Tíminn - 09.03.1976, Blaðsíða 2

Tíminn - 09.03.1976, Blaðsíða 2
2 TÍMINN Þriöjudagur !). marz l!)7(i AAaður drukknar á Akureyri K.S.—Akureyri. — Það slys varð á Akureyri um helgina að 24 ára gamall maður ók fram af bryggjunni á Oddeyrartanga og drukknaði. Maðurinn hét Geir Elfar Halldórsson til heimilis að Furulundi 10 M Akureyri. Hann lætur eftir sig konu og eitt barn. Geir Elfar fór að heiman frá sér á eigin bifreið kl. 21,30 á laugardagskvöldið, en þegar hann var ekki kominn heim á sunnudagsmorgun var hafin eftirgrennslan og tóku félagar úr hjálparsveit skáta þátt i leit- inni. Siðar um daginn bættust félagar úr Björgunarsveitinni á Akureyri i hóp leitarmanna og var leitað án árangurs. 1 gær var leit haldið áfram og um kvöldmatarleytið i gær- kvöldi fannst lik mannsins i bifreiðinni fyrir framan bryggj- una á Oddeyrartanga. Húsfyllir á bók- mennfakynningu VS-Reykjavik. — A sunnudaginn gekkst Mál og menning fyrir kynningu á verkum Ölafs Jó- hanns Sigurðssonar i Norræna húsinu af tilefni þess, að hann hefur nylega veitt viðtöku bók- mennta verðlaunum Norður- landaráðs, eins og alkunna er. Þorleifur Einarsson, formaður Máls og menningar setti sam- komuna, en siðan hófst eftirfar- andi dagskrá: Gisli Halldórsson las ljóð eftir Ólaf Jóhann, Vésteinn Ólason flutti erindi, sem hann nefndi Ólafur Jóhann Sigurðsson og verk hans, Þorleifur Hauksson las ljóð, Þórarinn Guðnason læknir las kafla úr Hreiðrinu, Edda Þórarinsdóttir las ljóð, Karl Guð- mundsson las kafla úr Gangvirk- inu, og loks las Ólafur Jóhann Sigurðsson nokkur ný ljóð eftir sig. Samkomusalur Norræna húss- ins var þéttsetinn, margt manna var i bókasafninu, sem er beint framhaldaf samkomusalnum, og þurftu margir að standa. Sam- koman fór hið bezta fram i' alla staði, og fögnuður samkomugesta leyndi sér ekki. Að lokum voru Ólafi Jóhanni Sigurðssyni færð blóm. Ormar Þór Guðmundsson kynnir teikningarnar að væntanlegri félagsmiðstöð Árbæinga.með honum á myndinni eru Örnólfur Hall, Valdis Bjarnadóttir, Ilinrik Bjarnason og Davíð Oddsson. Timamynd Ró- bert. 70-80 milljóna króna félags- miðstöð í Árbæjarhverfi — framkvæmdir eiga að hefjast á þessu ári SJ—Reykjavik. — í miðju hússins verða skábrautir i stað stiga, sem tryggja bækluðum greiða leið um húsið. Þessi umferðarleið frá austri til vesturs er með glerþaki, sem ris eins og kambur upp úr húsinu, og Ijær húsinu sérkenni. Þarna verður mjög bjart að degi til, en i myrkri mun þessi iýsandi kambur setja svip á umhverfið. Svo fórust Ormari Þór Guð- mundssyni arkitekt orð á blaða- mannafundi, þar sem kynnt var Dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi Gsal-Reykjavik — Ólafur St. Sigurðsson, héraðsdómari i Kópavogi hefur kveðið upp dóm i máli Þórarins Levy Bjarnasonar fyrir brot á skirlffislöggjöfinni Akærði var dæmdur i tveggja og hálfs árs fangelsi og kemur gæzluvarðhaldsvist hans frá 4. ágúst 1975 með fullri dagatölu til frádráttar refsingu. Þá er ákærða gert að greiða allan kostnað sakarinnar. Akærur á hendur Þórarni eru i 18 liðum og varða jafnmarga unga pilta, sem hann tældi til fylgilags við sig með áfengi og peningum. Steinþór Marinó Gunnarsson á sýningu sinni að Kjarvalsstööum Steinþór Marínó sýnir í Keflavík SJ—Reykjavik — Steinþór Mari'nó Gunnarsson opnaði mál- verkasýningu i Iðnaðarmanna- húsinu i Keflavik á laugardaginn. 