Tíminn - 30.01.1976, Blaðsíða 8

Tíminn - 30.01.1976, Blaðsíða 8
ff TÍMINN Föstudagur 30. janúar 1976. Biskup Islands, herra Sigurbjörn Einarsson: Þjóðin átti traustan leiðtoga og fyrirsvars mann þar sem Hermann Jónasson var Frá útför Hermanns Jónassonar fyrrv. forsætisráöherra I gær. Sigurbjörn Einarsson biskup flytur ræðu. Séra Arni Pálsson situr f kór. Lifið var opinberað og vér höfum séð og vottum boðum yður lifið hið eilifa, sem var hjá föðurnum og var opinberað oss. Og þetta skrifum vér til þess að fögnuður yðar geti orðið fullkominn. (1. Jóh. 1.) Lif hefur slokknað, líf er kvatt, þess vegnaerum vér hér saman komin I dag. Ævisaga Hermanns Jónassonar er á enda. Sú saga var mikil. Myndir liða fyrir hugarsjón- ir frá liðnum tima, fastar I minni, sterkar i dráttum, svipmyndir af manni, sem að burðum og li'fsþrótti var flest- um meiri og manna atkvæða- mestur á sviði almennra mála langa hri'ð. Nú hafði hann verið fjærri alfaraleiðum um árabil og þreytt fangbrögð i einrúmi við þann andstæðing, sem alla leggur að lokum. Glima Her- manns á þeim hólmi varð löng, hið sterka vigi likamlegra yfir- burða varðist lengi, en nú eru úrslitin orðin. Og vér erum hér til þess að minnast og kveðja. En sem vér nemum staðar i þessum húsi, þá er það ekki dauðans kalda þögn, sem mætir oss, heldur lifsins rödd og orð. Svo er það alltaf þegar komið er i kirkju, hvert sem tilefnið er. Þar er það upprisinn höfðingi lifsins,sem minnirá sig. Þar er það aflið og valdið hans, sem vér megum meta, lúta og þiggja. Vérboðum yður lifið hið eilifa sem var opinberað oss. Þetta er inntak hverrar at- hafnar i kirkju, alls sem fram fer i Jesú nafni, allt býður það dauðanum byrginn, allt er það bergmál af máttarorði hans, sem segir: Ég er lifið, upprisan oglifið, ég lifi ogþér munuð lifa, ég gjöri alla hluti nýja. Þú kem ur i kirkju til þess að andvari lifsins frá honum megi snerta þig, veita þér birtu og bata, meiri styrk til góðs,heilli vilja, hlýrri hug, kraft til að heyja allt þitt strið til sigurs. Og þó að misjafnt sé, hversu ljósa grein vér gerum oss fyrir þvi, þá hnigur vor dýpsta þrá og þörf til móts við þennan boðskap,innst leitar vera vor að lifi, sem er ekki af þessum heimi dufts og tima. Vér leitum þeirrar huldu lindar, sem rætur veru vorrar hneigjast að og þyrstir eftir, eins og sprotinn leitar upp úr moldinni mót ljósi, eins og visn- andi blað þráir dögg. Lifið hið eilifa frá Guði föður, sem Jesús Kristur hefur opinberað, þetta er orð kristinnar kirkju til þin, hvort sem hún mælir til þin á hamingjustund eða harmadegi. Það er hið fyrsta sem hún segir við hvern einstakan i heilagri skirn, og það segir hún siðast, þegar jarðlif er kvatt og duftið borið til grafar. Lifið var opin- berað, vér boðum yður lifið hið eilifa. Þess vegna leitum vér hingað á kveðjustund i helgi- dómi lifsins, Krists. Vér lyftum augum yfir heljarhúmið og sjá- um dagsbrún páskanna, upprisunnar, hins eilifa rikis, sem konungur kærleikans og friðarins hefur opinberað og kallar oss til.Mættum vér i dag skynja vorn þegnrétt i þvi ljóssins riki og eignast heilaga friðar- og náðarstund hér inni, og þeir aðrir einnig, sem taka þátt i þessari kveðjuathöfn viðs- vegar um land. Það er alþjóð ljóst, að sú ævi- saga,sem núerá enda, er næsta gildur þáttur i sögu vor allra, sögu tslands á þessari öld. Milli áranna 1896 og 1976, milli fæðingar- og dánarárs Her- manns Jónasonar, er tiðinda- söm og örlagarik þjóðarsaga, og hann var einn þeirra manna, sem lengst og drýgst var við hana riðinn. Ekkert annað skeið að jafnri lengd allt frá land- námi jafnast á við þetta um stóra og minnisverða atburði og þjóðargengi, þegar á allt er litið. Þeir atburðir, sem hæst ber, munu lýsa yfir ófarna vegu þjóðarinnar, örva til sóknar, stæla til viðnáms i tvisýnu og nauðum. 