Tíminn - 09.03.1976, Page 24
Þriöjudagur 9. marz 1976
J
V.
METSÖWBÆKUR
Á ENSKU í
VASABROTI
SÍS-IOIHIR
SUNDAHÖFN
fyrirgódan mai
$ KJÖTIÐNAOARSTÖÐ SAMBANDSINS
Spánn:
Enn einn
drepinn
Allsherjarverkfall í Baska-
héruðunum í gær
Reyndu að
ræna eigin
ráðherra
Reuter Cairo.- Rikissaksóknari
Egyptalands upplýsti i gær að
stjórnvöld i Libiu hefðu reynt að
ræna sinum eigin utanrikisráð-
herra og einum öðrum hátt-
settum embættismanni sinum i
Egyptalandi, eftir að þeir
neituðu að snúa aftur heim
þaðan.
Yfirvöld öryggismála segja
að samsærið hafi meðal annars
falið i sér tilraunir til að myrða
mennina, ræna þeim og fremja
skemmdarverk i Egyptalandi.
Er talið að þetta muni þvinga
mjög samskipti landanna
tveggja.
Upp komst um samsæri þetta
eftir handtöku sjö hermanna úr
her Libiu i Cairó og yfirheyrslur
yfir fyrrverandi utanrikisráð-
yerra Túnis, Mohammed Al-
Massmoudi, sem sagður er
náinn vinur leiðtoga Libiu,
Muammar Gaddafi.
Utanrikisráðherrann, Abdel
Moneim, og hinn embættismað-
urinn, Omar Meheishi, voru
báðir meðlimir byltingarráðs
Libiu, sem kom Gaddafi til
valda árið 1969.
Talsmaður rikissaksóknara
Egyptalands sagði að Mass-
moudi, sem látinn var laus i
gær, hefði viðurkennt að hafa
komið til Cairó til að reyna að fá
embættismennina tvo til að
snúa aftur heim.
Sagöi hann þá hafa neitað þvi
og þess vegna hefði stjórn Libiu
reynt að beita vald.
Liðhlaupar
í Líbanon
Reuter, Beirut. —Liðhlaupar úr
her Libanon yfirbuguðu i gær
stórskotaliðsvigi aðeins sex
kilómetra frá landamærum
ísraels, vel innan skotmáls frá
herstöðvu’m fsraelsmanna.
Aðgerðir þessar sköpuðu
mikla hættu á þvi að bardagar
gætu brotizt út nálægt Gólan-
hæðum, án þess að yfirvöld i
Sýrlandi og Libanon gætu að
gert.
Talsmenn hersins segja, að
liðhlauparnir hafi verið úr hópi
stu ðningsmanna Ahmed
Al-Khatib, liðþjálfans, sem var
leiðtogi uppreisnarinnar i her
Libanon i janúar.
Einn hermaður særöist alvar-
lega i átökum þessum, en ekki
var ljóst hvoru liöinu hann
tilheyröi.
Aögeröir þessar skapa aukin
vandamál ijandinu sem þegar á
við ærna erfiðleika að striða
eftir innanlandsátökin.
Reuter, NTB, Bilbao.— Spænskir
Þjöðvarðliöarskutu i gær til bana
ungan Baska, verkamann, sem
var meðal þátttakenda i alls-
herjarverkfalli i Baskahéruðun-
um á Norður-Spáni i gær.
Verkafólk i héruöunum efndi til
allsherjarverkfalls og kröfu-
gangna, til að mótmæla atburð-
um þeim sem uröu á Spáni i sið-
ustu viku, þegar fjögur ungmenni
voru drepin af lögreglu i Baska-
héruöunum.
Verkamaðurinn, hinn átján ára
gamli Vicente Ferrero, var skot-
inn i höfuðið þegar þjóðvarðliðar
dreifðu hópi tvö þúsund mót-
mælagöngumanna i Bilbao, og
minnkað
Reuter, Paris. — Vinstri flokk-
arnir i frönsku stjórnarandstöð-
unni, og þá sérstaklega Sósial-
istaflokkurinn, unnu greinilegan
sigur i kosningunum til fjármála-
nefnda rikisins á sunnudag.
Útkoma kosninganna, sem eru
þær fyrstu siöan Valery Giscard
d’Estaing tók við embætti fyrir
tveimur árum siðan, er skoðuð
sem greinilegt fylgistap stjórnar-
flokkanna.
Þegar úrslit i flestum héruðum
voru kunn höfðu vinstri flokkarn-
ir hlotið 56.53% atkvæða i þessari
fyrstu atkvæöagreiðslu, en
stjórnarflokkarnir 43%.
