyrirtækisins í eina viku.
Að þessari kynningarviku
lokinni hefur þú vonandi
hagnast verulega
— og eftirleiðis ratar
þú til okkar á Smiðjuveginn
og hefur kynnst hinni glæsilegu
verzlun okkar í nýju 1000 m2
húsnæði
— og þá eru allir ánægðir,
ekki satt?
RY\\IYGAR\IKA
t-20%
en nú eraö drífa sig afstaÖ.
Velkomin á Smiöjuveg 6
Opið 1 —6, 1 —7 föstudaga, 10—4 laugardaga.
Skeifu húsgögn. Skeifu verð.
Skeifu gæði. Skeifu skilmálar.
. SMIÐJUVEGI6 SÍMI44544