45 verk eru á sýningunni, oliu- málverk, lágmyndir og vatnslita- myndir. Steinþór málar einkum stilfærðar landslagsmyndir frá Reykjanesi. Þetta er ellefta einkasýning Steinþórs Marinós Gunnarssonar. Hann sýndi siðast á Kjarvalsstöð- um i ágúst i sumar. Hann hefur tvivegis sýnt verk sín i Noregi. Sýningin verður opin kl. 6-10 daglega, en kl. 4-10 á laugardag og sunnudag. Halastjarnan sést greinilega þessa viku, ef heiðskírt er SJ-Reykjavik Er umboðsmaður Timans i Garðabæ, Sigriöur Sigurbjarnardóttir, var á ferð snemma á laugardags morgun, sá hún halastjörnu mjög greinilega i suðaustur átt. Hún sagði, að sér hefði virzt i fyrstu sem um stjörnuhrap. væri að ræða, en lialastjörnunni lýsti hún þannig, að hún hefði verið mjög skær, og svo hefði virzt sem Ijós- strókur stæði upp úr henni. Sig- riður fylgdist með halastjörnunni milli kl. 6,15 og «,:!<) á laugardags- „Skeiðfoss" kominn hingað fil lands N'ú er m/s ..Skeiösfoss” sem Eimskipafélag Reykjavíkur hefur nýlega eignazt, kominn til landsins. Skipið er smiðað árið 1967 hjá skipasmiðastöðinni C. Ltihring i Brake. Skipið er smiðað úr stáli samkvæmt ströngustu kröfum Germanischer Lloyds og styrkt til siglinga á is. Það er smiöað sem hliföarþilfarsskip og er 774 brúttó tonn að stærð. D.W. 1500 tonn. Tvær vörulestar eru i skipinu samtals 110 þúsund teningsfet. Ganghraði er um 19,5 sjómilur. Skipið kom til landsins með fullfermi af vörum frá Þýzka- landi og Noregi. Skipstjóri á m/s „Skeiðsfoss” er Atli Helgason og yfirvélstjóri er Jóhann Vigfússon. morgun, en þá var heiðskirt i austurátt, þótt skýjað væri að öðru leyti. Hér er um að ræða halastjörnuna West, sem nefnd er eftir Bandarikjamanni, er fyrstur uppgötvaði liana i ágúst i fyrra. Þo r s t e i n n Sæmundsson stjörnufræðingur hjá Raunvis- indastofnun sagði i gær, að hala- stjarnan væri að dofna. en sæist þó enn ágætlega með berum aug- um. A mánudagsmorgun kom hún upp kl. tæplega fimm. L'm sexleytiö var hún i austri. Þor- steinn sagði, að halastjarnan væri á við bjarta stjörnu og halinn sæ- ist greinilega. Hún er búin að fara fram hjá sólu, og var þá bjartari og meira áberandi en reiknað hafði verið með. Halastjarnan kemur upp i ausl- norðaustri og á að sjást greini- lega með berum augum fram eft- ir mánuðinum, eða a.m.k. þessa viku, ef veöur leyfir, og lengur með sjónauka. Ilún kemur upp heldur fyrr að morgninum með hverjum deginum sem liður. ný Jélagsmiðstöð, sem áætlað er að byggja i Arbæjarhverfi á þessu ári og þvi næsta, og samkvæmt bráðabirgðaáætlun kemur til með kosta 70-80 milljónir króna. Úr kaffistofu hússins verður út- sýni niður að Elliðaánum og i átt til miðborgar Reykjavikur. A meginhæð hússins er ætlaður staður fyrir gróðurskála, sem arkitektarnir töldu ekki óeðlilegt i samkomuhúsi i borg hitaveitunn- ar. 1 húsinu verða m.a. sam- komusalur með svölum, leikja- salur og herbergi fyrir föndur og fundi. I óráðstafaða hlutanum er gert ráð fyrir að koma megi upp aðstöðu til viðgerða á hjólum og bátum, eða til annarrar grófrar vinnu. Um 4000 ibúar eru nú i Árbæjarhverfi og gert er ráð fyrir að þeir verði 6000 siðar. Æskulýðsráð Reykjavfkur samþykkti 19. nóvember 1974 til- lögu frá formanni ráðsins, Davið Oddssyni, þar sem lagt er til við borgaryfirvöld að hafizt verði handa um byggingu félagsmið- stöðvar i Arbæjarhverfi. Var sið- an ætlað nokkuð fé