Tíminn - 22.02.1976, Blaðsíða 29
Sunnudagur 22. febrúar 1976
TÍMINN
29
Skáidsaga
íslenzks
höfundar
gefin út
á þrem
tungumálum
SJ—Reykjavik —Fyrir tveim ár-
um, gaf hiö kunna brezka útgáfu-
fyrirtæki Oxford University
Press út skáldsöguna Framtiðin
gullna (The Golden Future) eftir
Þorstein Stefánsson, sem búsett-
ur er i Kaupmannahöfn. Þor-
steinn er íslendingur og kom
þessi skáldsaga hans fyrst út á
dönsku fyrir rúmlega 20 árum.
Hlaut hann fyrir hana H.C. And-
ersens verðlaunapeninginn. Hún
kom siðar út á islenzku undir
nafninu Dalurinn. Þorsteinn end-
urskrifaði sjálfur bók sina á
ensku og hlaut hún mjög góðar
viðtökur. Fyrir skömmu kom
bókin aftur út á ensku og nú hjá
ThomasNelson Inc. i New York. í
sumar kemur Framtiðin gullna
eða Dalurinn út i þýzkri þýðingu
hjá Verlag Herder i Freiburg.
Sporvaqninn
Girnd
sýndur áfram
SIÐASTA sýning Þjóðleikhússins
á Sporvagninum Girnd eftir
TennesseeWilliamsátti að vera á
laugardagskvöldið. Vegna mikill-
ar aðsóknar að leikritinu, sem
sýnthefur verið 25 sinnum frá þvi
i haust og vegna veikinda hefur
leikáætlun leikhússins verið
breytt og ákveðið að sýna Spor-
vagninn áfram enn um sinn. Ráð-
gert hafði verið aö hefja að nýju
sýningar á Silfurtúnglinu eftir
Halldór Laxness, en það var
frumsýnt á 25 ára afmæli leik-
hússins i fyrravor og sýnt til loka
leikárs. Vegna veikindaforfalla
verður ekki af þeim sýningum á
þessu leikári og verða þvl nokkr-
ar sýningar i viðbót á Sporvagn-
inum. Með aðalhlutverk i sýning-
unnifara Þóra Friðriksdóttir, Er-
lingur Gislason, Margrét Guð-
mundsdóttir og Róbert Arnfinns-
son. Leikstjóri Sporvagnsins er
Gisli Alfreðsson. Næsta sýning á
Sporvagninum verður föstudag-
inn 27. febr.
Sauðárkrókur:
ÓVIST
HVAÐ GERT
VERÐUR
VIÐ AFLA
TOGAR-
ANNA
gébé-Rvik. — Togararnir þrir
sem gerðar eru út frá Sauðár-
króki, Drangey, Skafti og Hegra-
nes, fóru aliir á veiöar rétt fyrir
verkfall, en allt er i óvissu hvað
gert verður við afla þeirra, þegar
þeir koma aftur, sagöi Guttormur
Óskarsson fréttaritari blaðsins i
gær. Verkalýðsfélögin eru öli i
verkfalli, en verkfailsins er þó lit-
ið farið að gæta hér enn, þó er
mjólk á þrotum i búðum.
— Það fer að koma að þvi að
bændur neyðist til að hella mjólk-
inni niður, sagði Guttormur, en
mjólkurframleiðsla þeirra, sem
hefur verið i lágmarki eins og
venjulega á þessum árstima, fer
að aukast úr þessu. Bændur geta
ekki geymt nema takmarkað
magnaf mjólk vegna þess að þeir
hafa ekki það marga brúsa.
Verzlanir eru allar opnar á
Sauðárkróki enn, en verkfall
hefur verið boðað i verzlunar-
mannafélaginu frá og með 26.
februar.
SVALUR