Tíminn - 30.01.1976, Blaðsíða 20

Tíminn - 30.01.1976, Blaðsíða 20
20 TÍMINN Föstudagur 30. janúar 1976. Sfílll GEOFF MERRICK MALCOLM MacDONALD Arsenal á höttunum eftir nýjum leikmönnum Forráöamenn Arsenal hafa sýnt mikinn áhuga á aö fá tvo af aðalmönnum Bristol City yfir á Highbury. Þeir segjast vera tilbúnir að borga 250.000 pund fyrir Geoff Merrick og Tom Ritchie, sem hafa verið burðarásar Bristol-liðsins í vetur, en eins og kunnugt er, er Bristol City nú í þriðja sæti i 2. deild, og á liðið góða möguleika á að komast í fyrstu deild að ári. Framkvæmdarstjóri City, höttunum eftir Tony Morley Alan Oicks, hefur sagt þvert nei við þvi, að þeir Merrick og Ritchie verði seldir til Arsenal, en Bristol er, eins og fleiri lið á Bretlandseyjum, i miklum fjár- hagserfiðleikum, og svo gæti farið að Dicks neyddist til að selja þá. Bertie Mee, fram- kvæmdastjóri Arsenal, hefur lýst yfir þvi, að hann ætli sér að kaupa a.m.k. einn góðan sóknarmann fljótlega, og hefur hann spurzt fyrir um Macolm MacOonald hjá Newcastle, en heyrzt hefur að hann sé óánægð- ur þar. Þegar MacDonald frétti að Mee væri á höttunum á eftir sér, hætti hann við fyrirhugaða húsbyggingu sina, meðan hann biður eftir þvi hvernig úr mál- um rætist. Arsenal hefur einnig verið á 21 árs leikmanni hjá Preston. Lundúnaliðið bauð 100 þús. pund i þennan unga og efnilega út- herja, og náðu félögin sam- komulagi um þá upphæð. Morley hélt til Lundúna glaður i bragði — en þegar hann var bú- inn að vera þar i tvo daga, sagði heimþráin til sin. Honum fannst, að hann gæti ekki yfir- gefið ættingja og vini i Orms- kirk i Lancashire. — Ég kann vel við mig hér á Highbury hjá Arsenal, en ég tek ekki áhætt- una, sem fylgir þvi að setjast að i Lundúnum — ef ég yrði ekki hamingjusamur þar, þá myndi það bitna á knattspyrnunni og ég myndi ekki leika vel, sagði Morley, þegar hann hélt aftur til Preston. Undrabarn til Everton — sem líkist George Best á hans Everton hefur nælt sér i írska undrabarnið yngrí Órum Martin Murray frá liðinu Home Farm. öll ensku fyrstu deildar liöin voru á höttunum eftir Murray, sem er aðeins 17 ára og mjög likt við George Best á hans yngri árum. Murray lct hafa það eftir sér í viðtali við irska sjónvarpið, aö hann heföi fengið tilboð upp á 12.000 pund frá ensku fyrstu deildar liði, en samkvæmt lögum enska knattspyrnu- sambandsins er ensku liðunum aðeins heimilt að greiða 250 pund til áhugamanna, þegar þeir skrifa undir samning. Þetta varð til þess, að enska knattspyrnusambandið hef ur neitaö að viðurkenna að Murray sé á skrá yfir leikmenn Everton, fyrr cn rannsókn hef- ur farið fram á greiðslum til hans, og verður ákvörðun i máli hans tckin 2. febrúar. Leikmenn Newcastle í vígahug — það var mikið sungið á St. James Park, þegar þeir skutu Coventry á bólakaf — 5:0 Það var mikið sungið I New- castle, og hinir tryggu áhangend- ur Newcastle voru I sjöunda himini á St. James Park — þar sem dýrlingar þeirra voru I vfga- Punktar • BOWLES TIL BELGÍU? LONDONKnattspyrnukapp- inn Stan Bowlcs, sem er á sölu- lista hjá Queens Park Rangers, hefur mikinn áhuga að leika með einhverju liði i Evrópu. Belgiska liðið Anderlecht hefur sýnt mikinn áhuga á Bowles — en eins og menn muna, þá vildi þetta fræga belgiska félag kaupa Rodney Marsh á sinum tima — en úr þvi varð ekki, þar sem Marsh fór fram á of miklar tekjur. • SIR ALF RAMSEY BIRMINGHAM. — Sir Alf Ramsey, fyrrum einvaldur enska landsliðsins, hefur gengið i lið með Birmingham. Sir Alf Ramsey hefur tekið sæti i stjórn félagsins. • CRYUFF TIL ÍTALÍU ÍTALIA.