Sósialistaflokkurinn vann mest .
á, en hann jók fylgi sitt úr 14.8% i
26.5%.
Spenna er farin að myndast
vegna annarrar atkvæðagreiðslu,
en hún fer fram næstkomandi
sunnudag.
1 meira en niu hundruð af kjör-
lézt hann á sjúkrahúsi skömmu
siöar.
Meira en þrjú hundruðþúsund
Baskar tóku þátt i allsherjar-
verkfallinu i gær og var það um-
fangsmesta verkfall á Spáni síðan
i borgarastyrjöldinni á árunum
1936til 1939. Viða voru verksmiðj-
ur og verzlanir lokaðar og einnig
skrifstofur, skólar og bankar.
Óeiröirnar i Bilbao hófust
skömmu fyrir sólarupprás i gær,
þegar lögreglan réöst inn á
heimili verkfallsleiðtoga og hand-
tók að minnsta kosti sex verka-
menn. Siðar um daginn notaði
þjóðvarölið táragas og gúmmi-
kúlur gegn mótmælagöngumönn-
svæðunum 1.863 náði enginn
frambjóðandi afgerandi meiri-
hluta og verður þvi gengið til
kosninga milli tveggja hæstu i
hverju þeirra.
t þeim kosningum standa vinstri
flokkarnir betur að vigi en
stjórnarflokkarnir, þvi að þeir
kusu frá upphafi að gera kosning-
arnar pólitiskar, og hafa veitt
miklu af kröftum sinum til
þeirra. Stjórnarflokkarnir aftur á
móti sinntu þessum kosningum
ekki verulega, þótt átján af með-
limum stjórnarinnar hafi verið i
framboði.
Áhugi á kosningum til
fjármálanefndanna hefur yfirleitt
verið takmarkaður, þar sem þær
eru ekki mjög afgerandi afl i
þjóðlifinu. Þær koma saman
tvisvará ári til að taka ákvarðan-
ir um það, hvernig opinberu fé
skuli varið til framkvæmda i
héruðunum.
Frakkland:
Fylgi stjórnar-
flokkanna hefur
Stúdentaóeirðir í Tyrklandi
orðnar stærsta vandamálið þar
Reuter, Ankara. — Hægri
sinnaður stúdent var skotinn til
bana og þrir aðrir særðust i
átökum sem brutust út vegna
mótmæla háskólastúdenta i
helztu borgum Tyrklands i gær.
1 borginni Eskisehir hófu
vinstrisinnaðir stúdentar skothrið
Tove Dittl-
evsen látin
Danska skáldkonan Tove
Dittlevsen er látin.
Dittlevsen var mikilhæf og
virt skáldkona, sem hlaut al-
þjóðlega viðurkenningu fyrir
verk sin. Meöal helztu bóka
hennar má nefna „Gift” og
„Gata bernsku minnar.”
Tove Dittlevsen var fimmtiu
og sjö ára gömul.
á hóp hægrisinna og var þá piltur-
inn skotinn til bana.
Ekki er vitað hvað olli skot-
hriðinni, en nú er tala þeirra sem
látið hafa lifið i átökum stúdenta
siðan i nóvember orðin þrjátiu og
einn.
Ofbeldisaðgerðir stúdenta eru
nú orðnar eitt helzt vandamál á
dagskrá tyrkneskra stjórnvalda.
Óeirðirnar i gær náðú til flestra
helstu borga i Tyrklandi og
særðust nokkrir i þeim, þar af
einn alvarlega.
Hélt þrem í gíslingu
í sex klukkustundir
Reuter.Fukui. — Þrir lögreglumenn meiddust nokkuð i gær, þegar
þeir yfirbuguðu iðnverkamann, sem vopnaður var hnifi, i Fukui i
Japan.
Verkamaðurinn, Kikuo Mizushima, ruddist inn i skrifstofu eina,
vopnaður hnifi og hylki með propangasi. Krafðist hann þriggja mill
jóna yean (4.900 sterlingspund) sem hann hugðist nota til að
standa straum af kostnaði við skilnaðarmál sitt.
Maðurinn hélt tveim konum og einum karlmanni i gislingu i sex
klukkustundir, þar til sveit lögreglumanna brauzt inn á skrifstofuna
og yfirbugaði hann.
um, en þegar verkamenn svöruðu
meö múrsteinakasti, hófst skot-
hríð með venjulegum kúlum og
féll þá verkamaðurinn, sem áður
er getiö.
