Tíminn - 30.01.1976, Blaðsíða 9

Tíminn - 30.01.1976, Blaðsíða 9
Föstudagur 30. janúar 1976. TÍMINN 9 Séra Árni Pdlsson: „Vakið, standið stöðugir í trúnni, verið karlmannlegir, verið styrkir. Allt hjó yður sé í kærleika gjört" Kista Hermanns Jónassonar fyrrv. forsætisráöherra í kór Dómkirkj unnar. Kransinn viö gafl kistunnar er frá Rikisstjórn islands. Hermann Jónasson fyrrv. forsætisráöherra f. 25. des. 1896 d. 22. jan. 1976. (Texti Kór. 16. 3) Náð sé meö yður og friöur frá Guði föður vorum og Drottni Jesú Kristi. — Foringi er fallinn. Islenzka þjóðin minnist nú eins litrikasta stjórnmálamanns þessarar ald- ar, manns, sem hún valdi til for- ystu og treysti lengur og betur til þess að fara með mál sin á erfiðum timum, en nokkrum öðrum allt til þessa. Hann kveður nú saddur lif- daga eftir langt og strangt sjúk- dómstimabil, sem einkenndist af æðruleysi, þakklæti og hlýju til allra þeirra er hjúkruðu hon- um og léttu honum stundirnar. Þótt dauðinn sé þeim ávallt högg, sem næstir standa, og minni á hverfulleik jarðlifsins, þá rikir þó ekki sorg i þessu húsi nú heldur þakklæti og gleði yfir þvi, að hann'sem vér kveðjum, skyldi standast prófið allt til enda. Þvi koma orð postulans i hug- ann, er hann segir i lok bréfsins til safnaðarins i Korintuborg: „Vakið, standið stöðugir i trúnni, verið karlmannlegir, verið styrkir. Allt hjá yður sé i kærleika gjört.” Þessi hvatningarorð voru mælt til lýðs, sem bjó við ör- birgð og allsleysi, en hafði áður tekið trúna á Krist og fengið við það nýja lifssýn, nýjan þrótt. En alltaf var hætta á ferðum þegar andstreymi og harðrétti var að mæta og vildu þá margir gefast upp, guggna, koðna niður á reynslustund. Þvi ávallt er auð- veldara að gefa eftir og fylgja straumnum en standa gegn hon- um, að hætta við að vera karl- mannlegir, og styrkir og láta aðra um það. Þetta vissi for- ystumaður hinna trúuðu, sem leiddur var af anda Guðs, postulinn, sem ritaði eggjunar- orðin: „Vakið, standið stöðugir, verið karlmannlegir, verið styrkir”. Hver og einn skyldi persónulega opna hug sinn og hjarta fyrir Guði sem kraftinn gefur. Og siðan þessi orð voru rituð tala þau til vor allra trúaðra manna. Þau minna oss á að kristin trú byggir ekki til- veru sina á almennri lýðhylli einni, viðurkenningu á fögrum og sönnum boðskap eða þulu- lærdómi utan bókar. Trúin lifir og byggir á reynslu einstak- lingsins og hvernig hann um- breytist fyrir mátt Guðs og sýn- ir auðmýkt, þakklæti, karl- mennsku og kraft. Vér munum viðvörun Krists er hann talar um þá, sem taka við boðskapn- um með fögnuði, trúa um stund, en falla frá á reynslutima af þvi að þeir hafa ekki rót. Vér minnumst Hermanns Jónassonar, sem óx upp úr jarð- vegi rótgróinnar islenzkrar bændamenningar. Að honum stóðu sterkar ættir bænda úr Skagafirði og Svarfaðardal. Uppeldi hans, er varðar ytri að- stæður, var likt og alls þorra Is- lenzkra barna á þeim timum. Skort leið hann ekki, en allur munaður var óþekktur. Hann lærði snemma að vinna með systkinum sinum og var bráð- þroska. í bókinni „Islenzkar