1 návígi daganna og i viðureign við méira eða minna mikilvæg dagskrármál vilja hin stóru mið dyljast, menn greinir á um fetin fram á daglegum vegi og deila innbyrðis um dægurviðbrögð á sameiginlegri för. En þegar horft er á lengra færi yfir farinn veg hverfa þau viðhorf flest, sem ollu leiðaskilum á liðandi stund. Sé það augljóst að þessi öld hafi skilað þjóðinni lengra fram i ytri efnum en nokkur önnur, þá verður það ekki heldur i efa dregið, að vér höfum átt menn i forustuliði þjóðmála, sem vér megum virða og framtiðin mun þakka. Hermann Jónasson var þar i fremstu röð um langt skeið, i þrjá áratugi gegndi hann for- ustuhlutv. i stjórnmálum og átti nána aðild að öllum þeim málum, sem mestum tiðindum sættu á þessu skeiði, og hafði verulegáhrif á þjóðfélagsþróun. Hann mótaðist ungur af þeim lifsskoðunum, sem mörkuðu honum stefnu. 1 uppvexti naut hann góðra og traustra erfða islenzkrar alþýðumenningar. Ég átti einu sinni af hendingu erindi i bæinn að Syðri-Brekk- um i Skagafirði, það var fyrir löngu, ég hitti þar móöur hins landskunna og þá mjög um- deilda ráðherra Hermanns. Hún var roskin orðin, ég ræddi við hana litla stund og hún varð mér minnisstæð, og siðan sá ég Hermann aldrei svo að hún kæmi mér ekki i hug, enda var svipur hennar yfir honum næsta auðsær. Hún var hóglát, og örugg i fasi, bjargtraust manneskja, alúðleg og ræðin við mig ungan og sagði það eitt, sem nokkurs var vert. Ekki var auður i búi að Syðri-Brekkum en vökull áhugi á samtima- hræringum og islenzkri sögu. Systkinin 6 voru öll vel gefin en efni heiri.ilisins leyfðu ekki langskólagöngu annarra en yngsta bróðurins Hermanns, enda öllum i fjölskyldunni einhuga um að hann ætti þann veg að ganga og öll stóð hún saman um og hjálpaðist að til þess að svo mætti verða. Tvö þeirra systkina eru nú eftir á lifi, bæði fjarstödd. Vér vottum þeim samúð og ég flyt hér að beiðni þeirra sérstakar þakkir frá þeim og vandamönnum þeirra til bróðurins, sem þau reyndu alla stund að hlýju þeli og drengskap. Á uppvaxtarárum sinum varð Hermann mjög snortinn af ung- mennafélagshreyfingu þeirra ára, hugsjón hennar um frjóvgun þjóðlegra verðmæta, ættjarðarást, sem yrði virk i ræktun lands og lýðs, mótaði hann til frambúðar. Samvinnu- hreyfingin féll i sama farveg i huga hans og mótaði þjóðmála- viðhorf. Snemma mun hann hafa verið einráðinn i þvi, hvar oghvernighann skyldi hasla sér vettvang, ef hann léti til sin taka i stjórnmálum. En þess var skammt að biða að hann væri kominn þar i fremstu vig- linu, ungur, nýkjörinn á þing eftir sögulegan kosningasigur, tókst hann þá ábyrgð á hendur að mynda rikisstjórn. Það var ekki auðvelt hlutskipti að taka við stjórn landsins þá, heims- kreppan grúfði yfir, afkomu- horfur landsm. erfiðari en i annan ti'ma, átök og ýfingar á stjórmálasviðinu að undan- förnu höfðu verið með svæsnasta móti og horfði ekki friðvænlega á næstunni. Her- mann skorti ekki kjark né á- ræði. Hann var ekki aðeins glæsilegt þrekmenni að vallar- sýn og svo iþróttum búinn, sem bezt má. Hann var foringi að upplagi, einbeittur átaka- maður, gæddur ótviræðu, and- legu atgervi, hæfileikum og skapgerð. Menn fundu að hann var til forustu fallinn sakir áhuga, þreklyndis og vitsmuna. Gerðin var mikil, viljinn sterkur, framkoman hiklaus. Hann var djarfráður en forsjár- maður mikill jafnframt, hvert mál og hvert verk lagði hann rækilega niður fyrir sér, ihugaði málavexti frá öllum hliðum en fylgdi siðan fast fram þeirri ákvörðun, sem tekin var. Geðs- munir voru stórir og kappsemi i hvers kyns viðureign en höfuð- einkenni baráttumannsins var yfirveguð karlmennska. Það var ekki ágreiningsmál, hvorki innan flokks né utan, að Hermann hefði marga þá yfir- burði til að bera, sem forustu- maður i stjórnmálum þarf á að halda. Að sjálfsögðu var deilt um hann og á hann með hörku, enda fæst óumdeilanlegt á lið- andi stundu af þvi, sem dægur- barátta stjórnmála snýst um. En ég hygg að það hafi verið næsta almenn og vaxandi tilfinning i landinu, meðan hann var i lykilsstöðu, að þjóðin ætti traustan leiðtoga og fyrirsvars- mann þar sem hann var, hvað sem liði hverfulum hitamálum dagsins. Og óhætt er að segja það við leiðarlok að