Tíminn - 06.05.1976, Blaðsíða 1

Tíminn - 06.05.1976, Blaðsíða 1
Aætlunarstaftir: Blönduós Siglufjörður Búðardalur — Reykhólar Flateyri — Bíldudalur 'Gjögur— Hólmavík Hvammstangi — Stykkis- hólmur — Rif SúgandaT Sjúkra- og leiguflug um 31It land . Símar: 2-60-60 & 3 / 2-60-66 ' J Hagsmunir Islands tryggðir á Hafréttarráðstefnunni: Strandríki ákveði sjálft leyfilegt aflamagn og möguleika sína til veiða — úrskurður þriðja aðila komi ekki til og réttindi landiuktra ríkja nái ekki til svæða þar sem þjóð byggir afkomuna á veiðum A.Þ. Rvík. A fundi sameinaðs þings i gær flutti Einar Ágústs- son utanrlkisráðherra skýrslu sina um utanrlkismál. t ræðu sinni gat utanrikisráðherra þess, að þróun mála á hafréttarfundin- um i New York væri islendingum i hag, og að hagsmunir tslands i endurskoðuðu frumvarpi að haf- réttarsáttmála, sem búizt er við, að lagt verði fram á hafréttar- fundinum I New York i dag eða á morgun, verði tryggðir með tvennum hætti. 1 fyrsta lagi með þvi, að strand- riki ákveði sjálft leyfilegt afla- magn og möguleika sina á að hagnýta það, og úrskurður þriðja aðiia komi þar ekki til. Og i öðru lagi meö þvi, að rétt- indi landfi æöilega afskiptra ríkja nái ekki til þróaðra rikja eða að minnsta kosti ekki til svæða, þar sem þjóö byggir afkomu sína á fiskveiðum. Byggði utanrlkisráðherra þess- ar upplýsingar sinar á skeyti, sem barst frá Hans G. Andersen í New York, en þar sagði enn frem- ur, aö ákvörðun um næsta fund ráðstefnunnar yrði ekki tekin fyrr en á m orgun* fös tudag. Afrikuriki og ýmis rikilöðrum heimshlutum vilja fresta fundum til næsta árs, en sæmilegar likur eru á, aö Genfar-fundur næsta sumar verði ákveðinn, þó að það sé alls ekki öruggt. í dag ,,Föðurlandið" tízkuvara Stór karfi fer minnkandi á íslandsmiðum ^ o Einar Ágústsson utanríkisráðherra: Brottsigling togaranna vottur um erfiðleika Breta á íslandsmiðum BREZKU TOGARARN IR SNERU AFTUR OÓ-Reykjavik. — Fréttin um brottsiglingu brezku togaranna kom mér á óvart, en ég trúöi aldrei staðfastlega að um uppgjöf af hálfu Breta væri að ræða, sagöi Einar Agústsson utanrlkisráö- herra I gær, er Tlminn spurði hann um álit á tiltæki brezku tog- araskipst jóranna. Ég tel, sagöi ráðherrann, að með þessu vildu skipstjórarnir herða á kröfum sinum um aukna hervernd við veiðamar og aukna styrki. En mér sýnist brottsigl- ingin vera vottur um erfiðleika þessarar útgerðar, að veiða undir herskipavernd i islenzkri land- helgi, og verða fyrir sifelldum truflunum af hálfu islenzku varð- skipanna. Þótt togararnir séu á leið inn i fiskveiðilögsöguna aftur hef ég engin tök á að m eta hvað úr þessu verður idag. Við verðum aö biða eftir aö sjá hverju fram vindur, og sjá hvaða ákvaröanir brezk stjórnvöld og togaramenn taka. Einar var spurður um þau um- mæli Roy Hattersleys, aðstoðar- utanrikisráðherra, sem hann við- hafði i brezka útvarpinu á þriðju- dagskvöld, að brezka stjórnin hafi sent islenzku rikisstjórninni fimm eða sex tilboð um samn- ingaviðræður i siðustu viku. Ein- ar Agústsson svaraði þvi til, aö hann kannaðist ekkert viö slfk til- boð, eöa hvað fyrir Hattersley vekti með þvi að vera að skýra frá að þau hafi verið send. Þá sagðist ráðherrann ekkert geta sagt um fund þeirra Hattersleys og Frydenlunds, forsætisráð- herra Noregs, er þeir áttu fyrir skömmu I London, en þar bar meðal annars fiskveiðideilu Is- lendinga og Breta á góma. Gsal-Reykjavik — Brezku togar- arnir, sem héldu út fyrir 200 milna landhelgismörkin í fyrri- nótt, sneru við i gær. Togararnir, sem voru fimmtán aö tölu, fengu fyrirskipanir um það i gærdag frá útgerðarfyrirtækjum sinum, að halda aftur á miðin viö ísland og biöa þar átekta eftir ákvörðunum brezku rikisstjórnarinnar, sem þeim hefurverið lofað á föstudag. Mörgum togaraskipstjórum var óljúft aö verða við þessari beiðni, og sumir þeirra neituðu i fyrstu að verða við henni, og sögðust myndu láta reka á miðunum við Færeyjar, þar til ljóst yrði i hverju ráöstafanir brezku rikis- stjórnarinnar þeim til handa væru fólgnar. Otgerðarfélögin kröfðust þess þá, aö þeir héldu á Islandsmið og létu reka þar, þangað til á föstudag. Samkvæmt upplýsingum Land- helgisgæzlunnar i gærkvöldi voru 6 togarar komnir að miðlinunni milliFæreyja og Islandsumkl. 19 i gærkvöldi, en samkvæmt er- lendum fréttum munu allir brezku togararnir, fimmtán að tölu, verða komnir á miöin áður en dagur rennur. Gunnar Ólafsson, skipherra, sem starfar i stjórnstöð Land- helgisgæzlunnar, sagði i gærdag, aö tveir brezkir togarar hefðu ekki fylgt togaraflotanum út fyrir 200miluroghafiðveiðar igærdag á miðunum við Island. Gunnar sagði, að freigáturnar fjórar, sem urðu eftir á miðunum er togara- flotinn sigldi brott, svo og tveir dráttarbátar, hefðu lofað skip- stjórunum á þessum tveimur tog- urum nægri vernd viö veiðar! Geirfinnsmálið: Nýjar og óvæntar upplýsingar? Gsal-Reykjavik — Miklar yfir- heyrslurhafa farið fram siðustu daga yfir gæziuvarðhaidsföng- um, sem grunaðir eru um hlut- deiid i hvarfi Geirfinns Einars- sonar úr Keflavik. Timinn hafði i gærkvöldi samband við örn Höskuidsson, sakadómara, sem stjórnar rannsókn málsins, þar sem hann var við yfirheyrslur i fangelsinu I Siðumúla. Timinn innti örn Höskuldsson eftir þvl hvort rétt væri að málið hefði tekið nýja stefnu vegna nýrra upplýsinga, sem fram hafa komið, og hvort rétt væri að fleiri gæzluvarðhaldsúr- skurðir hefðu verið kveðnir upp, þar á meðai yfir sambýliskonu Sævars M. Ciesielski, sem frain til þessa hefur verið aðalvitnið i málinu. örn Höskyldsson neitaði að svara spurningum blaðsins, en sagði að hann stjórnaði rann- sókn málsins, en ekki dagbiöðin og myndi hann aðeins hafa skriflegt samband við fjölmiðla þegar hann teldi rétt að greina frá einhverjum atriðum rann- sóknarinnar.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.