— ltalska meistaralið- íð Juventus hefur áhuga á, að kaupa hollenzka knattspyrnu- snillinginn Johann Cruyff, þeg- ar samningur Cruyff við spænska liðið Barcelona rennur út 30. júni i sumar. Italar hafa mikinn áhuga á, að opna markaðinn á ítatiu, fyrir er- lendum leikmönnum —-i sumar. Cruyff hefur sagt, að hann hafi mikinn áhuga að fara til ttaliu, til að hjálpa ttölum við að rétta við knattspyrnuna á ítaliu, sem hefur verið á niðurleið undan- farin ár. • EDDY TIL COSMOS SHEFFIELI). — Sheffield Unit- ed hefur samþykkt, að seija fyrirliða sinn — Keith Eddy — til New York Cosmos. Kcn Furphy, fyrrum framkvæmda- stjóri United-liðsins, sem var rekinn frá féiaginu i vetur, er nýr þjálfari Cosmos-liðsins — það var hann sem bauð Eddy að koma til New York, en Furphy keypti Eddy til Sheffield United 1972 frá Watford. hug, og hreinlega tættu leikmenn Coventry I sig. 44 þús. áhorfendur sungu sig hása — þegar leikmenn Newcastie hömruðu knöttinn 5 sinnum i netamöskva Coventry- liðsins, án þess að iiðinu tækist að svara fyrir sig. — Við erum ákveðnir i að vinna titil fyrir hina tryggu áhangendur okkar, sem eru þeir beztu á Bret- landseyjum, sagði Geoff Nulty, fyrirliði Newcastle-liðsins, sem er búið að tryggja sér farseðilinn á Wembley i deildarbikarkeppn- inni og stefnir sömu leið i bikar- keppninni. Malcoim MacDonald var á skotskónum — hann skoraði 2 mörk, en hin mörkin gerðu þeir Alan Gowling, Mick Burns og Tom Cassidy. Stoke-liðið vann sigur (1:0) yfir Manchester City i sögulegum leik á Victoriu-leikvellinum i Stoke. Bakvörðurinn Mike Pejic var rekinn af leikvelli i byrjun siðari hálfleiksins — fyrir að brjóta gróflega á Denis Tueart, sem er kominn úr ieikbanni. Þetta hafði engin áhrif á Stoke-liðið — þeir léku eins og þeir væru 12, en ekki \ JIMMY GREENHOFF...skoraði sigurmark Stoke. lOinn á, sagði þulur B.B.C. Þegar 10 min. voru til leiksloka — var einn leikmaður City-liðsins, Willis Donachie.rekinn af leikvelli, eftir brot á Jimmy Robertsson. Aðeins min. eftir það, skoraði Jimmy Greenhoff, fyrirliði Stoke, sigur- mark leiksins og leikmenn City sátu eftir með sárt ennið. En nú-skulum við lita á úrslit leikja i bikarkeppninni: MIÐVIKUDAGUR: Stoke — Man. City.......1:0 Newcastle — Coventry....5:0 ÞRIÐJUDAGUR: Wolves — Ipswch.........1:0 Charlton — Portsmouth....3:0 Bobby Gouid skoraði sigur- mark Úlfanna gegn Ipswich. Ips- wich-liðið átti meira i leiknum en liðinu tókst ekki að skora. Bobby Robson, framkvæmdastjóri Ips- wich, var fljótur að yfirgefa völl- inn — vonbrigðin leyndu sér ekki hjá honum. ANDRES I HLUTVERKI „SKUGGA" — var Idtinn elta Björn Pétursson. Það þoldi Gróttu-liðið ekki og FH sigraði 24:18 GRÓTTU-liðið brotnaði niður, þegar FH-ingar létu „skugga” elta Björn Pétursson — hinn skotfasta leikmann Seltjarnarness-Iiðsins, hvert sem hann fór. Staðan var 15:12 fyrir Gróttu, þegar FH-ingar létu Andrés Kristjánsson i ,,skugga”-hlutverkið — við það urðu hinir leik- menn Gróttu ráðvilltir og FH-ingar voru sterkari á lokasprettinum og sigruðu öruggiega — 24:18. Viðar Simonarson var drýgstur hjá FH-ingum i leiknum — hann skoraði lOmörk. Geir Hailsteinsson var einnig góður, hann verður allt- af betri og betri með hverjum ieik — og fer örugglega fljótlega að gefa kostásérilandsliðið. Björn Péturssonog Arni Indriðason — voru beztu menn Gróttu. Mörkin i leiknum, skiptust þannig: FH: — Viðar 10 (4 viti), Geir 6, Þórarinn 3 (1), Guðmundur Árni2, Sæmundur 1 og Arni 1. GRÓTTA: — Björn 6 (2),Hörður Már 5, Arni 3, Gunnar 2 og Magnús 2. ... IAN URE TIL FH Skotinn IAN URE — þjálfari FH- liðsins i knattspyrnu, er mjög ánægður með þær aðstæður, sem FH-ingar hafa upp á að bjóða. Urc, sem hefur lcikið með Dun- dee, Arsenal, Manchester United og skozka landsliðinu, hélt til Skotlands i morgun, eftir að hann hafði gengið frá samningi við FH- inga i gærkvöldi. Ure kom hér til aö ræða við FH-inga og kynnast aðstæðum og aðbúnaði hjá þeim.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.