Til átaka kom og viðar i Baska-
héruðunum, meðal annars í bæn-
um Basauri, þar sem lögregla
notaði táragas og kylfur til að
dreifa hópi fimm þúsund manna,
sem röðuðu sér upp meðfram
aðalgötum borgarinnar og hróp-
uðu: „Morðingjar, morðingjar”,
að lögreglunni.
í Viktoria, þar sem fjórir
verkamenn voru drepnir i siðustu
viku, hélt allsherjarverkfalliö
áfram, en það hefur staðið frá þvi
á miðvikudag. Nokkur þúsund
verkamenn tóku þátt i minn-
ingarguðsþjónustu i Dómkirkj-
unni, en hún var haldin vegna
verkamannanna fjögurra, og sér-
staklega vegna þess sem lézt af
sárum sinum á sunnudag.
I bænum Zarauz voru einnig
farnar mótmælagöngur og
sjónarvottar segja, að lögreglan
þar hafi dreift mannfjölda, sem
safnazt hafði saman við kirkju
eina, til að minnast ungmenn-
anna fjögurra.
I San Sebastian reyndu þúsund-
ir manna að stofna til mótmæla-
gangna, en lögregla dréifði hóp-
um þeirra jafnóðum.
Fylgi stjórnarinnar i Frakklandi virðist fara minnkandi og talið er,
að stuðningur verkamanna hafi verið afgerandi i sigri vinstri flokk-
anna þar nú. Myndin er af atvinnulausum verkamönnum.
ÍlllíSHORNA
"Á MILLI
Krefjast aukinnar
verndar
Reuter.IIaag. — Samgöngu-
málaráðherra hollenzku
stjómarinnarTjerk Westerterp,
yfirgaf viðræður á þinginu i
gær, til að hlýöa á umkvartanir
rúmlega þrjú hundruð leigubif-
reiðastjóra, sem lagt höfðu
bifreiðum sinum fyrir utan
bygginguna.
Leigubifreiðastjórarnir voru
að vekja athygli á og mótmæltu
endurteknum árásum farþega á
leigubifreiðastjóra, en sumar
þeirra hafa leitt til dauða
bifreiðastjóranna. Arásir af
þessu tagi hafa færzt mjög i
aukana undanfarið og krefjast
bifreiðastjórarnir aukinnar
verndar lögreglunnar.
Ófyrirsjáanleg og
hættuleg stefna
Reuter.Rabat. — Talsmaður
rikisstjórnar Marokkó, sem á
sunnudag sleit stjórnmálasam-
bandi sinu við Alsir, sagði i gær,
að leiðtogar Alsir hefðu markað
þjóð sinni — ófyrirsjáanlega og
hættulega stefnu.
Sakaði talsmaðurinn Alsir um
það að sjá Polisario-hreyfing-
unni i Vestur-Sahara fyrir vopn-
um, peningum og griðastað.
Sagði hann ennfremur, að
mikill munur væri á stjórn
Alsirs og þjóð landsins, en ef
þjóðin sætti sig við aðgeröir
stjórnvalda sinna, yrði hún
einnig að taka afleiðingum
þeirra.
Stjórnmálaslitin milli land-
anna tveggja marka ný skil i
deilum þeirra um Vest-
ur-Sahara. Sagði talsmaður
Marokkó að stjórn sin hefði sýnt
alla þá stillingu ideilum þessum
sem mögulegt hefði verið, en nú
hefðu viðhorf Alsfrstjórnar
valdið slitum á stjórnmálasam-
bandinu.
Tyrkir halda áfram
oliuleit
Reuter, Ankara. — Tyrkneskt
rannsóknaskip, Hora, mun inn-
an fárra daga halda út á oliu-
svæði það á Eyjahafinu, sem
Tyrkland og Grikkland hafa
deiit um yfirráðarétt á.
Sagði talsmaður tyrkneska
oliufélagsins TPAO, i gær, að
skipið myndi fara þangað til
oliuleitar.
Talið er að sigling skipsins inn
á þessi svæði geti orðið til þess
að deilur landanna tveggja
harðni að nýju. A árinu 1974
sigldi tyrkneskt leitarskip inn á
svæðið, og varð til þess aöherir
rikjanna voru settir i viðbragðs-
stöðu.
Talsmaðurinn neitaði þeim
orðrómi að herskip myndu
fylgja leitarskipinu, en áætlað
er að tyrkneski sjóherinn haldi
æfingar á Eyjahafinu á næstu
dögum og vikum.