Tíminn - 22.02.1976, Blaðsíða 3
Sunnudagur 22. febrúar 1976
TÍMINN
3
Þær vefa
dýrð í dúka
ORLOFSNEFND húsmæðra i
Reykjavik gekkst fyrir kvöld-
vöku að Hótel Sögu 17. þ.m.
Mætti þar mikill fjöldi kvenna
og fáeinir karlar i fylgd með
konum sinum.
Steinunn Finnbogadóttir,
formaður orlofsnefndarinnar,
stjórnaði samkomunni. Skýrði
hún I stuttu máli orlofslöggjöf
húsmæðra — og brugðið var upp
lýsingu á tilhögun orlofsdvalar
húsmæðra að Laugum i Dölum.
Einnig var þarna til skemmtun-
ar stuttur leikþáttur, upplestur
og ánægjulegur samsöngur,
sem Maria Markan blés sér-
stöku lifi i.
Þá gat Steinunn Finnboga-
dóttir þess, að eftir kaffihlé hæf-
ist merkasti hluti kvöldvökunn-
ar, sýning á framleiðsluvörum
Vefstofu Guðrúnar Vigfúsdótt-
ur, Isafirði. Væri orlofsnefnd-
inni mikil ánægja að þvi, að með
sýningu þessari gæfist tækifæri
til að sanna hve mikið væri enn
hægt að gjöra úr ullinni með
hugviti og hagleik — og minna
þannig á verðugan hátt á þann
mikla hlut, sem ullarvinnsla
húsmæðranna hefúr frá önd-
verðu átt i lifsafkomu þjóðar-
innar.
Guðrún Vigfúsdóttir, hús-
mæðrakennari hefur starfrækt
handvefnað á ísafirði i rúman
áratug. Hún flutti á undan sýn-
ingunni yfirlitserindi um starf-
semi Vefstofunnar, sem byrjaði
i smáum stll, en hefur vaxið
mjög að framleiðslu og fjöl-
breytni með árunum. Með auk-
inni tækni og listrænni hugvits-
semi hefur tekizt að aðlaga
vefnað Ur islenzkri ull svo full-
komlega að smekk og þörfum
nútímans, að margs konar
tizkufatnaður úr -ullarefnum,
sem Vefstofan á ísafirði fram-
leiðir — er nú mjög eftirsóttur
bæði á innlendum og erlendum
markaði. Frú Guðrún sagðist
hafa borið gæfu til að fá til
starfa góða vefara, sem virki-
lega væru færir um ,,að vefa
dýrð i dúka” eins og hún komst
svo skemmtilega að orði. HUn
minnti á þá miklu auðlind, sem
Islendingar ættu i ullinni, sem
væri einstök sinnar tegundar i
veröldinni — og þvi væru mögu-
leikarnir miklir, ef rétt væri að
staðið að stórauka útflutning á
handofnum vönduðum ullar-
fatnaði. Einfaldleiki vefstólsins
félli vel að þvi hlutverki að
skapa listræna gerð Ur þvi ein-
stæða lifandi efni, sem ullin
okkar væri i eigin litum.
Og svo varð sjón sögu rikari.
Þeir voru áreiðanlega margir,
sem hrifust af mynstri og áferð
glæsilegu samkvæmiskjólanna
af mörgum gerðum, sem þarna
voru sýndir — og efni þeirra
hárfint ofið úr islenzkri ull i
sauðalitum.
Kvöldvaka þessi var öllum
aðstandendum til sóma. Það
var lika ánægjulegt, að þessi
athyglisverða sýning á mögu-
leikum ullarinnar skyldi fara
fram i Bændahöllinni — og einn-
ig það að konur stjórnuðu þar,
og sýndu svo ekki verður um
villzt, að hægt er að eiga þarna
fjölmennt, ánægjulegt kvöld án
nokkurs áfengis.
Björn Stefánsson.
Slá, sem Guðrún Vigfúsdóttir
á ísafirði hefur ofið. — Tima-
mynd: GE
CROWN
Tæknilegar
upplýsingar
Magnari
6 — IC, 33 transistorar
22 dióður, 60 wött.
Útvarp:
Örbylgja: (FM) 88-108 megarið
Langbyigja: 150-300 kilórið
Miðbylgja: 520-1605 kflórið
Stuttbylgja: 6-18 megarið
Segulband
Hraði: 4,74 cm/s
Tiðnisvörun venjuiegrar kas-
ettu (snældu) er 40—8000 riö.
Tiðnisvörun Cr02 kasettu er
40—12.000 rið.
Tónfiökt og -blakt (wow &
flutter) betra en 0.3% RMS
Timi hraðspilunar á 60 mín.
spólu er 105 sek.
Upptökukerfi: AC bias, 4 rása
stereo
Afþurrkunarkerfi: AC afþurrk-
un
CROWN
FETI FRAMAR
60 vött — Sími 19-800
CROWN
Tæknilegar
upplýsingar
Plötuspilari:
Full stærð, allir hraðar, sjálf-
virkur eða handstýrður. Ná-
kvæm þyngdarstilling á þunga
nálar á plötu. Mótskantur mið-
flóttans sem tryggir litiö slit á
nál og plötum ásamt fullkom-
inni upptöku. Magnetískur tón-
haus.
Hátalarar:
Bassahátalari 20 cm af koniskri
gerð. Mið- og hátiðnishátalari
7,7 cm af kóniskri gerð.
Tiðnisvið: 40—20.000 rið.
OLL SAMSTÆÐAN
VERÐ 129.980
BUÐIRNAR HF.
Aukahlutir:
Tveir hátalarar
Tveir hljóðnemar
Ein Cr02 kasetta
FM loftnet
Stuttbylgju loftnetsvir
Tæki til hreinsunar á tónhaus-
um segulbands.
CROWN
Nóatúni - Sími 23-800