ljósmæð- ur” getur að lita merka frásögn af móður hans, Pálinu, sem var ljósmóðir i yfir hálfa öld. Þar er hennisvolýst: Hún varathugul, ráðsnjöll og handlagin, kát og hress og kunni ekki að hræðast. Þá lét hún brýnar þarfir eigin heimilis sitja á hakanum fyrir nauðsyn hins bágstadda og lét aldrei illviðri eða erfiða færð hefta för sina. Hún átti óhagganlega trú, og þakkaði gæfu I störfum þvi, að við hlið sér væri staðið af æðri máttar- völdum. Við kné slikrar móður tók Hermann út þroska sinn. Og þvi nefni ég þetta hér, að mér er sagt af kunnugum, að Hermann hafi likzt móður sinni mjög og borið lika skaphöfn og hún. Hann var staðráðinn i þvi, að leita sér menntunar, og hlifði sér I engu við að afla sér fjár i erfiðri sumarvinnu til þeirrar göngu. Hann hóf skólagönguna á Akureyri og lauk háskólaprófi I lögfræði árið 1924. Ari siðar gekk hann að eiga Vigdisi Stein- grimsdóttur úr Reykjavík og var þeim fjögurra barna auðið og lifa tvö þeirra. 1 hjónaband- inu eignaðist Hermann lifsföru- naut, sem skildi til hlitar starfs- skyldur hans, enda mat hann hana mikils. Þegar fyrir skólagöngu hafði Hermann kynnzt glimunni, þeirri rammislenzku iþrótt, og vann þar til æðstu verðlauna. Mótun hans öll, bæði I iþróttum og annarri mennt, var sótt i is- lenzka menningararfleifð. Hreysti og vit voru samtengd I huga hans og hann naut þeirrar gæfu, að fá hvort tveggja riflega gefið og kunni vel að efla og með að fara. Hermann var vel lesinn i bókmenntum þjóðarinnar og skáld 19. aldar voru honum töm á tungu, enda var hann sjálfur hagyrðingur góður. Af framansögðu er ekki að undra, þótt honum sæktist vel gangan á. stjórnmálabrautinni eftir að stefnan var tekin þang- að. Hann var kosinn alþingis- maður Strandamanna árið 1934 og þegar sama ár falin stjórnar- myndun, og varð yngstur for- sætisráðherra þjóðarinnar til þessa. Rikisstjórn Hermanns Jónassonar hafði ekki yfir að ráða miklu fé að deila lands- mönnum á verstu kreppuárum þessarar aldar. En stjórnvizka hennar kom berlega i ljós með ýmsum nýmælum, svo sem al- mennri lýðhjálp og heildar- skipulagi, er stuðlaði að jöfnuði meðal fólksins og nú þykir sjálf- sagt. Harka stjórnmálanna var taumlausari þá en nú og fróð- legt var að heyra Hermann segja frá hörkulegri andstöðu hagsmunahópa gegn afurða- sölulögunum, sem hann kom fram með árið 1934. Þau voru ekki aðeins sett til þess að bjarga bændum i sárri neyð, heldur juku þau skilning og sátt- fýsi milli framl. og neytenda. Hver viðurkennir ekki ágæti þeirra nú og reyndar löngu fyrr. — Þekktastur mun samt Hermann verða i sögunni fyrir einarða og viturlega af- stöðu gegn ásælni Hitlers- Þýzkalands um afnot af landinu fyrir heimstyrjöldina miklu. Var það mikil gæfa fyrir hann og þjóðina, að hann skyldi hafa svo glögga framsýni til að bera þá. 1 hans hlut kom einnig að gjöra vandasama samninga við stórveldi sem hernámu landið i stríðinu. Þar var einarðlega að staðið og af fullri reisn. ————— ■.