hvatinn að baki baráttunnar var fölskva- laus ættjarðarást og einlæg hug- sjón um gróandi þjóðlif. Og þess skyldum vér jafnan minnast, svo mjög sem menn kunna i gegn að gangast i pólitiskum sviptingum, að þetta er það sem sameinar góða menn yfir allar flokkslinur. Það kom i hlut Hermanns að fá slik mál til úrlausnar, sem fylktu þjóðinni nær einhuga að baki honum, alltjent þegar menn yöfðu áttað sig á mála- vöxtum. Þegar blikur styrjaldarinnar færðust nær og siðan yfir landið báru menn traust til hans, vissu að hann var vandur að virðingu lands og þjóðar, giöggur á rök og fastur fyrir. Það var að sönnu sam- staða meðal stjórnmáiamanna vorra um það að visa ismeygi- legu bónorði Þjóðverja á bug, þegar þeir vildu seilast hér til itaka nokkrum mánuðum áður en þeir hófu styrjöldina, en það var Hermann er þessu átti að svara fyrir þjóðarinnar höndog hann sem mótaði hin opinberu viðbrögð og verður sú gipta seint ofmetin. Þegar þetta bar til tiðinda var skammt að biða stórra at- burða fleiri. Landið var her- numið. Flestum varljóst, að þvi mátti eftir atvikum vel una, miðað við annað verra, en is- lenzk stjórnvöld áttu þó vissu- lega miklum vanda að gegna og mikið var i húfi um það, hvemig á málum væri haldið af islenzkri hálfu þá og næstu árin. Þar mæddi mjög á Hermanni og það ætla ég, áð hann hafi i hvivetna unnið sér tiltrú út á við meðal landsmanna i þessum á- byrgðarmiklu aðstæðum. Að sjálfsögðu átti hann sinn þátt i lyktum sjálfstæðisbaráttunnar, þóttekki væri hann i rikisstjóm, þegar þvi marki var náð. Ot- færsla landhelginnar i tólf milur gerðist hins vegar undir forsæti hans. Þetta, sem nú var sagt, er engin upprifjun á atburðarikri sögu stjórnmálamannsins, hún er meiri en svo að rakin verði hér eða annars staðar i stuttu máli. En ég mæli hér i orðastað þjóðar, sem er að kveðja einn þeirra manna, sem hæst ber i sögu hennar á örlagaskeiði og við moldir hans mun mega staðhæfa það að svo muni sagan meta og dæma að hann hafi til þakkar unnið, átt farsælt frumkvæði að margvislegum nytja- og heillamálum og með góðri forsjá og giptu verið i fyrirsvari og forustu, þegar mikið var i húfi. Þess ber mér að minnast, að Hermann var lengstum kirkjumálaráðherra, þegar hann var i rikisstjóm. Ekki gerði hann þar allt svo að öllum mætti lika fremur en neinum er ætlandi, en hann hafði skilning á hlutverki kristinnar kirkju i þjóðlifinu og mat það og sá skilningur var ná- tengdur almennum mannlifs- hugsjónum hans. Hann stóð að gerð nokkurra kirkjulegra laga og ráðstafana, sem horfðu til framfara, en rikast er mér i huga i þessu sambandi að minnast þess, að hann átti frumkvæði að þvi, að rikisvaldið hóf að láta til sin taka um endurreisn Skálholts og fórst stórmannlega i þvi efni, að þvi er til hans kom. Þessa var minnzt i þakkarhug á fyrstu prestastefnu samtimans i Skálholti á s.l. sumri og viður- kenning i ljós látin. Um einkalif mun annar ræða nú á eftir, en áður en ég skilst hér við, vil ég segja það, að minnisstæðastur er mér Her- mann Jónasson á sjúkrabeði, þegar ég kom þar og ljóminn breiddist yfir andlit hans. Hann mátti ekki mæla en augnatillit og yfirbragð sögðu meira en orð. Það var ekki bugaður kappi, sem hvildi þar, það var sigrandi sál, þrátt fyrir helgreipar, fastar og sárar. Þá sá ég Hermann mestan og bjartastan. Og það get ég borið að þeir sem hjúkruðu hon- um gleyma honum ekki, gleyma ekki þolinmæði hans undir þyngsta oki, þakklæti hans fyrir hvert viðvik, né hinni hlýju gleði frá hljóðum barmi. Og þeir sem minnast hans þannig sjá einnig fyrir sér i sömu andrá konuna styrku, Vig- disi, sem i sinni yfirlætislausu reisn bar þessi örlög með hon- um eins og öll önnur. Hún hafði verið gæfan hans mest i öllu lifi og bar þó frá um það, hver hún var honum i þvi langa og harða striði. Henni votta ég virðingu og þökk i nafni alþjóðar og þeirra góðu börnum, tengda- og barnabörnum. Drottinn blessi Hermann Jónasson og alla sem hann unni.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.