Tíminn - 09.03.1976, Qupperneq 6
6
TÍMINN
Þriðjudagur 9. marz 1976
Nærrí níutíu nemendur úr Gagnfræðaskólanum á
Akureyrí heim-
sækja Reykjavík
HHJ—Reykjavik. — Um helgina
voru í Reykjavik góöir gestir
l'rá Akureyri. Það eru tæplega
niutiu nemendur úr fjórða bekk
Gagnlræðaskólans á Akureyri,
sem hér eru á ferðalagi ásamt
nokkrum kennurum og Haraidi
Sigurðssyni skólastjóra.
Nemendurnir skoðuðu Alþingis-
húsið, fóru i heimsókn I útvarp og
sjónvarp, og brugðu sér i Þjóð-
leikhúsið, svo að nokkuð sé nefnt
A föstudaginn hélt Vilhjálmur
Hjálmarsson menntamálaráð-
herra boð fyrir Akureyringana.
Þar ræddi menntamálaráðherra
við nemendurna um störf
Alþingis og ráðuneyta og gerði
sésti..va grein fyrir gangi mála i
þvi ráðuneyti, sem hann veitir
forstöðu. Þá ræddi hann um
skólamál almennt og sagði
nemendunum m.a. frá þvi, að nú
starfaði nefnd, sem kannaði hvort
taka bæri setuna upp að nýju.
Villijálmur spurði þá m.a. að þvi,
hvort þeir vildu taka setuna inn
að nýju, og þá kvað við samfellt
nei frá hópnum, svo að lfklega
álita þau réttritunina auðveldari
án hennar.
Menntamálaráðherra ræðir skólamálin við nemendurna.
A rabbi viö nemendurna.
Ökukennarar bjóða
ókeypis fræðslu
ökukennarafélag Islands hefur
ákveðið að bjóða félögum og
starfshópum kost á umferða-
fræðslu er.durgjaldslaust. Vill
félagið þannig sýna viðleitni sina
i þvi að byggja upp betri um-
ferðarmenningu. ökukennara-
félagið getur boðið upp á aðstöðu
til slikra funda fyrir um 40 manns
i einu.
Einnig vill félagið gefa þeim,
sem óska eftir, kost á að halda
slika umferðarfræðslu i húsa-
kynnum starfshópaeða félaga, og
kemur þá með fræðslugögn á
staðinn og þá á þeim tima dags
sem óskaö er. Miðað er við að
þessi fræðsla standi yfir I eina
klukkustund.
öllum, sem óska eftir, er boðið
að taka þátt i vikulegum fræðslu-
námskeiðum ökukennarafélags
Islands, sem fara fram á þriðju-
dags- og fimmtudagskvöldum kl.
20-23. Þátttökugjald þar er kr.
1.400.-. Þessi námskeið eru ætluð
til undirbúnings ökunema til öku-
prófs, en eru engu að siður hagnýt
fyrir alla unga sem aldna.
Upplýsingar eru veittar i sima
83505, mánudaga, þriðjudaga og
fimmtudaga frá kl. 17-19.
Norðurlandasamband öku-
kennara hélt stjórnar- og full-
trúafund i Vasa i Finnlandi dag-
ana 8.-10. október 1975. Mörg mál
voru á dagskrá, þ.á,m. samræm-
ing ökukennslu á Norðurlöndum,
kennsluaðferðir, endurnýjun öku-
skirteina, ökukennsla i hálku,
myrkri og þjóðvegaakstri, leiöir
til slysavarna og mörg fleiri mál
voru á dagskrá. ökukennarafélag
tslands er aðili að sambandinu.
Fulltrúar Islands á þinginu voru
Jón Sævaldsson og Jóhann Guð-
mundsson. Þeir eru i stjórn og
fulltrúaráði Norðurlandasam-
bands ökukennara.
Nemendurnir á tröppum ráðherrabústaðarins, ásamt kennur
Vilhjáimi Hjáimarssyni menntamáiaráðherra.
um, Haraldi Sigurðssyni skólastjóra og
Margt bar á góma, þegar gagnfræðaskólakrakkarnir ræddu skólamálin viö menntamálaráðherra.
Tímamynd Gunnar.
Menn gæddu sér ósleitilega á kökunum