______ Ráðherrar komast ekki hjá þvi, að verða fyrir röngum dóm- um almennings, fólks, sem hvorki þekkir málin né manninn, sem um þau fjalla og var Her- mann engin undantekning þessa. Það er einu sinni stærsti veik- leiki mannlegs eðlis, að dæma allt út frá sjálfum sér, eða eins og maður kýs sjálfur að vera. Skerðist hagur fárra fyrir til- verknað rikisvalds er ekki spurt: Hvers vegna? Heldur dæmt, jafnvel þótt slikt sé gert til þess að bæta hag margra manna. Vér þekktum stjórnar- athafnir Hermanns Jónassonar og þær munu þola birtu dag- anna. Hann gekk i fylkingar- brjósti þjóðar sinnar og stóð þar lengi. En hver þekkti manninn að baki stjórnmálunum? 1 hon- um sló viðkvæmt hjarta, sem fann til með þeim, sem bágt áttu, og oft titraði það af reiði yfir ranglætinu. Hann hafði sér- stakan næmleik fyrir fegurð og glæsileik Islenzkrar náttúru. Sjálfur ræktaði hann skóglendi hér i Fossvogi og upp i Borgar- firði sér til unaðar, og einnig vegna þess, að hann trúði á gróðurmátt moldarinnar. Hann þekkti raddir söngfuglanna og hlustaði eftir þeim, þótt enginn tæki eftir sem hjá honum stóðu. Islands er það lag, sem hann unni. „Verið karlmannlegir, verið styrkir. Allt hjá yður sé I kær- leika gjört”. Hermann fékk að reyna tim- ana tvenna. Þessi glæsilegi og hrausti leiðtogi tók þá veiki fyr- ir tæpum áratug, að hann varð undan að láta og falla niður á beðinn fyrir tæpum fimm árum siðan, þótt hann héldi nærri óskertum sálarkröftum allt til loka. Þessi ár urðu hvað ris- mesti kapítuli i lifi hans. Þá kom viljinn, sjálfsögunin og sjálfstjórnin hvað skýrast i ljós, þvi aldrei var bilbug á honum að finna, aldrei kvartaði hann. Þá opnaðist hjarta hans fyrir mörgum, sem áður voru honum ókunnir og vissu ekki hvaða mann hann hafði að geyma hiö innra. Fólkið rómaði sálarró hans, en hann þakkaði öllum af kærleika hjálpina við sig. Lengst af dvaldi hann á heimili sinu I návist frú Vigdisar, sem lofar nú Guð fyrir þann styrk, sem henni var gefinn, að geta hjúkrað ástvini sinum til hinztu stundar. Hún hlaut bænheyrsl- una — „Ó, faðir gjör mig styrk- an staf, að styðja hvern sem þarf”. — Þannig fékk hún að þjóna maka sinum, svo sem hún áður þjónaði þjóðinni við hlið hans. Fegurst er fórnarlundin og hin æðsta ræktun mannsins hér I heimi er aö gefa af sjálfum sér. Ganga fram af karlmennsku og styrk, en láta aðra njóta ávaxt- anna. Kæru vinir, frú Vigdis, Stein- grimur, Pálina, tengdabörn og barnabörn. Þið öll hafið mikið þegiö og hafið þvi mikils að sakna. En lofið Guð fyrir gæzku hans, og leyfið oss öllum að geyma með ykkur i minning- unni hina skæru og litriku mynd hins fallna foringja. Vér skulum svo sameina hugi vora i bæn til hans, sem gefur og tekur aftur og vakir yfir oss. — Almáttugi eilifi faðir. Þökk sé þér fyrir það, að þú lætur manninn vita um þig og þinn kærleiksrika heim og leysir hann úr viðjum sjúkdómsins og leiðir hann inn i þjáningarlaus- an heim miskunnar þinnar. Vak þú yfir ekkjunni og fyll hið tóma rúm af birtu þinni, blessa ástvini alla, þjóðina og fóstur- jörðina. Heyr þessa bæn i Jesú nafni. Amen.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.