til hönnunar og framkvæmda á fjárhagsáætl- un 1975, og á miðju ári 1975 var arkitektunum Ormari Þór Guð- mundssyni og örnólfi Hall falið að hanna bygginguna, eftir að borgarstjórn hafði samþykkt að félagsmiðstöðinni skyldi ætlaður staður við Rofabæ næst fyrir vestan Árbæjarskóla. Teikningar þær, sem nú liggja fyrir voru samþykktar i æskulýðsráði og borgarráði i janúar og febrúar 1976. I Arbæjarhverfi hafa undan- farin ár farið fram miklar umræour um télagslega aðstöðu i hverfinu. Félagsmiðstöðinni i Arbæ er ætlað að vera samastaður fyrir félagslif i hverfinu. Félög munu fá þar inni fyrir samkomur, fundi og fræðslustarf. Borgarstofnanir, sem það hentar, munu og geta haft framboð á starfi i félagsmið- stöðinni, svo sem námsflokkar, starf fyrir aldraða o.fl. Æskulýðs- ráð Reykjavikur verður þar siðan með eigið starf. Þá er sérstök að- staða fyrir skátastarf i húsinu. Alls er gólfflötur félagsmið- stöðvarinnar áætlaður 788 ferm. auk 210 ferm óráðstafaðs rýmis i kjallara . Miðja hússins frá austri til vesturs er umferðarleið, sem einkennist af skábrautum i stað venjulegra stiga. Með brautunum er tryggt að allir eigi greiða leið um húsið, hvort sem þeir eru i hjólastólum, bæklaðir eða heilbrigðir. Jafnframt gera brautirnar flutninga á tækjum og búnaði auðveldari, Hið opna miðrými á einnig að stuðla að þvi, að auðvelt sé fyrir gesti að verða sér meðvitandi um það hvað sé á seyði i einstökum vistarverum. Helztu húsnæðiseiningarnar eru hins vegar afmarkaðar á pöllum, og geta þvi notazt algerlega hver fyrir sig, eða tengdar öðrum ef óskað er. Utandyra liggur lóð hússins að leikjasvæði skólans, og tengist útivistarsvæði þvi, er nær niður að Elliðaám og austur á iþróttavöll. Heildarf latarm ál hússins verður tæplega 790 fermetrar. Arkitektar að húsinu eru örnólfur Hall, Ormar Þór Guðmundsson og Valdis Bjarnadóttir. Slitnaði upp úr viðræðum — undirmenn á minni skuttogurum óánægðir með skiptaprósentuna gébé Rvik — Málinu hefur verið vlsað til sáttasemjara, sagði Sig- finnur Karlsson, formaður Al- þýðusambands Austurlands, um samningaviðæður vegna verk- falls undirmanna á minni skut- togurunum. Sigfinnur sagði að slitnaö hefði upp úr viðræðum við útvegsmenn s.l. laugardag og siðan hefði enginn fundur verið haldinn. Undirmenn á minni skuttogur- unum eru mjög óánægðir með skiptaprósentuna, en skipin fóru þó öll út í lok siðustu viku eftir að verkfalli hafði verið frestað i 10 daga, en þá koma togararnir aft- ur að landi. Ef samkomulag hefur ekki náðst innan þess tima, fer allur flotinn fyrir austan i verk- fall. Um miðjan dag i gær, hafði engin ákvörðun verið tekin um samningafund, en sáttasemjari mun vilja fá viðkomandi aðila til sáttafundar i Reykjavik'. Skipt um sóló- dansara í kvöld Ikvöld (þriðjudagskvöld) verð- ur önnur sýning á listdönsum þeim, sem frumsýndir voru i Þjóðleikhúsinu I siðustu viku við mikla hrifningu áhorfenda. I sýn- ingunni i kvöld er skipt um sóló- dansara i nokkrum hlutverkum: Guðmunda H. Jóhannesdóttir dansar stúlkuna i Dauðanum og stúlkunni á móti Erni Guð- mundssyni, i Þyrnirósu dansa hlutverk Áróru þær Ingibjörg Pálsdóttirog Asdis Magnúsdóttir. Aðrir sólódansarar eru Guðrún Pálsdóttir, Nanna ólafsdóttir, Auður Bjarnadóttir, ólafia Bjarnleifsdóttir, Helga Bernhard og Randver Þorláksson.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.