Tíminn - 22.02.1976, Side 19

Tíminn - 22.02.1976, Side 19
Sunnudagur 22. febrúar 1976 TÍMINN 19 Biblíudagur íslenzku kirkj- unnar er í dag 1 tilefni Bibliudagsins n.k. sunnudag, birtasthérmyndir frá guðsþjónustu á Bibliudaginn 1975 i Filadelfiukirkjunni i Reykjavik, en þar predikuðu Sigurbjörn Einarsson biskup og forseti Hins isl. bibliufélags og Einar Gisla- son, forstöðumaður Filadelfiu- safnaðarins og stjórnarmaður Bibliufélagsins. í framhaldi af guðsþjónustunni var haldinn, i rúmgóðum fundarsal byggingar- innar, 160. aðalfundur Hins isl. bibliufélags. Um 100 manns sátu þennan afmælisfund, sem var merkur og uppbyggilegur tima- mótafundur, þar sem almennar umræður fóru fram um daglegan lestur og lif i ljósi bibliunnar. A þessum fundi fékk Bibliufélagið frá Filadelfiumönnum stærstu BIBLlU-pöntun sem félaginu hefur borizt i 160 ár, en það var pöntun á biblium fyrir kr. 1.000.000.00. Með þessar bibliur fóru Filadelfiumenn um allt landið og I ágústmánuði s.l. mátti lesa meðal aðalfrétta eins dag- blaðsins: „Roksala á biblium á hringveginum”. Og Filadelfiu- menn seldu bibliur fyrir mílljón — og meira til, þeir fengu viöbót hjá Bibliufélaginu fyrir 800 þús. kr. Og þeir voru ekki einir að verki, þvi GIDEONFÉLAGAR — kristnir verzlunarmenn — dreifðu yfir 5 000 biblium og Nýja testa- mentum um landið 1975 og héldu þá jafnframt upp á 30 ára afmæli sitt með móti i Skálholti, en þar komfram að félagið hafði á 30 ára ferli sinum dreift um landið rúmlega 123 þúsund bibliubókum, þ.e. heilum biblium, Nýja testa- mentum og einstökum bibliurit- um. En ekki er nóg að biblian sé tn i bókaskaþum landsmanna, hana þarf að lesa og boðskapur hennar þarf að fá tækifæritil aö vinna sitt nýsköpunarverk i hugum og hjörtum landsmanna. Og — ört vaxandi áhugi er nú aftur fyrir lestri Ritningarinnar. Bibliu- lestrarhópum fjölgar nú mjög i skólum og söfnuðum kirkjunnar og um slika bibliulestrarhópa á sérstaklega að ræða á ársfundi Hins isl. bibliufélags, sem verður að þessu sinni i safnaðar- heimilinu i Hallgrimskirkju á sunnudaginn, I framhaldi af guðs- þjónustu á vegum Hins isl. bibliu félags i kirkjunni, er hefst kl. 14, en þar mun prófessor Björn Magnússon predika, en hann hefur árum saman starfað með þýðingarnefnd HIB að endurþýð- ingu Nýja testamentisins á is- lenzku, en til kynningar þvi verki hefur biblíúfélágið' á síöustu ár- um gefið út guðspjöll MATTEUSAR, MARKÚSAR og LÚKASAR i hinni nýju þýðingu. Starfsemi bibliufélagsins verð- ur að venju kynnt við guös- þjónustur i kirkjunum á bibliu- daginn n.k. sunnudag, og þar gefst kostur á að styrkja starf- semi þess með fjárframlögum. Arsfundur félagsins i Hallgrims- kirkju á sunnudaginn er einnig öllum opinn, sem kynnast vilja betur þvi starfi sem unnið er að útbreiðslu og daglegri notkun hinnar einstæðu bókar. Konurnar i kvenfélagi Hallgrimskirkju munu sjá fundarmönnum fyrir sidegiskaffinu i kirkjunni á sunnudaginn. Aðalfundur Slysavarnafélagið Ingólfur, heldur aðal- fund sinn miðvikudaginn 25. febrúar kl. 20 i Gróubúð við Grandagarð. Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin. AAannréttindi í Uruguay fótum troðin Alvaro Balbi, hét þessi maður sem hér sést meö börnum sinuin. Hann var handtekinn I júli 1975 fyrir að vera meðiimur i kommúnistaflokknum og tveim dögum siðar var fjölskyldunui fært lik hans, sem bar greiniieg merki pyndinga, en opinberiega var sagt aö hann hefði látizt i astma-kasti. gébé—Rvik — Amnesty Inter- national hefur hafið mjög við- tæka herferð i sextiu þjóölönd- um gegn pyndingum og mann- réttindabrotum I Uruguay. Her- ferð þessi er að mestu leyti fólg- in i þvi, að ræðismönnum, og sendiherrum Uruguay I þeim löndum sem eru aðilar að sam- tökunum, er afhent mótmæla- orðsending. Þá er safnað undir- skriftum, og samþykktar álykt- anir sem sendar verða ráða- mönnum I Uruguay. AI telursig vita með vissu um 22 menn, karla og konur, sem hafa látið lifið af völdum pyndinga I fang- elsum I Uruguay. Ráðamenn þar neita hins vegar, að slikt eigi sér stað og einnig neita þeir að leyfa rannsóknarnefnd frá Amnesty að koma til landsins til að kanna ástandið I málum þessum. Uruguay er aðildarriki aðSameinuðu þjóðunum og hef- ur undirritaö mannréttindayfir- lýsingu þeirra og samþykkt yf- irlýsingar Sþ no. 3452, þar sem eru mjög ströng ákvæði um hvers konar pyndingar og refs- ingar við brotum á þeim. — Island og Uruguay hafa svo til engin samskipti, sagði Hilm- ar Foss, formaður íslandsdeild- ar Amnesty International á fundi meö blaðamönnum, ný- lega, engir millirikjasamn- ingar né viðskiptasamningar. Það eina sem þessi tvö riki eiga sameiginlegt er að þau eru bæði aðilar að Sameinuðu þjóðunum. Ræðismaður Uruguay á Islandi er Hjalti Björnsson stórkaup- maður og veitti hann móttöku mótmælaorðsendingu frá Is- landsdeild Amnesty úr hendi þeirra Hilmars Foss og Inga Karls Jóhannssonar gjaldkera samtakanna. Tók hann þeim vel og lofaði að koma orðsending- unni áleiðis til Montevideo. I Uruguay er borgaralegur forseti, Bordaberry, að nafni og fer hann meö daglegan rikis- rekstur i landinu ásamt ráð- herrum sem hann velur að vild. Forsetinn er einnig yfirmaður öryggisráðs rikisins en i þvi sitja nokkrir valdir ráðherrar og yfirmenn hersins. 1 raun og veru er það herinn sem hefur töglin og hagldirnar i landinu. Löggjafaþingið var leyst upp sumarið 1973, og 25 manna rik- isráð skipaö i staðinn sem virö- ist allsráöandi. En frá þvi að þingið var leyst upp, hafa ibúar landsins búiö við hreina ógnar- stjórn. Allir flokkar voru bannaðir, nema kristilegir demókratar og eru menn dæmdir i 2-8 ára fangelsi fyrir það eitt að hafa veriö félagar i þeim. Forystumenn flokkanna sættu hörðum ofsóknum en sumum tókst aö flýja land en aörir voru handteknir. Samtim- is voru öll verkalýðsfélög bönn- uð og forystumenn þeirra of- sóttir, fangelsaöir án dóms og laga og pyntaðir. Amnesty Inteinational styður ákæru sina gegn skoðanakúgun i Uruguay með þvi að birta nöfn 22 karla og kvenna sem Amnesty telur að hafi látizt af völdum pyntingamanna i Uru- guay á timabilinu frá þvi i mai 1972 til nóvember 1975. Amnesty hefur hins vegar fregnað, að tveir hafi bæzt við listann siðan. Ýmis konar pyntingaraðferð- um er beitt. Þannig eru menn settir klofvega á egghvassa stöng, sem ruggað er, látnir standa kyrrir timum saman matar- og vatnslausir með poka yfir höfðinu, brenndir með vindlingum, gefinn rafstraumur og þá sérstaklega i tilfinninga- næma likamshluta, nær drekkt i óhreinu vatni, kæfðir i plastpok- um, látnir liða hungur og þorsta, meinað um svefn, gefin deyfilyf og ofskynjunarlyf og beittir ýmsum sálrænum pynt- ingum. Föngunum er haldið i yfirfull- um fangahúsum, lögreglustöð- um og herbúðum, þar sem oft vantar brýnustu nauðsynjar. Þar er beitt herlögum og traðk- að á rétti hvers manns. Þótt kommúnistar virðast helzti • skotspónn yfirvalda, hafa fórn- ardýr einnig verið úr hópi sósialista, kristilegra lýðræðis- sinna og félaga tveggja hasgri flokka. Þann mánaöartima sem i hönd fer, mun AI vinna að ein- hverjum viðamestu aðgerðum sinum á alþjóðasviði til að vekja athygli heimsbyggðarinnar á pyntingum og öðrum brotum gegn mannréttindum i Uruguay. Dreift er áskorunar- skjali uni óháða rannsókn á of- beldi Uruguaystjórnar. Þá sendu samtökin listann yfir pyntuðu mennina 22 til Borda- berry forseta i desember s.l. og beiddist leyfi að óháð rannsókn færi fram, en ekkert svar hefur borizt. Annar tilgangur herferðar- innar er sá, að koma af stað um- ræðum um vandamál þessi við sem flesta embættismenn i Uruguay og það þrátt fyrir rikj- andi ritskoðun. I þeim tilgangi skrifa Amnestyfélagar um viða veröld einstökum hernaðaryf- irvöldum og borgaralegum stjórnvöldum með það fyrir augum, að þeim verði kynnt hverjar áhyggjur heimsbyggðin hefur af þessum málum og þær vonir sem menn gera sér um að grundvallar mannréttindi verði tafarlaust virt á ný að þvi er þegna Uruguay varðar. Félagar Amnesty i 60 löndum taka þátt i herferð þessari en einnig er leitað stuðnings fjöl- margra annarra einstaklinga og stofnana, þ.á.m. starfsstétta, kirkjufélaga, verkalýðssam- taka, verzlunarmanna, kenn- ara, námsmanna, þingmanna og blaðamanna.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.